Morgunblaðið - 11.06.1981, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981
SKOLASLIT — SKÓLASLIT — SKÓLASLIT — SKOLASLIT — SKÓLASLIT — SKÓLASLIT — SKÓLASLIT — SKÓLASLIT
Iðnskóla Rvíkur slitið
Iðnskólanum í Reykjavík
var slitið laugardaginn 30.
maí sl. Athöfnin hófst með
því að Steinn Guðmundsson
deildarstjóri í málmiðnaðar-
deiid sonK einsöng við und-
irleik Sigríðar Sveinsóttur.
Þá flutti Ingvar Ásmunds-
son yfirlit um starfsemi
skólans og framtíðarhorfur.
Helgi IlallRrímsson yfir-
kennari afhenti málverk af
fyrrverandi skólastjóra.
Þór Sandholt. Málverkið,
sem er eftir Örlyg Sigurðs-
son, er gjöf frá starfs-
mönnum skólans.
Friðgeir Grímsson fyrr-
verandi Öryggismálastjóri
ríkisins flutti kveðju frá 50
M
ólafur H. Kristjánsson skólastjóri flytur ávarp við skólaslitin.
Reykjaskóli 50 ára:
Ólafur H. Kristjánsson
lætur nú af störfum
eftir 25 ára skólastjórn
REYKJASKÓLA í Hrútafirði
var slitið nýletca en fimmtíu ár
eru liðin frá því skólinn var
stofnaður. Tiu nemendur voru
útskrifaðir úr öðrum bekk
framhaldsnáms en nemendur í
vetur voru rúmletta 130 oj?
skólinn fullsetinn. Ólafur H.
Kristjánsson hefur verið skóla-
stjóri Reykjaskóla i 25 ár en
lætur nú af störfum. Kona hans,
SólveÍK Kristjánsdóttir. hefur
kennt meira og minna við
skólann þann tíma. Voru þeim
þökkuð mikil ok heillarík störf
við skólaslitin.
Margt gesta var við skólaslitin
m.a. nemendur sem útskrifuðust
fyrir 50 árum, 20, 15 og 10 árum
og færðu þeir skólanum og
fráfarandi skólastjóra góðar
gjafir. Skólastjóra var afhent
vönduð útgáfa Landnámabókar
frá menntamálaráðuneytinu.
Viðskiptabraut skólans bárust
tvær kennslutölvur frá Spari-
sjóði Vestur-Húnavatnssýslu á
Hvammstanga.
Námsbrautir voru þrjár við
skólann síðastliðinn vetur, þ.e.
almenn bóknámsbraut, við-
skiptabraut og uppeldisbraut. í
ráði er að hefja kennslu á
íþróttabraut á næsta vetri. Skól-
inn hefur tekið miklum breyt-
ingum að ytri og innri gerð. Árið
1950 útskrifaði skólinn fyrst
nemendur með landspróf en nú
geta nemendur við skólann lokið
öðrum bekk í samræmdu fram-
haldsnámi. Auk þess hefur skól-
inn útskrifað skipstjórnarmenn
með 30 tonna réttindi og er til
athugunar að auka kennslu á því
sviði. í fyrstu var skólinn
tveggja vetra skóli eins og aðrir
héraðsskólar.
Á Reykjum er nú nýtt
kennsluhúsnæði, 50 metra sund-
laug og góð íþróttaaðstaða.
Með byrjun næsta skólaárs
mun Bjarni Aðalsteinsson, sem
kennt hefur við skóiann síðan
1963, taka við skólastjórn.
Tíu búf ræðingar
voru útskrif aðir
f rá Hvanneyri
ára nemendum og tveir
kennarar, sem nú hætta
störfum eftir langan srarfs-
feril við skólann, Jón Sætr-
an og Ilaraldur Ágústsson,
fluttu ávörp.
Verðlaun Iðnnemafélagsins
Þráins fyrir hæstu meðaleinkunn
á burtfararprófi hlaut Guðmund-
ur Örn Benediktsson húsgagna-
smiður. Hann hlaut meðalein-
kunnina 9,7. Önnur verðlaun
hlaut Eggert Snorrason húsa-
smiður. Verðlaun Iðnaðarmanna-
félagsins hlaut Guðmundur Örn
Benediktsson einnig. Verðlaun
Finns Thorlaciusar hlaut Eggert
Snorrason og verðlaun Helga
Hermanns Eiríkssonar fyrrver-
andi skólastjóra hlaut Snorri
Halldórsson vélvirki.
Verðlaun skólans hlutu þeir
nemendur sem fengu hærri með-
aleinkunn en 8,7 á burtfararprófi.
Þeir voru: Guðmundur örn Bene-
diktsson, Eggert Snorrason,
Björn Sverrisson, rafvirki, Eyj-
ólfur Jónas Ólafsson, húsgagn-
asmiður, Guðmundur Þór Björns-
son, bifvélavirki, Kristín Hjalta-
dóttir, sem lærði kjólasaum og
Pétur Helgi Friðriksson húsa-
smiður.
