Morgunblaðið - 11.06.1981, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981
+ Móöir mín og tengdamóöir, JENNÝ GUDRUN GUÐJÓNSDÓTTIR frá Kárastöðum, síöast til heimilis aö Tunguvegi 8, andaöist í Borgarspítalanum 8. júní. Jenný Ólafsdóttir, Ragnar Zophaníasson.
+ Eiginmaöur minn og faöir okkar, BJARNI KOLBEINSSON, Míklubraut 13, andaöist 9. júní í Hátúni 12. Ingibjörg Guðmundsdóttir og börn.
+ VIGGÓ BJERG lézt 9. júní í Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Vinir hins látna.
+ Eiginmaður minn, HÁLFDÁN HANNIBALSSON, fyrrverandi bóndi á Hnausum, sem lést 9. júní, veröur jarðsettur 13. júní kl. 2 e.h. Salome Björnsdóttir, Búð Arnarstapa.
+ Hjónin ELÍSABET JÓNSDÓTTIR og ODDURJÓNASSON, forstjóri, Reynimel 35, veröa jarösungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 12. júní kl. 1.30. Jarösett veröur í kirkjugaröinum viö Suöurgötu. Gyða Jónsdóttir, Guðrún Jónasdóttir, Magnús Jónsson, Gyða Jónasdóttir, Óskar Jónsson.
+ Útför fööur okkar, stjúpföður og afa, ALBERTS B.J. ALEN frá Eskifirði, fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 12. júní kl. 3 e.h. Baldvin E. Albertsson, stjúpbörn og barnabörn.
+ Eiginkona mín, ' KRISTÍN SIGURDARDÓTTIR frá Skógarnesi, sem lést 7. júní, veröur jarösungin frá Miklaholtskirkju laugardag- inn 13. júní kl. 2. Kristján Kristjánsson.
+ Þökkum af alhug þeim sem auösýndu okkur samúö og vinarhug og veittu okkur ómetanlega aöstoö viö andlát og jaröarför eiginkonu minnar, SIGURJÓNU PÁLSDÓTTUR FRÍMANN, Ásvegi 22, Akureyri. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Jóhann Frímann.
Lokað
verður föstudaginn 12. júní vegna jaröarfarar
ODDSJÓNASSONAR
OG ELÍSABETAR JÓNSDÓTTUR.
Eflalaugin Glæsir.
Ingimundur Vigfús
Sigurjónsson - Minning
Kveðja írá FimleikafélaKÍ
Ilafnarfjarðar.
Óljósar fréttir um að Ingimund-
ur Vigfús Sigurjónsson, fyrrv.
skipstjóri, hefði drukknað í sund-
laug suður á Spáni, settu ugg að
okkur eldri FH-ingum, því ef rétt
væri, var með Ingimundi fallinn í
valinn einn af beztu, svipmestu og
fimustu íþróttamönnum fyrri ára
FH. Sorgarfregnin reyndist á rök-
um reist og því kveðjum við góðan
og tryggan vin í dag.
Ingimundur var sonur þeirra
kunnu Hafnfirðinga, Sigurjóns
Jónssonar, skipstjóra og Ingi-
bjargar Magnúsdóttur, er lengi
bjuggu að Hverfisgötu 55, en eru
nú bæði látin.
Ingimundur var ókvæntur, en
bjó hjá systur sinni Svanhvíti og
manni hennar Þorvarði S. Guð-
mundssyni, að Suðurgötu 77 hér í
Hafnarfirði.
Ingimundur eða „Mundi á Hól“,
eins og hann var oftast nefndur,
var einn þeirra „Hólsbræðra", sem
settu hvað mestan svip á íþrótta-
starfið í FH á fæðingarárum
félagsins fyrir rúmum 50 árum.
Með eldri bræðrum sínum
kynntist Mundi því fljótt fimleik-
um og töfrum þeirra, er hann
ásamt Haraldi bróður sínum, sem
var einu ári eldri, og því ávallt að
passa litla bróður, fór niður í
fimleikahús, til að horfa á æfingar
hjá fimleikaflokki FH, en þar voru
t
Faöir okkar, tengdafaöir og afi,
OLGEIR GUNNAR GUOJÓNSSON,
andaöist 31. maí aö Vífilsstööum. Jaröarförin hefur fariö fram í
kyrrþey aö ósk hins látna.
Gunnar Olgeirsson, Emilia Jóhannesdóttir,
Hilmar Olgeirsson, Erla Jensdóttir,
Sóley Olgeirsdóttir, Gunnar Sigurjónsson.
og barnabörn.
t
Maöurinn minn og faöir okkar,
BJARNI P. SIGURÐSSON,
Uppsalavegi 3,
Sandgeröi,
veröur jarösunginn frá Hvalsneskirkju föstudaginn 12. júní kl. 14.00.
Unnur Ósk Valdimarsdóttir,
Guðbjörg Bjarnadóttir, Jóna Guörún Bjarnadóttir.
t
Eiginmaöur minn og bróðir,
BJARNI GÍSLASON,
fyrrum stöövarstjóri,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 12. júní kl. 3 e.h.
Guðný Gestsdóttir,
Jóhanna Gísladóttir.
+
Faöir okkar og afi,
EINAR E. GUDMUNDSSON,
bifreiðastjóri,
Rauðalæk 38,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. júní kl.
1.30. Blóm og kransar vinsamlegast afbeðin en þeim sem vildu
minnast hins látna er bent á Öryrkjabandalagiö eöa aörar
góðgerðarstofnanir.
