Morgunblaðið - 30.08.1981, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 30.08.1981, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1981 37 Ágústa H. Hjartar Minningarorð Fa>dd 8. ágúst 1898. Dáin 21. ágúst 1981. köggla og slógmeltu. Jafnframt hyggst Rannsóknastofnunin gera allsherjar úttekt á innihaldsefn- um mysunnar. Það sem við höfum einkum áhuga fyrir er að finna hagkvæm- ar leiðir við að kljúfa mjólkursyk- urinn og gera hann á þann hátt auðmeltanlegri. Það ætti að auka nýtingarmöguleika mysunnar til muna. Þekktar eru þrjár aðferðir við að kljúfa mjólkursykurinn niður með hjálp lífefnahvata. Við höfum mestan áhuga fyrir einni þeirra, sem felst í því að laktasinn er festur við grófkornað efni, það síðan sett í stórar súlur og mysan látin renna í gegn. Þannig kemst laktasinn í snertingu við mjólkur- sykurinn sem klofnar eins og áður er sagt í glúkósa og galaktósa, þ.e.a.s. í mun sætari, leysanlegri og auðmeltanlegri sykurtegundir. Laktasinn, sem er notaður, er fenginn úr sveppategund sem heitir Aspargillus Niger. Hann starfar best við lágt sýrustig (pH 3,5—4), sem er mjög hentugt vegna þess að við það sýrustig er örveruvöxtur óverulegur. Síðan er hægt að vinna meira með þessar lausnir, búa til úr þeim duft, síróp og fleira sem hentar vel í fóður og í ýmsan iðnað, svo sem bökunariðnað, mjólkurvöruframleiðslu, niður- suðu- og sælgætisiðnað og jafnvel til áfengisframleiðslu. Margvís- legir kostir eru því samfara að kljúfa mjólkursykurinn í mjólk, sem nota á til osta- og skyrgerðar, en jafnframt verður hægt að framleiða styrkta mjólk, sem hef- ur mikið geymsluþol. Mun æski- legra er að senda slíka mjólk til þróunarlandanna, en aðra mjólk, því hún er auðmeltanlegri. Þess má geta í þessu sambandi að ítalir eru nú farnir að framleiða mjólk, þar sem mjólkursykurinn hefur verið klofinn." Rannsóknin hefur hagnýtt Kildi fyrir mjólkurbúin Að sögn Leifs er veigamikill þáttur í rannsókninni að afla sér þekkingar, sem búið er að þróa erlendis og aðlaga þá þekkingu íslenskum aðstæðum. „Ég tel rannsóknina geta haft hagnýtt gildi fyrir mjólkurbúin hér á landi. Samkvæmt upplýsing- um, sem ég hef séð um kostnaðar- hliðina ætti að vera fjárhagslega hagkvæmt fyrir stærstu mjólkur- búin, til dæmis á Akureyri, Sel- fossi, Sauðárkróki og Húsavík, að koma sér upp slíkum verksmiðj- um. Verksmiðja af þessu tagi er ekki plássfrek og þyrfti ekki að vera mjög dýr eða flókin í upp- setningu. Mikið af nauðsynlegum tækjum eru nú þegar fyrir hendi í mjólkurbúunum, en eru lítið not- uð. Það sem við erum að reyna að gera er í stuttu máli að finna leiðir til að nýta það hráefni sem er til staðar og annars er hent. Mjólkurbúin gætu á þennan hátt framleitt verðmæt efni, sem fram til þessa hafa verið aðkeypt, úr hráefni, sem annars er ekki nýtt bæði fyrir sig og annan matvæla- iðnað.