Morgunblaðið - 05.09.1981, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.09.1981, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1981 1982 Vinningur tii íbúðarkaupa, kr. 150.000 23527 Bifreiðavinningar eftir vali, kr. 30.000 19691 38628 56646 70721 33088 52092 65416 79570 Utanlandsferðir eftir vali, kr. 10.000 2583 11939 17981 34497 66733 5859 12838 25105 40798 67102 6237 13552 30175 41773 72184 7933 14632 30658 43469 73651 9533 15968 33663 61704 76455 Húsbúnaður eftir vali, kr. 2.000 3701 15947 28864 49830 65187 6018 18267 35180 50832 66578 7503 20001 35838 52637 68414 11076 20086 38565 53690 69830 11435 21085 41173 54616 70683 13162 24700 47755 55570 71039 13528 25710 48065 56856 73581 15829 25910 48479 63378 73802 Húsbúnaöur eftir vali, kr. 700 B8 8940 17394 ?43/? 31824 40457 49457 56527 63250 70757 1 90 8985 17420 24436 31838 40502 49578 56906 63297 71082 389 9013 17466 24455 31861 40556 49710 57083 63316 71086 394 9027 17566 24512 32129 40609 49728 57367 63634 71137 436 9072 17626 24679 32131 40725 49793 57428 63660 71528 562 9118 17748 24752 32334 40892 50310 57437 63711 71635 664 9152 18116 24856 32496 40919 50329 58160 63836 71748 764 9582 18189 24910 32666 41157 50330 58176 63930 72031 1174 10307 18264 25273 32742 41205 51015 58473 63972 72160 1634 10425 18302 25476 32849 41267 51026 58583 64367 72459 2238 10516 18325 25571 32920 41461 51118 58615 64539 72694 2292 10819 18590 25797 32926 42100 51127 58736 64830 72746 2604 10830 18624 25866 32999 42188 51145 58890 64970 73004 2666 10855 18886 26284 33060 42293 51369 58938 65271 73428 2696 10997 19350 26328 33097 42565 51445 58993 65388 73454 2786 11227 19441 ? 6 4 8 3 33309 42759 51493 59059 65565 73723 2875 11291 19607 26509 33399 42790 51927 59103 65756 73747 3038 11320 19639 27002 3357Í 42967 51929 59462 65970 73848 3637 11453 19652 27140 33873 43440 51998 59469 66028 /4237 3785 11503 19689 27234 33926 43464 52075 59517 66242 74489 3898 11890 19847 27324 34022 43543 52406 59549 66295 74558 4022 12124 20117 27478 34082 43574 52498 59608 66359 75005 4166 12166 20317 27514 34687 43874 52686 59692 66582 75114 4367 12213 20383 27531 34769 44522 52695 59730 66635 75324 4845 12233 20460 27663 34863 44615 52716 60196 66774 75462 4997 12287 20479 27879 35263 44727 52717 60211 66837 75517 5233 12301 20513 28143 35844 44749 52718 60330 66850 75691 5273 12532 20532 28299 36217 44827 52949 60335 67143 76092 5398 12868 20771 28638 36393 44837 53025 60386 67147 76377 5485 13323 20861 28652 36422 45017 53243 60403 67154 76942 5547 13845 20902 28829 36437 45185 53269 60413 67322 76997 5556 13908 21000 28873 36658 45250 53581 60638 67366 77156 5558 14145 21009 28884 36665 45274 53792 60893 67476 77228 5631 14193 21465 28918 36719 45696 53856 60926 67577 77270 6030 14595 21620 29049 36739 45840 53939 61037 67664 77353 6230 14792 21627 29066 36961 45925 53970 61327 67816 77357 6338 15026 21791 29415 37057 46089 54010 61819 67907 77539 6528 15105 21950 29553 37752 46448 54133 61852 68162 77959 6997 15330 22145 29649 37961 46495 54171 61903 68268 78077 7049 15447 22315 29882 37979 46518 54279 61947 68345 78258 7142 15461 22408 30051 38060 46885 54341 62113 68449 78309 7151 15783 22525 30098 38143 47134 54422 62338 68552 78563 7426 16440 22542 30112 38839 47988 54650 62343 68571 78581 7430 16477 22751 30293 38916 48073 55193 62478 .69099 78629 7455 16616 22868 30535 39040 48138 55231 62542 69312 78750 7485 16636 23049 30551 39299 48277 55266 62554 69324 78753 7509 16747 23133 30609 39558 48442 55442 62562 69699 79102 7521 16773 23194 30633 39614 48452 55763 62604 69906 79177 7763 16893 23618 31058 39636 48641 55966 62702 69920 79599 7777 16995 23666 31323 39866 48784 56139 62822 70008 7788 17033 23808 31498 40130 48830 56163 62978 70259 8188 17068 23906 31741 40192 49281 56271 63020 70336 8509 17146 24233 31809 40224 49402 56300 63055 70427 Afgreiðsla húsbúnaöarvinninga hefst 15. hvers mánaðar og stendur til mánaöamóta. VINNINGAR í HAPPDRÆTTI 5. FLOKKUR 1981 SiglufjörÖur: Byrjað á að mal- bika Laugarveg SÍKÍufirói. 