Morgunblaðið - 05.09.1981, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1981
tttMrKKIK-------------
óöMLu m ^mtwl^ m og mm
mai, mxtm fcwinww erm flp &rft
wom víowom mm m w a ýftu"
Björn Jóhannsson, fulltrúi ritstjóra, sem tók saman íslenzka sérkaflann i árbókinni, Hafsteinn
Guðmundsson, forstjóri Þjóðsögu, sem sá um íslenzka kaflann og Gisli ólafsson, hins ritstjóri, sem
annaðist ritstjórn erlenda hluta bókarinnar. Ljósm. Mbi.: ól.K.M.
Sextánda árbók
Þjóðsögu komin
„l>AÐ ERU talsvert miklar
hreytingar í þessari bók og þar
ber hæst hina itarlegu yfirlits-
kafla“. sagði Ilafsteinn Guð-
mundsson. forstjóri Þjóðsögu, er
hann kynnti fréttamönnum
lfidu árbókina og þá fimmtándu
með islenzkum sérkafla.
„Arið 1980 — stórviðburðir
líðandi stundar í myndum og
máli — með íslenskum sérkafla"
er 344 blaðsíður í sama broti og
símaskráin. Rösklega 500 myndir
eru í bókinni, þar af tæpur
helmingurinn litmyndir. íslenzki
sérkaflinn er 30 blaðsíður með 77
myndum, þar af 9 í litum.
I þeim hluta bókarinnar, þar
sem skýrt er frá atburðum erl-
endis, eru helztu heimsviðburð-
irnir raktir frá mánuði til mán-
aðar. Fremst er frettaskýring og
síðan eru atburðirnir raktir frá
degi til dags og loks er meginefn-
ið myndir og textar af helztu
viðburðum.
Aftan við þennan annál ársins
eru svo greinar eftir ýmsa sér-
fræðinga; grein um Miðaustur-
lönd, sem nefnist „íslamska bylt-
ingin“, síðan grein um Afríku;
„Neyðin mikla í Afríku." „Að lifa
við olíukreppuna" nefnist grein
um efnahagsmál og grein um
vígbúnaðartæknina 1980 nefnist:
„Að sjá allt, hæfa allt og eyða
öllu.“ Tæknigrein um glímu bíla-
smiða við olíukreppuna nefnist:
„Bíllinn settur í megrun" og grein
um kvikm.vndir ársins 1980 heitir
„Gamalreyndir snillingar og ung-
ir.“
A eftir þessum greinum er svo
íþróttakafli, þar sem mest fer
fyrir frásögnum af Olympíuleik-
unum 1980. Aftast í bókinni eru
nafna- staða- og atburðarskrá og
skrá yfir höfunda ljósmynda í
íslenzka kaflanum.
Fjölþjóðaútgáfa árbókarinnar
kemur út á 8 tungumálum. Móð-
urforlag er Weltrundschau Verl-
ag AG í Sviss. Bókin er prentuð í
Winterhur í Sviss og bundin í
Eschenbach í Þýzkalandi, en
setningu og filmuvinnu íslenzku
útgáfunnar annaðist Prentstofa
G. Benediktssonar í Reykjavík.
Dómar úr
stjórnskip-
unarrétti
Út eru komnir Dómar úr stjórn-
skipunarrétti, Gunnar G. Schram
prófessor tók saman. Útgeíandi cr
Iðunn.
Bók þessi hefur að geyma ágrip
flestra þeirra dóma Landsyfirréttar
og Hæstaréttar sem varða stjórn-
arskrá íslands. Ágripin eru lykill að
dómum er um stjórnarskrána fjalla
og þau ágreiningsefni sem risið hafa
varðandi skýringar og túlkun á
hinum einstöku stjórnarskrárgrein-
um. Þær dómsúrlausnir hafa bæði
fræðilegt og raunhæft gildi, þar sem
hér er fjallað um grundvallarlög
landsins og meginþætti íslenskrar
stjórnskipunar. Agripin eru 387 tals-
ins, en dómarnir nokkru færri sem
reifaðir eru, þar sem sumra dóma er
getið tvisvar eða oftar. Elsti dómur-
inn er frá árinu 1877 en þeir yngstu
frá 1980.
í lok bókarinnar er birt skrá yfir
dóma samkvæmt greinum stjórn-
arskrárinnar og önnur skrá yfir
dóma í aldursröð. Þá fylgir skrá yfir
öll lög sem vitnað er til, bæði þau
sem fallin eru úr gildi og þau sem
enn eru í gildi. Þorgeir Örlygsson
fulltrúi yfirborgardómara hefur tek-
ið skrárnar saman.
Dómar úr stjórnskipunarrétti er
196 blaðsíður að stærð. Oddi prent-
aði.
Dr. Gunnar Schram
Hver var að tala um bílasölusýningu?
Við sýnum 200 bíla
nýja og nýlega í dag kl. 10-6 og á morgun kl. 1-6.
Hafi nokkurn tíma veriö hægt að
gera góö kaup á bíl, þá er þaö í
dag.
Nú er upplagt aö skipta gamla
bílnum uppí nýlegri eða öfugt.
Sýnum einnig nýja K-bíiinn
frá Chrysler.
Allar stærðir og
gerðir: 2ja manna—
21 manna.
Árgeröir frá 1926—
1981.
Jeppar, vörubílar,
hjólhýsi, sumarhús,
reiöhjól, mótorhjól,
hestar í skiptum fyrir
bíla o.fl. o.fl.