Morgunblaðið - 05.09.1981, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1981
3
Þau voru feimin, rjóð og undirleit...
I>AÐ ER alltaf stórviðburður að
fara i skólann i fyrsta skipti á
vrturna, einkum ef maður er bara
7 ára og ef til vill vanur því að
vera undir verndarvæng mömmu
og pabba.
í Melaskólanum í gær voru 7 ára
krakkarnir einmitt að koma í
skólann í fyrsta skipti. Allir voru
þeir í samfylgd mömmu, pabba eða
systkina sinna.
Skólastjórinn Ingi Kristinsson
las upp nöfn krakkanna og áttu þau
að fafa til þess kennara, sem á að
hafa umsjón með þeim í vetur.
Sum krakkanna voru ósköp feim-
in, rjóð og undurleit, þegar þau
slepptu hendi foreldra sinna og
gengu hikandi í röðina. Önnur voru
mun upplitsdjarfari þegar nafnið
þeirra var kallað upp og hlupu í átt
til krakkanna í sínum bekk. Þau
urðu líka mikil fagnaðarlætin þeg-
ar það uppgötvaðist að góðir félag-
ar lentu í sama bakk.
Þegar skólastjórinn var búinn að
lesa.upp þá krakka, sem áttu að
fara í hvern bekk, þá þrammaði
hver kennari með halarófuna á
eftir sér inn í skólastofuna, sem á
að vera aðsetur þeirra í vetur.
Þegar inn í skólastofuna var
komið settust krakkarnir í sætin og
kennarinn bauð þá velkomna. Sið-
an las hann aftur upp nöfnin þeirra
... Ásta Bára ... Birgir ... Dröfn
... öll réttu þau samviskusamlega
upp hendina.
Síðan minntist kennarinn á
nokkur atriði, sem hann vildi koma
á framfæri eins og það, hvað
krakkarnir ættu að hafa í skóla-
töskunni sinni. Það var pennaveski
með blýanti, strokleðri, yddara og
svo lítil skæri og litir.
Sagði kennarinn ennfremur, að
ef einhver ætti eftir að kaupa
skólatösku handa barninu sínu, þá
skyldi sá hinn sami kaupa það
Sagt frá fyrsta
skóladeginum í
lífi fyrstu-
bekkinga
Melaskólans
stóra tösku að A4 blöð og möppur
kæmust ofan í hana.
Þá minntist kennarinn á, að það
væri nauðsynlegt að krakkarnir
hefðu með sér nesti, það er að segja
brauðsneiðar með hollu áleggi og
eitthvað að drekka.
Brýndi kennarinn fyrir nemend-
unum að koma alltaf stundvíslega í
skólann og væri hyggilegra að
skilja hjólin eftir heima, því bæði
væri hættulegt fyrir 7 ára krakka
að vera úti í umferðinni auk þess
sem hjólunum gæti verið stolið eða
þau skemmd í skólanum.
Beindi kennarinn síðan þeim
tilmælum til foreldranna að
merkja fatnað krakkanna, því á
vorin yrði alltaf eftir mikið af
fatnaði í skólanum sem enginn
kannaðist við. Einnig bað kennar-
inn foreldrana að sauma endur-
skinsmerki á skólaúlpur barna
sinna.
Þegar kennarinn var búinn að
gefa ráðleggingar og segja frá
reglum skólans, þá kvöddu börnin
og hver hélt til síns heima en á
mánudaginn hefst svo alvara lífs-
ins aftur með ýmiss konar lær-
dómspuði.
Hvernig ætli krökkunum þyki nú
að byrja í skólanum? Við spurðum
þrjá krakka þessarar spurningar
en það eru þau María Sjöfn, Hrönn
og Kári.
Ég hlakka til að byrja í skólan-
um á mánudaginn, sagði María
Sjöfn og mér finnst skemmtilegast
að læra að lesa.
Hrönn sagði aftur á móti: Mér
finnst leiðinlegt að lesa en
skemmtilegast í leikfimi, þegar ég
fæ að hanga í köðlunum og svo í
frímínútunum. Annars finnst mér
reglulega gaman að byrja í skólan-
um.
Mér finnst ágætt að vera að
byrja í skólanum, sagði Kári, en ég
ætla að verða skíðamaður, þegar ég
er orðinn stór. Skemmtilegast
finnst mér að skrifa og stundum
hjálpa pabbi og mamma mér að
læra. Hvort ég er duglegur í
skólanum: það vil ég ekkert segja
um.
Eigum við að sitja saman?
Kennarinn sagði bæði nemendum og foreldrum þeirra hvað krakkarnir ættu til dæmis að hafa i
skólatöskunni.
Já, nú er tækifærið að gera helgar
innkaupin í rólegheitunum, því í dag er
Viö vonum að viöskiptavinir okkar
notfæri sér þessa auknu þjónustu
og gefi sér góöan tíma
í aö verzla góöa
vöru á góöu veröi.
OPIÐ TIL
KL. 4
Okkar Skráð
verð verð
Ávaxtasalat 100 gr. 6,00
Síldarsalat 100 gr. 5,30
Rækjusalat 100 gr. 6,50
ítalskt salat 100 gr. 6,50
ítalskt salat 100 gr. 3,40
Lauksalat 100 gr. 3,40
Skinkusalat 100 gr. 6,80
Hrásalat kr. per kg. 3,20
Ódýra kindahakkið 29,90 41,40
Svtnahakk 49,00 73,50
Nautahakk 55,50 81,35
Lambahakk 39,00 57,50
Saltkjötshakk 39,00 57,50
Úrvals saltkjöt 39,50
Nýreykt hangikjötslæri 59,40
Úrbeinuð hangikjötslæri 88,00 109,15
Úrvals hangikjötsframpartar 36,40 77,70
Úrbeinaðir hangikjötsframpartar 69,00 77,70
Frosin ýsuflök (sérvalin) kr. kg. 25,00
Nautagrillsteikur 39,50 51,50
Nauta Roast Beef 97,50 122,40
Nautaschnitzel 107,50 155,55
Nautagullasch 88,50 119,65
Nautainnanlæri 113,00 155,55
Nautahamborgari 4,70 7,00
T-Bonesteik 64,00 84,10
Nýr frosinn lax 80,00
(ath.: góður smálax, sneiddur) 65,80
Ódýra lambalifrin 18,50 37,15
(Ath.: þetta er á hálfviröi.)
Svínaschnitzel, það bezta 89,00 121,00
Svínakótelettur 107,50 134,75
Verzlið í rólegheitum
CS=Ð^crnMD{D@Tr^tDD[R£l
Laugalæk 2 s. 36475 — 35020.