Morgunblaðið - 01.10.1981, Side 1

Morgunblaðið - 01.10.1981, Side 1
48 SÍÐUR 218. thl. 68. árg. FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Korchnoi bcnti á vinstri hönd Karpovs sem hafði að geyma hvítt peð. Hann mun því eiga fyrsta leikinn í heimsmeistaraeinvíginu sem hefst í dag. Sjá fréttir á bls. 22 og 30. Erum öflugir því við höfum rétt fyrir okkur - sagði í samþykkt Samstöðu í dag (■dansk. 30. scptombpr. AP. SAMSTAÐA fordæmdi „sálfræðilegt stríð“ yfirvalda gegn þjóðinni á landsþingi óháðu verkalýðsfélaganna í Gdansk i dag og umræður hófust um umbótatillögur samtakanna sem eiga að koma í veg fyrir „hörmungar" i Póliandi. Umræðurnar munu væntanlega taka þrjá daga en 135 fulltrúar eru á mælendaskrá. Tillögurnar eru í 34 liðum. Samtökin leggja til meiriháttar félagslegar umbætur, en frétta- skýrendur telja þær nógu hófsam- ar til að komist verði hjá árekstr- um við yfirvöld. Þó sagði sovéska fréttastofan Tass í dag, að tillögur Samstöðu „væru ekki tillögur verkalýðsfélags heldur stefnuyf- irlýsing stjórnmálaflokks sem vill stjórna þjóðfélaginu og landinu öllu“. Umræðurnar munu væntanlega seinka kjöri forystusveitar Sam- stöðu. Fulltrúar á þinginu sögðu að þrír myndu bjóða sig fram á móti Lech Walesa, leiðtoga sam- takanna. Þeir eru Andrzej Gwi- azda, maður númer tvö á eftir Walesa, Marian Jurczyk frá Szczecin og Jan Rulewski frá Byd- goszcz en þeir þykja báðir rót- tækir. Samþykktinni, sem þingið sam- þykkti í dag, var beint gegn aukn- Verðbréf hækka London. 30. scptcmhcr. AP. VERÐBRÉF ha'kkuðu í verði í London í eftirmiðdag eftir áfram- haldandi sig fyrripart dags. Kaupsýslumrnn notuðu sér hið lága verð og eftirspurn jókst. Bandaríkjadollar hækkaði nokkuð í verði en reiknað er með frekari vaxtahækkunum í Banda- ríkjunum og Evrópu á næstunni. Gullverð lækkaði lítilsháttar í Ijondon og Zurich. um árásum Kommúnistaflokksins og ríkisstjórnarinnar á Samstöðu síðan fyrri hluta landsþingsins lauk 16. september. „Við erum varaðir við að þjóðin geti misst sjálfstæði sitt,“ sagði í samþykkt- inni. „Við getum ekki haft í hótun- um með skriðdrekum eða barefl- Ársþing Verkamannaflokksins í Brighton: Samþykkt ein- hliða afvopnun BrÍKhton. 30. scptcmbcr. AP. Verkamannaflokkurinn í Bret- landi studdi með næstum tveimur þriðju hlutum atkvæða tillögu um einhliða kjarnorkuafvopnun Bret- lands á ársþingi sinu i Brighton í dag en felldi tillögu um úrsögn Bretlands úr NATO. Þctta er í fyrsta sinn sem ársþing flokksins tekur svo einarða afstöðu i afvopn- unarmálum en samþykktin getur haft áhrif á stöðu Bretlands innan um. Við erum sannfærðir um að við séum öflugir af því að við höf- um rétt fyrir okkur og ef allt ann- að bregst þá höfum við verkfalls- rétt“. Kolanámuamenn í Szczeglowice hættu í verkfalli í dag en námu- verkamenn í Silesian-héraði, sem er mikið kolanámusvæði, hafa hótað verkfalli ef stjórnvöld standa ekki við samninga um laugardagsfrí. Verkamenn í 5 verksmiðjum í Czestochowa hót- uðu verkfalli í dag vegna hand- töku prentara sem ákærður er um að hafa sýnt andsovésk auglýs- ingaspjöld. 2 lífum bjargad Bcirút. 30. scptcmhcr. AP. KIÆRKASTJÖRNIN í Iran greindi frá því í dag að hún hefði komið í veg fyrir fyrirætl- anir vinstrisinna um að myrða Ahdulkarim Ardabili. yfirdóm- ara. og Ihrahim Ilejazi. lög- regluforingja. I yfirlýsingu frá stjórninni sagði að gögn hefðu fundist um fyrirætlanirnar við húsleit í Teheran og þau hefðu gert henni kleift að koma í veg fyrir morðtilræðin. Til átaka kom milli andstæð- inga klerkastjórnarinnar og bylt- ingarvarða á götum í Teheran í dag, tveimur dögum áður en gengið verður til þriðju forseta- kosninganna síðan í febrúar 1979. Fjórir herforingjar úr hernum fórust þegar vél með særða her- menn frá landamærum íraks til Teheran hrapaði 20 km fyrir utan borgina á