Morgunblaðið - 01.10.1981, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1981
Sjóða niður bleikju
og selja í dósum
í HAUST verður gerð tilraun hjá
fyrirtækinu SÍKló-síld með að
sjúða niður silung. nánar tiltekið
hleikju úr Miklavatni í Fljótum.
Ekki verður um framleiðslu í
miklu maxni að ræða í haust, en í
þessari tilraun verða soðin niður
150 — 200 kíló ok silunsurinn
boðinn niðursoðinn í dósum á
innlendum markaði.
Pálmi Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri á Siglufirði, sagði
að þessi hugmynd hefði komið upp
í umræðum manna um framtiðar-
verkefni fyrirtækisins, en það hef-
ur verið verkefnalaust stóran
hluta ársins. í Miklavatni væri
mjög mikið af silungi og hefði ver-
ið rætt um að grisja vatnið og
sjóða fiskinn niður á Siglufirði,
þar sem ólíklegt væri að innlendur
markaður tæki við silungnum
ferskum. í framhaldi af þessum
umræðum hefði verið ákveðið að
gera fyrrnefnda tilraun í haust og
síðan yrði séð til með framhaldið,
en hugmyndir væru uppi um að
grisja mjög mörg silungsvötn víða
um land.
Uessir krakkar fluttu sig um set á meðan verið var að ráða niður-
lögum eldsins.
Húsið að Norðurstíg 3
stórskemmt af eldi
Ásmundur og Björn til
Póllands í boði Samstöðu
ELDUR kom upp í húsinu að
Norðurstíg 3 í Reykjavík í fyrri-
nótt og varð eldsins vart um
kiukkan 3.45 og tilkynnti lögregl-
an slökkviliðinu að reyk legði frá
húsinu. samkva-mt upplýsingum
sem Morgunhlaðið fékk hjá Gunn-
ari Sigurðssyni. varaslökkviliðs-
stjóra. í gær. Miklar skemmdir
urðu á húsinu.
Þegar slökkviliðið kom á staðinn
var talsverður eldur á annarri hæð
hússins og þriðja hæðin var alelda,
og var að því komið að rúður húss-
ins brotnuðu. Gunnar sagði að
fjórir slökkvibílar og 13 slökkvi-
liðsmenn hefðu farið á staðinn
upphaflega, en síðan hefði aukalið
verið kallað á vettvang. Gunnar
sagði að slökkvistarf hefði gengið
vel. Slökkvistarfi lauk um klukku-
tíma eftir að skökkvilið kom á
staðinn, en vakt var við húsið til
klukkan 9 í gærmorgun.
Gunnar sagði að talsverðar
skemmdir hefðu orðið á húsinu, en
að Norðurstíg 3 er rafvélaverk-
stæðið Volti til húsa. Húsið er 3ja
hæða steinhús, með steyptum loft-
um og timburþaki. Skemmdir urðu
talsverðar á húsinu, bæði af eldi og
vatni. Þak hússins er ónýtt og bæði
2. og 3ja hæð eru mikið skemmdar
Best til liðs
við Valsmenn
IIINN heimsfrægi knattspyrnusnill-
ingur. George Best. verður meðal
leikmanna Vals er liðið mætir New
York Cosmos í Reykjavík 10. októb-
er næstkomandi. Gengið var frá
samningum við umboðsmann Bests í
gær og samkvæmt upplýsingum Mbl.
fær kappinn 1500 pund eða sem nem-
ur rösklega tveimur milljónum göml-
um íslenzkum krónum fyrir að mæta
til leiksins með Val. Til stóð að Pele
léki einnig með Val í þessum leik, en
af því verður ekki.
af eldi. Einnig urðu miklar
skemmdir á verkfærum og velum
sem í húsinu voru. Að sögn Gunn-
ars leikur sterkur grunur á að
kviknað hafi í út frá þurrkofni sem
var á annarri hæð hússins.
Ekki var talin hætta á út-
breiðslu eldsins í nálæg hús, en
fólk sem býr í húsi að baki Norður-
stígs 3, flutti sig á milli húsa um
tíma.
Frá slökkvistarfinu I fyrrinótt.
I.jnsm. ÓI.K.M.