3. soptemÍHT. í DAG var byrjað á að malbika Laugarveginn og gengur verkið ágætlega. Þetta eru byrjunar- framkvæmdir sem allir bæjarbúar hafa beðið eftir. Malbikinu er ekið frá Akureyri og eru 15 vörubílar í .............................- flutningunum, en fleiri götur verða malbikaðar að bessu verki loknu. Göturnar sem næst eru á dagskrá eru Norðurtún og Hafn- artún, en einnig verða nokkrar nýjar götur malbikaðar. — Matthías. Höfundur við brak úr breska togaranum fyrir utan Krossadal. Listamaðurinn með barnshjartað eftir Hafliða Magnússon, Bíldudal I Selárdal í Arnarfirði eru mannvirki og listaverk Samúels Jónssonar nokkuð þekkt orðin af Ijósmyndum og blaðaskrifum. Einnig hafa ferðamenn lagt þang- að leið sína að skoða verk þessa ötula gamla manns, sem á elliár- um fékk útrás fyrir þá listhneigð og sköpunarlöngun, sém alltaf hafði í honum búið. Þar byggði hann hus skrautlegt, sem hann mun hafa hugsað sem listasafn og kirkju með býsantískum turni, þar sem kúpillinn er gerður úr tvö hundruð og fimmtíu spýtukubbum tálguðum með vasahníf. Kirkju- veggina reisti hann úr steinsteypu með því að stilla upp tveim borðum í mót og lagði þar í langa steina steypta, sem hann hafði áður búið til. Síðan hellti hann þar í steypu með vaskafati, en sandinn bar hann á bakinu úr fjöru. Umhverfis listasafnið átti að verða girðing með steyptum hringjum milli stöpla og skreyt- ingum margskonar, en Samúel entist hvorki sjón né aldur til að Ijúka þessu verki sínu. Þó kom hann upp hluta af girðingunni með bogmynduðu skrauthliði og sitja Ijónsungar á stöplunum beggja vegna bogans. Styrktar- járn bogans er band úr togara sem strandaði í Tálknafirði 1914. í garðinum standa tíu Ijón í þyrpingu og snúa höfðum út. I gegnum þau liggja rör að kjafti og koma saman að stöpli í miðju, þar sem skál er steypt efst. Þar upp sá ég listamanninn fara í stiga hrör- legum og hella úr vatnsfötu í skálina. Seitlaði þá vatn úr kjafti ljónanna. Hannibal Valdimarsson mun svo hafa gefið honum vatns- slöngu langa til að leiða vatn í listaverkið. Það var gaman að koma þarna til Samúels meðan hann var enn í fullu fjöri og féll aldrei verk úr hendi við iðju sína. Þó vísaði hann gestum um svæðið með barnslegri gleði og áhuga þess manns, sem loks gat farið að sinna köllun sinni af einlægni. Sem ég spurði hann hvað væri kynjadýr nokkurt skammt frá ljónunum, svaraði hann: „Þetta er sækýr og strákur að gefa henni að éta.“ Rétt eins og ekkert væri eðli- legra en að smádrengur mataði sækýr sem hvern annan búpening. Skammt frá stóðu stöplar tveir í mótum, sem voru þannig gerð að vafðar voru saman járnplötur og bundnar með snærum. Er ég spurði hvað þetta ætti að vera svaraði listamaðurinn af einlæg- um fjálgleik: „Þetta. Þetta eru lappirnar á Leifi heppna. Hann á að standa hér, skyggja hönd fyrir augu og vera að finna Ameríku." Staurarnir i girðingu Samúels komu líka úr flaki breska togar- ans. Síðar er ég kom þar stóð Leifur þar í öllu sínu veldi og horfði undir hönd sína til vesturs. Inni í listasafninu voru nokkrir pokar með niðurtáðum fiskilóðum. Það átti að verða einangrun milli veggja. „Þetta dunda ég við meðan ég elda grautinn," sagði Samúel. Það fór