“ Leifur sagði að lokum að enn sem komið væri, væru tilraunir á sjálfri mysunni á byrjunarstigi. „Fram til þessa höfum við lagt aðaláhersluna á að afla okkur fróðleiks og upplýsinga um það sem gert hefur verið á þessu sviði erlendis. Nú eigum við eftir að prófa okkur áfram með mysuna og finna út á hvaða hátt hagkvæmast er að nota hana í innlendar framleiðsluvörur." A.K. _I*ú varst mór ástrik. oinlæK. sonn. mitt athvarf lífs á hrautum. þinn ka*rleik snart ei timans tonn. hann traust mitt var i hvild ok rtnn. í sæld »k sorK »k þrautum. Kk veit þú heim ert horfin nú ok hafin þrautir yfir, svo mæt ok kóö, svo tryKK »k trú, svo látlaus. falslaus reyndist þú. ók veit þú látin lifir.** (Steinn SÍKurösson. „MóÖir min“.) Þessi erindi lýsa vel þeirri minningu, sem mér er efst í huga að ömmu minni látinni. Ágústa Hjálmfríður Hjartar, eins og hún hét fullu nafni, fæddist að Dröngum í Dýrafirði 8. ágúst 1898, og voru foreldrar hennar Ástríður Jónsdóttir og Hjörtur Bjarnason. Ólst hún upp hjá móðurforeldrum sínum, Ingi- björgu Jónsdóttur og Jóni Sakar- íassyni er bjuggu að Dröngum, en fjölskyldan fluttist til Reykjavík- ur árið 1919. Hinn 18. nóvember 1922 giftist hún Birni Marinjóni Björnssyni, bókbindara og veggfóðrara og eignuðust þau 7 börn sem öll eru á lífi. Þau slitu samvistum eftir 11 ára hjónaband og eftir það ól amma börnin upp ein. Björn lést árið 1976. Börn þeirra eru: Áróra, Ástráð- ur, Jónína, Birna, Margrét, Oddný og Björn. Þrjár af dætrunum, þær Áróra, Jónína og Oddný hafa allar verið búsettar í Bandaríkjunum í mörg ár. Þrisvar sinnum heimsótti amma dætur sínar vestur um haf, og nokkrum sinnum hafa þær komið til Islands í gegnum árin, nú síðast í sumar til að sjá móður sína í hinsta sinn. Árið 1953 fluttist hún til Birnu, móður minnar, og bjuggu þær saman æ síðan, eða í nær 30 ár. Amma átti því stóran þátt í uppeldi mínu og hjá henni fékk ég mikið og gott veganesti, sem ég mun búa að um ókomna framtíð. Hún var einstaklega barngóð og naut hinn stóri hópur ömmu- og langömmubarna hennar þess í ríkum mæli, því alltaf hafði hún tíma fyrir þau og tilbúin að miðla af visku sinni. Alla tíð var hún mjög heilsugóð, en á sl. vori gerði alvarlega vart við sig sá sjúkdómur sem leiddi hana til dauða. Síðustu vikurnar á sjúkrahúsinu voru henni erfiðar, en þá kom hennar sterka trú vel í ljós og varð henni mikill styrkur. Hún lést á Landspítalanum að morgni föstudagsins 21. ágúst sl. og verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju mánudaginn 31. ágúst. Blessuð sé minning hennar. Agnar Þór lljartar Dáin, horfin. Lífshlaup góðrar konu er á enda. Hún Ágústa var sérstæður persónuleiki, sem gleymist engum, er kynntist henni. Smávaxin, skollitað hár, augun blá og festuleg, hafði ein- lægt augnaráð, sem hvikaði aldrei er við töluðum saman. Kynni okkar hófust, er dóttir mín eignaðist Áróru Hrönn, barnabarn Ágústu, að vinkonu. Þær gengu saman í Álftamýrar- skóla og Ágústa bjó með Birnu dóttur sinni og tveimur barna- börnum, Hönnu og Áróru, í blokk- inni fyrir ofan mig. Ég man alltaf, þegar dóttir mín kom heim fyrsta skóladaginn og sagði: „Ég er búin að fá vinkonu. Hún heitir Róró og hún á svo góða ömmu.