I kaffiboði að lokum skólaslit-
um flutti formaður skólanefndar;
Þuríður Magnúsdóttir ræðu. I
boðinu voru einnig afhent verð-
laun fyrir hæstu einkunn sem
gefin hefur verið í tækniteiknara-
námi en þau hlaut Anna Filbert,
sem fékk meðaleinkunnina 9,9.
Aðalsteinn Thorarensen, formað-
ur Kennarafélags Iðnskólans,
flutti einnig ræðu við þetta tæki-
færi.
^ Hvanneyri. 9. júní.
Á FÖSTUDÁGINN 5. júní sl. var
Bændaskólanum á Hvanneyri
slitið, og útskrifaðir 10 búfraeði-
kandidatar. Athöfnin fór fram í
matsal Bændaskólans að við-
stöddu fjölmenni. Meðai gesta
voru ráðherrar, búnaðarmála-
stjóri, form. Stéttarsambands
bænda og fleiri virðulegir ráða-
menn í landbúnaði.
Magnús B. Jónsson skólastjóri
setti samkomuna og stjórnaði
henni. í skólaslitaræðu hans kom
fram m.a. að á sl. hausti hefði 21
nemandi hafið nám í búvísinda-
deild skólans. Meðal nemenda
væri einn sem þá hefði hafið
fjögurra ára nám við deildina,
Gísli Sverrisson, og væri hann
fyrstur til að hefja slíkt nám.
Skólastjóri rakti í stórum
dráttum fyrirkomulag kennslu
við deildina og þakkaði öllum
þeim er á einhvern hátt stuðluðu
að því, að þessum áfanga væri
náð.
Deildarstjóri búvísindadeildar
er Bjarni Guðmundsson. Bestum
árangri á lokaprófi náði Álfhild-
ur Ólafsdóttir frá Gerði, Hörgár-
dal, 8,9.
Eftir að skólastjóri hafði af-
hent kandídötum prófskírteini
sín og árnað þeim heilla í störfum
þeirra á komandi árum, flutti
landbúnaðarráðherra, Pálmi
Jónsson, ávarp og óskaði bæði
skóla og nemendum heilla í
starfi.
Fjölmargir aðrir tóku til máls,
m.a. Jónatan Hermannsson form.
félags búfræðikandidata og af-
henti hann Álfhildi viðurkenn-
ingu frá félaginu fyrir góðan
námsárangur.
Að lokinni athöfninni bauð
skólastjóri viðstöddum til kaffi-
drykkju.
ófeigur.
Sauðárkrókur:
Tónlistarskólan-
um slitið í 17. sinn
Sauöárkróki. 6. júní.
TÓNLISTARSKÓLANUM á Sauðárkróki var nýlega slitið og
lauk þar með 17. starfsári skólans. í vetur innrituðust 130
nemendur í skólann. Kennt var á píanó, orgel, blásturshljóð-
færði, fiðlu, gítar, auk tónfræði, tónheyrnar og tónlistarsögu.
Nemendur taka próf tvisvar á vetri, miðsvetrarpróf í byrjun
febrúar og vorpróf í apríl og mai. Nemendatónleikar eru einu
sinni í mánuði og haldnir eru sérstakir jólatónleikar. í vor voru
þrennir tónleikar þar sem nemendur komu fram og léku á ýmis
hljóðfæri.
Lúðrasveit skólans tók þátt í
lúðrasveitarmóti skóla, sem hald-
ið var í Mosfellssveit í vor.
Stjórnandi sveitarinnar er Lárus
Sighvatsson.
Skólastjóri Tónlistarskóla
Sauðárkróks er Eva Snæbjarnar-
dóttir, en fastráðnir kennarar
auk hennar eru Rögnvaldur Val-
bergsson og Lárus Sighvatsson,
sem nú lætur af störfum við
skólann vegna brottflutnings eft-
ir nokkurra ára vel unnin störf.
Stundakennarar í vetur voru
fjórir: Guðni R. Björnsson, gítar,
Helga Magnúsdóttir, píanó,
María Ásbjörnsdóttir, píanó og
Svava Bernharðsdóttir, fiðla.
Formaður skólanefndar er Mar-
teinn Friðriksson framkvæmda-
stjóri.
Skólinn hefur í samvinnu við
Tónlistarfélagið á Sauðárkróki
gengist fyrir tónleikahaldi og
fengið hingað ýmsa ágæta tón-
listarmenn, nú síðast óperu-
söngvarana Ólöfu K. Harðardótt-
ur og Garðar Cortes, ásamt
Guðrúnu Kristinsdóttur píanó-
leikara. Tónleikarnir voru vel
sóttir og vöktu mikla hrifningu
áheyrenda.
Kári.
Nokkrir félagar í lúðrasveit Tónlistarskólans á Sauðárkróki á lokatónleikum skólans i vor.
LjÓHm. Mbl. CuAni R. BjörnHson.