Morgunblaðið - 13.10.1981, Page 3

Morgunblaðið - 13.10.1981, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1981 3 Fjárlagafrumvarpið fyrir 1982: Erlendar lántök- ur hækka um 90% - frá fjárlagafrumvarpi ársins 1981 NIÐURSTÖÐUTÖLUR íjárlaga (rumvarpsins, sam lagt var fram á Alþingi í gœr, eru 7.799 millj. kr. sem er 46,2% hækkun frá fjár- lagafrumvarpi Ragnars Arnalds fyrir árið 1981. Utgjaldahlið frumvarpsins nemur nú 7.648 millj. kr., sem er 43,3% hækkun frá fjárlagafrumvarpi 1981. Er- lendar lántökur nema 665 millj. kr., sem er 90% hækkun frá frum- varpi fyrra árs. 1 frumvarpinu er reiknað með 10 millj. kr. lántöku- heimild til byggingar flugstöðvar á Keflavikurflugvelli. Tima- hundnir skattar verða fram- lengdir. Heildarfjárfesting er áætluð um 24% af þjóðarfram- leiðslu i stað 25,5% i ár. Þá eru framlög til fjárfestingar- lánasjóða og lánagreiðslna áætl- uð i frumvarpinu 438 millj. kr.. en það jafngildir um 9% minnk- un að raungildi. Skattvisitala ársins 1982 verður 150 stig. Heildartekjur samkvæmt frum- varpinu verða 7.799 millj. kr. og rekstrarafgangur því 151 millj. kr. Reiknitala frumvarpsins varðandi hugsanlega hækkun verðlags og launa er miðuð við 33% milli ár- anna 1981 og 1982 og að sögn fjár- málaráðherra er tala þessi engan veginn raunhæf hvað varðar niðurstöðutölur fjárlaga, enda margir óvissuþættir hvað varðar tekjur og gjöld ríkisreiknings, m.a. komandi kjarasamningar. Erlendar lántökur samkvæmt frumvarpinu verða 665 millj. kr. og er það 90% hækkun frá fjár- Austfirðingar sendu ekki skeyti þegar ég féll - segir Egill Jónsson „ÞESSI niðurstaða þingflokksins er ánægjuleg og það leiðir af lik- um að þar sem ég hef tvisvar fall- ið i kosningu til fjárveitinga- nefndar við sambærilegar að- stseður, þá hlýt ég að vera ánægð- ur með kosninguna, þó að ég hafi á vissan hátt komist að fyrir heppni,“ sagði Egill Jónsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi i samtali við Morg- unblaðið en hann var á laugar- dag kjörinn i fjárveitinganefnd og tók þar sæti Guðmundar Karlssonar þingmanns Sunn- lendinga. „Ég var kjörinn á þing til að verða að liði í mínu kjördæmi, en Austurlandskjördæmi á ekki full- trúa í fjárveitinganefnd. Það er mikið ánægjuefni fyrir sjálfstæð- ismenn á Austurlandi að þing- maður þeirra skuli nú eiga sæti í fjárveitinganefnd," sagði Egill. „Kosning er lýðræðisleg gjörð og kosningu ætti að viðhafa í miklu ríkari mæli innan þing- flokksins en gert hefur verið, í stað þess að leiða mál til lykta með einhverju yfirborðssamkomu- lagi. Reynslan af þeim vinnu- brögðum er fyrir hendi í Sjálf- stæðisflokknum," sagði Egill. Spurningu um, hvað fylgt gæti í kjölfar þessarar niðurstöðu í þing- flokknum, sagði Egill að engin vandamál hefðu komið upp í flokknum þegar hann féll fyrir Guðmundi Karlssyni. Hvað vilt þú segja um afstöðu Vestmannaey- inga? „Þegar ég féll fyrir Guð- mundi sendu Austfirðingar ekkert skeyti til að mótmæla þeirri niðurstöðu. Er það enn eitt merki þess að sjálfstæðismenn á Austur- landi hafa fullt vald á sínum mál- um,“ sagði Egill Jónsson. lagafrumvarpi þessa árs. Upplýsti fjármálaráðherra á fréttamanna- fundi, sem haldinn var til kynn- ingar á frv. í gær, að hér væri aðeins um þriðjung erlendra lán- taka að ræða, samtals myndu er- lendar lántökur ársins 1982 nema um 2.000 millj. kr. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að heimild fáist til allt að 10 millj. kr. lántöku vegna flugstöðvar í Keflavík, en í athugasemdum með frumvarpinu er vitnað í stjórnar- sáttmála ríkisstjórnarinnar um flugstöðvarmálið þar sem segir að ekki verði ráðist í framkvæmdir nema með samþykki allrar ríkis- stjórnarinnar. Segir einnig að jafnhliða 10 millj. kr. lánsheimild- inni hafi ríkisstjórnin ákveðið að fela þriggja manna ráðherranefnd allra stjórnaraðila að taka flug- stöðvarmálið til athugunar og muni nefndin gera tillögur um hvernig lántaka verði nýtt. Þá er í frumvarpinu miðað við að tímabundnir skattar, sem lög- um samkvæmt ættu að falla niður um næstu áramót, verði fram- lengdir. Hér er um sérstakan skatt á skrifstofu- og verslunar- húsnæði að ræða, sjúkratrygg- ingagjald og sérstakt tímabundið vörugjald og gert ráð fyrir fram- lengingu þeirra til ársloka 1982 og að hið sama gildi um lagaákvæði um innheimtu sérstaks gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra. Á hinn bóginn er gert ráð fyrir að sérstakt tímabundið innflutn- ingsgjald á sælgæti og kex falli niður í febrúarlok 1982, eins og lög kveða á um. Fjárfestingar- og lánsfjáráætl- un fyrir árið 1982 hefur verið unn- in jafnhliða fjárlagafrumvarpinu og verður væntanlega lögð fram á Alþingi fyrir fyrstu umræður fjárlagafrumvarpsins að sögn fjármálaráðherra. í athugasemd- um með fjárlagafrumvarpinu kemur fram, að draga mun 'úr framkvæmdum að magni til og að heildarfjárfesting sé áætluð um 24% þjóðarframleiðslu í stað 25,5% í ár. í áætluninni verður nánari grein gerð fyrir áætlaðri heildarfjárfestingu og fjármögn- un hennar. Framkvæmdaframlög fjárlaga- frumvarpsins nema samtals 1.226 millj. kr. og er það 30,4% hækkun frá fjárlagatölu 1981, en miðað við áætlun um 33% meðalverðhækk- un milli áranna felur þetta í sér um 2% magnminnkun. Á megin- flokkum þessara framlaga verða þessar breytingar frá fjárlögum 1981: Verklegar framkvæmdir sem áætlaðar eru 737 millj. kr. hækka um 35,3% eða 1—1,5% magnaukn- ing. Fjárfestingarstyrkir eru sam- tals 51 millj. kr., sem er 47,5% hækkun, eða 11% magnaukning. Framlög til fjárfestingarlána- sjóða og lánagreiðslna eru áætluð 438 millj. kr. eða 21,3%, en það jafngildir um 9% minnkun að raungildi. í athugasemdum með frum- varpinu kemur einnig fram, að hlutfall ríkisútgjalda af þjóðar- framleiðslu er ívið lægri en í síð- asta fjárlagafrumvarpi, eða 28,1% í mót 28,2% árið 1981. Segir að þetta hafi verið unnt með því að beita ýtrasta aðhaldi og verði það áfram gert, m.a. verði framlög til fjárfestingarlánasjóða áfram ákveðin lægri en lög gera ráð fyrir, — áfram verði leitað heim- ildar til þessarar skerðingar í frumvarpi að lánsfjárlögum. Sjá frétt af fréttamanna- fundi fjármálaráðherra á bls. 21 Nafn manns- ins sem lést MAÐURINN sem beið bana í hílslysi á Suðurlandsvegi í Svínahrauni, skammt fyrir neð- an Skíðasálann i Hveradölum, aðfaranótt laugardags, hét Ólafur Kristján Ólafsson, til heimilis að Langholtsvegi 93. Ólafur heitinn var 27 ára gamall Reykvikingur. Hann læt- ur eftir sig konu og fimm ára gamlan son. Hljómtæki með toppgæði... 3 tæki í einu. Meiriháttar steríó samstæóa meö hátölurum, í vinsæla ,,silfur“ útlitinu. A1ETAL HVERFISGOTU 103 SIMI 25999 Karnabær Glæsibæ — Portið Akranesi Fataval Keflavík — Cesar Akureyri Patróna Patreksfirði — Eplið ísafirði Álfhóll Siglufiröi —A. Blöndal, Ólafsfirði Bókav. Þ.S. Húsavík — Hornabær Hornafirði — M.M h/f. Selfossi— Eyjabær Vestmannaeyjum ■m

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.