Morgunblaðið - 05.09.1981, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1981
17
Jón Kr. Ólafsson, Bíldudal
Muggur
„Þeir sem guðirnir elska deyja
ungir,“ segir á einum stað. Sann-
arlega detta manni þessi orð í hug,
þegar afhjúpaður verður minnis-
varði um Guðmund Thorsteinsson
eða Mugg eins og hann var ávallt
kallaður.
Ekki er það á mínu valdi að
fjalla ítarlega um þennan mikla
Iistamann og góða dreng, til þess
eru flestir mér færari. En svo
mikil áhrif hefur lífshlaup og
listaverk hans haft á mig að ég get
ekki stillt mig um að minnast
hans með örfáum orðum á þessum
degi.
Hann fæddist á Bíldudal hinn 5.
september 1891, sonur Péturs
Thorsteinssonar sem var á þessum
árum einn umsvifamesti útvegs-
maður landsins og konu hans
Ásthildar Guðmundsdóttur.
Á Bíldudal hafa allar götur frá
því staðurinn byggðist oftlega
dvalist miklir andans menn.
Margir listamenn hafa sótt sér
yrkisefni í náttúrufegurð Arnar-
fjarðar.
Pétur J. Thorsteinsson ræður
t.d. til sín Þorstein Erlingsson
einn framsæknasta hugsjóna-
mann sinnar tíðar og stofnar
blaðið Arnfirðing undir ritstjórn
hans.
Á Bíldudal var á þeim árum,
eins og nú, leiklistarstarfsemi í
miklum blóma. 1901—1902 voru
sýnd þrjú leikrit og lék Þorsteinn
Erlingsson í einu þeirra. Nokkrum
árum áður meðan annar listamað-
ur, Ásgrímur Jónsson, var á Bíldu-
dal, var einnig fjörugt leiklistarlif
og málaði Ásgrímur leiktjöldin í
einni uppfærslunni.
Af þessu má sjá að menningar-
líf var með miklum blóma hér á
Bíldudal þegar Muggur vex úr
grasi. Systkinahópurinn var stór,
sex stúlkur og fjórir drengir. Árið
1903 fluttist fjölskyldan til Kaup-
mannahafnar. Þar voru allar að-
stæður hinar ágætustu til þess að
koma þessum stóra barnahóp til
góðrar menntunar.
Barn að aldri sýndi Muggur
hvert hugur hans stefndi. Á ungl-
ingsárunum undi hann sér löngum
við hverskonar listföndur. Hann
saumaði, bjó til myndir úr tuskum
og hafði afskaplega gaman af því
að breyta flíkum systra sinna með
ýmsu móti.
Þjóðsagriamyndir Muggs eru
mér sérstaklega hugleiknar, trú-
lega vegna þess að ég er sannfærð-
ur um að uppeldi hans hér á
Bíldudal lagði grunninn að hinum
ógleymanlegu þjóðsagnamyndum
hans. Meðan fjölskyldan bjó hér
„Muggur var glæsi-
menni í sjón... Hann
var hvers manns hug-
lji$ og kímnigáfa
hans og allskonar
uppátæki koittu hverj-
um þeim sem hann
umgekkst í gott
skap... Gjafmildi
hans og samúð með
lítilmagnanum var
við brugðið ...“
Guðmundur Thorsteinsson
— Muggur
Jón Kr. Ólafsson
móður sinni og iðulega sat hún
fyrir hjá honum. Hann var ekki
nema unglingur þegar hann fór til
Þýskalands og skoðaði listasöfn
Berlínar. Eftir það ferðaðist hann
vítt og breitt um heiminn og ávallt
hafði hann mynd af móður sinni
með í farangrinum.
Muggur var glæsimenni í sjón,
hávaxinn og fríður sínum og
karlmannlegur, sem m.a. varð til
Álútur ríður hann núna, hlessaður ...
greiddi faðir hans konu laun fyrir
að segja börnunum sögur og
ævintýri. Þessar sögur drakk
Muggur i sig og fyrstu myndir
hans voru einmitt sprottnar af
sögum um tröll, huldufólk, kon-
ungsdætur og karlssyni.
