Morgunblaðið - 05.09.1981, Page 18

Morgunblaðið - 05.09.1981, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1981 Northrop flugvélin, sem bjargað var úr Þjórsá og síðan endursmíðuð Skrokkurinn kominn upp úr Þjórsá, illa leikinn. Annað flotholtió komið á pall eftir að hafa legið í Leir og möl spúlað út úr hægra hæðarstýri en möl og leir í Þjórsá í 3G ár. stélflöturinn hefur losnað frá búknum. TIL SÝNIS í REYKJAVÍK UM HELGINA Nú um helgina, nánar tiltekið laugardag, sunnudag og mánudag, verður til sýnis í skýli númer fjögur á Reykjavíkurflugvelli, Northrop- flugvélin, sem bjargað var úr Þjórsá 1979 og endursmíðuð var síðan í stöðvum Northrop-fluvélaverksmiðjanna í Kaliforníu. Flugvélin nauð- lenti í Þjórsá í apríl 1943 og hafði því legið þar í 36 ár er henni var bjargað. Hún tilheyrði norskri flugsveit er hafði bækistöðvar í Nauthólsvík við Skerjafjörð, á Akureyri og á Búðareyri við Reyðarfjörð, og hafði yfir 12 Northrop N-3PB flugvelum að ráða, en aðeins 24 flugvélar af þessari gerð voru smíðaðar á sínum tíma. Flugvélin, sem nú hefur verið endursmíðuð, er eina eftirlifandi flugvél sinnar tegundar, og héðan fer hún til Noregs, þar sem hún mun væntanlega skipa veglegan sess í fyrirhuguðu flugminjasafni norska flughersins. Northrop N-3PB var fyrsta flugvélin sem hinar nýstofnuðu flugvélaverksmiðjur, Northrop Aircraft Inc., hönnuðu og smíðuðu, en þær voru smíðaðar á árunum 1940 til 1941 og þá eingöngu fyrir Norðmenn. Hefur sögu þessara flugvéla, sögu norsku flugsveitarinnar hér, og þá einkum sögu flugvélarinnar, sem hingað er komin, verið gerð ýtarleg skil í tímariti íslenzka flugsögufélagsins. í tímaritinu kemur m.a. fram, að aðstæður til björgunar flugvélarinn- ar úr Þjórsá hafi verið lítt ákjósanlegar. Vélin hefði verið á u.þ.b. tveggja metra dýpi og að mestu hulin möl og leir. Þunginn af björgun vélarinnar hefði því hvílt á höndum kafaranna, sem dögum saman hefðu mátt berjast við ískalda og straumharða jökulána, án þess að sjá nokkru sinni handa sinna skil. Um 35 menn störfuðu að staðaldri við björgunina, 18 stundir á dag, og undir lokin allan sólarhringinn, en það var þó ekki fyrr en á áttunda degi, er nær 200 rúmmetrum af möl og leir hafði verið dæjt frá, og innan úr flugvélinni, að hún losnaði úr viðjum árinnar. Auk íslendinga, sem veg og vanda áttu að undirbúningi og framkvæmd björgunarinnar, tóku Norðmenn, Bandaríkjamenn og Bretar þátt í björgunarleiðangrinum. Björgun flugvélarinnar og tildrögum nauðlendingar, en flugvélin laut stjórn ungs norsks liðsforingja, W.W. Bulukins, er m.a. tók þátt í björgunarleiðangrinum, voru á sínum tíma gerð rækileg skil hér í Morgunblaðinu. Þess má hins vegar geta, að meðan flugvélin var og hét, fór hún samtals 76 ferðir i hernaðarlegum tilgangi, 29 frá Reykjavík og 47 frá Búðareyri og var samtals 342 klst. og 20 minútur í þessum ferðum. Af þessum ferðum voru 31 til verndar skipalestum, 36 til kafbátaleitar og níu til orrustuflugs. Tók hún