Morgunblaðið - 11.06.1981, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981
Úr versluninni Ýli.
Verzlunin Ýlir opn-
ar á ný á Dalvík
Góður árangur í alþjóðlegri hjólakeppni:
Tveir Islendingar
í verðlaunasætum
Dalvik. 9. júní.
I>ANN 29. maí var verslunin Ýlir
h/í á Dalvík opnuð að nýju eftir
nokkrar breytin«ar. Verslunin er
i sama húsnæði að Hafnarhraut á
Dalvík. FyrirhuKað er að breyta
nokkuð um vöruúrval, m.a. verð-
ur verslað með hlóm ok gjafavör-
ur, áhöld til stangaveiði,
Ijósmyndavörur og ýmiss konar
sportvörur.
Anægja virðist vera hjá Dalvík-
ingum með blómaverslunina, því
að sögn eigenda hefur þessa fyrstu
daga verslunarinnar verið mikii
sala á blómum, bæði afskornum
og pottablómum. Hingað til hafa
Dalvíkingar og nærsveitamenn
þurft að fara til Akureyrar að
kaupa blóm. Það er von eigenda að
með verslun þessari geti skapast
fjölbreyttari verslunarvörur á
Dalvík.
Ýlir h/f hefur einnig starfrækt
saumastofu og var framleiddur
fatnaður úr mokkaskinni. Veitti
fyrirtækið um 10 konum atvinnu
við saumaskap þegar best lét en
nú hefur fyrirtækið orðið að hætta
starfsemi vegna óhagstæðra
rekstrarskilyrða. Vonir standa þó
til að hefja megi aftur starfsemi á
saumastofunni nú í haust.
Fréttaritarar.
UM SVIPAÐ leyti og hjólreiða-
keppni til styrktar fötluðum fór
fram í Reykjavík dvöldu nokkrir
fslendingar í Osló sem þátttakend-
ur í 6. alþjóðlegu vélhjólakeppninni
og 19. alþjóðlegu reiðhjólakeppn-
inni. Sem fyrr er mót þetta haldið á
vegum PRI — alþjóðlegra samtaka
umferðarráða — en mótshaldari
var að þessu sinni norska umferð-
arráðið TRYGG TRAFIKK. bátt-
takendur voru frá Austur- og
Vcstur-Evrópu og Afríku, samtals
frá 20 þjóðum.
Frá hverju landi mættu tveir
þátttakendur i hvorri keppni þ.e. í
vélhjólakeppni og reiðhjólakeppni.
Keppnin var þrískipt, fyrst var
þreytt skriflegt próf, síðan keppt í
góðakstri og loks hjólaþrautum og
torfærukeppni vélhjóla.
Þeir Helgi Sigurðsson frá Selfossi
og Sigurður Guðmundsson úr Kópa-
vogi kepptu fyrir Islands hönd í
vélhjólakeppninni og varð Island í 8.
sæti sveitarkeppninnar. Hins vegar
varð Helgi í öðru sæti einstaklings-
keppninnar með 470 stig, en piltur
frá Ungverjalandi sigraði, hlaut 474
stig. Keppendur voru samtals 32 og
var þetta því mjög góður árangur
hjá Heiga.
Reiðhjólapiltarnir, þeir Ólafur E.
Jóhannsson, Garöaskóla, Garðabæ
og Þórarinn Örn Sævarsson, Árbæj-
arskóla, Reykjavík, stóðu sig einnig
prýðisvel, en þeir urðu í 14. sæti
sveitarkeppninnar. I verklega þætti
FÉLÖG fslendinga í Kaupmanna-
höfn hafa lagt drög að framtíð-
arskipulagi starfsemi Húss Jóns
Sigurðssonar og nýtingu þess, en
tíu ár eru nú liðin frá því að það
tók til starfa. Segir í frétt frá
félögunum að reynslan hafi sýnt
keppninnar, góðakstri og hjólreiða-
þrautum skaraði Ólafur framúr og
hlaut að verðlaunum sérstakan bik-
ar sem stórfyrirtækið „3M“ (sem
m.a. framleiðir endurskinsmerki)
gaf til keppninnar, og er þetta í
fyrsta skipti sem verðlaun af þessu
tagi eru afhent.
' Allir islensku keppendurnir tóku
þátt í forkeppni hérlendis, véihjóla-
piltarnir í keppni sem BFÖ (Bind-
indisfélag ökumanna), Umferðarráð
og Æskulýðsráð ríkisins stóðu fyrir.
að húsið hafi sívaxandi félagslegu
hlutverki að gegna meðal Islend-
inga i borginni.
