Morgunblaðið - 30.08.1981, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1981
„Falskar tennur
með fleiru64
Meö sumarferðamönnum
lifnar Parísarborg við, þó
svo hún liggi aldrei í
dvala. Flóamarkaðurinn í
„Porte de Clignancourt"
hefur alltaf verið vinsæll
af ferðamönnum, því þar
er hinn ýmsi og ótrúlegi
varningúr á boðstólum
t.a.m. rauðar og grænar
hárkollur og notaðar
falskar tennur. Þar hefur
skapast sérstakt and-
rúmsloft blandað gleði og
fátækt. Mikið er um ölm-
usufólk af ýmsum þjóð-
ernum á markaðnum og í
grennd við hann. Þetta
eru mest innflytjendur,
sem ekki hefur tekizt að
finna sér lífsviðurværi.
Atvinnuleysi er gífurlegt í
París.
Texti og myndir:
Anna Nissel
Hvort sem litið er á þvottahæfni, efnisgæði,
handbragð eða hönnun, er Völund í sérflokki,
enda fyrsta flokks dönsk framleiðsla, gerð
til að uppfylla ströngustu kröfur vandlátustu
markaða veraldar.
Volund
danskar þvottavélar
í hæsta gæðaflokki.
Frjálst val hitastigs með hvaða
kerfi sem er veitir fleiri mögu-
leika en almennt eru notaðir, en
þannig er komið til móts við
séróskir og hugsanlegar kröfur
framtíðarinnar.
Hæg kæling hreinþvottarvatns
og forvinding í stigmögnuðum
lotum koma í veg fyrir
krumpur og leyfa vindingu á
straufríu taui.
En valið er þó frjálst:
flotstöðvun, væg eða kröftug
vinding.
Trefjasían er í sjálfu
vatnskerinu. Þar er hún
virkari og handhægari, *
varin fyrir barnafikti
og sápusparandi svo um
munar.
Traust fellilok, sem lokað er
til prýði, en opið myndar bakka
úr ryðfríu stáli til þæginda
við fyllingu og losun.
Sparnaðarstilling tryggir
góðan þvott á litlu magni
og sparar tíma, sápu
og rafmagn.
Fjaðurmagnaðir demparar
í stað gormaupphengju
tryggja þýðan gang.
Fullkominn öryggisbúnaður
hindrar skyssur og óhöpp.
SK
Fjórir litir: hvítt, gulbrúnt, grænt, brúnt.
3ja hólfa sápuskúffa
og alsjálfvirk sápu-
og skolefnisgjöf.
Tromla og vatnsker
úr ekta 18/8 króm-
nikkelstáli, því
besta sem völ er á.
Lúgan er á sjálfu
vatnskerinu, fylgir
því hreyfingum þess
og hefur varanlega
pakkningu.
Lúguramminn
er úr ryðfríum
málmi og
rúðan úr
hertu pyrex-
gleri.
Annað eftir
því.
Strax við fyrstu sýn vekur glæsileiki Völund athygli þína.
En skoðaðu betur og berðu saman, lið fyrir lið, stillingar,
möguleika, hönnun, handbragð og efnisgæði, og þá skilurðu
hvers vegna sala á vönduðum vélum hefur á ný stóraukist
í nágrannalöndunum. Reynslunni ríkari huga nú æ fleiri að
raunverulegu framleiðslulandi og verðleikum fremur en
verði og gera sér Ijóst, að gæðin borga sig: strax vegna
meira notagildis, síðar vegna færri bilana, loks vegna lengri
endingar.
Volund
þvottavélar-þurrkarar-strauvélar
FYRSTA FLOKKS FRÁ
Traust þjónusta
Afborgunarskilmálar I
/FOnix
HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420
Ráðstefna arkitekta, sem starfa sjálfstætt:
Arkitekta vantar verkefni
vegna fjölgunar í stéttinni
FUNDUR arkitekta á Norður-
löndum, sem starfa sjálfstætt,
var haldinn i Reykjavik dagana
22. og 23. ágúst. Voru rædd
sameiginleg hagsmuna- og
áhugamál. I Ijós kom að arkitekt-
ar sem starfa sjálfstætt eiga við
svipuð vandamál að striða á
öllum Norðurlöndum hvað varð-
ar öflun vcrkefna, samninga við
launþega og fleira.
Atvinnuleysi meðal arkitekta í
Danmörku er um 14%, um 2% í
Svíþjóð, en ekki er teljandi at-
vinnuleysi í Noregi, Finnlandi og á
Islandi. Á öllum Norðurlöndunum
er veruleg offjölgun á arkitektum,
sem fljótlega mun leiða til aukins
atvinnuleysis, að óbreyttu ástandi.
Fundarmenn voru sammála um að
leggja þyrfti aukna áherzlu á hinn
hagnýta hluta arkitektanámsins.
Formaður íslenzku deildarinnar
er Bárður Daníelsson. Aðrir í
stjórn eru arkitektarnir Haukur
Viktorsson og Karl-Erik Rocksén.
Svavar Gestsson félagsmálaráðherra:
Grundvallarhugsun húsa-
leigulaganna ekki breytt
„ATHUGUN á lögum um
húsaleigusamninga hefur
verið í gangi í nokkra mán-
uði. Það er ekki endanlega
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
4 V____ ’S
\n;LVsiN(; \
SIMINN KK:
22480
húið að Ijúka þvi, en það
gerist á næstu vikum að við
fáum tillögur frá þeim sam
hafa verið með þetta i athug-
un.“
Þetta sagði Svavar Gestsson
félagsmálaráðherra er Mbl.
innti hann eftir endurskoðun á
lögum um húsaleigusamninga,
sem ráðuneytið er með í
bígerð.
„Það er búið að skila tillög-
um um nokkra þætti en það er
fleira sem við bíðum eftir og
vonumst lil að fá það áður en
langur tími líður," sagði Sva-
var.
Hann sagði einnig að þeirri
grundvallarhugsun sem fælist
í þessum lögum teldist engin
ástæða til að breyta, þ.e.a.s. að
vernda rétt leigjenda. Sagði
hann það vera nausynlegt að
gera það og sagðist andvígur
því að fella niður þá réttar-
vernd sem leigjendur hefðu
samkvæmt þessum lögum.