þátt í öllum aðgerðum flugsveitarinnar frá upphafi til loka Íslandstímabils sveitarinnar, auk þess sem hún á heiðurinn af því að hafa gert, hvorki meira né minna en helming allra árása Northrop-flugvéla flugsveitarinnar á kafbáta Þjóðverja. Flugvélin var endursmíðuð, eins og áður segir, í Hawthorne í Kaliforníu. Tóku þátt í smíðinni 300 starfsmenn Northrop og margir menn sem tóku þátt í smíði vélanna fyrir 40 árum. Var endursmíðaðri flugvélinni „rúllað út“ í nóvember 1980 á fæðingardegi stofnanda Northrop-verksmiðjanna, John K. Northrops. Voru margir Islendingar viðstaddir þá athöfn. Sænska leikhúsið í Helsinki Nokkur fróðleikskorn í tilefni fyrstu íslandsheimsóknar leikhússins k> A.i Tli.VrUUN í] Sænska leikhúsið í Helsinki telst vera stofnað árið 1860 og er því orðið rúmlega 120 ára gamalt. Það hét þó í fyrstunni Nya Teatern, eða Nýja leikhúsið, en árið 1887 var nafninu breytt í Svenska Teatern. Leikhúsið stendur í miðri Helsinki-borg við Esplanaden, sem er breiðgata sem liggur frá miðborginni niður að höfn, falleg bygging sem nýtur sín vel í umhverfi sínu, enda rúmt um hana. Það var G.T. Chiewitz sem teiknaði bygginguna og leikhúsið var vígt 28. nóvember með ævintýraleik eftir Zacharias Topelius, við tónlist eftir Fredrik Pacius. Þremur árum síðar brann byggingin og var þegar hafist handa við að endurreisa hana. í þetta skifti var það Nicolas Benois sem gerði teikningarnar og árið 1866 gátu sýningar hafist að nýju. Um aldamótin 1900 eignuðust Finnar sitt Þjóðleikhús og hófst þá þegar barátta finnska-sænska minnihlutahópsins fyrir því að sænska leikhúsið fengi samskonar hlutverk og bar sú barátta árangur árið 1919 er Nicken Rönngren varð leikhússtjóri. Varð Sænska leikhúsið þá Þjóðleikhús Finnlands-Svía. Skömmu síðar hófust menn handa viö að gera umtalsverðar breytingar á leikhúsinu í samræmi við kröfur tímans og voru arkitektar feðgarnir Eliel og Eero Saarinen ásamt Jarl Ekelund. Leikhúsið var endurbyggt, «nema hvað salurinn eftir Benois fékk að standa óbreyttur. Nýbygg- ingin var vígð árið 1935. — Árið 1954 tók Runar Schauman við leikhús- stjórnaembættinu af Nicken Rönngren og árið 1963 tók Dr. Carl Öhman við embættinu og gegnir hann því enn. Eins og í öðrum ieikhúsum hafa skipst á skin og skúrir í sögu Sænska leikhússins, en þar hafa starfað margir afburða listamenn og ýmsar sýningar leikhússins hafa orðið frægar. Verkefnavalið er yfirleitt fjölbreytilegt og leikið er á tveimur leiksviðum. Af frægum sýningum frá seinni árum má nefna Erfiða tíma, sem Bengt Ahlfors samdi upp úr sögu eftir K.A. Tavaststjárna, en aðstoðarleikstjórinn var íslenskur, Borgar Garðarsson. Ennfremur má nefna sýningu leikstjórans Ritvu Siikala á Brúðuheimili Ibsens, sýn- ingu Kaisu Korhonen á Long Day’s Journey into Night, eftir O’Neill, en það er einmitt Kaisa Korhonen sem leikstýrir sýningunni á Kvinnorna pá Niskavuori, sem við fáum að sjá í Þjóðleikhúsinu nú um helgina, vin- sælan kabarett um og úr verkum Evert Taube sem fór víða um Norðurlönd, sýningu á Póstmannin- um og Van Gogh, eftir Ernst-Bruun Olsen, Dauðadansinn, eftir Strind- berg, o.fl. o.fl. Um þessar mundir er verið að undirbúa í Sænska leikhúsinu sýn- ingu á íslensku leikriti, Blessuöu barnaláni, eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn höfundar og Borgars Garðarssonar. Auk þess var Fjalla- Eyvindur Jóhanns Sigurjónssonar sýndur í leikhúsinu árið 1914, með danska leikarann Adam Poulsen sem gest í hlutverki Kára. Þjóðleik- húsið íslenska hefur í þrígang verið gestur Sænska leikhússins. Árið 1948 fór Leikfélag Reykjavíkur í nafni Þjóðleikhússins í leikför með Gullna hliðið til Helsinki og var það í fyrsta skipti að íslenskur leikflokk- ur sýndi á erlendri grund. Voru viðtökur í þessari ferð frábærar. Árið 1968 sýndi Þjóðleikhúsið Galdra-Loft eftir Jóhann Sigur- jónsson í Sænska leikhúsinu í leik- stjórn Benedikts Árnasonar, og á síðast liðnu hausti var svo Stundar- friður Guðmundar Steinssonar sýndur þar í uppfærslu Stefáns Baldurssonar, sem þá hafaði nýlega vakið mikinn fögnuð á alþjóðaleik- listarhátíðinni í Belgrad. Leikflokkur frá Sænska leikhús- inu hefur aldrei sýnt á Islandi áður, en ein af helstu leikkonum hússins May Pihlgren, hafði ljóðakvöld í Þjóðieikhúskj*M»ranum fyrir tæp- um tveimur árum í boði Þjóðleik- hússins og Norræna hússins; Þess má og geta hér í leiðinni að fyrir nokkrum árum var Gullbrúðkaup, eftir Jökul Jakobsson leikið í finnska útvarpið, í leikstjórn og þýðingu Sveins Einarssonar, og lék May Pihlgren þá einmitt annað aðalhlut- verkið. Kaisa Korhonen, sem er leikstjóri sýningar Sænska leikhússins á Kvinnorna pá Niskavuori, er íslensk- um leikhúsgestum að góðu kunn. Hún stjórnaði sýningu KOM-leik- hússins á Þrem systrum, efti Tsjek- hov, sem hér var sýnd á Listahátíð í fyrra og í vor sem leið hafði hún hér námskeið með starfandi leikurum, enda hefur hún mjög mikið fengist við leiklistarkennslu og kennslu í leikstjórn í Finnlandi. Hún er einn þekktasti leikstjóri sinnar kynslóðar í Finnlandi og hefur stýrt mörgum leiksýningum bæði í sænskumælandi leikhúsum og finnskumælandi. Einkum hefur farið orð af sýningum hennar á verkum Maxíms Gorkí. Annars kom Kaisa Korhonen fyrst til Islands sem söngkona, en ekki sem leikstjóri. En á þeim árum sem hún starfaði við Stúdentaleikhúsið, gat hún sér ekki síður orð sem söngkona og eru til hljómplötur með túlkun hennar á finnskum lögum og ljóðum Brechts. Þannig var mál með vexti að þegar Norræna húsið var vígt, var listamönnum frá öllum Norðurlöndunum boðið og komu þeir fram á sérstakri dagskrá sem að hluta til var sjónvarpað. Þar söng Kaisa Korhonen finnsk lög við und- irleik manns síns, Kaj. Chydenius, sem er eitt þekktasta tónskáld Finna í dag og hefur m.a. samið mikið af tónlist fyrir leikhús. Og tónlistin við sýningu Sænska leikhússins á Kvinnorna pá Niskavuori er einmitt eftir hann. Árni Ibsen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.