Morgunblaðið - 05.09.1981, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1981
8
0.
I í
f
i
iílpöáttr
á morgun
DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa.
Sr. Hjalti Guðmundsson. Dóm-
kórinn synur.
ÁRBÆJARPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í Safnaðarheimili
Árbæjarsóknar kl.ll árd. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Messa í
Laugarneskirkju kl. 11. Sr. Árni
Bergur SÍKurbjörnsson.
BREIÐIIOLTSPRESTAKALL:
Messa í Breiðholtsskóla kl. 2. Sr.
Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Messa kl.
11. Organleikari Guðni Þ. Guð-
mundsson. Sr. Ólafur Skúlason.
LANDAKOTSSPÍTALI: Kl. 10
messa. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Organleikari Birgir Ás Guð-
mundsson.
ELLIIIEIMILIÐ GRUND:
Messa kl. 10 árd. Sr. Lárus
Halldórsson.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organleikari Jón G.
Þórarinsson. Sr. Halldór S.
Gröndal.
IIALLGRÍMSKIIÍKJA: Messa
kl. 11. Altarisganga. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Þriðjud. 8. sept.
kl. 10:30: Fyrirhænaguðsþjón-
usta. Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTÁLINN: Messa kl.
10. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
IIÁTEIGSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Arngrímur Jónsson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Messa kl.
11 árd. Altarisganga. Sr. Árni
Pálsson.
LAUÍJARNESKIRKJA: Messa
kl. 11 í umsjá Ásprestakalls. Sr.
Árni Bergur Sigurbjörnsson
messar. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Messa kl.ll. Sr.
Frank M. Halldórsson.
SELJASÓKN: Guðsþjónusta í
Ölduselsskóla kl. 2. Fyrsta guðs-
þjónusta eftir sumarleyfið.
Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Messa kl. 2. Organleikari Sigurð-
ur ísólfsson. Prestur sr. Kristján
Róbertsson.
DÓMKIRKJA KRISTS Kon-
ungs Landakoti: Lágmessa kl.
8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd.
Lágmessa kl. 2 síðd. Alla rúm-
helga daga er lágmessa kl. 6
síðd. nema á laugardögum þá kl.
2 síðd.
FELLAIIELLIR: Kaþólsk
messa kl. 11 árd.
FÍLADELFÍUKIRKJAN: Safn-
aðarguðsþjónusta kl. 2 siðd.
Ræðumaður Jóhann Pálsson. Al-
menn guðsþjónusta kl. 8 síðd.
Ræðumaður Óli Ágústsson. J—
Skírnarathöfn og fórn fýrir
kristniboðið.
IIJÁLPRÆÐISIIERINN:
Hjálpræðissamkoma kl. 20.30.
Brigadíer Ingibjörg Jónsdóttir
talar.
KIRKJA Jesú Krists hinna síð-
ari daga heilögu (Mormónar)
Skólavörðustíg 16: Sakrament-
issamkoma kl. 14. Sunnudaga-
skóli kl. 15.
GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl.ll árd. Sr. Bragi Friðriksson.
KAPELLA St. Jóscfssystra
Garðaba1: Hámessa kl. 2 síðd.
VÍÐISTAðASÓKN: Guðsþjón-
usta kl. 11 árd. Sr. Sigurður H.
Guðmundsson.
IIAFNARFJARÐARKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Altaris-
ganga. Sóknarprestur.
Guðspjall dagsins:
Mark. 7.:
Hinn daufi og málhalti.
FRlKIRKJAN í Ilafnarfirði:
Guðsþjónusta safnaðarins verð-
ur í kirkjunni í Þykkvabæ á
Rangárvöllum í tengslum við
safnaðarferðina. Sr. Auður Eir
Vilhjálmsdóttir prédikar. —
Nánari uppl. um þessa ferð í
síma 50303.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10 árd.
