Morgunblaðið - 01.10.1981, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1981
Hvernig verður húsnæðisvandi
framhaldsskólans leystur?
Að undanförnu hafa málcfni Menntaskúlans í KópavuKÍ verið
mjöK til umræðu, en skúlinn er mjöj; aðkrepptur sökum húsnan)-
isleysis. Framhaldsskúlanefnd, sem bæjarstjúrn Kúpavoss skip-
aði á sínum tíma. taldi að hugsanleg lausn á þessu máli væri sú,
að Menntaskúlinn yrði fluttur í Þinjíhúlsskúla, en í þeim skúla
hefur nemendum fækkað jafnt og þétt síðustu árin. Gerði nefndin
tillöKU um þetta til bæjarstjúrnar. Skyldi Menntaskúlinn flytjast
í binKhúlsskúla samkvæmt tillögu nefndarinnar en nemendur
í>in>?húls.skúla fara í Kársnesskúla og nokkra aðra grunnskóla í
Kúpavogi eftir því sem best hentaði.
Á fjölmennum fundi sem haldinn var í Þinghúlsskúla hinn 23.
þ.m. og boðað var til af foreldrafélögum Þinghúls- og Kársnes-
skúla og kennarafélögum Þinghúls- og Víghúlaskúla. urðu harðar
umræður um málið. Samþykkti fundurinn tillögu þess efnis, að
ekki yrði af þessum flutningum og Þinghúlsskúli starfaði áfram
eins og verið hefur. I>á var einnig í tillögunni lagt til að stofnað-
ur yrði fjölhrautaskoli í Kúpavogi og þegar hafist handa um að
finna verknámsdeildum hans húsnæði. Einnig að byggt verði
sérstakt húsna“ði yfir fjölbrautaskúlann sem fyrst.
I>á var og samþykkt á fundinum tillaga frá Andrési Péturssyni
nemanda í MK. þar sem skorað er á hæjarstjúrn og menntamála-
ráðuneytið að leysa húsnæðisvanda MK svo hann geti vaxið og
þrúast i fjölbrautaskúla. Morgunblaðið ræddi við nokkra aðila
sem hafa látið sig málið varða og fara samtölin hér á eftir.
Ingólfur A. Þorkelsson:
Nýbygging
eina var-
anlega
lausnin
Fundurinn í Þinghólsskóla
með nemendum
„Það er ef til vill rétt að ég skýri málið í
nokkrum orðum í upphafi svo menn hafi yfir-
lit yfir hvað hér hefur verið að gerast í þess-
um málum síðustu árin," sagði Ingólfur A.
Þorkelsson skólameistari Menntaskólans í
Kópavogi. „Menntaskólinn í Kópavogi var
settur á stofn 1973 og ráðherra lýsti þvi þá
yfir, í samræmi við það sem ákveðið hafði
verið af þeim er unnið höfðu að því að skólinn
yrði settur á stofn, að hann skyldi starfa með
fjölbrautasniði. Byggingarnefnd var skipuð
árið eftir og átti hún að gera tillögur um
framtíðarskipulag skólans og sjá til þess að
byggt yrði yfir starfsemi hans. Nefndin skil-
aði áliti ’77 um fjölbrautaskóla — þar er gert
ráð fyrir að í skólanum verði bóknámsbrautir
og 5—6 aðrar brautir. Þá var einnig ákveðið
að byggt skyldi yfir skólann og gert sam-
komulag um það milli bæjarfélagsins og
menntamálaráðuneytisins. Þetta var á sínum
tíma fullákveðið — búið að veita fé til bygg-
ingarinnar, útvega lóð og meira að segja
teikna húsið.
Ég var í byggingarnefndinni á þessum tíma
og get borið um það vitni hversu mikið var
barist fyrir þessari fjárveitingu. Því miður
verður það að segjast eins og er að þeir menn
sem hæst hafa nú um þessi mál hér í Kópa-
vogi, helstu orðkapparnir, þeir gerðu ná-
kvæmlega ekki neitt til að létta okkur róður-
inn. Þvert á móti snerust þessir sömu menn
gegn þessum áformum ’78 og tókst því miður
að koma í veg fyrir það að byrjað yrði á því að
byggja. Þetta vildi ég gjarnan að kæmi fram
vegna ásakana í minn garð og okkar í bygg-
ingarnefnd um að við hefðum ekki gert neitt
hér til að koma upp fjölbrautaskóla. Þvert á
móti erum það við sem höfum haft forystuna
og það vorum við sem mörkuðum stefnuna.
Bæjarstjórn skipar hér nefnd 1978 til að
fjalla um framhaldsmenntun hér í Kópavogi
og skilaði hún áliti ári seinna. I því eru gerð-
ar tillögur um svipaðar námsbrautir og við í
byggingarnefnd höfðum stungið upp á. Jafn-
framt gerir nefndin tillögu um að Þing-
hólsskóli skuli tekinn og nýttur undir starf-
semi framhaldsskólans. Ennfremur að sumar
brautir skuli verða til húsa í Víghólaskóla.