Gunnar G. Einarsson,
Guðleifur Einarsson,
Gústaf Þ. Einarsson,
Magnús Einarsson,
Þorgerður Einarsdóttir.
+
Hjartans þakkir til allra þeirra er auösýndu okkur hlýhug og vináttu
og fyrir alla veitta aöstoð vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
ÓLAFS PÁLMA ERLENDSSONAR.
Guö blessi ykkur öll.
Dagmar Gunnlaugsdóttir,
Guörún Ó. Regan, James Regan,
Vilhelmína Ólafsdóttir, Albert Sígurösson,
Eyjólfur Ólafsson, Guöný Karlsdóttir,
Olafur Valur Ólafsson,
og barnabörn.
eldri bræðurnir, Guðjón, Sigurður
og Eiríkur vel liðtækir.
Fimleikaflokkurinn var að
mörgu leyti „uppeldisstöð" ungra
FH-inga þeirra tíma, en þar urðu
drengirnir fyrir áhrifum þeirra
„Hólsbræðra", Gísla Gunn-
bræðra, Gamalielsbræðra, Eiðs-
bræðra, Grófarbræðra og Jó-
hanns-bræðra, en allt voru þetta
frábærir leikfimi- og íþróttamenn
og margir hverjir rómaðir um
land allt fyrir leikni sína á rá,
dýnu og stökkum á hesti.
Frá fimleikum fluttist áhugi
Munda, sem annarra jafnaldra
hans, til stundunar frjálsíþrótta,
handknattleiks, sunds og knatt-
spyrnu. I öllum þessum fylkingum
voru það „Hólsbræðurnir" sem
gáfu tóninn hver á sínu sviði.
Guðjón var sá er allt gat gert bezt
og því fyrirmyndin, Sigurður var
laginn og skipuleggjari góður,
Eiríkur kraftmikill og kjarkinn
vantaði aldrei, Haraldur hafði
dugnaðinn og seigluna. Yngsti
bróðirinn „hann Mundi á Hól“ réði
yfir frábærum léttleika, yfirvegun
og marksækni.
Þannig var Mundi þegar sem
drengur, litríkur og bráðefnilegur
íþróttamaður, er hafði óefað hæfi-
leika til að verða keppnisafreks-
maður í þeirri íþróttagrein, sem
hann hefði valið sér, t.d. knatt-
spyrnu.
En tíðarandinn var ekki sá sami
og nú og sjórinn lokkaði hann. Að
vera sjómaður og keppnismaður í
íþróttum gat ekki farið saman.
Þrátt fyrir það náði Mundi að
vinna til nokkurra verðlauna áður
en hann gaf sig alveg að sjónum,
varð m.a. íslandsmeistari í stang-
arstökki, auk annarra verðlauna í
frjálsíþróttum.
I Knattspyrnumóti Hafnar-
fjarðar og í RAFHA-keppninni
varð „Mundi" oftar en flestir til að
eiga hvað mestan þátt í því að
innsigla sigur FH yfir Haukum og
þá ávallt á sinn sérstæða hátt. Um
1940 léku „Hólsbræðurnir" fimm í
meistaraflokki FH og auk þess
mágur þeirra, Gísli Hildibrands-
son. Er enginn vafi á að íþrótta-
legur frami þessara manna, starf
þeirra og fjölskyldu þeirra var
giftudrýgra en margir kunna frá
að segja eða skilja, og mun seint
gleymast þeim sem til þekktu.
Leikvangur Lækjarskólans var
athvarf ungra FH-inga í þá daga
öðrum stöðum fremur og var
heimili þeirra bræðra tímunum
saman allt undirlagt. Margir leik-
bræðranna áttu langt heim að
sækja í mat og drykk, en þeir voru
ekki látnir bíða svangir. Þetta
virkaði allt eins og ein fjölskylda.
Það var því oft margt i mat og
kaffi hjá Ingibjörgu húsfreyju að
Hverfisgötu 55.
FH hefur verið blessunarlega
lánsamt að eiga á hverjum tíma
fjölskyldur, sem tekið hafa „tón-
inn“ upp frá „Hólsbræðrafjöl-
skyldunni", og dásamlegt til þess
að vita að þessi fjölskyldueining
er enn við lýði í FH og jafnframt
ef til vill sterkasti og traustasti
félagslegi þáttur félagsins. Megi
hinum yngri kynslóðum, sem eru
að taka við félaginu, auðnast að
viðhalda hinum fornu dyggðum,
vináttu og tryggðarböndum, sem
óvefengjanlega má rekja til
flestra hinna eldri FH-inga.
„Mundi á Hól“ var einn þeirra
sem hvarf aldrei á braut frá
félaginu. Þrátt fyrir það að hann
yrði að leggja íþróttirnar á hill-
una, hætti hann ekki að fylgjast
með starfi félagsins. Meðan hann
var á sjónum var hugurinn allur
hjá „FH“ og þegar hann vissi að
þeir væru að keppa og eftir að
hann hætti á sjónum og hóf að
vinna í landi, voru það ekki margir
leikir, sem ekki var farið að horfa
á, ef FH var annars vegar, og
skipti þá litlu hvort yngri eða eldri
flokkar félagsins áttu í hlut.
Stjórn FH flytur öllum ættingj-
um Ingimundar V. Sigurjónssonar
innilegustu samúðarkveðjur um
leið og hún vonar, að hin órjúfan-
lega tryggð megi haldast í fram-
tíðinni sem hingað til milli FH og
ættingja Ingimundar V. Sigur-
jónssonar. Óskum við hinum látna
fararheill til hins ókunna, og
ættingjum hans huggunar í sorg
þeirra.