Morgunblaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1981
Sjálfstæðismenn í Fella- og Hólahverfí:
Skoðunarferð að Hrauneyjafossi
FÉLAG sjálfstæðismanna í
Fella- ojí Hólahverfi í Breið-
holti efnir til skoðunar- og
skemmtiferðar að Ifrauncyja-
fossvirkjun, lauj'ardaj'inn 20.
júní nk. og verður laj<t af stað
klukkan 8.30 um morjjuninn.
Mannvirkin við Hrauneyja-
foss verða skoðuð og þar verður
einnig snæddur hádegisverður.
Ráðstefna um atvinnu
- streitu og sjúkdóma
Á SÍÐUSTU árum hefur athygli
manna beinst i ríkari mæli að
víxlverkandi áhrifum vinnu-
umhverfis. strcitu og sjúkdóma
og hafa fyrirbyggjandi aðgerðir
gegn strcitu meðal vinnandi
fólks því orðið æ umfangsmeiri
þáttur vinnuverndar víða um
heim.
Vinnueftirlit ríkisins og land-
læknisembættið hafa boðið hingað
til lands prófessorunum Töres
Theorell frá Karolinsku stofnun-
Sjávarút-
vegsrit
Heimdallar
komið út
ÚT ER komið Sjávarútvegsrit
Heimdallar. Útgefandi er Heim-
dallur. samtök ungra sjálfstæð-
ismanna i Reykjavík. Ritstjóri
er Jónas Egilsson.
Meðal efnis í ritinu má nefna:
Matthías Bjarnason alþingis-
maður og Steingrímur Her-
mannsson sjávarútvegsráðherra
fjalla um stefnuna í sjávarút-
vegsmálum.
Fjallað er um útflutningsfyr-
irkomulag sjávarafurða og í því
sambandi rætt við Friðrik Páls-
son framkvæmdastjóra SÍF,
Óttar Yngvason framkvæmda-
stjóra íslensku útflutnings-
miðstöðvarinnar og Guðmund H.
Garðarsson hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna.
I ritinu er fjallað.um ýmiskon-
ar nýjungar er tengjast sjávar-
útveginum. Má þar nefna viðtal
við Gísla Erlingsson hjá Rekstr-
artækni sf., um tölvunotkun við
rekstur, nýjungar varðandi véla-
vinnu- og stillingar, botnhreins-
un skipa og margt fleira.
Þá er rætt við Hauk Þorvalds-
son hjá LÍN um aðstöðu til
þróunar veiðarfærabúnaðar hér-
lendis, og Jón S. Kristjánsson um
hið nýja línuveiðakerfi frá Nor-
egi, sem stöðugt fleiri nýta nú á
skip sín.
Ritinu verður dreift ókeypis til
fólks er starfar við sjávarútveg-
inn.
(Frrttatilkynninx.)
inni í Stokkhólmi og Robert Kar-
asek frá Kólumbíuháskóia í New
York, en þeir hafa unnið braut-
ryðjendastarf við rannsóknir á
tengslum streitu og sjúkdóma í
ýmsum atvinnugreinum í Banda-
ríkjunum og á Norðurlöndum.
Jafnframt gangast Vinnueftir-
litið og landlæknir fyrir tveimur
fundum um efnið: „Atvinna —
streita — sjúkdómar". Efni fund-
anna verður á þá leið, að forstjóri
Vinnueftirlits ríkisins kynnir
vinnuverndarlöggjöf og fram-
kvæmd vinnueftirlits, prófessor
Theorell fjallar um streitu í starfi
með tilliti til hjarta- og æðasjúk-
dóma en prófessor Karasek tekur
fyrir þann þátt í streitu í starfi er
snýr að þreytu og þunglyndi.
Landlæknir mun skýa frá niður-
stöðum rannsókna Hjartaverndar
á streitu, vinnutíma og sjúkdóm-
um meðal íslenskra atvinnustétta,
en rannsóknirnar ná m.a. til
kennara, háskólamanna, atvinnu-
rekenda, vörubílstjóra, leigubíl-
stjóra, ófaglærðra verkamanna,
verksmiðjufólks, sjómanna, iðn-
aðarmanna og skrifstofumanna.
Pallborðsumræður verða í lo’<
fundanna.
Fyrri fundurinn verður haldinn
mánudaginn 15. júní nk. kl. 15.00 í
Domus Medica og er til hans boðið
m.a. fulltrúum stéttarfélaga, sam-
taka atvinnurekenda og fjölmiðla.
Hann er einnig opinn þeim er
áhuga hafa á málefninu. Sá síðari
verður hins vegar haldinn með
læknum og öðrum heilbrigðis-
stéttum þriðjudaginn 16. júní og
hefst hann kl. 15.30.
