Morgunblaðið - 13.06.1981, Side 38

Morgunblaðið - 13.06.1981, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981 Minning: Jóhannes Einarsson frá Dynjanda Fæddur 14. maí 1899. Dáinn 6. júni 1981. Jóhannes í Bæjum er látinn. Hann var drengur góður í þess orðs fyllstu merkingu. Hann fæddist að Dynjanda í Jökulfjörðum þann 14. maí 1899 og ólst þar upp í stórum systkinahópi með foreldrum sínum, Engilráði Benediktsdóttur og Einari Bær- ingssyni, hreppstjóra á Dynjanda. Hann fór snemma að taka til hendinni við bú föður síns, var afburða fjármaður og verkmaður góður. Einnig fór hann snemma að stunda sjóinn, eða um og eftir fermingu. Hann for formaður á vélbát sem Alexander bróðir hans átti í 18 ár. Margur unglingurinn byrjaði sjómennsku sína með Jó- hannesi og skólaðist vel. Mikill gæfumaður var hann í sinu einkalífi. Hann kvæntist Reb- ekku Pálsdóttur frá Höfða í Grunnavíkurhreppi, þann 22. nóv- ember 1926, og var það mikið gæfuspor beggja og sambúð þeirra einstaklega góð. Þau voru mjög samhent og báru ótakmarkað traust, ást og virðingu hvort til annars. Þau hjón bjuggu fyrst með föður Jóhannesar að Dynjanda þar til hann lést árið 1930. Tóku þeir þá við jörðinni, Jóhannes og bróðir hans, Alexander, og bjuggu þar í sambýli til 1948 að þeir fluttu burt úr sveitinni. Grunna- víkurhreppur var þá óðum að eyðast af fólki sökum fiskleysis innfjarða, samgönguleysis, auk ýmissa annarra orsaka, en afkom- an byggðist ekki síst á sjósókn bæði vor og haust. Jóhannes fluttist þá með konu og börn að Bæjum á Snæfjalla- strönd, fæðingarstað Rebekku, og bjuggu þar góðu búi fram til 1960. Seldu þau þá búið í hendur Páli syni sínum og Önnu Magnúsdóttur konu hans og bjuggu þau síðan i skjóli þeirra og gengu að störfum búsins eftir því sem kraftar og heilsa leyfðu. Jóhannes og Rebekka eignuðust átta börn og komust sjö þeirra til fullorðinsára, allt nýtir þjóðfé- lagsþegnar. Elstu dóttur sína, Jóhönnu, misstu þau 6 ára gamla og varð hún þeim harmdauði. Hún var fædd 1926. Næstur er Óskar, skipstjóri á ísafirði, kvæntur Lydíu Sigurlaugsdóttur, Páll, bóndi í Bæjum, kvæntur Önnu Magnúsdóttur, Rósa, búsett í Reykjavík, Ingi, sjómaður á ísa- firði, kvæntur Gunni Guðmunds- dóttur, María, húsfreyja í Bolung- arvík, gift Sigurvin Guðbjartssyni hafnarverði, Felix, múrarameist- ari í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Stefánsdóttur, Jóhanna, húsfreyja á Reykhólum, gift Haraldi Sæ- + Móöir mín, tengdamóöir og amma, ALEXÍA MARGRÉT RÚTSDÓTTIR, Laugavegi 27 A, Reykjavík, lést 5. júní. Jarðarförin hefur fariö fram. Kristín Kristjénadóttir, Guömundur Pétursson, Magnús Björgvin og Ingólfur Kristján. + Bróöir okkar, EYVINDUR BJARNI ÓLAFSSON fré Keldudal í Mýrdal, síöar til heimilis aö Heiöarvegi 49, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 16. júní kl. 13.30. Systkinin + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför systur minnar, SIGRÍÐAR SVEINBJARNARDÓTTUR, Glaöheimum 26, Guörún Sveinbjarnardóttir. + Þökkum innilega samúö og vináttu viö andlát og útför ÖNNU THORLACIUS, Kérsnesbraut 108, Egill Thorlacius, Ragnhíldur Thorlacius, Gunnar Adolfsson, Olafur Thorlacíus, Guörún Jónsdóttir. + Innilegar þakkir til allra sem heiöruöu minningu móöur okkar, ÁSTU MARÍU EINARSDÓTTUR, fyrrum húsfreyju Bjarnastöóum Ölfusi, Helga Þóröardóttir, Unnur Þórðardóttir, Klara Þórðardóttir, Soffía Þórðardóttir, Hjalti Þóröarson, Pétur Þóröarson, Axel Þórðarson og fjölskyldur. mundssyni, bónda á Kletti í Gufu- dalssveit, hann lést af slysförum 1974. Þau eignuðust 27 barnabörn og 5 barnabarnabörn. Auk barna þeirra og barna- barna dvöldu alltaf mörg börn í sveit hjá þeim hjónum á sumrin og eiga mörg þeirra skuld að gjalda fyrir gott atlæti, holl ráð, og uppeldi. Það var alltaf gestkvæmt hjá þeim hjónum, ekki síst í Bæjum. Á sumrin voru stundum um og yfir 30 manns í heimili um lengri eða skemmri tíma. Elli kerling var farin að herja á Jóhannes, en hann stóð meðan stætt var. Hann sló með orfi og ljá sl. sumar og fór í fjósið fram eftir vetri. Hann var rúmfastur á Sjúkrahúsi ísafjarðar síðustu tvo mánuðina sem hann lifði. Við biðjum Guð að styrkja aldraða eiginkonu hans, sem sat við sjúkrabeð hans, þótt hún sjálf væri farin af kröftum og heilsu. Þau báru sérstaka umhyggju hvort fyrir öðru til hins síðasta, og trúðu á endurfundi. „Háa skilur hncttl himinxclmur blart skilur bakka ok ckk. en anda sem unnast íær enKÍnn art eilifu aAskilið.“ an.) Við viljum kveðja og þakka frænda og vini allt það sem hann og þau bæði voru okkur í gegnum árin. Samúðarkveðjur sendum við börnum og ættingjum. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Haf þú þökk fyrir allt og allt.“ saman eins og áður segir til vors 1948. Við börn Jónu Bjarnadóttur og Alexanders vorum níu og erum átta á lúífi þannig að fólkið vai margt í litlu húsi en sambúðin og samkomulagið var frábært. Á hinum helmingi Dynjanda bjuggu hjónin Kristín Benedikts- dóttir og Hallgrímur Jónsson með álíka fjölda barna og hvor hinna. Var því ungmennahópurinn stór á Dynjanda og vinátta mikil milli bæja, sem síðan leiddi til nánara sambands sumra okkar þegar árin liðu. Árið 1948 hættu þeir bræður búskap á Dynjanda. Jóhannes og Rebekka héldu áfram búskap og fluttu að Bæjum á Snæfjalla- strönd. Þar bjuggu þau góðu búi meðan heilsa entist. Síðustu árin hafa þau hjón dvalið í skjóli Páls sonar síns og Önnu Magnúsdóttur tengdadóttur, ættaðri frá Ólafs- firði. Foreldrar mínir fluttu á ísa- fjörð. Það var viðkvæm stund sem ég ræði ekki hér, en indælt var að koma að Bæjum og dvelja þar hjá öðrum foreldrum eins og maður hafði alltaf áður gert. Fyrir allt þetta og allar okkar samverustundir í blíðu og stríðu, á sjó og á landi vil ég nú þakka Jóa frænda mínum og ég leyfi mér fyrir hönd okkar systkinanna allra að þakka honum fyrir allt sem hann var okkur. Ég trúi að við hittumst heil síðar. Ég bið al- mættis hönd að styrkja Bekku mína og börnin hennar í sorginni. Við hjónin sendum þeim innilegar samúðarkveðjur. Minningin lifir um góðan mann sem barðist af dugnaði fyrir velferð allra sinna. Fari hann í friði. Einar J. Alexandersson frá Dynjanda. Arnbjörg Sigurðar- dóttir — Minning Steinunn Guðmundsdóttir, Kristbjörn H. Eydal. Jóhannes föðurbróðir minn er látinn. Ég sest niður og læt hugann reika til fyrri tíma. Ég minnist eins þrautseigasta erfiðis- vinnumanns sem ég hef kynnst um dagana. Ég minnist sambýlis Jóhannesar og fjölskyldu hans við bróður sinn og fjölskyldu hans á árunum 1925—1948. Sú sambúð var með slíkum ágætum að þess munu fá dæmi. Ég minnist mannsins sem bar alltaf um- hyggju fyrir hag barna bróður síns eins og sinna eigin barna til hinstu stundar. Jóhannes Einarsson var fæddur að Dynjanda í Jökulfjörðum 14. maí 1899, sonur hjónanna Engil- ráðar Benediktsdóttur og Einars Bæringssonar. Hann ólst þar upp með átta systkinum og vann í foreldrahúsum þar til hann giftist sinni ágætu konu, Rebekku Páls- dóttur frá Höfða. Eignuðust þau átta börn og eru sjö þeirra á lífi. Jóhannes og Alexander bróðir hans bjuggu