Morgunblaðið - 30.08.1981, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1981
21
hinna andríku og safamiklu til-
svara og skrítillegu, oftast óhefl-
uðu, grófu sagna, sem hún mælti
gjarnan af munni fram heilu
næturnar.
Eftir að japanski málarinn
Foujita hafði flutt á Montparn-
asse, varð Kiki helzta fyrirsæta
hans: „Hún kom einn góðan veður-
dag á vinnustofu mína við Rue
Lalambre," sagði hann, „undir
kápunni var hún allsnakin." Þó að
hún yrði aldrei ástkona Foujitas,
virti hann hana mikils, og er hún
dó, þá fylgdi hann henni til grafar.
Kiki var fyrirsæta fjölda lista-
manna, m.a. Modigliani, Dongen,
Norðmannsins Per Krogh, en þó
öðrum fremur Moise Kislings, sem
nefndi vini sína einnig „Kiki".
Hún var nokkur ár ástkona hins
fræga, ameríska dada-málara og
ljósmyndara Man Ray og lék
aðalhlutverkið í stuttri kvikmynd
hans, „Etoile de Mer“ (Stjarna
hafsins). Hið stormasama sam-
band stóð í sex ár. Það einkenndist
af rifrildum og sundrung, af
heiftúðugum upphlaupum opin-
berlega og kraftmiklum löðrung-
um, slagsmálum, aðskilnaði og
sáttum.
Þegar Kiki var á annað borð
ástfangin af málurum, þá flutti
hún iðulega á vinnustofu þeirra og
eldaði ofan í þá og deildi með þeim
sæng. En hún seldi sig aldrei fyrir
peninga.
Sem fyrr segir, þá var Kiki
gædd margvíslegum hæfileikum,
hún hafði ágæta söngrödd og tróð
upp á næturklúbbum Montparn-
asse við miklar vinsældir. Henni
var boðinn samningur í Ameríku.
En varla var hún komin þangað,
fyrr en hún tók næsta skip til
baka og hélt rakleiðis á Montparn-
asse. Utan Montparnasse-hverfis-
ins fannst henni hún sem rifin upp
með rótum, hinn litríki persónu-
leiki hennar missti flugið.
Hún hóf að teikna og mála.
Sýning hennar á naivískum, lit-
glöðum myndum varð að viðburði
á Montparnasse og seldust allar
myndirnar við opnunina. Hún
skrifaði og endurminningar sínar.
Með stuttum, hvössum setningum
sagði hún mjög biturlega frá
erfiðleikum uppvaxtaráranna úti
á landsbyggðinni, áhyggjum sín-
um í skóla, og erfiðleikum í
ungengni við nunnurnar, ástar-
ævintýrum sínum og lífi sem
fyrirsæta á Montparnasse. Bókin
náði miklum vinsældum og jafnvel
enska þýðingin seldist fljótlega
upp. En Kiki hafði enga tilfinn-
ingu fyrir veraldlegu hliðinni.
Öllum hinum miklu gáfum sínum
stráði hún rausnarlega út í veður
og vind.
Líf Kiki endaði sorglega. Líkt og
svo mörg fórnardýr dreggja Mont-
parnasse hóf hún að drekka og
neyta eiturlyfja, í smáum
skömmtum er slíkt örvandi, en í
stórum banvænt. Margir hinna
„vitfirrtu" þriðja áratugarins
drógu sig í hlé til að deyja eða lifa
rólegu lífi, en Kiki vildi standa
áfram í brúnni og fylgja farkost-
inum í djúpið.
Drukkin, full af eitri, auk þess
sem hún þjáðist af illkynjaðri
vatnssótt, sem hún hirti næsta
lítið um, reikaði hún frá einu
öldurhúsinu í annað. Með sinni
ótakmörkuðu andlitsförðun og
þykku lögum af litríkum augn-
skuggum byrjaði hún smám sam-
an að minna á Mome Bijou. Það,
að upplifa hnignun og endalok
Kiki, var öllum þeim, er þekkt
höfðu hana á blómaskeiði hennar,
mikill harmleikur. Þegar hún svo
dó árið 1953, grét allt hverfið
drottningu sína.
Með henni grófu menn í kirkju-
garðinum „Thiais", dálítið af sál
Montparnasse.
Dýrðartími Montparnasse fyrri
ára leið undir lok með henni.
Bragi Ásgeirsson
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AIIGLVSINGA-
SIMINN ER:
22480
ERTU BARNSHAFANDI?
MEÐGANGA OG FÆÐING suarar þuí sem allar konur
uilja uita um meðgönguna og nýfædda bamið . . .
GUDJÓN GUDNASON, yfirlaeknir
mæðradeildar Heilsuvemdarstöðvar
Reykjavíkur og Fæðingarheimilis
Reykjavíkur, skrifar formála íslensku
útgáfunnar og segir þar m. a.:
„Bamsfæðing er einn merkasti atburður í
lífi konu, og allt verður að gera til þess að
hún takist sem best. Ég tel útkomu þessarar
bókar í íslenskri þýðingu stuðla meðal
annars að því að svo megi verða. “ -
- SIGURÐUR THORLACIUS læknir
þýddi bókina.
Hvemig veistu fyrir víst að þú
sért bamshafandi?
Verður bamið þitt eðlilegt?
Hvaða mataræði er hollast fyrir
bamið og fyrir þig sjálfa?
Hvaða lyf er óhætt að taka inn á
meðgöngutímanum?
Þartu að borða á við tvo?
Er óhætt að hafa samfarir á meðgöngutímanum?
Hvað geturðu gert til þess að varðveita vöxt þinn
og útlit?
Hvenær þarf að leggja af stað á
fæðingarstofnunina?
Hvemig slökunaræfingar henta best?
Hvemig fer fæðingin fram?
Hvemig er fæðingarstofan?
Laurence Pemoud
^Jeóganga og fæóins*
I býður upp á mikið safn hagnýtra
V upplýsingaogsegirþéralltsemþú
> þarft að vita um bamið þitt og þig
sjálfa, frá getnaði til fæðingar.
L
Bræðraborgarstíg 16, Simar: 12923 og 19156
„Bókin ergædd mikilli hlýju og
nákuæmni, allt niður í minnstu
smáatriði. . . framsetningin er
traustuekjandi og hefur ueitt mörgum
konum öiyggiskennd. “
FIGARO
,, Þú geturfræðst um allt sem þú þarft að
uita um meðgöngu ogfæðingu bams . . .
skrifuð af nærfæmi og samúð. “
FEMINA
OBREYTT
VERÐ fram að
næstu sendingu!
KARNABÆR
LAUGAVEGI 66 SÍMI 25999
92 «tHiHtiínoM i: 'riiH
.uoy8 jmoM bJ riri nm ,ðnani:D );l i itlvsid
T«tkn*ð hji Tómasi