Morgunblaðið - 13.06.1981, Side 3

Morgunblaðið - 13.06.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981 3 Stjórnarnefnd ríkisspítala um erfíðleika á sjúkrahúsum: Frekari samdráttur ef bið verður á samningum Daglegu gæðaeftirliti hlýtur að hraka „STJÓRNARNEFND verður að láta í Ijós þá skoðun. að daglegu u;rðacftirliti á sjúkrahúsinu hlýtur að hraka og mjöK margar rannsóknir verða lagðar niður, vegna þess að sérfræðinjíar eru ekki á spitalanum til þess að fylttjast með þeirri starfsemi, sem þar fer fram,“ segir m.a. í itreinarKerð stjórnarnefndar rikisspitalanna i >?ær þar sem fjallað er um samdrátt á starfsemi spítalanna vei?na uppsagna sérfræðinga og aðstoðarlækna. Atriði úr leikritinu „Sterkari en Súperman “ sem Alþýðuleikhúsið mun sýna atriði úr á útifundinum. Sjálfsbjörg með útifund á Lækjartorgi i dag SJÁLFSBJÖRG. landssamhand fatlaðra. verður með útifund á La'kjar- torgi í dait o>{ hefst hann kl. 13.30. en frá klukkan 13.00 mun Lúðrasveit Árha'jar ok Breiðholts leika undir stjórn'Ólafs Kristjánssonar. „Starfsemi ríkisspítalanna er nú þegar mjög skert og það er fyrirsjáanlegur frekari samdrátt- ur ef bið verður á því að aðstoðar- læknar og sérfræðingar spítal- anna komi til eðlilegra starfa að nýju, því óvenjulegt og óeðlilegt vinnuálag hefur hlaðist á yfir- lækna spítalans, sem þeir geta aðeins sinnt mjög takmarkaðan tíma,“ segir m.a. í greinargerð- inni. Greinargerð þessi var samin af formanni stjórnarnefndar ríkis- spítalanna, Páli Sigurðssyni, for- stjóra spítalanna, Davíð Á. Gunn- arssyni, og formanni læknaráðs Landspítalans, Grétari Ólafssyni yfirlækni. Er greinargerðin byggð á upplýsingum yfirlækna spítal- ans og birt til upplýsingar al- menningi, þeim er njóta tíma- bundinnar göngudeildarþjónustu spítalanna og hins vegar þeim er bíða eftir rými á spítalanum til rannsókna eða aðgerða. Þá segir í greinargerðinni, að vegna takmörkunar á þjónustu Læknaþjónustunnar sf., hafi eng- in starfsemi getað farið fram frá því sl. þriðjudag önnur en tak- mörkuð vaktþjónusta, nema það sem einstakir yfirlæknar hafi get- að leyst. Hefur innköllun allra sjúklinga af biðlistum verið hætt. „Þá eru nú aðeins innlögð þau bráðatilfelli, sem ekki þola neina bið, þ.e. annars vegar bráð tilvik, sem teljast lífshættuleg að dómi innlagningarlæknis og þess lækn- is, sem starfar og tekur á móti sjúklingum á spítalanum hverju sinni og hefur verið tekin sú afstaða, að til þessa hóps teljist einnig þau tilvik þar sem grunur leikur á að um illkynja, sjúkdóm geti verið að ræða. Sérstaklega skal tekið fram, að hjúkrun og umönnun inniliggjandi sjúklinga er óbreytt, en læknisfræðileg um- önnun þeirra getur að sjálfsögðu verið takmörkuð með vísun til þess sem fyrr segir," segir í greinargerðinni. Göngudeildum sjúkrahússins hefur verið lokað nema þeim er starfa á eftirtöldum sviðum: með- ferð illkynja sjúkdóma, eftirliti sykursjúkra, eftirliti með blóð- þynningu, blóðsíunarstarfsemi, eftirliti áhættuhópa í mæðra- vernd, sérstökum hópum gigtar- sjúklinga, bráðatilvikum geðsjúkl- inga og sérstökum áhættuhópum barnalækninga. Stjórnarnefndin bendir einnig á að hætt sé við að þeim læknum fækki stöðugt, sem hægt verði að kalla til starfa vegna bráðra tilvika, þar sem þeir hverfi til starfa annars staðar og er sér- staklega bent á þann vanda sem augljóst sé að svæfinga- og gjör- gæzludeild spítalans búi við af þessum sökum. Að lokum er þeim tilmælum beint til samninga- nefnda, að þær leggi sig allar fram við lausn málsins, því þjónustu- skerðingin bitni fyrst og fremst á sjúku fólki sem ekki eigi neinna kosta völ um að leita sér lækninga. Ástandið á ríkisspítölum sé svipað og á öðrum sjúkrahúsum borgar- innar og sjúkrahús utan Reykja- víkur geti að jafnaði ekki veitt sömu þjónustu og sjúkrahúsin í borginni. Ávörp flytja Björn Þórhallsson, varaforseti ASÍ, Hulda Steinsdóttir og Sigursveinn D. Kristinsson. Þá mun Alþýðuleikhúsið flytja atriði úr nýju leikriti sem nefnist „Sterkari en Súperman" og er það eftir breska höfundinn Roy Klift. Leikritið sem fjallar um vandamál fatlaðra og ófatlaðra verður sýnt síðan óstytt á næsta leikári Alþýðu- leikhússins. Fundarstjóri verður Theódór A. Jónsson, formaður Sjálfsbjargar, landssambands lamaðra og fatl- aðra. Landsambandið vill hvetja fatl- aða og stuðningsmenn þeirra að sýna samstöðu og fjölmenna á fundinn. Fólki er bent á að útvega sér aðstoðarmenn og athuga um flutn- ing til og frá fundi. Ferðaþjónusta og aðstoð verður veitt í tengslum við fundinn, ef þess er þörf. Geta þeir sem aðstoð þurfa haft samband við skrifstofu Sjálfsbjargar. Þess má að lokum geta að fundur- inn verður túlkaður á táknmáli fyrir heyrnarlausa og er það í fyrsta skipti sem það er gert hér á iandi. Jæja strákar Þá erum viö búnir aö malbika og bjóöum alla kaupendur og seljendur bíla velkomna á nýja ryklausa svæöiö okkar, þar sem bílarnir njóta sín virkilega vel í fögru umhverfi. Komdu og skoöaöu góöan bíl á Bílasölu Guöfinns m .. . • M «c

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.