“ Já, það var ekki ofsögum sagt, að Ágústa amma væri góð. Gegnum telpurn- ar okkar urðum við góðar vinkon- ur. Aldursmunurinn var rúm fjörtíu ár, en mér fannst alltaf eins og við værum jafngamlar. Margt töluðum við saman yfir kaffibollanum, því aldrei leit ég þar inn án þess að hún Ágústa mín segði: „Sestu nú niður Björk mín og ég helli á könnuna." Við ræddum um tilveruna og lífið, heimsmálin, og á stundum fannst okkur að við gætum nú bjargað heiminum, ef við fengjum að ráða. í lokin gátum við hlegið að öllu saman. Svo hélt vorið innreið sína og mín góða vinkona kvartaði um slappleika, varð föl á vangann og megraðist. í ljós kom, að hún var haldin sjúkdómi, sem ekki reynd- ist unnt að lækna. Einn bjartan sumardag sagði hún við mig: „Ég er á förum, ég á ekki langt eftir." Það var ekki lengur bjartur sumardagur, mér fannst komið haust. Ég átti að bera fram huggunarorðin, en í staðinn var það hún sem sagði: „Ég kvíði engu, ég er tilbúin að kveðja. Ég ætla að lesa fyrir þig kvæði eftir Tómas Guðmundsson, sem heitir Hótel Jörð.“ Nú hefur hún kvatt lífið þessi gáfaða kona, sem öllum vildi gott gera og alltaf var til góðs. Ég og fjölskylda mín þökkum henni fyrir alla hennar umhyggju og elsku. Birnu dóttur hennar, Hönnu og Áróru og öðrum ættingjum vott- um við samúð. „Tilvera okkar er undarleKt ferðalaK- Við erum Kestir ok hótel okkar er jttróin. Einir fara ok aórir koma í daK. þvi alltaf hætast nvir hópar i sköróin.** (T.G.) Björk Sigurðardóttir Hinn 21. ágúst sl. andaðist í Reykjavík frú Ágústa Hjartar, 83 ára að aldri. Leiðir okkar lágu saman fyrir 20 árum er við urðum nágrannar í Hvassaleiti. Með okkur tókst traust og góð vinátta, sem hélst æ síðar. Ágústa giftist ung Birni Björnssyni bókbindara, og eignuð- + EINAR BJÖRN JÚLÍUSSON som fórst af slysförum laugardaglnn 22. ágúst, veröur jarðsunginn frá Akraneskirkju mánudaginn 31. ágúst kl. 2.30. Aðatandendur. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug vlö andlát og útför, móður okkar og tengdamóöur GUORÚNAR HALLDÓRU FRÍMANNSDÓTTUR fró Burstarbrekku Ólafsfiröi. Sérstakar þakkir til starfsfólks 3-B Landspítalanum, fyrir frábæra umönnun. Börn og tengdabörn. + Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför INGVELDAR BJÖRNSDÓTTUR fró Grænumýrartungu. Sigríöur Gunnarsdóttir, Steinunn Gunnarsdóttir, Þóröur Guömundsson, og aörir aöstandendur. + Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför REBEKKU ÁGÚSTSDÓTTUR, Hóvallagötu 29. Vigdís Sigurðardóttir, Olafur Valur Sígurósson, Gylfi Mór Guöbergsson, Sigurást Gísladóttir, og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jaröarför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa ÓLAFS KRISTJÁNSSONAR Þórhól, Neskaupstaó. Margrét Árnadóttir, Salgeröur Ólafsdóttir, Árni Víglundsson, Lóra Ólafsdóttir, Guöjón Guömundsson, Hafsteinn Ólafsson, Eygló Garöarsdóttir, og barnabörn. + Alúöar þakkir færum viö öllum þeim sem auösýndu okkur samúö og vinarhug, viö andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdafööur og afa