Morgunblaðið - 11.06.1981, Page 17

Morgunblaðið - 11.06.1981, Page 17
'MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1981 J 7 r Atlantshafið Flugkeppnin yfir Atlantshafið Flugkeppnin yfir Atlantshafið Flugkeppnin yfir Atlantshafið Elzta flugvélin reyndist vel þótt hæggeng sé „ÞETTA hefur gengið eins og í sögu, og flugvélin reynst vel, eins og við var að búast, þrátt fyrir að hraðinn sé ekki mikill,“ sagði Paul Dague flugmaður á elztu flugvélinni í Atlantshafsflugkeppninni er hann lenti á Reykjavíkurflugvelli klukkan hálfþrjú aðfaranótt sunnudags. Flugvélin er af gerðinni De Havilland Dragon Rapide, smíðuð árið 1937 og því 44 ára. Flugfélag íslands átti tvær flugvélar af þessari gerð á árunum 1944—1950. Franska flugvélin var máluð í Ijósum litum, glæsileg á að líta og greinilega vel við haldið. Trégrind er í skrokk hennar og vængjum og er hún klædd með dúk. „Við erum búnir að vera rúmar 13 klukkustundir frá París, höfðum viðkomu á Stornoway til að taka eldsneyti," sgði Dague, sem er atvinnuflugmaður. Hann sagði þá félaga ætla að fá sér tveggja tíma blund áður en þeir héldu áfram, en næsti áfangastaður var Narssarssuaq. Rapidinn varð að fljúga blindflug síðasta spölinn, en hann var til þess búinn góðum tækjum, eins og reyndar allar aðrar flugvélar í keppninni. Fengu þeir Dague og Salis á sig ísingu á leiðinni til landsins, einkum við Skotland, en ísinn varð þó ekki til trafala. Þegar Morgunblaðsmenn voru að grennslast fyrir um ferðir flugvélarinnr í gær, kom í ljós, að hún náði til New York seint á mánudagskvöld, eftir samtals 65 klst. og 10 mínútna flug frá París, en til samanburðar má geta, að nokkrar einshreyfilseinkaflugvélar flugu á og um 17 klukkustundum í einum áfanga frá New York til Parísar í gær. De Havilland Dragon Rapide rennir í hlað á Reykjavíkurflugvelli á leið sinni vestur um haf. Rapidinn er elzta vélin i keppninni. 44 ára. Tvær flugvélar af þessari gerð voru í eigu Flugfélags tslands 1945 til 1950, TF-ISO og TF-ISM. Franskar stúlkur fyrstar til Islands urflugvelli í Atlantshafs- flugkeppninni, klukkan 21.30 á laugardagskvöldið. I>ær flugu hingað í einum áfanga frá París og voru tíu klukkustundir á leiðinni. „Þetta hefur gengið alveg ágæt- lega, fengum ísingu að vísu við Skotland og slitnaði loftnet þá niður. Héðan höldum við í einum áfanga til Goose Bay og vonumst til að vera í Bridgeport síðdegis á sunnudag." Nicole sagði þær stöllur útlærða atvinnuflugmenn og eru þær flug- kennarar að atvinnu. Sin á milli hafa þær rúmar fimm þúsund flugstundir, en þetta er þó í fyrsta skipti sem þær fljúga yfir Atl- antshafið. Þær eru báðar við þrítugt. Það var mikill keppnishugur í þeim stöllum, ætluðu sér að vinna. Þær voru vart lentar þegar að- stoðarmenn tóku til við að laga loftnetið á farkosti þeirra og gera flugvélina ferðbúna fyrir áfram- haldið. I þeim hópi var faðir Nicole, en hann er eigandi flugvél- arinnar sem er af gerðinni Part- enavia Victor. „Það er nóg við að vera. Við fylgjumst með hvernig okkur mið- ar áfram, hvort okkur rekur af leið og gerum þá viðeigandi ráð- stafanir. Við skiptumst á að fljúga, spjöilum saman um heima og geima, og jafnvel fáum okkur hænublund til skiptis," sagði Nic- ole. Þegar þær Nicole og Helene komu til Reykjavíkur á austurleið- inni í gær, þriðjudag, hafði allt gengið að óskum, en nú stönzuðu þær enn skemur en fyrr. Aðstoð- armaður þeirra, faðir Nicole, hafði gengið frá öllum pappírum, gert flugáætlun, greitt lendingargjöld og eldsneyti, látið útbúa fyrir þær örlítinn skrínukost, o.þ.h. „Við verðum heima um kvöld- mat. Það verður stórkostlegt að koma heim aftur, en þetta hefur samt verið skemmtilegur og eftir- minnilegur sprettur. Það væri gaman að taka aftur þátt í keppni af þessu tagi,“ sagði Helene við komuna til Reykjavíkur í gær- morgun. Alls tók flug þeirra fram og aftur yfir Altantshafið tæpar 50 klukkustundir. „ÞETTA or keppni, þetta er keppni ok við höfum ekki of mikinn tíma fyrir blaða- menn,“ sagði franska stúlk- an Nicole Duval er við gripum hana og vinkonu hennar, Helenu Frankel- Lacour, rétt eftir að þær lentu fyrstar á Reykjavík- Frönsku flugkonurnar ræðast við á Reykjavíkurflugvelli á vesturleiðinni, (f.v.) Nicole Duval og Helene Frankel-Lacour. Haldið austur á bóginn frá Reykjavík. Myndina tók Kristján Ginarsson skömmu eftir að stúlkurnar hófu sig til flugs af Reykjavikurvelli á austurleið á þriðjudagsmorgun. Nicole Duval setur smurolíu á annan hreyfil flugvélarinnar. Nauðlending Þeir voru hressir í bragði Fransmennirnir Louis Dubost og Jean Paul Durano er þeir stigu út úr Skyhawk-flugvélinni sinni við komuna til Reykjavíkur frá Prestwiek á sunnudag. eftir tæplega 14 klukkustunda flug frá Frakklandi. Flugið hingað gekk svo til áfallalaust. fengu að vísu á sig örlitla isingu sem sleit niður eitt loftnet hjá þeim, en það sama gerðist á mörgum öðrum flugvélum. Við komuna til Reykjavíkur hefur þá sjálfsagt ekki rennt grun í að þeir a*ttu eftir að lenda í erfiðleikum við Grænland. því á mánudag gerðu þeir árangurslausar tilraunir til að lenda í Narssarssuaq. Urðu þeir frá að hverfa vegna veðurs. Þá leituðu þeir norður á bóginn. ætluðu til Syðri Straumfjarð- ar, en flugið endaði með því að þeir lentu á lítilli flughraut laxveiðimanna í Paradísarfirði. sem er á milli Narssarssuaq og Syðri Straumfjarðar. Af þessum sökum hafa þeir nú verið da'mdir í siðasta sa‘ti í keppninni. og þrátt fyrir mótlætið héldu þeir áfram til New York um Frobisher og Gwjse Bay í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.