síðan með foreldrum sinum á hálfri jörðinni Dynjanda á meðan þau lifðu (kunnugir beðnir velvirðingar, þó ég skýri það ekki nánar) og eftir það Fædd 29. september 1887. Dáin 21. mai 1981. Það fólk sem fæddist í þessa veröld á öldinni sem leið, er nú óðum að kveðja. Ein þeirra er tengdamóðir mín, Arnbjörg Sig- urðardóttir. Útför hennar var gerð frá Keflavíkurkirkju þann 29. maí sl. Hún fæddist á Arnarstapa á Snæfellsnesi 29. sept. 1887, en fluttist ung vestur í Dali með foreldrum sínum. Þar kynntist hún sínum lífsförunaut, Hannesi Einarssyni. Eins og margt fátækt fólk á þeirri tíð voru þau í vinnumennsku með fyrstu börnin, en síðan lá leiðin úr sveitinni í sjávarþorpið. Keflavík var fá- mennur staður þegar þau Arn- björg og Hannes byggðu sér þar lítinn bæ, en þau sáu staðinn vaxa og lögðu fram sinn skerf til að fjölga íbúunum, því börn þeirra urðu alls 13 og afkomendur þeirra eru nú um 250. Þau hjónin voru samhent að koma upp sínum stóra barnahóp. Efnin voru að vísu af skornum skammti en dugnaður þeirra hjón- anna þeim mun meiri. Allt var nýtt sem hægt var að nýta. Sprett var upp gömlum flíkum, þeim snúið við og saumaðar nýjar. Allt lék í höndum Arnbjargar, enda bar heimilið þess glöggt vitni. Þegar erfiðleikar steðja að er gott að eiga sterka trú, en hana átti Arnbjörg í ríkum mæli. Fjögur bðrn missti hún í bernsku, eiginmanninn 1947 og son í blóma lífsins árið 1963. I öllum þessum raunum var trúar- styrkur hennar ljósið í myrkrinu. Á slíkum stundum fletti hún upp í biblíunni og fann þar alltaf hugg- unarorð, bæði fyrir sig sjálfa og þá sem næstir henni stóðu. Ég man vel þegar ég kom fyrst í Hannesarbæ, á þetta snyrtilega heimili sem Arnbjörg hafði mót- að. Þessi brosmilda geðþekka kona tók tengdadóttur sinni einkar vel og aldrei var hægt að finna annað en hún sætti sig við þau hlut- verkaskipti sem þá urðu í lífi hennar. Fyrir þau fimm ár sem við vorum þarna undir sama þaki og allar samverustundirnar síðar, vil ég þakka af heilum hug. Arnbjörg var glaðlynd kona og gestrisin. Ollum sem að garði bar var vel fagnað en athygli vakti hversu annt hún lét sér um þá sem minna máttu sín og hvað hún lagði sig fram við að veita þeim þá hjálp sem geta hennar leyfði. Þrátt fyrir margs konar erfið- leika, var Arnbjörg gæfumann- eskja. Hún átti barnaláni að fagna og hjá börnum sínum átti hún gott atlæti á efri árum. Síðustu sex árin daldi hún að mestu á sjúkra- húsinu í Keflavík. Hún fylgdist furðu vel með því sem var að gerast, en likamsþrekið var horfið og hvíldin því kærkomin. Langri vegferð er nú lokið, góð kona hefur verið kvödd. Blessuð sé minning hennar. María Jónsdóttir + Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, MAGNEA G. JÓNSDÓTTIR, Torfufelli 24, verður jarösungin fró Fossvogskirkju, mánudaginn 15. júní kl. 15.00, Baldur Guömundsaon, Hafliöi Baldursson, Hildur Þorléksdóttir, Brynja Baldursdóttir, Guömundur Jónsson, Guómundur Ó. Baldursson, Helga K. Stefénsdóttir, Halldóra Baldursdóttir, Hílmar Sigurjónsson, Jón Baldursson og barnabörn. + Þökkum af alhug auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur, fósturfööur, tengdafööur og afa, JÚLÍUSAR EVERT, Kaplaskjólsvegi 11. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks, Hátúni 10 B, sem annaöist hann í langvarandi veikindum, Þorbjörg Vigfúsdóttir, Ólafur Júlíusson, Jette Júlíusson, Hanne Júlíusson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Erna Vigfúsdóttir, Arnbjörn Ólafsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.