þriðjudagskvöld. Varnarmálaráðherrann var með- al þeirra sem létust. NATO og ákvörðun stjórnar íhalds- flokksins að leyfa staðsetningu handarískra kjarnorkueldflauga i Bretlandi. Hófsamir flokksmeðlimir, þar á meðal Brynmor John, talsmaður varnarmála í flokknum, og Denis Healey, varaformaður flokksins, fögnuðu því að tillagan hlaut ekki tvo þriðju hluta atkvæða. Það hefði gert hana sjálfkrafa að stefnu næstu ríkisstjórnar flokksins. „En sam- þykktin á eftir að valda miklum erf- iðleikum," sagði John eftir atkvæða- greiðsluna. Þetta er í annað sinn sem meiri- hluti fulltrúa á ársþingi flokksins styður tillögu um einhliða afvopnun. Fréttaskýrendur telja að til veru- legra vandræða kunni að koma inn- an flokksins ef ekki verður tekið til- lit til samþykktarinnar í stefnuyfir- lýsingu flokksins fyrir næstu kosn- ingar. „Ég mun taka samþykkt þingsins alvarlega," sagði Healey, en hann hefur áður sagt að hann myndi ekki sitja í stjórn Verkamanna- flokksins sem boðaði kjarnorkuaf- vopnun. Times í hættu I.nndon. 30. scplcmbcr. AP. PRENTARAR við dagblaðið Times í London felldu í kvöld samþykkt sem Rupert Murdoch. hlaðakóng- ur. gerði við leiðtoga verkalýðsfé- lagsins á þriðjudagskvöld. Times hefur ekki komið út síðan á mánu- dag en á að koma út á morgun, fimmtudag. Murdoch hefur hótað að ha'tta útgáfu Times og Sunday Times ef deilurnar verða ekki leystar innan skamms. Ólympíuleikar í Seoul Badcn-Badcn. 30. scptcmbcr. AP. ALÞJÓÐAÓLYMPÍUNEFNDIN samþykkti i dag að ólympíulcik- arnir 1988 verði haldnir í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu. Það var samþykkt með 52 atkvæðum en japanska iðnborgin Nagoya hlaut 27 atkvæði. Þetta verður í fyrsta sinn sem leikarnir verða haldnir í þróunarlandi. Vetrarólynipíuleikarnir 1988 verða haldnir í Calgary, Kanada. Við fyrstu atkvæðagreiðslu hlaut Calgary 35 atkvæði, Falun í Svíþjóð 25 atkvæði og Cortina d’Ampezzo í ítölsku Olpunum 18 atkvæði. Fyrsta skák heimsmeistaraeinvígisins í dag: Keppendur tókust ekki í hendur við setninguna Mcrano. ítalíu. 30. scptcmbcr. AP „SETNINGARATIIÖFNIN íór vel íram í alla staði,“ sagói Fridrik Ólafsson. forseti FIDE, í samtali við Morgunhlaðið í gærkvöldi, Íiegar heimsmeistaraeinvígið í skák hafði verið sett í Merano á talíu. Keppendurnir Victor Korchnoi, áskorandi, og Anatoly Karpov, heimsmeistari, stóðu hlið við hlið við athöfnina en tókust ekki í hendur. Það kom í hlut Korchnois að draga um lit úr hendi Karpovs og hefur áskorandinn hvítt í fyrstu skák- inni. Þjóðsöngvar Sovétríkjanna og Sviss voru leiknir og fánar landanna skreyttu salinn. Fyrsta skák keppninnar verð- ur tefld á fimmtudag. Teflt verð- ur á fimmtudögum, laugardög- um og mánudögum og biðskákir á sunnudögum, þriðjudögum og föstudögum. Keppendurnir munu hvílast á miðvikudögum. Sigurvegarinn hlýtur 500.000 svissneska franka í verðlaun; jafnvirði tæpra tveggja milljóna króna, en 300.000 frankar falla í hlut hins. Miklar árásir birtust á Korchnoi í sovéskum blöðum í dag. Hann var ákærður um sið- leysi og raunverulegur áhugi hans á að fá konu sína og son til sín frá Sovétríkjunum dregin í efa. „ Korchnoi mætti ekki á blaða- mannafundi sem boðað hafði verið til. Starfsmenn hans sögðu að hann hefði ekki viljað lenda í deilum við Tass. Þeir sögðu að hann væri miður sín eftir símtal sem hann átti við konu sína um ástand sonar þeirra, en hún heimsótti hann nýlega í fanga- búðirnar, þar sem hann er í haldi. Tass fréttastofan sagði í dag að sovésk yfirvöld hefðu brottfararleyfi mæðginanna til athugunar. Karpov sagði á blaðamanna- fundi í dag, að engir kærleikar væru með honum og áskorand- anum. Samt sem áður sagði hann Korchnoi verðugan and- stæðing, sem hefði unnið sér áskorandaréttinn og því vildi hann tefla við hann um heims- meistaratitilinn í skák.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.