(Frrttatilkynninx.)
^ HEIMDALLAR
Ráðstefna um at-
vinnumál höfuð-
borgarsvæðisins
RÁÐSTEFNA um atvinnumál höf- málm- og skipasmiðja, ræðir að-
Þaðan verður ekið að Þórisvatni.
Fargjaldið í ferðina er 95
krónur, en formaður félagsins,
Kristján Guðbjartsson gefur
nánari upplýsingar.
uðborgarsva'ðisins hefst í dag á
Hótel Loftleiðum klukkan 13 og
lýkur klukkan 18. Markús Örn
Antonsson. horgarfulltrúi, setur
ráðstefnuna. en fundarstjóri verð-
ur Sigurgeir Sigurðsson bæjar-
stjóri á Seltjarnarnesi. Flutt verða
erindi. 11 að tölu, sem fjalla munu
um atvinnuþróun höfuðborgar-
svæðisins, núverandi ástand, fram-
tíóarhorfur og hugsanlegar að-
gerðir sveitarfélaga og ríkis.
Að lokinni setningarræðu Mark-
úsar Arnar, flytur dr. Ingjaldur
Hannibalsson, forstöðumaður
tæknideildar Félags íslenzkra iðn-
rekenda, ræðu um þróun atvinnu-
rekstrar og fyrirtækja á höfuðborg-
arsvæðinu, afstöðu og áhrif ríkisins
og sveitarfélaga og stöðu atvinnu-
rekstrar í dag. Þá flytur Oddur
Ólafsson, fyrrum alþingismaður,
ræðu um launþega á höfuðborgar-
svæðinu, afstöðu þeirra til vinnu,
um erfiðleika ákveðinna hópa, fatl-
aðra og hreyfihamlaðra og áhrif
skipulags á jafna stöðu karla og
kvenna til atvinnu o.fl.
Eggert Jónsson, borgarhagfræð-
ingur, ræðir um fræðilega þróun
atvinnulífs á svæðinu, tekjuþróun
og þróun atvinnutækifæra í sveit-
arfélögum. Gunnar S. Björnsson,
formaður Meistarasambands bygg-
ingamanna, ræðir um þróun og
stöðu iðngreina á svæðinu, Júlíus
Sólnes, formaður framkvæmda-
stjórnar Skipulagsstofu höfuðborg-
arsvæðisins, fjallar um nauðsyn
þess að taka á atvinnumálum svæð-
isins í heild. Guðrún Jónsdóttir,
forstöðumaður Borgarskipulags,
ræðir atvinnumál í Reykjavík og
Guðmundur J. Guðmundsson ræðir
afstöðu verkafólks, öryggi á vinnu-
markaðnum o.fl.
Valdimar K. Jónsson, prófessor,
ræðir um höfuðborgarsvæðið sem
miðstöð sérþekkingar og þjónustu,
Ágúst Flygering, framkvæmda-
stjóri, ræðir sjávarútveg og vinnslu
afla á svæðinu og Guðjón Tómas-
son, framkvæmdastjóri Sambands
gerðir ríkis- og sveitarfélaga frá
sjónarmiði atvinnurekenda.
Þá fjallar Sigurður Guðmunds-
son, skipulagsfræðingur Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins, um höf-
uðborgarsvæðið sem miðstöð sam-
gangna og þjónustu fyrir landið
allt, Guðmundur Þ. Jónsson, for-
maður atvinnumálanefndar
Reykjavíkur, ræðir aðgerðir sveit-
arfélaga til eflingar atvinnulífi og
Salome Þorkelsdóttir, alþingismað-
ur, fjallar um höfuðborgarsvæðið
sem samfellt atvinnusvæði, sér-
vandamál í atvinnulífi smærri
sveitarfélaga.
Að ræðum loknum verða umræð-
ur ráðstefnugesta.
f DAG á Karl ó. Jónsson. Bárugötu
37. Reykjavík. sjötíu og fimm ára
afmæli.
Karl er fæddur Vesturbæingur.
Hann var í mörg ár í hópi þekktustu
togaraskipstjóra landsins og síðast
var hann á togaranum Aski.
Karl var kvæntur Þóru Ágústs-
dóttur, en hún lézt fyrir fjórum
árum. Þau áttu fjögur börn. í dag
verður Karl á heimili Ingigerðar
dóttur sinnar að Ægissíðu 74 og
tekur þar á móti vinum sínum.
Dagskrá 17. júní
í Hafnarfirði
Kl. 8.00 Fánar dregnir að húni.
Kl. 10.00 Kaplakriki. 17. júní-
mót.
Kl. 10.00 Við Lækjarskóla.
Bátaleiga Þytsfélaga.
