Morgunblaðið - 05.09.1981, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 05.09.1981, Blaðsíða 44
Valur Aston Villa eftir 25 daga Jltaqpmliififcifr LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1981 5 krónur eintakid Harðar umræður um húsnæðismál: Sigurjón kröfu um SIGURJÓN I’étursson, borjtar- fulltrúi Alþýúuhandalassins. ítrck- adi tilloKU sína um aú taka húsnædi í horKÍnni lcÍKunámi. í horðum umra'úum í horuarstjórn Rcykja- víkur í fyrrakvold o|f kvaðst mcð þcssu túlka sina stcfnu ok Alþýóu- handalagsins. Mannús L. Sveinsson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, saifði í þessum umræðum að fara þvrfti marjfa áratugi aftur í tímann til þess að finna samanburð við það neyðarástand, sem nú ríkti í hús- ítrekar leigunám næðismálum Reykvíkinga. Davíð Oddsson, oddviti Sjálfstæð- ismanna í borifarstjórn, sagði í þessum umræðum að fram hefði komið, að 800 lei|?uíbúðir hefðu verið byKKðar í valdatíð Sjálfstæð- ismanna, en engin í tíð vinstri meirihlutans í Reykjavík. Borgar- fulltrúar Alþýðuflokks og Fram- sóknarflokks lýstu andstöðu við tillögu Sigurjóns Péturssonar um leigunám í umræðunum. Sjá nánari frásögn af umræðum á hls. 24. Hætta kaupmenn að selja vísi- töluvörurnar? _l>Af) var talað um það að rcka á cftir málum mcð því að hætta að sclja cinhvcrja vísitöluvöruna. til da'mis smjor. 1. scptcmbcr. cn það hcfur orðið ofan á að bíða cftir húvöruvcrðinu. Vcrði hins vcgar ckki tckið tillit til okkar við ákvörðun þcss. þá cr Ijóst að það vcrður gripið til aðgcrða." sagði Næturfrost í Þykkvabæniun - allgott útlit með uppskeru Óskar Jóhannsson. kaupmaður í Rcykjavík. í samtali við Mhl. I gærkvöldi. „Við, sem seljum lítið sem ekkert annað en þessar vísitöluvörur, get- um ekki lengur staðið í því að verða að selja þessar vörur í raun undir kostnaðarverði," sagði Óskar. „Verði álagningarmálunum ekki breytt, er ekki um annað að ræða fyrir okkur en að hætta að dreifa þessum vörum.“ Sjá bréf Félags matvörukaup- manna og Félags kjötverslana til Tómasar Árnasonar. viðskiptaráð- herra, bls. 26. Maður þarf aldeilis að brjóta heilann í skólanum ekki síst þegar um fyrsta skóladaginn er að ræða, gæti þessi ungi herramaður verið að hugsa. QtÁ ri Q 9 q Fiskiðjan Freyja hf. Suðureyri til sölu: SIS kaupir væntanlega á fimm milljónir króna Þykkvahæ. 4. september. FYRSTA næturfrostið gerði hér síðastliðna nótt og eru flestir garðar nú svartir yfir að líta. eftir að hafa verið fagurgra'nir í gær. Margir bændanna eru því farnir að hugsa sér alvarlega til hreyfings, en fram til þessa má heita að engir séu byrjaðir upptöku af fullum krafti. Utlit er fyrir að uppskeran verði í góðu meðallagi, en þó er ekki hægt að segja til um það með vissu fyrr en upptaka er hafin. Væntan- lega byrja flestir að taka upp af krafti um og eftir helgi. í fyrra var byrjað að taka upp viku fyrr en nú, en þá var eins og kunnugt er mjög góð uppskera. — Arnór EIGENDUR 91 % hlutafjár í I Fiskiðjunni Freyju hf. á Suður- eyri við Súgandafjórð hafa I ákveðið að selja hlutafé sitt. sem er að nafnverði 1 milljón kr. Samhand íslenzkra sam- vinnufélaga hefur átt viðræður I við hlutafjáreigendur og sýnt áhuga á kaupum. Samkvæmt | heimildum Mbl. munu samning- ar að líkindum nást fljótlega eftir helgi og siiluverð hréfanna verða um það hil fimmfalt nafnverð þeirra eða 