Þetta var ekki óskalausn okkar í mennta-
skólanum og sjálfur barðist ég gegn þessu
meðan stætt var, og benti á að nauðsynlegt
væri að byggja yfir fjölbrautaskólann. Það er
leitt til þess að hugsa að ekki var farið á
sínum tima að tillögum byggingarnefndar-
innar, því þá væri hér risinn fyrsti áfangi
þessa fjölbrautaskólahúss.
Hér hafa verið mikil fundahöld um fram-
haldsskólamálið. Nú síðast var fjölmennur
fundur í Þinghólsskóla um þetta mál sem
Foreldrafélög Þinghólsskóla og Kársnesskóla
og Kennarafélög Þinghólsskóla og Víghóia-
skóla boðuðu til. Þessi fundur var með ein-
dæmum, það verður að segja það eins og er. í
fyrsta lagi var formanni skólanefndar, Ás-
geiri Jóhannessyni, neitað um orðið í upphafi
fundarins. Síðan er þetta skipulagt þannrg
frá hendi fundarboðenda að framsögumenn
þeirra tala samfellt hátt á annan klukkutíma
en síðan hafa aðrir aðeins fimm mínútur til
að skýra sín mál. Þessir framsögumenn gerðu
harkalegar árásir á menn og málefni. Guðjón
Jónsson, formaður Foreldrafélags Þinghóls-
skóla byrjaði t.d. strax í framsöguræðu sinni
að ráðast á mig og virtist alls ekki hafa neinn
skilning eða þekkingu á forsögu þessa máls.
Mér þótti miður hvernig þessi fundur fór,
því ég stóð í þeirri meiningu að þarna ætti að
ræða fyrst og fremst hvort leggja ætti niður
Þinghólsskóla. Ég skil það mæta vel að
starfsmenn Þinghólsskóla snerust gegn því
að hann yrði lagður niður. En þeir hefðu átt
að halda sig við að rökstyðja það að ekki ætti
að leggja niður skólann í stað þess að ráðast á
bæjarfulltrúa og síðan þá sem voru í fram-
haldsskólanefndinni, sem ekki fengu svo
tækifæri til að svara fyrir sig. Þá var og
ráðist á okkur í menntaskólanum með óbil-
gjörnum hætti.
Ég er samt ekki óánægður með niðurstöðu
fundarins því fundurinn samþykkti tillögu,
og það var eina tillagan sem samþykkt var
einróma og mótatkvæðalaust, frá Andrési
Péturssyni, sem er nemandi í fjórða bekk
menntaskólans, þess efnis að skora á mennta-
málaráðuneytið og bæjarstjórn að leysa hús-
næðisvanda Menntaskólans í Kópavogi svo
hann geti vaxið og þróast í fjölbrautaskóla.
Þetta er aðalniðurstaða fundarins og út af
fyrir sig er ég harðánægður með þetta.
Nú setjast menn væntanlega niður, og von-
andi einnig æsingamennirnir, og velta því
fyrir sér af skynsemi hvernig hægt sé að
ieysa málin. Menntaskólinn hér hefur ekki
getað þróast í fjölbrautaskóla vegna húsnæð-
isleysis. Eftir þessar umræður allar skrifaði
ég bæjarstjórn eftirfarandi bréf dagsett 25.
sept. sl.: „1. Af umræðum þeim um skólamá)
sem verið hafa í Kópavogi að undanfömu er
ljóst að menn eru sammála um þrennt hvað
varðar framhaldsskóla. í fyrsta lagi að sam-
ræma námsefni í áfangakerfi og í þriðja lagi
að byggja yfir fjölbrautaskólann í Kópavogi
og leysa þannig húsnæðisvanda menntaskól-
ans til frambúðar. Nokkur ágreiningur er um
hversu víðtækt og yfirgripsmikið fjölbrauta-
kerfið eigi að vera og hvernig sameiningunni
skuli háttað, hve stór skólabyggingin eigi að
vera og hvar hún eigi að rísa. Ég bið bæjar-
stjórn að beita sér fyrir formlegu og víðtæku
samkomulagi um áðurnefnda meginþætti.
Grundvöllur samkomulagsins verði sem hér
segir: Unnið verði að stöðlun og samræmingu
námsefnis og áfangakerfis. Stefnt verði að
kennslu- og námskerfi sem hæfi skólanum
hezt og bezt er fallin til samræmingar. 2.
Þinghólsskóli starfar áfram sem grunnskóli
með fornám. 3. Byggt verði yfir fjölbrauta-
skólann á miðbæjarsvæðinu eins og áformað
var og ákveðið af bæjarstjórn og ráðherra, í
meginatriðum samkvæmt þeirri teikningu
sem til er. Athugaðar verði breytingar á
henni með tilliti til þess að minnka bygging-
una og færa hana fjær Borgarholtinu. 4.
Víghólaskóli starfi með svipuðu sniði náms
og kennslu og hingað til, skólinn taki fyrst
um sinn í vaxandi mæli við nemendum á
grunnskólaaldri í Austurbæ Kópavogs. 5.
Menntaskólinn fái þrjár til fjórar stofur til
afnota í Kópavogsskóla þar til fyrsti áfangi
hinnar nýju byggingar fyrir framhaldsskóla
rís af grunni. Þessi lausn kæmi í bili harðast
niður á MK sem áfram yrði í all mikilli
spennitreyju, en að fengnu samkomulagi hér
í Kópavogi um fyrrgreind atriði og með bygg-
ingu í sjónmáli er unnt enn um sinn í þrjú ár
að þreyja þorrann og þola þrengslin."
Þetta bréf liggur nú fyrir bæjarstjórn. Að
lokum mætti það koma fram að þegar við
eygðum hér möguleika á að það fengist nýtt
húsnæði, fórum við strax að vinna að undir-
búningi nýs kennsluskipulags fyrir væntan-
legan fjölbrautaskóla og eru ýmsar grund-
vallarbreytingar nú þegar í burðarliðnum hjá
okkur í menntaskólanum.
I umræðunni að undanförnu hafa ýmsir
menn talað mikið um að það stæðu til boða
fjölbrautir hér í nágrannasveitarfélögunum
t.d. í Garðabæ, en þá jafnframt gleymt að
minnast á að hér í Kópavogi er menntaskóli.
Hvort skyldi nú vera betra að eiga mennta-
skóla þar sem eru um 400 nemendur og þegar
hefur verið hafist handa um að breyta í átt til
fjölbrautaskóla eða nokkrar fjölbrautir eins
og komið hefur verið upp annarsstaðar.
Menntaskólinn er og verður burðarásinn í
framhaldsnáminu, menn geta ekki komist
framhjá því að í menntaskólann verður að-
sóknin alltaf lang mest af öllu framhalds-
námi. Það verður þess vegna ekki hægt að
svelta menntaskólann öllu lengur hvað snert-
ir húsnæði," sagði Ingólfur.
Guðjón Jónsson:
Húsnæðis-
vandi MK
ekki leyst-
ur á kostn-
að grunn-
skólans.
Vantar verknámsbrautir -
ekki nýjan menntaskóla
„í stuttu máli getum við sagt að viðhorf
okkar í Foreldrafélagi Þinghólsskóla sé að
grunnskólahúsnæði hér í Vesturbænum sé
síst of mikið — við þurfum með öðrum orðum
á öllu þessu grunnskólahúsnæði að halda,"
sagði Guðjón Jónsson formaður Foreldrafé-
lags Þinghólsskóla. „Við gerum okkur ljóst að
Menntaskóli Kópavogs býr við ákaflega
þröngan húsakost — en húsnæðisvandi hans
verður ekki leystur á kostnað grunnskólans,
það er tómt mál að tala um.
Það er rétt að bent hefur verið á að fylg-
ismenn tillögunnar um að leggja niður
grunnskólakennslu í Þinghólsskóla fengu
ekki að tjá sig nema takmarkað á fundinum
sem við héldum í Þinghólsskóla. Ég vildi hins
vegar benda þessum ágætu mönnum á að á
borgarafundi sem þeir héldu 14. þ.m. í Þing-
hólsskóla bar þetta mál á góma og fengum
við, andstæðingar tillögunnar, þá ekki einu
sinni að koma í ræðustól. Þessi fundur var
haldinn á vegum bæjarins, þar takmarkaðist
málfrelsið við að Þera mátti fram spurningar
til bæjarráðsmanna, sem síðan var snúið út
úr á alla kanta.
Ef þessir menn eða áhangendur þeirra eru
að gagnrýna fundinn sem við héldum ættu
þeir að líta í eiginn barm. Á fundinum sem
við boðuðum til voru haldnar þrjár stuttar
framsöguræður en orðið síðan gefið frjálst.
Ræðutími var takmarkaður við 5 mínútur til
þess að sem flestir kæmust að og fundurinn
drægist ekki um of á langinn.
Ég vona að þessi óviturlega tillaga um að
flytja MK í Þinghólsskóla sé nú úr sögunni og
tel að fundurinn eigi sinn þátt í því. Ég vil
leggja á það áherzlu að við þurfum að koma
upp góðum fjölbrautaskóla hér í Kópavogi
sem allra fyrst — skóla sem hefði bæði bók-
legar og verklegar brautir og þyrfti að vinda
að því bráðan bug að útvega húsnæði fyrir
verklegu brautirnar. Með því myndi þegar
létta mikið á þeirri óeðlilegu aðsókn sem er
að menntaskólanum núna og rýmkaði þá um
nemendur hans. Að vísu vildi ég gjarnan að
Menntaskólinn gæti fengið nýtt húsnæði en
það er ekki hægt að gera allt í einu — hinar
verklegu deildir fjölbrautaskólans verða að
ganga fyrir, en húsnæði handa þeim ætti að
vera auðvelt að útvega t.d. með því að leigja
undir þær iðnaðarhúsnæði. Þetta mál hefur
þegar setið allt of lengi á hakanum og þyrftu
verknámsdeildirnar í síðasta lagi að hafa tek-
ið til starfa næsta haust,“ sagði Guðjón.