Kl. 13.45 Safnast saman til
skrúðgöngu við gatnamót Reykja-
víkurvegar og Norðurbrautar.
Gengið að Hellisgerði. Skátar
ganga með fánaborg. Lúðrasveit
Hafnarfjarðar leikur.
Kl. 14.00 Hátíðarguðsþjónusta í
Valkostir í skipulags-
málum og áætlanagerð
- umræðuefni á þingi norrænna félagsfræðinga
ELLEFTA ráðstefna norrænna
félagsfra'ðinga verður haldin í
Reykjavik dagana 14. —19. júni
nk. Ráðstefnuna sækja um tvö
hundruð þjóðfélagsfræðingar frá
öllum Norðurlöndunum.
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, opnar ráðstefnuna við
hátíðlega athöfn í hátíðarsal há-
skólans mánudaginn 15. júní kl.
10.45 f.h.
Yfirskrift ráðstefnunnar er
„Valkostir í áætlanagerð og skipu-
lagsmálum". Fluttir verða fjórir
megin fyrirlestrar, en auk þess
verða flutt framsöguerindi í um-
ræðuhópum þar sem m.a. verður
gerð sérstök grein fyrir félags-
fræðilegum rannsóknum á íslandi.
Tíu vinnuhópar verða starfandi
á ráðstefnunni. Þar verður fjallað
um eftirfarandi málaflokka: Fé-
lagslega og hagræna áætlanagerð,
fiskveiðisamfélög, nútímaleg
verkaskipting, þróun iðnaðarþjóð-
félagsins, kreppu og atvinnuleysi á
Norðurlöndum, lýðræði og skipu-
lagningu, lífskjör og þjóðfélags-
þróun, rannsóknir á stöðu kvenna,
valkostir i skipulagi heilbrigðis-
mála og tækni og skipulag vinnu-
staða.
I tengslum við ráðstefnuna fara
hinir erlendu gestir í kynnisferðir
á vinnustaði á höfuðborgarsvæð-
inu. Auk þess kynna þeir sér
sveitastjórnarmál og heimsækja
útgerðarbæ.
Ráðstefna norrænna félagsfræð-
inga er haldin annað hvert ár á
einhverju Norðurlandanna og er
þetta í fyrsta skipti sem hún er
haldin hérlendis.
Samtök norrænna félagsfræð-
inga hafa undirbúið ráðstefnuna,
en félag íslenskra þjóðfélagsfræð-
inga er aðili að þeim. íslenskum
þátttakendum er bent á að koma
til skráningar í Félagsstofnun
Stúdenta við Hringbraut mánu-
daginn 15. júní kl. 9.00 f.h.
(FrttUtilkynnlnx.)
Hellisgerði. Séra Sigurður Guð-
mundsson prédikar.
kl. 14.45 Skrúðganga frá Hellis-
gerði. Gengið verður niður
Reykjavíkurveg, inn Strandgötu
og upp Lækjargötu að Lækjar-
skóla.
Kl. 15.00 Hátíðarsamkoma við
Lækjarskóla. 1) Hátíðin sett. Torfi
Kristinn Kristinsson. 2) Hátíðar-
ræða, Hermann Guðmundsson
framkvæmdastjóri ÍSÍ. 3.) Ávarp
Fjallkonunnar, Jóhanna Linnet. 4)
Skemmtiatriði, Halli, Laddi og
Jörundur skemmta. Eiríkur Fjalar
kemur i heimsókn. Lúðrasveit
Hafnarfjarðar leikur í upphafi og
á milli atriða.
Kl. 17.00 Handknattleikur.
Meistaraflokkar Hauka og FH
keppa um 17. júni bikarinn.
Kvikmyndasýning. Teikni-
myndasýning í Bæjarbíói, 2 sýn-
ingar kl. 17.00 og 18.00. Aðgangur
ókeypis.
Kl. 20.15 Kvöldskemmtun við
Lækjarskóla. 1) Lúðrasveit Hafn-
arfjarðar leikur undir stjórn Hans
Ploder. 2) Ávarp nýstúdents,
Lúther Sigurðsson. 3) Einsöngur,
Inga María Eyjólfsdóttir syngur
við undirleik Jónasar Ingimundar-
sonar. 4) Skemmtiatriði, Ómar
Ragnarsson fer með gamanmál. 5)
Hljómsveitin Dansbandið leikur
fyrir dansi til kl. 1.00 eftir mið-
nætti.
Vcitingasala verður á hátíðar-
svæðinu við Lækjarskóla og verði
slagveður verða hátíðar; og kvöld-
dagskrá færðar inn í íþróttahús
Hafnarfjarðar.
Þjóðhátiðarnefnd.