ÁSMUNDUR Stefánsson, formað-
ur Alþýðusambands íslands. og
Björn Þórhallsson, varaformað-
ur. fóru til Póllands á þriðjudags-
morgun í boAi Samstöðu og sitja
þcir síðari hluta þings hinna
frjálsu pólsku verkalýðsfélaga,
sem nú fer fram i Gdansk.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá Hauki Má
Haraldssyni, blaðafulltrúa ASÍ,
var von á þeim Ásmundi og Birni
til Gdansk í gærkveldi og munu
þeir sitja þrjá síðustu daga þings-
ins. Haukur Már sagði að tveimur
mönnum frá ASÍ hefði verið boðið
á þingið og hefði miðstjórn ASÍ
Blönduvirkjun:
ÁKVÖRÐUN ríkisstjórnar um að
Blanda verði na'sta virkjun lands-
manna er skilyrði sem landeigend-
ur vestan Blöndu hafa sett fyrir
samþykkt tilhúinna samnings-
draga. sem gera ráð fyrir virkjun-
arkosti númer 1. að sögn Torfa
Jónssonar. Torfala-k. Ilann sagði,
að einnig hefðu verið gerðir aðrir
sma-rri fyrirvarar, sem ekki væri
orð á gerandi. Samstaða hefur
ekki náðst um virkjunarkost 1
austan Blöndu og vilja menn þar
fremur virkjunarkost 1A, sem er
kostnaðarsamari. en að sögn Sig-
urpáls Árnasonar. Lundi. austan
Blöndu. gæti fullvissa um að
Blanda vcrði fyrst virkjuð haft
mikið að segja.
Gengið var frá samningsdrögum
í lok síðasta fundar landeigenda og
fulltrúa ríkisvaldsins laust eftir
síðustu mánaðamót. Gera drög
þessi ráð fyrir virkjunarkosti 1 og
sagði Torfi Jónsson, Torfalæk, að
meirihluti hefði náðst vestan
Blöndu um að standa ekki gegn
þeirri tillögu, að fullnægðum
ákveðnum skilyrðum og væri frum-
skilyrði að ríkisstjórnin lýsti því
yfir að Blanda verði fyrsta virkjun-
in. Torfi sagði málið því að sínu
mati í höndum ríkisstjórnarinnar,
en ekki heimamanna.
Ingvar Þorleifsson, Sólheimum,
vestan Blöndu, tók í sama streng og
Torfi og sagði, að þeir vestanmenn
biðu ákvörðunar ríkisstjórnarinn-
ar, því enga þýðingu hefði að sam-
þykkja eitthvað sem ekki kæmi síð-
an til framkvæmda.
Sigurpáll Árnason, Lundi, sem er
austan Blöndu, sagði að menn aust-
an Blöndu hefðu meiri áhuga á
kosti 1A, en 1. Engar ákvarðanir
hefðu verið teknar í hreppsnefnd-
um þar, tillögur allar verið
óákveðnar. Hann sagði einnig, að
sér væri ekki kunnugt um hvort
það væri ríkisstjórnin eða landeig-
endur sem biðu svara hins aðilans,
en augljóst að biðstaða væri í mál-
inu. Þá sagði hann einnig að yfir-
lýsing frá ríkisstjórninni um að
Blanda yrði númer eitt myndi vit-
anlega liðka fyrir niðurstöðum.
Zophonías Zophoníasson framkvæmdastjóri Pólarprjóns:
Reynum að þrauka í mánuð
Ef ekkert kemur til af hálfu stjórnvalda, þá blasir lokun við
.UTLITIÐ er nokkuð svart. Allt
helur dregist ákaflega mikið saman
eftir sumarfri. Við hiifum orðið að
taka eina vaktina af. en vorum með
þrjár vaktir allan sólarhringinn.
Auk þess hiifum við ekki ráðið nýtt
fólk. þannig að talsvcrð fa'kkun hef-
ur <»rðið siðan í septemberhyrjun.
líklega sem ncmur 20—25 manns,
en hér störfuðu um 100 manns,“
sagði Zophonías Zophoníasson
framkvæmdastjóri Pólarprjóns á
Bliinduósi. er Mbl. spurði hann
frétta af stöðu fyrirtækisins. en cins
og komið hefur fram í fréttum eru
saumastofur á landinu illa staddar
og margar orðið að hætta starfsemi
Pólarprjón rekur þrjár saumastof-
ur og eina prjónastofu. Sagði Zoph-
onías að samdrátturinn stafaði að
mestu af breytingu þcirri sem orðið
hefur á Evrópugjaldmiðlum, en 70%
af framleiðslu Pólarprjóns fara á
Evrópumarkað. „Við höfum verið
pindir til að lækka vöruna um 10%
til að mæta útflutningnum. Það hef-
ur verið reynt að halda á málum
þannig, að afgreiða aðeins pantanir
sem berast að utan, til að eyðileggja
ekki markaði, en ekkert er reynt að
selja. Kemur það strax frain sem
verulegur samdráttur.
Þá sagði Zophonías að mun meiri
samdráttur væri á prjónastofunni en
saumastofunum og stafaði það af
lokunum saumastofa á Norðaustur-
landi, en prjónastofa Pólarprjóns
seldi þeim stofum hráefni.
