Morgunblaðið - 01.10.1981, Blaðsíða 48
5 krónur
eintakið
FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1981
Biskupsskipti
HISKUF’SSKII’TI verða í daK.
rr herra Pétur SÍKurKeirsson
tekur við störíum af herra Si«-
urhirni Einarssyni. fráfarandi
hiskupi. InnsetninK hins nýja
biskups fór hins ve«ar fram í
Dómkirkjunni á sunnuda^inn
eins <>k skýrt hefur verið frá.
Herra Pétur SÍKurgeirsson
segir, að ekki verði að vænta
mikiila breytinga á störfum
kirkjunnar, nú er hann tekur við
embætti biskups. Hann kvaðst
taka við kirkjunni í góðum byr,
þar sem starfsemi hennar sé
mun öflugri en oft hafi verið á
seinni árum. Kveðst hann munu
leggja áherslu á þá þætti í starfi
kirkjunnar er mest hafa verið
áberandi hin síðari ár, svo sem
Hjálparstofnun kirkjunnar,
Æskulýðsstarfsemina, sjó-
mannastarfið og söngmálin, auk
útgáfustarfsemi og þess sem
mikilvægast sé, að aðstoða
presta í daglegum störfum
þeirra úti í söfnuðunum. Herra
Pétur kveðst vera því fylgjandi
að biskupsstólar verði endur-
reistir í Hóltastifti og Skál-
holtsstifti hinum fornu og verði
biskupar á Islandi þá þrír, því
einn sitji áfram í Reykjavík.
Sjá svipmynd af herra
Pétri á miðopnu hlaðsins
í dag, svo og forystugrein
Morgunblaðsins í dag.
Fjárfestingarfélagið og Vatnsleysustrandarhreppur:
Samningar um leigu
lands fyrir laxeldistöð
FJÁRFESTINGARFÉLAG íslands
og Vatnsleysustrandarhreppur
undirrituðu í ga-rkveldi samninga
um leigu lands til 30 ára, fyrir lax-
eldisstöð scm reisa á í Vogum, í
samvinnu við handariska fyrirtæk-
ið Wyerhauser, samkvæmt upplýs-
ingum sem Morgunhlaðið fékk hjá
Svcini Eiðssyni, sveitarstjóra í
gærkveldi. Landið er um 10 hektar-
ar að stærð og er í syðri hluta Voga-
víkur. undir Vogastapa. Eigna-
skipting í fyrirtækinu mun verða
sú að Wyerhauser mun eiga 49%
hlutafjár, en innlendir aðilar 51%,
en hlutahréfin verða hoðin út á
frjálsum markaði. ÖII tilskilin leyfi
munu vera fyrir hendi. til að unnt
sé að hrinda laxeldisstöðinni í fram-
kvæmd.
Fyrir hönd Fjárfestingarfélagsins
undirrituðu samninginn þeir Eyjólf-
ur Konráð Jónsson, Gunnar Frið-
riksson og Guðmundur B. Ólafsson,
en fyrir hönd Vatnsleysustrandar-
hrepps undirrituðu samninginn þeir
Magnús Ágústsson, oddviti, og
hreppsnefndarmennirnir Hreinn
Ásgrímsson, Guðlaugur R. Guð-
mundsson, Sæmundur Þórðarson og
Helgi Davíðsson.
Fjárfestingarfélagið hyggst reisa
stóra laxeldisstöð á svæðinu og verð-
ur þar komið upp tilraunastöð fyrstu
fjögur árin, og verður sú stöð gerð
fyrir um 400.000 laxaseiði. Á grund-
velli þeirrar tilraunastöðvar verður
stöðin síðan stækkuð og er áformað
að endanleg stærð hennar verði fyrir
10 milljón seiði. Tilraunaboranir eft-
ir vatni hefjast næstu daga, en að
áliti sérfræðinga Orkustofnunar
mun vera nægilegt vatn á svæðinu
fyrir þessa starfsemi, en vatnsþörf
fyrirtækisins mun vera um 700 sek-
úndulítrar, að sögn Sveins Eiðsson-
ar.