Muggur var ákaflega elskur að
þess að hann var valinn í hlutverk
Ormars Örlygssonar í kvikmynd-
inni um „Sögu Borgarættarinnar".
Hann var hvers manns hugljúfi
og kímnigáfa hans og allskonar
uppátæki komu hverjum þeim sem
hann umgekkst í gott skap. Einn
kennari hans sagði við Mugg,
þegar hann kom í skólann eftir
nokkra fjarvist, „Naar du er borte,
Gudmund, er Klassen som en
Kaktus uden Blomst."
Gjafmildi hans og samúð með
lítilmagnanum var viðbrugðið.
Nokkrir velunnarar hans höfðu
stofnað félag, þar sem þeir lögðu
fram ákveðna fjárupphæð mánað-
arlega honum til styrktar. Eitt
sinn er Mugg hafði verið afhent
upphæðin og var um það bil að
leggja af stað í ferðalag, þá kom
heim til móður hans gömul og
fátæk vinkona þeirra, og sat hjá
þeim fram eftir kvöldi. Þegar hún
fór fylgdi Muggur henni til dyra.
Móðir hans spurði hann rólgga er
hann kom aftur „Gafstu henni allt
Muggur minn?“ „Nei, mamma
mín,“ svaraði hann, „bara helm-
inginn."
Öldruð kona, Ingibjörg Þ.
Waage, búsett á Bíldudal var eitt
sinn samskipa Mugg. Sagði hún
frá því hve glæsilegur hann var og
skemmtilegur. Um borð skemmti
hann farþegum með gamanvísum
og lék hann á alls oddi og smitaði
alla með gáska sínum og uppá-
tækjum. Undirleikari hans í þess-
ari för var Dúna Böðvarsdóttir,
prests á Hrafnseyri.
Muggur kvæntist Inger Naur og
bjuggu þau í Kaupmannahöfn í
íbúð sem faðir hans hafði búið öllu
sem þurfti. Þau slitu samvistum
eftir stutta sambúð en góður
vinskapur var ævinlega milli
þeirra. I endurminningum sínum
segir Inger m.a.: „Hann var sann-
færður um, að hann mundi deyja
ungur."
1923 er Muggur fluttur á Vífils-
staðahæli með lungnaberkla. í
fyrstu var hann ekki þungt hald-
inn. Hannn fór til Cannes eins
fljótt og þrek hans leyfði, en það
var hans síðasta ferð. Hann trúði
því að veðurfar suðrænna landa
mundi lækna hann, en það fór á
annan veg. Heilsu hans hrakaði
jafnt og þétt og að lokum var hann
fluttur á sjúkrahús í Nizza. Móðir
hans sendi honum peninga fyrir
fargjaldi heim, en þá bjuggu
foreldrar hans í Hafnarfirði.
Muggur komst aldrei lengra en til
Sollerod á Sjálandi. 26. júlí 1924
dó hann. Vinir hans bjuggu um lík
hans og sendu heim með Gullfossi.
Með þessum fáu orðum mínum
hef ég reynt að koma á framfæri
þeirri skoðun minni að þótt Mugg-
ur hafi ekki unnið listræn stór-
virki, þá hafi hann sjálfur með
sínum einstaka persónuleika og
listfengi markað djúp spor í hug
og hjörtu samferðamanna sinna,
og verk hans munu hrífa og gleðja
lærða og leika um ókomna fram-
tíð.
I dag, laugardaginn 5. septem-
ber, verður haldin minningarhátíð
um Mugg á Bildudal.
JAKOB MAGNÚSSON
í heimsókn á íslandi.
HLJÓMLEIKAR
Jakob Magnússon er nú um þessar
mundir á hljómleikaferð um Evrópu.
Hann kemur fram ósamf hljómsveit
sinni The Magnetics á Hótel Akranesi
í kvöld kl. 9.
Gestur
hljómleikanna
verður
Bubbi
Morthens