Zophonías sagði einnig, að þeir hjá
Pólarprjón myndu reyna að þrauka
áfram að minnsta kosti í einn mánuð,
en kvað það einsýnt að ef ekkert
kæmi til af hálfu stjórnvalda væri
ekkert annað framundan en lokun.
„Við höfum ekki ráð á neinu sjálfir.
Það eina sem getur orðið til hjálpar
er að hið opinbera komi inn í mynd-
ina á einhvern hátt — með leiðrétt-
ingu á genginu. Það er eina lausnin í
sjónmáli, þó ekki sé nema bráða-
birgðalausn," sagði hann í lokin.
Afli eykst
ekki á kom-
andi árum
STARFSHÓPUR á vegum
Rannsóknaráðs rikisins skil-
aði nýlega skýrslu um framtíð
sjávarútvegs og fiskvinnslu.
Niðurstöður hópsnefndarinnar
munu vcra þær i sem styztu
máli, að ekki sé skynsamlcgt
að reikna með moiri afla held-
ur en á þessu ári. Þó svo að
flotinn stækki muni afli úr ein-
stökum fiskstofnum ekki
aukast og því sé ráðlagt að
minnka flotann til að auka
hagkva'mni í veiðunum og
reyna að gera fiskinn verðmæt-
ari. ba'ði með bættri meðferð
um borð í skipunum og með
meiri vinnslu i landi.
Fyrir nokkrum árum starfaði
sambærilegur starfshópur á
vegum rannsóknaráðsins og
skilaði þá svokallaðri „blárri
skýrslu“. í starfshópnum, sem
skilaði skýrslunni, sem er í
prentun, áttu sæti Jónas Blön-
dal, formaður, Jakob Jakobsson,
Páll Guðmundsson, Þorkell
Helgason og Jón Ármann Héð-
insson.
ákveðið að þeir Ásmundur og
Björn skyldu fara. Haukur sagði
að ASÍ greiddi ferð þeirra til og
frá Póllandi, en Samstaða sæi um
að greiða kostnað af dvöl þeirra
þar. Þeir Ásmundur og Björn
koma til baka til íslands á sunnu-
dag.
Yfirlýsing frá ríkisstjórn-
inni er skilyrði vestan-
manna f yrir samningum
Víðtæk leit
að manni
í gærkveldi
VÍÐT/EK leit fór fram í gærkveldi
að 62 ára gömlum manni. Indriða
Jónssyni. en hann fór frá heimili
sínu. að Hátúni 10 i Rcykjavík.
laust eftir hádegi í gær. samkvæmt
upplýsingum sem Morgunblaðið
fékk hjá lögreglunni i gærkveldi.
I gærkveldi leituðu sveitir á veg-
um Slysavarnafélags Islands; Al-
bert á Seltjarnarnesi og slysavarna-
deildin í Kópavogi, og einnig leitaði
sporhundur Hjálparsveitar skáta í
Hafnarfirði. Þá leituðu lög-
reglumenn frá Reykjavík, Kópavogi,
Seltjarnarnesi og Hafnarfirði.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar er Indriði með parkinsons-
veiki á háu stigi, er álútur og gengur
við staf. Hann var klæddur í grá-
brúnan síðan frakka og í ljósum
buxum. Indriði er ljóshærður og
gekk hann berhöfðaður.
Leyfi til lag-
netaveiða fram-
lengt um 4 daga
Sjávarútvegsráðuneytið hef-
ur ákveðið. að leyfa lagneta-
veiðar áfram til og með sunnu-
dagsins 4. októher nk.
Er þetta gert vegna þess að veð-
ur hefur hamlað veiðum undan-
farna daga og eins hefur aflast
mjög misjafnlega frá einstökum
verstöðvum.
Sjómenn norðanlands hafa mót-
mælt banninu harðlega og þing-
menn Norðurlandskjördæmis
eystra hafa tekið undir mótmæli
sjómannanna.
Skipstjórarnir
hlutu 16 þúsund
króna sekt
SKIPSTJÓRARNIR á Ilástcini
frá Stokkseyri og Bakkavík frá
Kyrarhakka voru í ga-r dæmdir til
,að greiða 16.240 krónur í sekt
hvor vegna landhclgishrots á
þriðjudag. Auk þess voru afli og
veiðarfæri gerð upptæk.
Dómurinn var kveðinn upp hjá
sýslumannsembættinu á Selfossi
og kvað Karl Jóhannsson upp dóm-
inn, meðdómendur voru skipstjór-
arnir Bjarni Þórarinsson og Þor-
finnur Valdimarsson.