Stofnkostnaður endanlegu laxeld-
isstöðvararinnar mun vera á bilinu
11-14 milljónir króna og er talið að
með 5% endurheimtu' laxa á ári
verði útflutningsverðmæti stöðvar-
innar 150 milljónir króna. Sam-
kvæmt upplýsingum Sveins, er talið
að í stöðinni muni starfa 30-40
manns og líkur eru á að starfsfólkið
verði úr Vogum. Einnig er áformað
að afli stöðvarinnar verði fullunninn
í frystihúsinu í Vogum, en miðað við
5% endurheimtu yrði afli til vinnslu
um 3000 tonn.
Betri vatnsstaða í Þórisvatni:
Forgangsorka
ekki skömmtuð
Landsvirkjun sækir um
25% hækkun 1. nóvember
Mikill rekstrarhalli fyrirsjáanlegur þrátt fyrir, að hækkun fengist
LANDSVIRKJUN heíur sótt um
25% hækkun á töxtum sínum frá og
með 1. nóvemher nk.. að sögn Ilall-
diirs Jónatanssonar. aðstoðar-
framkvamdastjora fyrirta'kisins.
— Landsvirkjun hefur hins vegar
fengið alls 53.8% ha'kkun timahilið
janúar-ágúst. sem svarar aðeins til
um 32% meðaltalshækkunar á
gjaldskrám á árinu.
Aðspurður sagði Halldór, 1 að
Landsvirkjun myndi ekki nándar
nærri ná upp jöfnuði í rekstrinum,
þótt 25% hækkun fengist 1. nóv-
ember nk. — Samkvæmt okkar
áætlunum frá því í agústmánuði
sjáum við fram á, að rekstrarhalli
Landsvirkjunar verði í árslok um 26
milljónir króna, eða 2,6 milljarðar
gkróna. Þá er ekki gert ráð fyrir
neinni hækkun 1. nóvember. Fengist
hins vegar hækkun upp á 25%, þá
myndi rekstrarhallinn minnka
niður í 18 milljónir króna, eða um
1,8 milljarða gkróna.
Þá er miðað við óbreyttar for-
sendur frá því í ágústmánuði. Þær
hafa hins vegar breyst töluvert
okkur í óhag og því fyrirsjáanlegt að
rekstrarhallinn verður meiri en gert
er ráð fyrir í þessari áætlun okkar
frá því í ágúst, sagði Halldór Jóna-
tansson ennfremur.
Halldór sagði, að svo mikil hækk-
un þyrfti að koma til hinn 1. nóv-
Notkun bíl-
belta orðin
að lögum
LÖG um notkun bílbelta hér á
landi taka gildi í dag, en þó verða
engin viðurlög við brotum á lögun-
um fyrst í stað. Þá tekur einnig í
dag gildi sú breyting að hjólreiðar
eru leyfðar á gangstéttum.
Sjá nánar á bls. 13.
ember, ef jöfnuður ætti að nást á
árinu, að þær væru ekki raunhæfar
miðað við núverandi ástand. — Að
okkar mati er hins vegar nauðsyn-
legt, að hækkunin 1. nóvember verði
rífleg, bæði til að minnka fyrir-
sjáanlegan rekstrarhalla svo um
muni og svo til að búa í haginn fvrir
næsta ár, þegar Hrauneyjafoss-
virkjun kemur til með að vega mjög
þungt í rekstrarafkomunni á sínu
fyrsta ári, sagði Halldór Jónatans-
son, aðstoðarframkvæmdastjóri
Landsvirkjunar, að síðustu.
„MIÐLUN úr Þórisvatni hófst 8. september sl. og þá var vatnsborðsha-ðin í
575,43 metrar yfir sjávarmáli. eða tæpum meter hærra en á sama tíma árið
1980.“ sagði Halldór Jónatansson. aðstaðarframkva'mdastjóri Landsvirkj-
unar, í samtali við Mbl.
