Morgunblaðið - 30.08.1981, Side 26

Morgunblaðið - 30.08.1981, Side 26
\ 2 6 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1981 Þrumuvagninn — ný þungarokkhljómsveit Þrumuvagninn heitir ný hljómsveit sem kemur fram í fyrsta sinn á þriðjudagskvöld í Óðali. í Þrumuvagninum eru Eiður Örn Eiösson, söngvari, Brynjólfur Stefánsson, bassagítar, Einar Jónsson, gítar og Sigurður Reynisson, trommur. Þrír fyrstnefndu voru áður meðlimir í Tívolí, en þeir gáfu einmitt út þriggja laga plötu fyrir skömmu, sem þeir kölluðu Þrumuvagninn. Siguröur Reynisson kemur úr hljómsveitinni Demo eins og Einar, en Sigurður lék um tíma með Pónik. Bárujárnsrokkið veröur enn þyngra á metaskálum þeirra í framtíöinni að sögn. Á meöfylgjandi mynd eru frá vinstri: Sigurður, Eiður, Brynjólfur og Einar. Myndina tók Finnbogi Sig. „Glímt við þjóðveginn“ Brimkló (Hljómplötuútgáfan hf. JUD 032) 1981 Hljómsveitin Brimkló hefur glímt viö þjóöveginn í fjölda ára og meölimirnir unniö aö fjölda platna, og töldust til „stúdíómafíunnar", þegar þaö var í tísku. Enn glímdu þeir félagar viö þjóðveginn í sumar (og eru reyndar enn aö), og sendu frá sér sína fimmtu breiöskífu „Glímt viö þjóö- veginn“. Plata þessi er ekki ólík því sem viö var aö búast, þeir flytja sitt öruggt og þaö er ekki annaö hægt að segja en þeir vinni vel. Þeir bregöast ekki aödáendum sínum á þessari plötu, en eignast líklega ekki marga nýja. Björgvin Halldórsson hefur lengi veriö einn okkar fremsti dægur- lagasöngvari og hans sterkasta hliö eru róleg lög og slík lög eru nokkur. Arnar Sigurbjörnsson er lipur gítar- leikari og lögin hans eru sérstæö og ööruvísi en lög annarra hérlendis. Arnar á þrjú lög á plötunni. Magnús Kjartansson er kunnáttumaöur á hljómborö með sinn „íslenska" stíl, oftast er hægt aö þekkja lög Magnúsar og þau tvö sem hann á á þessari plötu eru greinilega hans formúla, og annaö meö hans betri lögum. Ragnar Sigurjónsson hefur leikiö á mjög mörgum íslenskum plötum síöan Hljóöritl reis upp. Honum er oft eignaöur „íslenski" trommustíllinn. Haraldur Þorsteins- son er einn af pottþéttari bassistum landsins og hann skilar stnu af vana. Kristinn Svavarsson er einn af fáum liötækum saxófónleikurum í poppinu og hefur staöiö fyrir sínu. Og í heild stendur platan fyrir „sínu“, en þaö er ekkert „Nína og Geiri" eöa „Síöasta sjóferöin", en í staöinn eru létt og góö lög eins og „Þorskbæn" og „Dreifbýlisbúgí", „Upp í sveit" og „Út í buskann". Ef viö spáum aöeins nánar í lögin, þá er rétt aö byrja á lögum Arnars, „Myndir í lit“, „Ég er alkóhól" og „Mitt er þitt“. Arnar viröist vinna ólíkt flestum og byggir lög sín meira upp í kringum takta, eöa eins og það er kallaö á útlenskunni „riffs". Oft vantar herslumuninn hjá honum upp á 1. klassa en þó ekki í „Myndir í lit“ sem er ágætt. Ef menn hafa fylgst vel meö íslenskum popptónllstar- höfundum vita menn aö hægt er aö þekkja lög Arnars líkt og lög Jóhanns G. Jóhannssonar og jafn- vel Magnúsar Eiríkssonar. Magnús Kjartansson hefur líka sinn stíl í lögum sínum sem eru tvö á þessari plötu, „Skólaball" og „Lífiö hefur sinn gang“. „Skólaball" er reyndar eitt af bestu