Morgunblaðið - 30.08.1981, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1981
15
Margrét Daníelsdótt-
ir, Hópi - Minning
Fædd 17. janúar 1899.
Dáin 15. ágúst 1981.
Trúftu á tvrnnt i heimi
titfn sem aeðsta ber,
(iuð i alheims aeimi.
Guð i sjálfum þer.
Mér komu þessar ljóðlínur í hug
þegar ég frétti lát Margrétar á
Hópi, eins og hún var ævinlega
köliuð hér í Grindavík.
Margrét var hvorki skyld mér
né tengd, en ég kom oft á heimili
þeirra hjóna, Þorsteins Ólafssonar
og Margrétar seinni árin. Erindi
mitt var að kaupa af þeim hjónum
egg, en þau ráku dálítinn búskap.
Með þessum fáu orðum langar mig
að þakka þeim góðu hjónum þá
hlýju og elskulegheit sem ávallt
mættu mér þar.
Ég fluttist hingað til Grindavík-
ur fyrir um það bil þrjátíu árum.
Þá var Grindavík önnur er hún er
í dag. Byggðarlagið var fámennt,
allir þekktust, buðu hver öðrum
góðan daginn og gáfu sér tíma til
að ræða um landsins gagn og
nauðsynjar. Á þeim tíma var
stundaður búskapur jafnt sem
sjávarútvegur. Nú hefur þetta
breyst. Mjög fáir stunda búskap
hér í dag. Þau hjónin Margrét og
Þorsteinn voru í þeim hópi, sem
lengst héldu tryggð við búskapinn.
Fyrstu minningar mínar um
þau hjón eru að Þorsteinn kom
dag hvern með hestvagn niður í
þorpið, fullan af mjólkurbrúsum
og færði þorpsbúum mjólk og egg.
Þetta var yndislegur tími.
Mér finnst, sem Margrét og
Þorsteinn séu fulltrúar þeirrar
kynslóðar, sem var á miðjum aldri
þegar ég flutti hingað til Grinda-
víkur. Margar ferðirnar kom hann
til mín færandi hendi en þegar
aldurinn færðist yfir þau, snerist
þetta við og margar urðu ferðirn-
ar, sem ég fór austur að Hópi til
þeirra.
Ég mun ávallt minnast Mar-
grétar, þessarar hlýju og hógværu
konu, sem ég sótti svo mikið meira
til en egg og mjólk.
Margrét og þau hjón bæði voru
fulltrúar þeirrar kynslóðar, sem
þekkti ekki hraða nútímans og því
var gott að setjast niður hjá þeim,
þiggja kaffisopa, njóta kyrrðar-
innar og friðarins sem umlukti
þau og ekki sist hlýjunnar og
góðmennskunnar sem streymdi
frá þeim.
Ég bið Guð að blessa Margréti
og þakka henni ljúf kynni. Eigin-
manni hennar, börnum, tengda-
börnum og barnabörnum, sendum
við hjónin innilegar samúðar-
kveðjur.
22. ágúst 1981,
Hulda Björnsdóttir,
Gnúpi, Grindavík.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
Frá Hússtjórnarskóla
Suðurlands Laugarvatni
Skólinn hefst 1. okt. Enn geta nemendur
fengiö skólavist.
Uppl. í síma 99-6123 eða 99-6110.
Skólastjóri.
EYMUNDSSON
Try^gur fylginautur skólafóll<s
i meir en 100 ár
Bækur. ritföng
03 aðrar skólavörur
1 ótrúlegu urvali
EYMUNDSSON
fylgist með timanum
Austurstræti 18
Le Corbusier
Legustóllinn
Einn frægasti stóll allra tíma, hannaður 1928. Stillanlegurog fellur vel
að líkamanum. Glæsilegur hlutur úr krómaðri stálgrind. Skinnklæddur.
Greiðsluskilmálar.
Sérverslun með listræna husmuni
Borgartúni 29 Simi 20640