Morgunblaðið - 05.09.1981, Page 28

Morgunblaðið - 05.09.1981, Page 28
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA? 28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1981 Boðhlaup með kampavín KEpPT verður í hoAhlaupi meft kampavín. hyrjar það lau^ardaK- inn 5. septemher klukkan 3 á Keflavíkurfluiívelli. ætlunin er að setja heimsmet. Hlaupið verður með 3 lítra kampavínsflösku og eru það tíu einstaklingar úr Ferðafélagi Landfara, sem hlaupa með flösk- una til Hollywood í Reykjavík og hleypur hver hlaupari 1 kílómetra. Þar verður svo tekið veglega á móti hlaupurunum með blómum, einnig mun Lúðrasveitin Maka- laus hylla hlauparana með fögrum tónum, eins og segir í fréttatil- kynningu frá Ferðafélaginu Land- fara. Einnig á að vera sýning í Hollywood, sem sýningarflokkur Ferðafélags Landfara sér um, er hún klukkan 19 sama dag. MYNDLIST Þrjár sjálfstœðar sýning- ar að Kjarvalsstöðum ÞRJÁR sjálfsta'ðar sýningar verða opnaðar laugardaginn 5. september að Kjarvalsstöðum. í vestursal sýnir Septem-hópur- inn, þau Valtýr Pétursson, Sigur- jón Ólafsson, Jóhannes Jóhann- esson, Karl Kvaran, Kristján Dav- íðsson, Þorvaldur Skúlason og Guðmunda Andrésdóttir. í öðrum forsal Kjarvalsstaða mun Ása Ólafsdóttir sýna mynd- vefnað. I hinum forsalnum verður Ilallsteinn Sigurðsson með skúlp- túr, einnig sýnir hann verk úti á stétt Kjarvalsstaða. LEIKLIST Gestaleikur í Þjóðleikhúsinu GESTALEIKUR frá Sænska leik- húsinu í Ilelsingfors verður sýnd- ur í Þjóðleikhúsinu laugardaginn 5. september og sunnudaginn 6. september. Ileitir leikritið Kon- urnar í Niskavuori. Sýningarnar hefjast klukkan 20 ba.'ði kvöldin og er aðeins um þessar tvær sýningar að ræða. Konurnar í Niskavuori er eftir einn þekktasta leikritahöfund Finna, Helle Wuolijoki, sem er meðal annars fræg af samstarfi sínu við Bertolt Brecht. Sýning þessi hefur notið mikilla vinsælda undanfarna mánuði í Finnlandi og hlaut hún afbragðs- góðar viðtökur gagnrýnenda. Þetta er í fyrsta skipti, sem sænska leikhúsið í Finnlandi sendir hingað leikhóp, en það hefur í þrígang tekið á móti leikhópum frá Þjóðleikhúsinu og almennt sýnt íslenskri leiklist lifandi áhuga. Leikstjóri sýningarinnar er Kaisa Korhonen. Er hún íslending- um að góðu kunn, en hún leikstýrði sýningunni á Þrem systrum, eftir Tsjekov, sem sýnd var hér á síðustu Listahátíð. Einn íslendingur tók þátt í uppfærslu leiksins en það er með- leikstjórinn Kári Halldór. Með helstu hlutverk fara: Marte Laurent, Tom Wentzel, Laila Björkstam og Johanna Ringbom, en í hópnum eru alls 27 manns. Leikurinn fer fram á finnlands- sænsku. Félagsmiðstöðin í Arbœj- arhverfi opnuð almenningi ÁRSÆLSVAKA, þ.e. iipnun félag.s- miðstiiðvarinnar í Árbæjarhverfi fyrir almenning. verður haldin á sunnudag. Að sögn Valgeirs Guð- jónssonar. forstöðumanns félags- miðstöðvarinnar. verður þar bæði songur og hljóðfærasláttur og þeir aðiiar. sem fengið hafa inni í félagsmiðstöðinni munu kynna • tarfsemi sína þar. Valgeir kvað hugmyndina þá að Ársælsvaka yrði eins konar fjöl- skylduhátíð í félagsmiðstöðinni, þar sem yrði glaumur og gleði og hvað hann það tilmæii forráða- manna félagsmiðstöðvarinnar að fólk gæfi henni pottablóm til þess að lífga upp á glæsilegt hús. Eru það tilmæli til fólks, að það komi með pottablóm á sunnudag. Frá skemmtun „Sumargleðinnar“ í sumar. „Sumargleðin“ í Tónabœ fyrir fattaða og þroskahefta