lögum Magnúsar, og textinn lýsir nokkuö vel hugarfari ungmenna (eöa svo minnir migl). Björgvin á sjálfur þrjú lög, „Því varstu aö fara“, „Lát ei bugast" og „Þorskbæn". „Þorskbæn" hefur mesta möguleika á aö veröa vin- sælt „óskalag" á þessari plötu. Textinn hjálpar þar ágætu laglnu, en ef þeir sem sömdu lagiö „Harper THE FALL Mánuði síöar komu Steve Hanley og Craig Scanlon.Steve tók við bassagítarnum af Marc sem gerðist þá gítarleikari Fall, en Craig spilaöi einnig á gítar. Skömmu eftir þessar breytingar kom út önnur breiöskífa þeirra, „Dragnet“ (Step Forward). Áður en fyrri platan kom út hafði Step Forward-útgáfan gefið út tvær litlar plötur með þeim, „Bingo Masters Break Out!“/„Psycho Mafia“/„Repitition“ og „It’s the New Thing“/„Various Times“. Fram að þessu höföu þeir mest fengið kurteisisumsagnir af hljóm- leikum í blöðunum, en með næstu breiðskífu, „Total’s Turn“ (Rough Trade) fóru þeir aö vekja meiri athygli. „Grotesque" (After The Gramme) hét fjóröa platan sem kom út fyrir síðustu áramót og naut sú plata vinsælda á „inde- pendant“-listanum, sem er unninn með hjálp verslana, sem eru ekki í „vinsældalistakeðjunni“ bresku, þannig að stóru útgáfurnar ein- beita sér ekki að þeim búðum. „Slates” heitir svo nýjasta og líklega sterkasta plata þeirra til þessa. Á henni eru sex lög (platan er tíu tommur): „Slates, Slags, etc.“, „Leave The Capitol“, „Fit And Working Again", „Prole Art Threat“, „An Older Lover“ og „Middle Mass“. Mark Smith setur fram ákveönar skoðanir í þeim málum sem eru hvað viökvæmust í Bretlandi í dag, þar sem staöa almennings hefur aldrei veriö verri frá stríösárunum. Tónlist þeirra á hljómplötum er miðuð við hljómleika- flutning og ætlast til þess aö hún komi alltaf næst á eftir textunum. Punkrokk mætti kannski kalla það, og lögin á „Slates", eins og t.d. titillagið og „Leave The Capitol” setjast fljótt í undirmeövitundina. Hvort sem textarnir komast til skila hérlendis eöa ekki þá er líklegt að hljómleikagestir hafi ánægju af hljómsveitinni þar sem gagnrýnendur virðast sammála ym ágætj þeirra á hljórnleikum. Eíns og komið hefur fram, er hljómsveitin The Fall væntanleg til landsins og heldur hún hljómleika á Hótel Borg 9. og 10. september og þann 12. verða svo tónleikar í Austurbæjarbíói. Hljómsveitin The Fall hefur vakið athygli poppskrifara í Bretlandi frá því hljómsveitin leitaöi upp á yfirborðið í byrjun árs 1977. Undir lok þess árs var hljómsveitin skipuð Mark Smith (söngur), Una Baines (hljómborð), Karl Burns (trommur), Tony Friel (bassagítar) og Martin Brown (gítar). Síðan hafa fjölmargir verið í hljómsveitinni, og í dag stendur Mark E. Smith einn eftir af stofnendum hljómsveitarinnar, en hann hefur líka verið leiðarljós þeirra og semur alla texta hljómsveitar- innar sem eru stór hluti af tilgangi hljómsveitarinnar. (Þess má reyndar líka geta aö Ijóöabók er væntanleg frá honum.) Af núverandi liðsmönnum Fall gekk Marc Riley næstur í hljómsveitina, í mars 1979, en þá kom einmitt út fyrsta breiðskífa þeirra, „Live at the Witch Trials” (á Step Forward). I • U ’C

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.