Morgunblaðið - 01.10.1981, Blaðsíða 15
MORÖUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1981
15
ÞEIR komu síðastir út ur vél-
inni og voru þeir einu sem ekki
biánuðu aí kulda þegar þeir
stigu út i napra gjóluna i
gærmorgun á Kefiavíkurflug-
velli. enda allir svartir á hör-
und.
Það er greinilegt að ég verð
að taka upp vetrarfatnaðinn
strax, var það fyrsta sem Tom
Boyd, framkvæmdastjóri The
Mississippi Delta Blues Band,
sagði þegar hann var sloppinn
í gegnum toliinn.
Hljómsveitin átti að baki
tuttugu og sex tíma strangt
ferðalag, alla leið frá San
Fransico og því engin furða að
Blúsinnu alltaf vinsæll
þeir fyndu fyrir mismun hita-
farsins þar og á íslandi. Hins
vegar var hann ekki mikið að
kvarta, lofaði hreina loftið og
sagði að veðrið væri ekki verra
en búast mátti við.
Þeir höfðu verið á hljómleika-
ferð um vesturströnd Banda-
ríkjanna og héðan fara þeir síð-
an í mikla för um Evrópulönd.
Þeirri reisu lýkur ekki fyrr en í
desember.
Tom kvaðst mest hlakka til
að spila fyrir Norðmenn, þar
aetla þeir að halda tuttugu og
fjóra tónleika, enda eru The
Mississippi Delta Blues Band
gamalkunnir hjá þeim frænd-
um okkar og feikivinsælir.
Aðspurður um stöðu blúsins í
Bandaríkjunum, hvað Tom Boyd
blúsinn alltaf vinsælan þar,
enda þeim í blóð borinn í því
landi og áhuginn væri sífellt að
aukast. Sérstaklega á austur-
og vesturströndinni. The Miss-
issippi Delta Blues Band eru
mjög vinsælir á þeim slóðum.
Og hljómsveitin er ekki bara
vinsæl í hinum vestræna heimi.
Rúmenar halda mikið upp á þá,
til dæmis mættu sautján þús-
und manns á hljómleika hjá
þeim síðast. Fylltu íþróttaleik-
vang.
Tom Boyd sýndi töluverðan
áhuga á landi og þjóð. Hann
hefur oft komið til íslands,
millilent á þeim ótalmörgu
ferðum sem hljómsveitin hefur
farið til Evrópu, en aldrei séð
meira af landinu en það sem
sem hægt er að skoða út um
kýraugað.
Tom Boyd vissi allt um Eirík
rauða, Leif heppna og aldur
hraunsins á Reykjanesskaga, en
einn hlut þurfti hann samt að
spyrja um.
Er mikið um glæpi á Islandi?-
Nei, þú getur gengið öruggur
um stræti borgarinnar hvenar
sem er sólarhringsins, var svar
blaðamanns, en hinsvegar ríkir
hér fimmtíu prósent verðbólga.
Meðlimir The Mississippi
Delta Blues Band hvíla sig nú á
Hótel Loftleiðum fram að tón-
leikunum í kvöld, sem verða á
Hótel Borg. Þeir sem missa af
þeim í kvöld fá tækifæri til að
sjá þetta blúsband í NEFS
v/Hringbraut annað kvöld. Ef-
laust hlakka margir til að heyra
og sjá þetta víðförlasta blús-
band sögunnar og vonandi líkar
landanum jafnvel við tregablús-
inn þeirra eins og Norðmönn-
um.
Vetrarstarf Kristilegs
stúdentafélags að hefjast
KRISTILEGT stúdentaíélag er
um þessar mundir að heíja
vetrarstarf sitt.
Til kynningar á starfsemi fé-
lagsins verður efnt til KSF-vöku
í kvöld kl. 20.30 í Félagsstofnun
stúdenta. Yfirskrift vökunnar
verður: „Er Guð dauður eða
hvað?“ Auk þess að fjallað verð-
ur um yfirskriftina verður ým-
islegt annað á dagskrá, svo sem
létt klassísk tónlist, stuttur
vitnisburður og kynning á félag-
inu. Sönghópur mun einnig
syngja og að lokum gefst
mönnum tækifæri til að spjalla
saman yfir kaffibolla.
Kristilegt stúdentafélag hefur
þau tvö aðalmarkmið að sam-
eina trúaða stúdenta til trúar-
samfélags og benda utanfélags-
mönnum á hinn upprisna Jesúm
Krist og gildi þess að treysta
honum fyrir lífi sínu.
