Morgunblaðið - 11.06.1981, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981
13
Athugasemd
- frá stjórn Kennarafélags Reykjaness
Sumarbúðir fyrir stúlk-
ur og drengi i Skálaf elli
Vegna greinar Helga Jónasson-
ar fræðslustjóra í Morgunblaðinu
6. júní sl. vill stjórn Kennarafé-
lags Reykjaness að eftirfarandi
kom fram. í fyrsta lagi þá teljum
við túlkun á aldursafslætti kenn-
ara ekki rétta samkvæmt okkar
samningum.
I öðru lagi lítum við svo á að
vinnuskýrsla kennara sé ráðn-
ingarsamningur hans frá hausti
til vors og að fræðsluskrifstofan
geti ekki tekið það upp hjá sér að
breyta henni. Réttur kennarans
verður að vera sá aö samningur
hans gildi fyrir viðkomandi skóia-
ár.
Sum atriði í okkar samningum
velkjast á milli ríkis og sveitarfé-
laga, svo sem mötuneytismál og
seta kennarafulltrúa á skóla-
nefndarfundum, þrátt fyrir að
Helgi telji að fjármálaleg sam-
skipti ríkis og sveitarfélaga varð-
andi rekstrarkostnað grunnskóla
séu komin í viðunandi horf.
Við sem stjórn stéttarfélags
reynum að standa með okkar
félagsmönnum og kröfum þeirra
um rétta samninga þeim til
handa. Helgi gerir mikið veður út
af því að stjórnin hafi ekki haft
samband við hann út af þessum
málum.
Við í stjórn Kennarafélags
Reykjaness erum með bréf sem
Frá lögreglunni:
Vitni
vantar að
ákeyrslum
Slysarannsóknadeild lög-
reglunnar í Reykjavík hefur
beóið Morgunblaðið að auglýsa
eftir vitnum að eftirtöldum
ákeyrslum í borginni. Simi
deiidarinnar er 10200:
Mánudaginn 1. júní var tilkynnt
að ekið hefði verið á bifr. R-47665,
sem er Volkswagen fólksbifr.
græn að lit á stæði merkt hjóla-
stólafötluðum við Hátún 12 Rvík.
Átti sér stað frá því miðvikudag-
inn 27. maí og fram til 1. júní kl.
15.30.
Mánudaginn 1. júní var ekið á
bifr. R-6179 sem er Toyota fólks-
bifr. bakatil við Dómus, Laugavegi
91. Átti sér stað frá kl. 08.10 til
11.00.
Mánudaginn 1. júní sl. var ekið
á bifr. R-14404 sem er Ford
vörubifreið frá Coca Cola við hús
nr. 10 við Suðurlandsbraut. Átti
sér stað frá kl. 13.25 til 13.35.
Tjónvaldur gæti verið Mercedes
Bens 17 manna, drapplituð.
Sérstætt
reiðhjól
tapað
UM MIÐJAN síðasta mánuð hvarf
reiðhjól frá Eyjabakka 1 í Breið-
holti og hefur það ekki fundist
síðan. Reiðhjólið sem er í eigu 9
ára gamals drengs er mjög sér-
stætt að útliti, bandarískt af
tegundinni HUFLY. Það er grátt
með svörtu stýri, ílöngu sæti og
með einum dempara og torfæru-
dekkjum. Má segja að hjólið sé
eins og líking af torfæruaksturs-
hjóli. Eru foreldrar og börn á
svæðinu beðin um að svipast um
eftir hjóli drengsins, sem einhver
hefur freistast til þess að þeysa á
og gefa upplýsingar vinsamlegast
í síma 74001.
okkur hafa borist um mál félags-
manna. Þessi mál hafa farið í
gegnum fræðsluskrifstofu Reykja-
ness, en að mati félagsmanna
okkar ekki hlotið viðunandi af-
greiðslu og ættu því ekki að vera
Helga ókunn. Umrædd auglýsing
var því birt til að fá öll sams
konar mál inn í einu svo að
auðveldara væri að taka þau til
athugunar.
Það hlýtur að vera skylda hvers
stéttarfélags að standa vörð um
rétt sinna félagsmanna. Stjórnin
reynir því að reka mál þeirra ef til
hennar er leitað.
Um það að kennarar hafi seint
leitað til stjórnarinnar þá var
trúnaðarmannanámskeið á vegum
Kennarasambands íslands um
miðjan april og þar komu fram
ýmis kjaramál, sem full ástæða
var til að taka til nánari athugun-
ar.
Stjórn Kennarafélags
Reyjaness.
KR-INGAR hafa nú ákveðið að
nýta skíðaskálann i Skálafelli
fyrir sumarbúðastarfsemi i
sumar. Skálinn er mjög vel búinn
og landið i kring ákjósanlegt
fyrir hvers konar iþróttir og
leiki. Fyrirhugað er að halda 3
námskeið fyrir drengi og stúlkur
7—12 ára sem dvelji þar uppfrá í
12 daga.
Leiðbeiningar verða i knatt-
spyrnu, hástökki langstökki,
spjótkasti svo eitthvað sé nefnt.
Farið verður í reiðtúra frá Lax-
nesi að Tröllafossi og víðar um,
sundlaugarferðir að Varmá og
skoðunarferðir m.a. til Þingvalla.
Á kvöldin verða svo bíósýningar
og kvöldvökur. Námskeiðin eru
öllum opin. Upplýsingar eru veitt-
ar í KR-heimilinu og síma Skála-
fells eftir 15. júní.
Kynntu þér
betur
Kyrr-r hæg- og hraðmynd —
3 glimrandi nýjungar frá Grundig.
Nú ræður þú sjálfur ferðinni og
getur sýnt myndina 3s var sinnum hægar
til að fylgjast betur með framvindunni
og stöðvað hana (á punktinum, ekkert
hopp) ef þú vilt skoða eitthvert atvik
nákvæmlega.
Einnig getur þú sýnt á 3svar sinnum
meiri hraða ef þú vilt renna hratt yfir
ákveðin myndskeið eða ná fram
sérstökum áhrifum.
8 stunda kassetta — Tvöfalt lengri
á helmingi lægra verði pr. klst.
Video2x4 plus ermeð
kassettu sem hægt er að snúa við og
gefur þá 2x4 klst. alls. Ekki nóg með
það, heldur er hún einnig mun ódýrari
pr. klst. Munurinn nemur allt að
helmingi.
APF — Sjálfvirkur myndleitari og
minnistölva. Þú f innur efnið
á methraða.
Hann stoppar alltaf sjálfvirkt,
við leit, þar sem upptökuskil eru og
bregður upp kyrrmynd á skjáinn af
stöðunni. Þú getur einnig stillt
ákveðinn stað á spólunni inn á minni
(memory) og fundið hann aftur á
augabragði.
Video 2X4 plus hefur 2umspólunar-
hraða. DNS- þéttir útilokar truflanir
og eykur tónsvið og gæði.
Á hærra stiginu er hægt að
umspóla 2x4 stunda kassettu á aðeins
105 sek. Bandið er alltaf þrætt í
stýringuna til að auðvelda alla leit.
tækið
okkar!
Forriti fyrir 10 daga upptökutímabil.
Þú ræður dagskránni sjálfur.
Þú ert kannski víðs f jarri, í
vinnu, sumarfríi eða lúrir bara á þínu
græna á meðan GRUNDIG mynd-
segulbandið þitt tekur sjálfvirkt upp 4
útsendingar á 10 dögum. Þú skoðar
efnið þegar þér hentar.
Fullkomin rafeindastýring —
Tækið sér við mannlegum
mistökum.
Reimalaus fullkomin
rafeindastýring tryggir eins einfalda
notkun og værirðu að stjóma
plötuspilara. Intermix Electronic rafrás
útilokar að rangar stillingar og
óvitaskapur geti skaðað tækið.
Nokkrir aukapunktar um
Grundig video 2X4 plus.
Video2x4 plus erbúið
skerpustillingu fyrir mynd. Það hefur
alsjálfvirkan stöðvaveljara. Mynd og
tóngæði eru eins og best verður á kosið.
Síðast en ekki síst:
Kjörin eru fyrir alla.
Júnítilboðsverð á GRUNDIG 2X4
plus myndsegulbandi (ásamt einni
átekinni kassettu) er: 21.900 kr.
Skilmálar sem allir ráða við: 5.000 kr.
út og eftirstöðvar á 7—10 mánuðum.
VIDEO
2000
Laugavegi 10 Sími: 27788
Þvíbetur
sem þú kynnir þér
myndsegulbönd
því hrif nari verðurðu af
Grundig 2x4 plus.