5 milljúnir- króna. Óskar Kristjánsson stjórnar- formaður Fiskiðjunnar Freyju sagði i samtali við Mbl. í gær, að haldinn hefði verið stjórnar- fundur í félaginu þarsem élagið hefði hafnað forkaupsrétti á því 91%, sem til sölu væri. Hann sagði viðræður við SÍS vera í gangi og erfitt að segja til um hverjar niðurstöður yrðu. Að- spurður sagði hann erfitt að tilgreina hverjar ástæður væru helstar fyrir ákvörðun hluthaf- anna að selja, enda margslungn- ar. Eigendur þess 91% hlutafjár, sem til sölu er, eru 32 að tölu. Eigendur þeirra 9%, sem ekki eru til sölu, eru að stærstum hluta Suðureyrarhreppur og kaupfélag staðarins. Eignir Fiskiðjunnar Freyju hf. eru að stærstum hluta frystihús og fiskimjölsverksmiðja, einnig á Fiskiðjan meirihluta, eða 60%, í skuttogara staðarins, Elínu Þor- bjarnardóttur. „Torfa við torfu þarna úti segir Eggert Gíslason, skipstjóri Eggert Gíslason _1>AÐ HEFUR gcngið lítið enn- þá. nokkrar tunnur bara. en ég er ekki húinn að vera hér nema tvo daga." sagði Eggert Gislason skipstjóri í spjalli við Morgun- hlaðið. en Eggert er á 27 tonna háti og gerir út frá ólafsfirði. „Rátar sem hér hafa verið hafa orðið varir við mikla síld hér fyrir Norðurlandi. til dæmis út við Grímscy. og menn hafa séð margar torfur inni á Eyjafirði." sagði Eggert. „Síldin er stór og falleg og er ábyggilega að verða nógu feit, hún er búin að vera í rauðátu og farin að fitna. Mikið af síldinni er orðið 15—18% feitt, og það virðist vera mikil áta í sjónum. Við sáum stórar torfur vaðandi í gærkvöldi hérna við Hrísey, alveg hreint upp í kjöl og niður í botn. Gamlir sjómenn segjast sjaldan eða aldr- ei á sínum ferli hafa séð annað eins af síld og í sumar. Það er torfa við torfu þarna úti. Þeir í Grímsey láta mikið yfir magninu sem er þar á ferðinni og þetta er víða vestur um, vestur á Haganes- vík, á Siglufirði og Héðinsfirði, það er búið að vera mikið inni á Ólafsfirði og Eyjafirði og svo austur með öllu landi, við Húsa- vík, á Þistilfirði, á Skjálfanda, á Bakkafirði og á Vopnafirði. Þar er allstaðar sama sagan, það er með ólíkindum, magnið af síldinni," sagði Eggert. „Ég hef ekkert farið, kom hérna fyrir tveimur dögum og er með nokkur reknet. Það hefur verið smá bras á okkur og ekki allt í lagi, en við erum rétt að bvrja. Maður var nú búinn að gefast upp á reknetunum fyrir tuttugu og fimm árum, eftir að hafa verið búinn að berjast með þau í fimmtán ár, en maður verður að gera eitthvað. En ég er gamall í þessu, búinn að stunda sjó- mennsku í fjörutíu ár og maður er vanur öllu. Það eru margir bátar að búa sig á síld núna, en það er erfitt að losna við hana nú, það er ekki farið að salta ennþá. En fólk er alveg dolfallið yfir þessari miklu síldargöngu sem er að koma inn á alla firði og víkur. Það kastar silunganetum og lagnetum og fær fleiri tunnur, fólk er alveg yfir sig hissa. Og þetta er svona allstaðar. En þetta hefði þurft meiri rannsóknar við en gerð hefur verið, þetta hefði þurft að skoðast betur. Þetta hefur samt ekki komið á óvart, ekki þeim sem fylgst hafa með hlutunum undan- farin ár. Síldin er vaxandi, en það eru skiptar skoðanir um þetta milli manna, sérstaklega hjá þeim sem hafa ekkert vit á þessu, en þeir, sem sjá þetta fyrir sér, sjá að þetta er mikið magn,“ sagði Eggert Gíslason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.