INGIMUNDAR KR. GESTSSONAR fró Reykjahlíö, Seljalandi 3, Reykjavík. Kristín Guömundsdóttir, Guómundur Ingimundarson, Rósa Einarsdóttir, Einar Þór Guðmundsson, Ingimundur Kristinn Guömundsson. Kristín Guömundsdóttir, Vegna jaröarfarar frú Ragnheiðar Hafstein Thorarensen verður fyrirtæki okkar lokað eftir hádegi þriöjudaginn 1. september. Stefán Thorarensen hf. ust þau 7 börn. Þrjár dætur þeirra hafa verið búsettar í Bandaríkjun- um um áratuga skeið. Þrátt fyrir miklar fjarlægðir hafði hún stöð- ugt samband við þær, stundum með heimsóknum en þó einkum með bréfunum, sem hún var óþreytandi að skrifa, og fékk jafnóðum bréf aftur. Sjaldan hef ég séð stærri stafla af fallegum mæðrakortum en þann, er dæt- urnar hafa sent henni um langt árabil. Ágústa starfaði árum saman við framreiðslustörf og var því mörg- um kunn hér í borg. Hún var greind vel, sjálfmenntuð og fylgd- ist vel með öllu. Hún var fædd á öldinni sem leið, tilheyrði alda- mótakynslóðinni, sannur fulltrui þeirra hugsjóna, sem þá ríktu meðal æskufólks. Ágústa var ljóð- elsk og hafði yndi af lestri góðra bóka. Veit ég að er hún var í húsmæðrafríi að Hrafnagili í Eyjafirði, var haft orð á því hve vel hún flutti kvæði og las sögur fyrir gesti. Ágústa var sérlega ungleg, létt í spori og sístarfandi fram á síðustu ár. Minnist ég þess er hún áttræð hélt mikið afmælisboð, þar sem saman voru komnir margir vinir og ættingjar, sumir frá fjarlægum löndum. I veislu þessari voru að sjálfsögðu haldnar margar ræður, en minnisstæðust er mér hin snjalla og innilega þakkarræða, sem afmælisbarnið sjálft flutti og bar hún ekki með sér að þar færi háöldruð kona. Þannig hélt hún lífsgleði og persónutöfrum sínum. Naut hún virðingar og vináttu þeirra sem hana þekktu. Síðustu árin var hún hætt að starfa utan heimilis, en aðstoðaði Birnu dóttur sína, sem orðin var ekkja og vann úti. Ágústa var dóttur sinni stoð og stytta við uppeldi barna og heimil- ishald. Ágústa er kvödd með þakklæti fyrir margar ánægjulegar sam- verustundir og fjölskyldu hennar flyt ég innilegar samúðarkveðjur. Sigþrúður Friðriksdóttir Margar stundir lagði amma okkur lið. Við nutum þeirra stunda, sem staðið var við. Við gleymum ekki. Stundin er liðin en minningin geymist. Við systkinin höfðum mikið af Ágústu ömmu okkar að segja gegnum tíðina. Hún var mjög hreinskilin kona, hreinskiptin og vel gerð. Hún hafði mikla ánægju af kveðskap og fór iðulega með stökur og ljóðmæli. Sjálf var hún ágætlega hagmælt. Hún hafði yndi af hannyrðum, útsaumi og hekli og það sem eftir hana liggur er allt einstaklega fíngert. — Rithönd hennar var og mjög falleg. Amma okkar var gjafmild kona og góð. Barngóð var hún og hafði mikla ánægju af börnunum í fjölskyldunni ekki hvað síst langa- ömmubörnunum sínum, en þau eru nú 16 talsins. Við flytjum Ágústu ömmu okkar innilegustu þakkir fyrir allt það, sem hún var okkur og gerði fyrir okkur og okkar börn. Við biðjum góðan Guð að varðveita hana. Systkinin i Miðtúni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.