Morgunblaðið - 30.08.1981, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 30.08.1981, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1981 Haust- og vetrartískan ’81 Rætt við Helgu Björnsson fatahönnuð hjá tískuhúsi Louis Feraud í París Síð og við pils með buxum i stíl - er meðal þess, sem verður í tísku í vetur Helga Björnsson hefur starfað sem fatahönnuður hjá tískuhúsi Louis Feraud í París i átta ár. Tískuhús Louis Feraud er eitt þekktasta sinnar tegundar þar í borg, og meðal viðskiptavina þess er hin nýja forsetafrú Frakka Danielle Mitterand. Helga Björnsson hannar hátiskuklæðnað, en það er sá fatnaður, sem gefur tískulínuna hverju sinni vor og haust. Morgunblaðið bað Helgu, sem var hér í sumarfríi að lýsa komandi haust- og vetrartísku. „Helstu breytingarnar á Par- ísartískunni í vetur eru að nú verður fatnaðurinn efnismikill og síddin á pilsunum nær niður fyrir kálfa. Það er líka eftirtekt- arvert hve kvenfatnaðurinn er mun kvenlegri og sígildari en hann hefur verið.“ „Áhrifa frá Austurlöndum gætir nokkuð, svo og áhrifa frá þjóðlegum hetjusögnum frá mið- öldum.“ í vetur verður mikið með dragtir og stök pils, sem eru víð og síð úr þunnum ullarefnum eða ullarblöndu. Undir pilsunum eru gjarnan síðbuxur úr sama efni. Jakkarnir eru stuttir og aðskornir." „Minna verður um stakar síð- buxur, en þær sem verða á markaðinum eru víðar og beinar niður og er síddin á þeim við ökkla." „Stórmunstraðar prjónapeys- ur verða áberandi, þá ekki hvað síst jakkapeysur með treflum við.“ „Blússurnar eru úr bómull, blúndu eða silki, bróderaðar að framan eða með pífum upp í hálsinn. Blússurnar eru margar hverjar með maokrögum eða hnepptar á hliðinni." „Vetrarkápurnar í ár eru víðar og efnismiklar og jafnvel með hettu." „Stór kápusjöl, sem hægt er að vefja um hálsinn, verða mjög í tisku og eru þau einkum notuð fyrir dragtarjakka eða kápur." „Við þennan fatnað eru jafnan stígvél, sem ná upp á miðja kálfa. Skófatnaðurinn er með lágum hæl og mjórri tá.“ Helga Björnsson fatahönnuður hjá tiskuhúsi Louis Feraud. LjÓNm. Mbl. Emilla. Slákápa með hettu frá Basile. Teikning: Basile Þunn kápa með viðu pilsi og kósakka- Rómantiskur kjóll úr svörtu flaueli og blúndu. buxur undir frá Perry Ellis. Teikning: frá Montana. Teikning: Lynne Robinson. Pcrry Ellis. Víð ullarkápa og barðastór hattur við. Vitt uilarpils og jakki niður i mitti frá Ullarkápa með buxum i stíl frá Cloé. Teikning: Kjóliinn er úr fíngerðri ull með Montana. Teikning: Lynne Robinson. ^arl Lagerfeld. Mao-sniði frá Montana. Teikning: Lynne Robinson. „Kvöldklæðnaðurinn er afar glæsilegur. Töluvert verður um síða samkvæmiskjóla, sem ná niður á ökkla, flegna að framan með klauf í hliðinni og þunnar buxur undir. Einnig verða víðir kjólar úr silkitafti i tisku með rykktum, víðum ermum og skáskornum pífum.“ „Skórnir, sem hafðir eru við, eru með litlum hæl, sem hallar fram, mjórri tá og eru skórnir lokaðir.“ „Leður- og rúskinnsfatnaður verður áberandi, þá ekki hvað síst rúskinnsfatnaður. Nú er rúskinnið ekki aðeins notað i sportlegan fatnað heldur einnig í fína kvöldkjóla." „Tískulitirnir verða náttúru- legir litir, haustlitirnir, eins og brúnrautt, sinnepsgult, dökk- grænt, einnig verður kirsuberja- rautt, vínrautt, dökkblátt og grátt í tísku. Hvað varðar kvöld- kjóla verður svart mjög áber- andi, þá einkum slétt flauel og eru flauelskjólarnir gjarnan með blúndum og pífum.“ „Hattar voru áberandi á Par- ísarsýningunum í vor, þeir eru fremur barðastórir með kúptan koll.“ Við spurðum Helgu nánar út í hátískufatnaðinn, sem hún hannar. „Þetta er mjög dýr fatnaður og ekki nema á færi mjög efnaðs fólks að kaupa hann. Hátisku- sýningarnar í París eru til þess að gefa til kynna, hvað er framundan og auglýsa viðkom- andi tiskuhús. Það er líka nokk- uð um það, að frægt fólk fær þennan fatnað lánaðan, til að fara í samkvæmi, er það góð auglýsing fyrir tískuhúsið, því í blöðum og tímaritum er þess jafnan getið í hverju stjarnan hafi klæðst og hvaðan fatnaður- inn er.“ „Það er þó fjöldaframleiðslu- fatnaðurinn, sem sýndur er á Prét á Porte-sýningunum, sem tískuhúsin lifa af. Þessi fatnaður er orðinn mjög smekklegur og góður og svo virðist, sem bæði efnameira fólk og þeir, sem hafa minna á milli handanna, kaupi þennan fatnað jöfnum höndum." Hvað um framtíðaráætlanir, ætlar Helga að vera áfram hjá tískuhúsi Louis Feraud? „Ég kann mjög vel við vinnu mina hjá Louis Feraud og hef engin ákveðin plön í huga. Ég gæti þó hugsað mér að koma upp verslun eða tiskuhúsi, en til þess þarf gífurlegt fjármagn og því veit ég ekki hvað verður.“ HE.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.