„Hins vegar vantaði enn 1 — 1,5 metra upp á hæsta vatnsborð, auk þess
sem álagið á stöðvar Landsvirkjunar hefur aukizt frá því í fyrra.
Ástæðan fyrir þessum vatnsskorti
er sú, að það sem af er ársins, hefur
úrkoma reynzt undir meðallagi,
fimmta árið í röð. Þar af leiðandi
hefur rennsli í ám verið með rýrara
móti.
Af þessum ástæðum og með
hliðsjón af því, að fyrsta vél Hraun-
eyjafossvirkjunar kemur ekki í
rekstur fyrr enn 1. nóvember og önn-
ur vél ekki fyrr enn í febrúar, þá er
fyrirsjáanlegt að afgangsorka til
Valli er kominn heim
Valli víðförli er vonandi heill á húfi og við góða
heilsu. en myndina hér að ofan tók Steinar Clau-
sen hátsmaður á Tý, þegar Valla var sleppt i
fyrradag á borgarísjaka við vesturströnd Græn-
lands. Verndarar hans og fjölmennt fylgdarlið
erlendra fréttamanna komu til Reykjavíkur í
gærkvöldi og halda utan í dag, þannig að segja
má að málið sé komið í höfn, nema e.t.v. peninga-
hliðin. Mbl. er kunnugt um að Flugleiðir sendu
forsætisráðherra í gær reikning upp á helming
kostnaðar við ferðalag Valla frá London til Kefla-
víkur. en kostnaðurinn nam 21 þúsund 214 krón-
um. Hinn helminginn borga Flugleiðir. Forstjóri
Landhclgisgæzlunnar, Gunnar Bergsteinsson,
sagði í viðtali við Mbl. í gær, að ógerlegt væri að
greina frá hver bcinn kostnaður gæzlunnar væri
af ferðalaginu með Valla rostung og þess bæri að
geta, að meirihlutinn af ferðinni hefði verið inn-
an islenzkrar lögsögu og eftirlitssvæðis Land-
helgisgæzlunnar.
stóriðju verður óhjákvæmilega af
skornum skammti.
Á hinn þóginn verður ekki um að
ræða neina skerðingu á forgangs-
orku, hvorki til almenningsrafveitna
né stóriðju," sagði Halldór ennfrem-
ur.
Halldór sagði að hér væri fyrst og
fremst að þakka, að áætlanir um
Hrauneyjafoss virðist ætla að stand-
ast hvað tímasetningu snertir.
„Að því er varðar afgangsorkuna,
þá ræðst það fyrst og fremst af veð-
urfari að hve miklu leyti Landsvirkj-
un verður aflögufær á komandi
vetri, en eðli málsins samkvæmt þá
er afgangsorka fyrst og fremst fyrir
hendi á sumrin, þegar nægjanlegt
vatn er og álag á stöðvar Landsvirkj-
unar vegna almenningsrafveitna er í
lágmarki. Þannig var Landsvirkjun
það innan handar, að láta stóriðju í
té afgangsorku á sl. sumri í eins rík-
um mæli og samningar gera ráð
fyrir, án þess þó, að hvorki ÍSAL né
Járnblendifélgið tækju slika orku að
fullu," sagði Halldór Jónatansson
ennfremur.
Snjókoma á
Norðurlandi
Spáð áframhald-
andi norðanátt
SÍÐDEGIS í gær fór aö snjóa á
Norðurlandi og var frost víðast
hvar um 2 stig og samkvæmt upp-
lýsingum Veðurstofunnar er bú-
ist við áframhaldandi norðanátt
og kulda um allt land. éljavcðri á
Norðurlandi og eitthvað suður
eftir Austfjörðum. Sumstaðar
var búist við nokkuð samfclldri
snjókomu.
Bjart og frostlaust verður að
deginum á Suðurlandi, en líkur á
næturfrosti. Víða á landinu var í
gær talsverður vindstrekkingur,
nema helst vestast á landinu, en
búist er við norðanátt og kulda á
landinu næstu daga.