enginn tími til spillis. Samúel málaði einnig mikið af myndum og smíðaði um þær útskorna ramma, sem einir sér voru mikil verk. í Krossadal eru nú rústir einar, en bera samt elju Samúels Jónssonar ekki síður vitni en mannvirki hans í Selárdalnum. Nú eru þessi mannvirki farin að láta á sjá, einhver Ijónanna fallin og húsin verða hrörnun að bráð ef ekkert verður að gert. Jón Kr. Ólafsson söngvari og Iistamaður á Bíldudal reisti Sam- úel bautastein við hlið verka hans. Á honum er áletruð koparplata: „Hér bjó listamaðurinn með barnshjartað." En áletrunin er fengin úr heiti á grein sem Hannibal Valdimarsson skrifaði um Samúel í Lesbók Morgunblaðs- ins. Samúel hefir einkum orðið þekktur af verkum sínum í Selár- dal, en við Jón Kr. Ólafsson gerðum okkur ferð í Krossadal utarlega í Tálknafirði norðanverð- um, að litast um á því svæði sem hann bjó á löngu áður. Ekki er hægt að komast á bifreið nema að Sellátrum og þaðan er um klukku- stundar gangur um holt og skrið- ur, sem þó er um ruddur göngu- vegur. Þarna eru nú rústir einar, sem þó bera elju Samúels ekki síður vitni en mannvirki hans í Selárdal. Þarna hefir hann að likindum fyrst komist í tæri við steinsteypuna og notað hana óspart. Ibúðarhús steypti hann upp áfast við hlaðið fjárhús og hlöðu. Á suðurhlið hússins eru tveir gluggar, en mót í vegginn fyrir þeim þriðja, sem aðeins var til fegurðarauka og síðan málaðar á rúður með svörtu. Við efri gafl bæjarins er fjós upphækkað með steinsteyptum jötum, en undir er hlandfor og haughús. Virðist Sam- úel þarna hafa verið á undan sínum tíma hvað búskapartækni snerti. Efst í túnjaðrinum eru steypt gripahús með sjálfbrynn- ingu í jötum. Ekki hefir Samúel valið byggingarstæði þar sem létt- ast og auðveldast var að koma að efni úr fjöru, heldur þar sem honum hefir þótt það fara best í landslaginu og blasa skírast við auganu. Hann lét sig aldrei muna um að koma byggingarefni dágóð- an spöl. Ibúðarhúsið rýmdi hann um tíma fyrir sambýlismann sinn, Guðmund Finnbogason, og hóf þá nýbyggingu utan við ána sem þarna rennur. Guðmundur sagði honum að ekki tæki að fara út í aðra íbúðarbyggingu, því að hann væri á förum. En það skipti ekki meginmáli. Hann varð að vera að byggja og beita arkitektúr. Annað kom ekki til mála. Það sem þó mesta furðu manns vekur við að skoða rústir þessara mannvirkja er hve Samúel hefir notað sér efnið úr hinum strand- aða breska togara. Túnið er að miklum hluta girt með böndum úr honum og plötur úr síðum notaðar til þakbygginga. Skipið strandaði nokkru utan við Krossadal og efnið dró hann á frera á vetrum og eitthvað mun hann hafa notað hest. Sú hugmynd læðist að manni að hann hafi orðið að dunda við að meitla í sundur hnoðin, sem héldu skipinu saman, en ekki hafa feng- ist sönnur á því. Að vísu var það sprengt í tvennt til að ná úr því katlinum og fleiru nýtilegu, en ekki er hægt annað en dást að eljunni, sem fylgt hefur því að koma öllu því járnabraki til byggða sem enn má sjá í bygging- um og túni. Þar á meðal er gólf fjóssins yfir hlandforinni úr plöt- um togarans. Nú stendur aðeins stefnið af þessu skipi einmana í fjörunni. í vasakveri frá 1943, þar sem Samúel hefir skrifað ýmislegt sér til minnis, ber fyrir skemmtileg- um veðurlýsingum svo sem: Norð- vestan logn og sólskin, austnorðan hregg og útvestan stormur og rigning. Þar er getið tveggja kúa í eigu hans, Huppu og Rauðku, og kindurnar, sem hleypt er til, heita fallegum nöfnum, svo sem: Spök, Dropeyra, Bína, Sletta, Litlagul, Sveina, Brana, Gulhyrna, Dúna, Gulbrún og Gulína. Samúel var fæddur árið 1884 og lést 1969.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.