I drögum að framtíðarskipulagi
hússins er gert ráð fyrir skipulegri
ráðgjafarþjónustu við íslendinga á
Kaupmannahafnarsvæðinu. Rúm-
Reiðhjólapiltarnir, Ólafur og Þórar-
inn, urðu sigurvegarar í hjólakeppni
grunnskóla, sem fór fram sl. haust á
vegum menntamálaráðuneytis, lög-
reglu og Umferðarráðs.
Undirbúning ferðar, þjálfun og
fararstjórn önnuðust þau Sigrún
Ólafsdóttir lögregluþjónn í Kópavogi
og Guðmundur Þorsteinsson náms-
stjóri umferðarfræðslunnar. Enn-
fremur veittu aðstoð Baldvin Ottós-
son varðstjóri og Sumarliði Guð-
björnsson lögregluþjónn.
lega 2000 íslendingar eru búsettir á
þessu svæði og á sumrin bætist við
ferða- og sumardvalarfólk. í frétt
frá félögum íslendinga í Kaup-
mannahöfn segir m.a.:
„Til stuðnings þessu fólki í mál-
um, sem upp kunna að koma, er það
dvelst í þjóðfélagi, sem er því
framandi á ýmsan hátt, álíta félög-
in nauðsynlegt, að til sé aðili, sem
greitt getur götu þess. Hér má
nefna sem dæmi leiöbeiningar til
fólks, er kemur til Kaupmanna-
hafnar í fyrsta sinn, hvað varðar
danska félagsmála-, atvinnu- og
skattalöggjöf. Einnig persónulegan
stuðning við einstaklinga, sem ein-
angrast hafa félagslega eða eiga
slíkt á hættu af t.d. tungumála-
ástæðum eða vegna breyttrar at-
vinnustöðu, annaðhvort vegna at-
vinnuleysis- eða eftirlauna. Þá væri
æskilegt að útbúa upplýsingaefni,
sem gerði fólki, er hygðist fara
utan, kleift að gera sér raunsæja
grein fyrir aðstæðum ytra.“
Þá segir einnig að vísir að þessari
þjónustu hafi orðið til sl. sumar og
hafi hópur sjálfboðaliða staðið fyrir
henni. Reynslan hafi sýnt að þörfin
sé fyrir hendi og er fyrirhuguð
markvissari könnun á þörfinni.
Ráðgjafarþjónustan tekur til starfa
2. júní og er til húsa við Öster
Voldgade 12, Húsi Jóns Sigurðsson-
ar, Islands kulturhus. Opnunartími
verður þriðjudaga og miðvikudaga
kl. 12 til 14 og fimmtudaga kl. 16 til
18.
Ályktun
f rá SHI
Á FUNDI stúdentaráðs Háskóla
íslands hinn 3. júní var samþykkt
eftirfarandi ályktunartillaga:
„Á 30 ára afmæli bandarísks hers
hér á landi vonumst við til þess að
afmælisbarnið fari að átta sig á því
að það er vaxið úr grasi og getur
tekið á móti afmælisgestum sinum í
eigin landi. Herinn burt. Gegn
kjarnorkuvopnum."
Kolmunni orðinn meðal
mest veiddu fisktegunda
Islendingar 13. mesta fiskveiðiþjóð
TEGUNDIR, sem til skamms tíma voru
vannýttar og fúlsað var við, setja stöðugt
meiri svip á fiskveiðar í heiminum.
Sérstaklega er athyglisvert að sjá hversu
mikii aukning hefur orðið á veiði á
kolmunna i heiminum, en þar eru Sovét-
menn i fararbroddi og hafa undanfarin
ár tekið verulegan skerf af heildarafla
sínum á kolmunnamiðum austur af ís-
landi. Árið 1979 var kolmunni sú fiskteg-
und, sem mest aukning hafði orðið i veiði
á og var það ár í níunda sæti yfir mest
veiddu fisktegundirnar.
Því hefur verið spáð, að fiskafli fari yfir
100 milljónir tonna um aldamót og ef það
fer eftir verður það vegna mikillar aukn-
ingar í veiði á tegundum eins og kolmunna.
Hér fer á eftir tafla úr brezka blaðinu
„International Fishing" yfir þær tíu fisk-
tegundir, sem mest var veitt af árin
1977—1979. Byggir ritið á tölum FAO,
Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna:
Vlaska lýri
Chilr sardína
Iaiðna
Spánskur makríll
Þorskur
Japan sardina
Perú ansjósa
Chile makríll
Kolmunni
Atlants-síld
1979
3.952.763
3.346.895
2.933.872
2.571.075
2.027.922
2.001.731
1.413.390
1.286.617
1.122.720
841.342
1978
3.925.329
1.807.343
3.157.497
2.851.783
2.133.870
1.933.926
1.385.636
1.100.907
556.457
940.181
1977
4.295.882
1.491.709
4.008.745
2.304.454
2.271.782
1.470.811
810.775
848.071
252.761
990.086
leyti fékkst í N-Atlantshafi, veiddu Sovét-
menn 688.984 tonn árið 1979.
ísland hélt sínu sæti árið 1979 sem
þrettándá mesta fiskveiðiþjóð í heimi, en
Japanir og Sovétmenn eru langefstir á
listanum yfir mestu fiskveiðiþjóðir heims.
Hér fer á eftir listi yfir 40 mestu
fiskveiðiþjóðir heims árið 1979 og til
samanburðar er afli þeirra árið 1978. Sem
fyrr er miðað við tölur úr Fishing News,
sem byggir á FAO. Þar sem merkt er við
afla með stjörnu hefur afli verið áætlaður.
Af kolmunnaaflanum, sem að verulegu
Fyrir nokkrum árum var lítið veitt al
kolmunna i heiminum, en nú er þe.ssi
tegund orðin ein sú eftirsottasta.
heimi árið 1979
Japan 9.966.394 i 10.183.674 1
S«vétríkin 9.113.999 2 8.914.776 2
Kína 4.054.295 3 4.393.634 3
Perú 3.682.454 4 3.369.143 5
Kandaríkin 3.510.854 5 3.417.559 4
Nore«ur 2.651.581 6 2.586.637 6
Chilr 2.632.650 7 1.929.090 10
Indland 2.343.398 8 2.306.136 7
SuAur-Kórea 2.162.478 9 2.091.921 9
Danmork 1.738.420 10 1.740.294 11
Indónesía 1.731.731 11 1.642.043 12
Thailand 1.716.441 12 2.095.062 8
Island 1.644.815 13 1.566.749 13
Filippseyjar 1.476.252 14 1.494.580 14
Kanada 1.331.898 15 1.365.848 16
Noróur-Kórea 1.330.000* 16 1.260.000* 17
Spánn 1.205.120 17 1.373.114 15
Vietnam 1.013.500* 18 1.013.500* 20
S-Aíríka og Nantihía 985.746 19 1.017.503 19
Taiwan 929.176 20 885.000 21
Kretland 905.101 21 1.031.647 18
Mrxikó 874.886 22 702.629 24
Krasilia 843.150 24 802.628 22
Frakkland 732.154 23 777.382 23
Malaysia 698.087 25 685.107 25
Kkvador 644.300 26 616.550 27
Kangladesh 610.000* 27 640.000* 26
Pólland 601.153 28 571.397 28
ArKentína 565.881 29 519.215 30
Kurma 565.300 30 540.500 29
NíKPría 535.435 31 518.567 31
Ítalía 427.218 32 401.958 33
V-Kýzkaland 356.198 33 411.918 32
Tanzanía 344.291 34 294.770 37
Holland 323.693 35 324.436 35
Sene^al 308.160 36 358.747 34
Pakistan 300.390 37 293.029 37
Marokkó 279.897 38 287.058 38
Færeyjar 266.603 39 318.142 36
PortÚKal 241.920 40 254.502 41
Ileildarafli 71.286.900 70.548.300
Noregsíarar — Talið f.v. Guðmundur Þorsteinsson námsstjóri, Helgi
Sigurðsson Selfossi er varð annar í vélhjólakeppninni, Ólafur E.
Jóhannsson Garðaskóla, sem varð i I. sæti verklega þáttar reiðhjóla-
keppninnar. Þórarinn Örn Sævarsson Árbæjarskóla, reiðhjólakeppandi,
Sigurður Guðmundsson Kópavogi vélhjólakeppandi og Sigrún Ólafsdóttir
lögregluþjónn, en hún hefur einnig annast heimsóknir til skóla vegna
umferðarfræðslu. — Ljósm. E.Þ.S.
_ *
Félög Islendinga í Kaupmannahöfn:
Standa fyrir ráðgjaf-
arþjónustu í sumar