KARMELKLAUSTUR: Messa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
kl. 8 árd.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Messa
kl. 11 árd, samkvæmt hinni nýrri
handbók kirkjunnar. Sóknar-
prestur.
IIVERAGERÐISKIRKJA:
Messa kl. 11 árd. Sr. Ingólfur
Guðmundsson prédikar.
KIRKJUIIVOLSPRESTA-
KALL: Guðsþjónusta í Hábæj-
arkirkju kl. 2 síðd. með Frí-
kirkjusöfnuðinum í Hafnarfirði.
Undirrituð og sr. Bernharður
Guðmundsson fiytja samtals-
prédikun. — Sr. Auður Eir
Vilhjálmsdóttir.
AKRANESKIRKJA: Messa kl.
14 (Ath. breyttan messutíma)
Sr. Björn Jónsson.
Hreggviður Hermannsson við
verk. sem hann sýnir í Djúpinu.
Teiknari sýn-
ir í Djúpinu
í GALLERÍI Djúpinu opnar
Hreggviður Ilermannsson sýn-
ingu á teikningum laugardaginn
þann 5. september.
Hreggviður er fæddur í Lang-
holti í Flóa árið 1950 og hefur búið
þar síðan. Hann hefur haldið sex
einkasýningar, þar af fjórar í
Árnessýslu og tvær í Nýja Gallerí-
inu í Reykjavík. Hreggviður er
teiknari og vinnur aðallega með
tússpenna. Á sýningu hans í
Djúpinu má sjá 27 verk unnin með
þeirri tækni. Sýningin er opin
daglega kl. 11—23 og stendur til
23. september.
Allir eru velkomnir og aðgangur
er ókeypis.
Meirihluti bæjarstjórnar Garðabæjar:
Vísa alfarið á bug dylgj-
um félagsmálaráðherra
og aðstoðarmanns hans
Hinn margumræddi Hafnarfjarðarvegur séður úr flugvél yfir
Arnarnesi. Ljósm. Mbl. rax.
Á FUNDI ha jarstjórnar Garðahæj-
ar. sem haldinn var fimmtudaginn
3. sept. sl.. lagði meirihluti ha jar-
stjórnar fram eftirfarandi bókun:
„1. sept. sl. var gefin út fréttatil-
kynning frá félagsmálaráðherra
vegna framkvæmda við vegagerð í
Garðabæ. í fréttatilkynningu þessari
er, eins og í yfirlýsingum, sem áður
hafa komið frá ráðherra og aðstoð-
armanni hans, vafasamar yfirlýs-
ingar um stöðu skipulagsmála í
bænum. Meirihluti bæjarstjórnar
vísar alfarið á bug öllum dylgjum
um, að ástand þessara mála sé með
óeðlilegum hætti í Garðabæ. Enn-
fremur er vísað á bug fullyrðingum
um að framkvæmdir við Hafnar-
fjarðarveg séu brot á skipulagslög-
um, enda hafa hvorki dómstólar né
ráðherra treyst sér til að kveða upp
úrskurð þess efnis: Framkvæmdir við
Hafnarfjarðarveg nú, eru liður í
heildarlausn vegamála á svæðinu.
Þær hafa orðið til þess að samstaða
er um fjárveitingu til Reykjanes-
brautar, en lega hennar er skv.
staðfestu skipulagi.
Meirihluti bæjarstjórnar Garða-
bæjar vill, um leið og vakin er
athygli á því, að félagsmálaráðuneyt-
ið hefur ekkert leitað eftir upplýsing-
um frá bæjaryfirvöldum um þessi
mál, gera eftirfarandi athugasemdir
við fréttatilkynningu félagsmálaráð-
herra:
Samstaða um Ioru þj(K)vc>ía
I fréttatilkynningu ráðherra kem-
ur fram, að fjárveitingar til þjóðvega
í Garðabæ, hafi ekki verið notaðar
vegna óeiningar innan bæjarfélags-
ins um legu þjóðvega um bæinn, og
að ekki hafi verið gengið frá aðal-
skipulagi. Skv. aðalskipulagstillögu
fyrir Garðabæ, er gert ráð fyrir að
aðalumferðaræðar um bæinn verði
Reykjanesbraut og Sjávarbraut. Um
þetta atriði er full samstaða í
bæjarstjórn sbr. samhljóða sam-
þ.vkkt bæjarstjórnar á aðalskipu-
lagstillögunni í ágúst 1980. Lega
Reykjanesbrautar er staðfest skipu-
lag, þannig að þess vegna var hægt
að nota fjárveitingu í hana ef
samstaða hefði náðst meðal þing-
manna kjördæmisins.