Starfsemi félagsins í vetur
verður nokkuð fjölþætt að
vanda. Ber þar að nefna að
hvert föstudagskvöld er sam-
vera í húsi félagsins að Freyju-
götu 27 þar sem fjallað er um
ýmis málefni tengd kristinni
trú.
Tvisvar á ári er félagið með
mót á sínum vegum. Ætlunin er
að hafa slíkt mót í Vindáshlíð
helgina 9.—11. okt. næstkom-
andi. Þátttaka er heimil öllum
18 ára og eldri. Hægt er að skrá
sig til þátttöku í mótinu í aðal-
anddyri Háskólans og Kennara-
háskóla íslands 2. og 5. okt. kl.
11—14, eða á næsta fundi fé-
lagsins, föstudaginn 2. okt. kl.
20.30. Innritunargjald er kr. 50.
Að lokum má svo geta þess að
í félaginu verða starfræktir
OPNUM
PRUTTMARKAÐ
Laugavegi 66, 2. hæö,
í dag kl. 1
Fyrir
skólafólk
Stakir ullarjakkar fyrir
drengi og stúlkur.
Buxur: Ull, flannel,
sléttflauel, kakhi, den-
im, hnébuxur, alullar-
peysur, peysur, skyrt-
ur, bolir, sportblúss-
ur, jakkaföt (lítil núm-
er).
Fyrir
dömur
Ullar- og vattkápur.
Buxnadragtir. Stakir
jakkar: Ull, kakhi (5
sniö). Buxur: Flannel,
ullar, fínflauel, rifflað
flauel, denim, kakhi,
hnébuxur, peysur,
blússur, bolir, pils,
sumarkjólar.
Fyrir
herra
Jakkaföt. Ullarfrakkar
(lítil númer). Stakir ull-
arjakkar, buxur,
skyrtur, bolir, bindt,
ullarpeysur.
Ótrúlegt
úrval af
alls kona.
efnum
Sértil
'TT. n n ri'j amii'u i'm v &■ n1 i ■ irnTTivi rmi
Hljómplötur
plötur plötur
Hljómplötuveröið er svo
hlægilega lágt að það er al-
ger óþarfi að prútta. Verðið
kemst varla neðar. Úrvalið
er geysilegt og margar plöt-
ur eru aðeins til í örfáum
eintökum. Verðið er allt frá
5 kr. og hér er smá sýnis-
horn.
Willie Nelson Stardust
35 kr.
Rod Stewart
Greatest
Hits 35 kr.
r *
A if L
Allirgetafundið
eitthvað við
sitt hæfi á
30 kr. borðinu.
Slyx - Paradise Theater
Manhattan Transfer - Live
Abba - Souper Trouper
Blondie - Autoamerican
Spandau Ballet - Journeys to Glory
Gillan - Future Shock
Mike Oldfield - Tabutar Bells,
Platinum og QEZ
Utangarðsmenn - Geislavirkir og 45 RPM
B.A. Robertson - Bully For You
Nýbyigja, popp, rokk, diskó og fleira og
fleira og fleira og fleira og fleira.
hópar, er hittast vikulega til
biblíulestrar og umræðna. Þátt-
taka í þessum hópum er öllum
opin. Nánari upplýsingar fást á
fundartíma að Freyjugötu 27.
(FróttatilkynninK)
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
ROTTERDAM:
Helgafell .. 7/10
Helgafell .. 21/10
Helgafell .. 4/11
Helgafell .. 18/11
ANTWERPEN:
Helgafell .. 8/10
Helgafell ... 22/10
Helgafell .. 5/11
Helgafell ... 19/11
GOOLE:
Helgafell ... 5/10
Helgafell ... 19/10
Helgafell ... 2/11
Helgafell ... 16/11
LARVIK:
Hvassafell ... 12/10
Hvassafell ... 26/10
Hvassafell ... 9/11
GAUTABORG:
Hvassafell ... 13/10
Hvassafell ... 27/10
Hvassafell ... 10/11
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell ... 14/10
Hvassafell ... 28/10
Hvassafell ... 11/11
SVENDBORG:
Dísarfell ... 12/10
Hvassafell ... 15/10
Arnarfell ... 26/10
Hvassafell ... 29/10
Dísarfell ... 9/11
Hvassafell ... 12/11
HELSINKI:
Dísarfell ... 9/10
Dísarfell ... 6/11
HAMBORG:
Dísarfell ... 5/10
Dísarfell ... 2/11
GLOUCESTER, MASS:
Skaftafell ... 30/10
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ....... 2/10
Skaftafell ....... 2/11
HARBOUR CRACE:
Skaftafell ....... 5/10
m.
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
Al'GI.YSINGA-
SIMINN ER: