Morgunblaðið - 13.06.1981, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ1981
41
fclk í
fréttum
Hjólreiða-
æðið er ekki
bara hér
+ Á þessari mynd sjáum við hvar mæðginin
Nancy og Ron Reagan hjóla á einu hjóli í
nágrenni við heimili sitt. Ron er eins og
flestir vita ballettdansari og dansar um
þessar mundir við Joffrey-ballettinn í New
York.
Ford gagn-
rýndur
vestra
+ Gerald Ford, fyrrum Bandaríkjaforseti, sá er
tók viö stjórnartaumunum í Hvíta húsinu í
sambandi viö Watergatemál Nixons forseta hér á
árunum, hefur sætt gagnrýni fyrir það að misnota
aöstööu sína, sem fyrrum forseti þjóðarinnar.
Hann er mjög starfsamur maöur og hefur gefiö sig
aö störfum tengdum viöskiptalífinu. T.d. tekiö aö
sér aö vera ráöunautur fyrirtækja á viöskiptasvið-
inu, tekiö aö sér aö flytja ræöur og fyrirlestra, en
allt hefur þetta gefiö honum góöar tekjur í aöra
hönd, ofaná veruleg eftirlaun sem forseti. Ford
situr nú t.d. í stjórnum 7 stórfyrirtækja og
eignaraöild á hann aö ýmiskonar fyrirtækjum,
þ.á m. nokkrum útvarpsstöövum. Einn af forstjór-
um fyrirtækjanna, sem hann á sæti í og njóta
ráögjafar hans, sagði viö blaðamenn, aö fyrirtæk-
inu væri mikill styrkur af því aö nafn hans (Fords)
tengdist fyrirtækinu. Auk þess væri Ford mjög
klár ráögjafi varðandi viöskiptamál. Tímaritið
Newsweek segir, aö tekjur Fords sóu a.m.k.
900.000 dollarar á ári um þessar mundir. Sjálfur
hefur hann vísaö þessari gagnrýni á bug. Telur sig
lausan allra mála viö kerfiö, vera frjálsan mann,
hann stundi ekki annaö en heiöarlega atvinnu.
Slíkt geti ekki talist ámælisvert og því óviðkom-
andi aö hann hafi í eina tíö veriö forseti.
Kona Fords fyrrum forseta, frú Betty, er mjög
starfsöm viö aö afla fjár til afvötnunarstöövar fyrir
fyrrum áfengis- og fíkniefnasjúklinga í heimabæ
hjónanna, sem er Palm Springs í Kaliforníu.
HJARTA OG LUNGNAÞEGAR
+ Hér eru tveir hjarta- oj{ lunKnaþeKar á blaöamanna- I þrituKur. f texta með myndinni. sem AP-fréttastofan
fundi i þeim fraxa háskólaspítala Stanford Medical I sendi. seKÍr að þetta fólk muni vera einu manneskjurn-
Center vestur í Kaliforniu. Konan heitir Mary D. I ar. sem enn hafi lifað af hjarta- ok lunKnaflutninK.
Gohlke ok cr 45 ára. maðurinn. Charles Walker, er I
Eldridansaklúbburinn Elding
Almennur félagsfundur veröur haldinn aö beiöni
nokkra félagsmanna í Hreyfilshúsinu fimmtudag-
inn 18. júní kl. 20.30.
Sljórnin.
Ath: Sýniö félagsskírteini viö innganginn.
Dagskra
44. Sjómannadagsins
i Reykjavík
14. juni 1981
Kl. 08:00 Fánar dregnir aö hún á skipum í Reykjavík-
urhöfn.
Kl. 10:00 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur létt sjó-
mannalög viö Hrafnistu, Reykjavík, stjórn-
andi Oddur Björnsson.
Kl. 11:00 Minningarguösþjónusta í Dómkirkjunni,
dómprófasturinn, séra Ólafur Skúlason
prédikar og minnist drukknaöra sjómanna.
Séra Hjalti Guðmundsson þjónar fyrir
altari. Dómkórinn syngur undir stjórn
Marteins H. Friörikssonar, einsöngvari Sig-
uröur Björnsson.
ÚTIHÁTÍÐARHÖLDIN í NAUTHÓLSVÍK
Kl. 13:30 Lúörasveit Reykjavíkur leikur sjómannalög,
stjórnandi Oddur Björnsson.
Kl. 14:00 Samkoman sett og kynnt, þulur og kynnir
er Guömundur Hallvarösson.
Ávörp:
A. Fulltrúi ríkisstjórnarinnar Steingrímur Her-
mannsson, sjávarútvegsráöherra.
B. Fulltrúi útgeröarmanna, Kristinn Pálsson,
formaöur Utvegsbændafélags Vestmanna-
eyja. ^
C. Fulltrúi sjómanna, Hannes Hafstein, fram-
kvæmdastjóri S.V.F.Í.
D. Pétur Sigurösson, formaöur Sjómanna-
dagsráös heiðrar aldraöa sjómenn meö
heiöursmerki Sjómannadagsins og af-
hendir afreksbjörgunarverölaun.
ki. 15:00 Skemmtiatriöi dagsins:
Kappsigling á seglbátum, unglingar úr
æskulýösklúbbum Reykjavíkur og ná-
grannasveitarfélaganna ásamt félögum úr
Siglingasambandi íslands keppa.
Kappróöur fer fram á Nauthólsvík, Margar
sveitir keppa.
Koddaslagur fer fram á milli atriöa.
Stakkasund.
Merki Sjómannadagsins og Sjómannadagsblaöiö,
ásamt veitingum veröa til sölu á hátíöarsvæðinu í
Nauthólsvík.
Strætisvagnaferöir veröa frá Lækjargötu og Hlemm-
torgi frá kl. 13:00 og veröa á 15 mín. fresti.
Þeim sem koma á eigin bílum er sérstaklega bent á
aö koma tímanlega til aö foröast umferöaröngþveiti.
Hringakstur er um Nauthólsvík og yfir Öskjuhlíö.
Á sunnudagskvöld verður Sjómannadagsskemmtun
á Hótel Sögu og hefst meö borðhaldi kl. 19:30.
Skemmtiatriði veröa undir boröhaldi. Siguröur
Björnsson, óperusöngvari syngur, Ragnar og Bessi
skemmta meö gamanþáttum. Miðasala veröur í
anddyri Hótel Sögu föstudag og laugardag kl.
17—19 og sunnudag kl. 16—17.
HRAFNISTUHEIMILIÐ í HAFNARFIRÐI
Sýning og sala á handavinnu vistfólks veröur frá kl.
14:30—17:00. Á sama tíma er kaffisala og rennur
allur ágóöi í skemmti- og ferðasjóð vistmanna
heimilisins.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU