Morgunblaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981 Elliðaárdalur Velkomin í dalinn, sagði fundarstjórinn, Þorvaldur S. Þorvaldsson, í upphafi ráðstefnu um Elliðaárdalinn í glampandi sólskini í Rafveituheimilinu sl. laugardag. — „Hér við gluggann fossar áin á hrauninu meö skóg- ræktina í hólmunum, virkjunina og Árbæjar- safnið á báðar hendur,“ sagði hann. „Við viljum varðveita, en hvað og hvernig? Við viljum búa í þægilegri borg og helst byggja bestu og fegurstu staði, en getum við ekki sameinast um aö eiga fleyg af náttúru innan um byggðina, eins og þennan dal frá firöi til fjalls. Hvað geymir þessi dalur, sem er okkur svo mikils virði? Er aðstandendum Ijóst hverjar eru þarfir og óskir hinna ýmsu hópa og stofnana, sem þegar tengjast dalnum? Hér er skotið fram nokkrum af þeim spurningum, sem viö erum að vona að fái umfjöllun og e.t.v. einhver svör.“ - Fólkvangsfriðun gæti verndað og hlíft Formaður Framfarafélags Sel- áss og Árbæjarhverfis, Asmundur J. Jóhannsson, lýsti tildrögum ráðstefnunnar, sem spratt upp af umræðum stjórnar um framtíð dalsins og tengsl byggðarinnar við hann, svo og hvort frekari mann- virkjagerð en örðin er á þessu svæði myndi eyðileggja það lífríki svæðisins, sem þekkist í dag, þannig að framtíðaríbúar Reykja- víkur fengju ekki að njóta þeirrar margbreytilegu nátturu, sem þeir hefðu verið svo lánsamir að fá að kynnast þar. Þetta þróaðist síðan í ráðstefnu, þar sem tekið skyldi til umræðu Elliðaársvæðið frá ósi upp í Heiðmörk. Fékkst um þetta samstarf 10 félaga og stofnana tengdra Elliðaársvæðinu og þeirri starfsemi, sem þar fer fram; Þau eru: Árbæjarsafn, Framfarafélag Breiðholts III, Hestamannafélagið Fákur, Náttúruverndarnefnd Kópavogs, Náttúruverndarráð, Rafmagnsveita Reykjavíkur, Skógræktarfélag Reykjavíkur, Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Umhverfismálaráð Reykjavíkur, Veiði- og fiskræktarráð Reykja- víkurborgar, og borgarráð veitti fyrirgreiðslu. Þessir aðilar og einstakir fræði- menn lögðu til 14 undirstöðuerindi um ýmsa þætti, er varða Elliðaár- dalinn, og var erindaflutningur fram undir kl. 4 með matarhléi, þegar fundarmenn settust út á árbakkann í sólskininu. Þá stýrði Þórir Einarsson, prófessor, pall- borðsumræðum um efnið. I þeim tóku þátt Sigríður Einarsdóttir, formaður náttúruverndarnefndar Kópavogs, Lena Rist, formaður Framfarafélags Breiðholts, Álf- heiður Ingadóttir, formaður Um- hverfismálaráðs, Reynir Vil- hjálmsson, landslagsarkitekt, Árni Reynisson, framkvæmdast. Náttúruverndarráðs og Einar Þorsteinsson, stjórnarmaður í Ár- bæjarfélaginu. Urðu líflegar um- ræður. Voru menn sammála um að náttúruvernd væri hluti af lífs- kjörum, sem ekki mætti fremur skerða í þéttbýli en strjálbýli. Almennar umræður urðu um hve viðkvæmur dalurinn væri, t.d. að gróðri og fuglaiífi, og veltu því fyrir sér hvað mundi gerast ef allir hópar halda áfram að ganga á dalinn, hvort sem sá ágangur er af einstökum áhugahópum eða þrengingu skipulags. Urðu m.a. umræður um nýja skipulagið, og komu fram raddir um að helsta hætta stafaði af tæknimönnum og stjórnmálamönnum. Var ræddur sambúðarvandi og sambúðarregl- ur í dalnum og voru menn sam- mála um að fyrirhuguð friðun skv. náttúruverndarlögum á dalnum sem fólkvangi gæti e.t.v. leyst vandann, þannig að dalurinn verði betur verndaður fyrir ágangi og reglum komið á sambúð allra þeirra hópa sem í dalinn sækja, svo allir megi njóta og vel við una. Ágripum af erindum, var safnað í hefti, sem fundarmenn fengu og þar má finna mikinn fróðleik um Elliðaárdalinn. Árni Hjartarson jarðfræðingur talaði um jarðfræði og jarðsögu dalsins og benti með myndum á ýmsa staði, þar sem sjá má jarðlögin. Hann ræddi einnig um Elliðavatn sem hluta af jarð- fræði dalsins, og sagði m.a.: „Vatnið er sigdæld í A-enda mikils sprungusveims, sem kenndur hef- ur verið við Trölladyngju á Reykjanesskaga. Aldur vatnsins er því tengdur aldri sprungu- sveimsins og gosvirkni á honum og sögu þess virðist mega rekja a.m.k. aftur á síðasta hlýskeið ísaldar. Jarðfræðilega séð tilheyr- ir Elliðavatn sama flokki vatna og Þingvallavatn og Mývatn og er þar ekki leiðum að líkjast. 011 eru þessi vötn á hraunsvæðum og í þau öll hafa runnið hraun. Við þau eru miklar uppsprettur, svo og er náttúrulegt frárennsli þeirra mun meira en innrennslið. í þeim eru þykk kísilgúrlög. Öll eru þau notuð sem miðlunarlón fyrir virkjunir. En mikilvægasta sam- einkennið er þó að öll teljast þau til svonefndra sigdældavatna og eru mynduð í sigdal á sprungu- sveimi. Þar með er Elliðavatn líka komið í slekti með Dauðahafinu og vötnunum miklu í Afríku, Viktoríuvatni og fleirum, þótt ekki teljist það laukurinn í þeirri ætt.“ Eyþór Einarsson grasafræðingur fræddi um gróð- urinn í Elliðaárdal, sem hann sagði lítt kannaðan af grasafræð- ingum. Hann hafði gengið þar um fyrir fáum dögum og fundið 70 tegundir villtra háplantna. Sagði hann eftir að hafa lýst gróðri, að mosa- og lyngflákarnir á hinum grunna jarðvegi ofan á hrauninu þoli átroðning verst og vilji troð- ast alveg af þar sem umferðin er mest. Yrði við skipulagningu dals- ins sem útivistarsvæði að láta fara fram rannsókn á gróðri. Gróðurfar sé þar fjölbreytilegt og verðskuldaði að vera haldið við. Þótt umferðaræð sé komin yfir dalinn, þá teldi hann að hægt ætti Útsýni úr ráðstefnusalnum út yfir Elliðaárhólmana og Elliða- árnar. Mörg kort og myndir héngu uppi i húsi Rafveitunnar á ráðstefnu um Elliðaárnar. Hér er eitt, sem sýnir helstu veiðistaði i ánum. að vera að varðveita hann með aðgát í upprunalegri mynd. Árni Waag fræddi um fuglalífið við Elliða- árnar. Sagði hann að þrátt fyrir áfallið við uppfyllinguna í ósum Elliðaáa hefði fuglalíf ekki horfið með öllu og hann lýsti þeim fuglategundum sem eru í dalnum. Fólkvangur Elliðaárdalsins og önnur svæði, sem friðlýst eru í þéttbýli, eru yfirleitt viðkvæm. Ástæðan er fyrst og fremst sú, að fjölmennið er svo mikið að hætta verður á örtröð og röskun á jafnvægi í lífríki viðkomandi stað- ar, því verður að móta viðteknar reglur til að hægt sé að ganga sómasamlega um. í því skyni þarf að ráða þjálfað fólk til að kenna hvernig eigi að umgangast móður náttúru. Bæjarfélag eins og Reykjavík ætti skilyrðislaust að ráða í sína þjónustu menn, sem hefðu þessa fræðslu á hendi. Laun þeirra mundu vera fljót að skila sér í bættu mannlífi. Hluti ráðstefnugesta. Fremst sitja hestamennirnir Kristján Guð- mundsson, Gisli B. Björnsson og Lena Rist, sem lika er formaður Framfarafélags Breiðholts. Ljósm. Emilía r~~- Breiðholtsbúinn Elias ólafsson i ræðustól. Fundarstjóri Þorvaldur S. Þorvaldsson, Ásmundur J. Jóhannsson, formaður Framfarafélags Seláss og Árbæjar, og ritari Jóhannes Einarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.