Rangt að Hafnar-
f jarðarvegur sé
ekki á aðalskipu-
lagstillögu
Afstaða skipulaKsstjórnar
Ráðherra heldur fram, að skipu-
lagsstjórn ríkisins hafi ekki fallist á
tillögur bæjarstjórnar Garðabæjar
um legu þjóðvega í bænum. I bréfi
skipulagsstjórnar kemur ekkert fram
um að hún geti ekki „fallist á legu
þjóðvega um Garðabæ," heldur kem-
ur fram, að hún getur ekki að svo
stöddu, fallist á að Hafnarfjarðar-
vegur verði lagður niður sem umferð-
aræð milli Hafnarfjarðar og Reykja-
víkur. Tillaga skipulagsstjórnar
ríkisins er, að sá vegur verði notaður
sem umferðaræð, þar til skipulag
liggur endanlega fyrir. Við þessa
lausn opnuðust síðan möguleikar á
samstöðu þingmanna um fjárveit-
ingu til Reykjanesbrautar. Það hlýt-
ur að vera Ijóst, að vandamál um-
ferðar um Garðabæ minnkar veru-
lega við tilkomu stofnbrautar utan
byggðarkjarnans, og með því að
samþykkja tillögu skipulagsstjórnar,
var bæjarstjórn að ná fram margra
ára ásetningi sínum að koma sem
fyrst stærstum hluta umferðar út úr
bænum með lagningu Reykjanes-
brautar. Þessi ákvörðun nú breytir
ekki samhljóða samþykktri aðal-
skipulagstillögu, þar sem framtíðar-
lausnin á vestursvæðinu er gerð
Sjávarbrautar.
Nú vill ráðherra helst fresta fram-
kvæmdum, meðan skipulag er í
vinnslu. Það álit ráðherrans gengur
þvert á álit skipulagsstjórnar ríkis-
ins, þar sem gert er ráð fyrir að
öngþveiti umferðarmála sé leyst
tímabundið meðan skipulagsvinna
fer fram, og byggist það álit skipu-
lagsstjórnar væntanleg á því, að þeir
gera sér grein fyrir því að frágangur
skipulags bæjarfélags þarfnast nokk-
urs tíma, sérstaklega vegna sam-
ræmingar þess við skipulag nærliggj-
andi bæjarfélaga sem er nú í vinnslu.
Að auki má nefna það, að stærsti
hluti framkvæmda við Hafnarfjarð-
arveg nýtist bæjarfélaginu síðar, þar
sem gert er ráð fyrir á aðalskipu-
lagstillögu og tillögu skipulags-
stjórnar, að sá vegur verði tengi-
braut innanbæjar, milli bæjarhluta,
þ.e. núverandi byggðar og væntan-
legrar byggðar á Álftanesi og í
hrauninu sunnan bæjarins, og jafn-
framt tenging Garðabæjar við Hafn-
arfjörð.
Samraomi framkvæmda og
aðalskipulagstillögu
I fréttatilkynningu ráðherrans,
kemur fram, að framkvæmdir við
Hafnarfjarðarveg séu ekki í sam-
ræmi við tillögur að aðalskipulagi.
Þetta er rangt. Hafnarfjarðarvegur
er á aðalskipulagstillögu, en við
afgreiðslu hennar gerði bæjarstjórn
fyrirvara um tengingu vegarins við
væntanlega Sjávarbraut.
Frestun framkvæmda
til 1. september
Fram kemur í fréttatilkynning-
unni, að athugun á kæru minnihluta
bæjarstjórnar hafi leitt af sér sam-
komulag við samgönguráðuneytið,
um frestun framkvæmda til 1. sept.
Það vita allir sem til málsins þekkja,
að ekki var um neina frestun að
ræða, því samkvæmt upplýsingum
frá Vegagerð ríkisins, gátu fram-
kvæmdir ekki hafist fyrr en í fyrsta
lagi eftir 1. sept. vegna hönnunar-
vinnu og undirbúnings og fram-
kvæmda útboðs sem nú hefur farið
fram og tilboð verið opnuð.
Vald félaRsmálaráðherra
Þar sem lega Hafnarfjarðarvegar
nú, er í samræmi við aðalskipulags-
tillögu Garðabæjar, sem samþykkt
var samhljóða í ágúst 1980, eins og
fyrr segir, og bæjarstjórn Garðabæj-
ar og skipulagsstjórn ríkisins hafa
samþykkt framkvæmdirnar í sam-
ræmi við gildandi skipulagslög, verð-
ur ekki séð að til þurfi að koma
afskipti æðsta yfirmanns skipu-
lagsmála, sem er félagsmálaráö-
herra, nema hann kveði upp rök-
studdan úrskurð, um að hér sé um
lögbrot að ræða. Slíkan úrskurð
hefur ráðherra færst undan að kveða
upp, og er vandséð, að það sé hægt,
þar sem hér er um að ræða tíma-
bundna lausn á öngþveiti umferðar-
mála, en eins og áður segir, eru
framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg
liður í því, að fá varanlega lausn á
umferðarmálum þess svæðis, sem er í
samræmi við staðfest skipulag. í
fréttatilkynningu ráðherra kemur
fram, að ráðherra treystir sér ekki
við núverandi aðstæður, til að stöðva
alveg framkvæmdir í þjóðvegamál-
um í Garðabæ, sem samþykktar hafa
verið af meirihluta bæjarstjórnar og
skipulagsstjórn ríkisins. Á þessu má
sjá, að afskipti ráðherra af fram-
kvæmdum eru ekki til komnar vegna
þess að hann sé að framfylgja
skipulagslögum.
Breyting á íyrir-
huKuðum framkvæmdum
l'élagsmálaráðherra fer fram á,
við samgönguráðherra, í bréfi, sem
er meginefni framangr. fréttatil-
kynningar, að framkvæmdum við
suðurhluta vegarins þ.e. frá Lyngási
að Engidal, verði hagað þannig, að
aðeins verði um minniháttar lagfær-
ingar að ræða til að greiða úr umferð
og draga úr slysahættu. Rétt þykir að
benda á, að á þessum kafla vegarins,
er blindhæð, og í næstu nálægð mikil
umferð gangandi fólks. Þarna eru
líka fleiri umferðarslys en á nokkr-
um öðrum hluta þjóðvegakerfis
landsins. Hvort hægt er að breyta
framkvæmdum, þannig að öryggi
vegfarenda sé tryggt, verður Vega-
gerð ríkisins að ákveða. Afstaða
bæjarstjórnar Garðabæjar, er sú, að
hún hvorki vill né getur dregið sig út
úr því víðtæka, samkomulagi um
heildarlausn vegamála á svæðinu,
sem komst á, á milli bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar, bæjarstjórnar
Garðabæjar, skipulagsstjórnar ríkis-
ins og þingmanna kjördæmisins fyrr
á árinu, þó að það sé í samræmi við
óskir hennar að auka framlög til
Reykjanesbrautar, þar sem sú fram-
kvæmd hefði að mati bæjarstjórnar
átt að vera fyrsta framkvæmd í
vegamálum á svæðinu."