Á SUNNUDAGINN heldur „Sumargleðin” skemmtun fyrir fatlaða og þroskahefta i Tóna- hæ kl. 16. „Sumargleðin“ gefur alla vinnu og er ekki að efa að kátt verður á hjalla í Tónahæ og að fatlaðir og þroskaheftir munu kunna að meta þetta framtak. Um síðustu helgi hélt Sumar- gleðin unglingahátíð í Tónabæ ÞÓRSKABARETTINN skemmtir eina helgi í viðbót úti á landi vegna fjölda áskorana og verður í Sjálfstæðishúsinu, Akureyri, á föstudaginn kl. 10 og vcrður dansleikur á eftir. Þá verður hann í Miðgarði í Skagafirði á laugardagskvöldið frá kl. 9. Eftir að þeir hafa og tókst hún í alla staði sérlega vel. Húsið var troðfuilt og skemmtu krakkarnir sér vel. Á sunnudaginn verður gleðin endurtekin fyrir börn og ungl- inga og hefst hún kl. 20.30. Meðal annars verður bingó. Vinningar verða utanlandsferð, hljómtæki og bíli og verður miðaverði mjög stillt í hóf. skemmt Skagfirðingum verður dansleikur fram eftir nóttu. Á sunnudaginn verður svo Þórskabarettinn með fjölskyldu- skemmtun á Blönduósi í bíóinu þar og hefst hún kl. 9. Þetta eru þeir staðir sem kabar- ettinn hefur ekki komið á í sumar og bæta þeir úr því hér með. MYNDLIST Myndir frá Grúsíu á Listasafni Alþýðu UM þessar mundir stendur yfir sýning á vegum MÍR á myndum frá Grúsíu. Sýningin er opin frá klukkan 14—19 virka daga en um helgar 14—22. Stendur sýning þessi yfir til 13. september. Viðar Alfrcðsson TÓNLIST Viðar Alfreðs- son í Stúdenta- kjallaranum VIÐAR Alfreðsson trompetleikari ásamt hljómsveit spila í Stúdenta- kjallaranum sunnudaginn 6. sept- ember. Búast má við þrælmögnuð- um jazzi úr þessari áttinni. MYNDLIST Málverkasýn- ing í Rauða hús- inu á Akureyri í RAUÐA húsinu á Akureyri verður opnuð málverkasýning Magnúsar V. Guðlaugssonar laug- ardaginn 5. september. Sýningin verður opin frá klukkan 16—20 dagana 5.—13. september. Þórskabarett á Norðurlandi TÓNLIST Sinfóníutónleikar undir stjórn Paul Zukofsky EINS og fram hefur komið í fjolmiðlum hcfur bandariski fiðiusnillingurinn og hljómsveit- arstjórinn Paul Zukofsky dvalið hér á landi undanfarin hálfan mánuð vegna tónlistarnám- skeiðs, scm við hann er kennt og Tónlistarskólinn í Reykjavík stendur fyrir. Þetta er í fimmta sinn sem haldið er Zukofsky námskeið hér á landi og er tilgangur þess, að stefna saman ungum tónlistar- mönnum, sem vilja kynnast tækni og túlkun samtímatónlistar undir leiðsögn reyndra og viðurkenndra kennara. Paul Zukofsky hefur verið aðalleiðbeinandi á nám- skeiðinu frá upphafi en til liðs við Paul Zukofsky hann hafa komið aðrir mikilhæfir kennarar, á síðasta ári til dæmis hinn heimsfrægi kanadíski flautusnillingur Robert Aitken. Þátttakendurnir á námskeiðinu í sumar voru rúmlega eitt hundr- að að tölu, þar af 17 útlendingar frá 5 löndum. Lokatónleikar nám- skeiðsins fóru fram síðastliðinn laugardag i Háskólabíói. Efnt verður til annarra tón- leika laugardaginn 5. september. Mun Sinfóníuhljómsveit íslands, ásamt fjölda þátttakenda af nám- skeiðinu halda tónleika í Háskóla- bíói kl. 14.00 undir stjórn Zuk- ofskys. Verða þar flutt tvö verk, sem annars væri ekki unnt að flytja hér á landi af Sinfóníu- hljómsveitinni, vegna fámennis hennar. Hér er um að ræða tvö af öndvegisverkum tónbókmennt- anna frá aldamótum, Fimm þætt- ir fyrir hljómsveit op. 16 eftir Arnold Schönberg og Sinfónía nr. 1 í D-dúr eftir Gustav Mahler.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.