Morgunblaðið - 13.10.1981, Side 5

Morgunblaðið - 13.10.1981, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1981 5 Tólf rithöfundar skrifa um 16 myndlisRirmenn BÓKAÚTGÁFAN Ilildur (Gunn- ar Þorleifsson) er með i útgáfu listaverkabók í stóru broti, þar sem efnið er æviágrip ok listafer- ill 16 núlifandi íslenskra mynd- listarmanna. Tólf rithöfundar hafa samið textana, en forseti ís- lands, VÍRdís Finnhonadóttir, rit- Hagsýslustjóri: Magnús Pétursson settur í stað Gísla Blöndal SAMKVÆMT ósk Gísla Blöndal, hagsýslustjóra ríkisins, hefur for- seti Islands veitt honum lausn frá embætti frá og með 1. nóvember 1981. Hefur Gísli verið ráðinn til starfa við Alþjóðagjaldeyrissjóð- inn í Washington. Frá sama tíma hefur Magnús Pétursson, skrif- stofustjóri í fjárlaga- og hagsýslu- stofnun, verið settur hagsýslu- stjóri ríkisins, en embættið mun síðar verða auglýst laust til um- sóknar, eins og lög gera ráð fyrir. Islenska óperan: ar formála. í frétt frá útgáfunni segir m.a.: „Fjöldi mynda í litum og svart- hvítu af verkum listamannanna prýða bókina og auk þess myndir af þeim sjálfum. Eins og fram kemur í upptaln- ingunni hér á eftir er hér um þjóð- kunna listamenn að ræða. Allir eru þeir á miðjum aldri, af kyn- slóð sem sett hefur svipmót sitt á eitt skeið í íslenskri myndlist, enda þótt hver þeirra um sig hafi sín sérkenni." Myndlistarmenn: höfundar: Alfreð Flóki ........Jóhann Hjálmarsson Ásgerður E. Búadóttir .. Guðbjörg Kristjánsd. Baltasar..................Árni Bergmann Bragi Ásgeirsson....Matthías Johannessen Einar Baldvinsson ..Jóhann Hjálmarsson Einar Hákonarson .... Sigurður A. Magnússon Eiríkur Smith ......Indriði G. Þorsteinsson Gunnar Örn Gunnarss.... Aðalsteinn Ingólfss. Hringur Jóhannesson .......Bera Norðdal Jón Gunnar Árnason...Guðbergur Bergsson Leifur Breiðfjörð ..Aðalsteinn Ingólfsson Magnús Tómasson ....Þorsteinn frá Hamri Ragnheiður Jónsdóttir .Thor Vilhjálmsson Vilhjálmur Bergsson ...Baldur Óskarsson Þorbjörg Höskuldsd..Þorsteinn frá Hamri Setningu hefur Texti hf. annast, litgreiningu og prentun Grafik hf., bókband Félagsbókbandið og ljósmyndun Leifur Þorsteinsson. Arni Reynisson ráð- inn franíkyæmdastjóri ÁRNI REYNISSON hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ís- lensku óperunnar, og tók ráðn- ing hans gildi hinn l.október sl. í frétt frá Óperunni, sem Morgun- blaðinu hefur borist, segir svo meðal annars um ráðningu fram- kvæmdastjórans: I júlí og ágúst á liðnu sumri auglýsti Islenzka óperan eftir framkvæmdastjóra sem taka skyldi til starfa hinn 1. október á Árni Reynisson þessu hausti. Hinn 1. september síðastliðinn, en þá rann auglýstur umsóknarfrestur út, höfðu stjórn óperunnar borizt sjö umsóknir um framkvæmdastjórastarfið. Og á fundi sínum 29. september sam- þykkti stjórnin að ráða Árna Reynisson framkvæmdastjóra ís- lenzku óperunnar frá 1. október 1981. Árni Reynisson fæddist í Reykjavík árið 1941, sonur Reynis kaupmanns Eyjólfssonar og Guð- rúnar E. Guðmundsdóttur frá Tannanesi í Önundarfirði. Hann stundaði nám í Menntaskólanum í Reykjavík um eins vetrar skeið, en síðan í Samvinnuskólanum og lauk þaðan prófi 1961. Hann var sölumaður og síðar sölustjóri í Bifreiðadeild Sambands islenzkra samvinnufélaga frá 1961 til 1966. Þá varð hann um skeið fram- kvæmdastjóri viðskipta hjá Flug- sýn hf., en síðan forstöðumaður upplýsingaskrifstofu Verzlunar- ráðs Islands til 1970 er hann gerð- ist framkvæmdastjóri Landvernd- ar. Frá 1972 til 1978 var hann framkvæmdastjóri Náttúruvernd- arráðs. Eiginkona Árna er Anna S. Bjarnadóttir frá Hörgslandi á Síðu, og eiga þau hjónin tvær dæt- ur. Talsvert um bjöll ur í rúgmjöli NOKKUR brögð hafa verið að því að undanförnu að vart hefur orðið við mjölbjöllur i rúgmjöli, sem notað hefur verið til slátur- gerðar nú í haust. Að sögn Har- alds Þórðarsonar, meindýraeyðis, er þetta fremur algengt, en bjöll- urnar eru meinlitlar og angra fólk ckki, en þeim getur fjölgað mjög ört og leggjast þá gjarnan á matvæli. Haraldur sagði, að það virtist vera að aukast að bjöllur væru í rúgmjöli og stafaði það sennilega af því að minna er nú gert að því að eitra fyrir bjöllur á rúgökrum. Því væru oft lirfur í rúgmjölinu og væri það geymt, yrðu þær ein- faldlega að bjöllum, sem fjölguðu sér mjög ört. Því væri réttast að henda því mjöli, sem af gengi við sláturgerð í stað þess að geyma það. Bjöllurnar legðust að visu ekki á fólk, en þættu ekki sérlega góðir gestir í matargeymslum. Sagði hann að tiltölulega auðvelt væri að útrýma bjöllum í heima- húsum, til þess notaði hann úða sem gasloft myndaðist af. Það væri fljótvirkt og árangursríkt og dræpi kykvendin mjög fljótt. Það væri síðan skaðlaust manninum eftir þrjá tíma, en koma þyrfti matvælum frá á meðan og gæta þess að þvo mataráhöld og annað, sem notað er til matargerðar, eftir að eitrið hefur verið notað. Aldraðir Reykvikingar við spil i Oddfellow-húsinu i gær. Ljósm. Mbl.: Emilia. Aldraðir fá aðstöðu í Oddfellow-húsinu NÝR ÞÁTTUR í félagsstarfi aldraðra í Reykjavik hófst i gær í Oddfellow-húsinu við Vonar- stræti og verður þar opið hús á mánudögum kl. 13—17 fyrst um sinn, að því er segir í fréttatil- kynningu frá Félagsmálastofnun Reykjavíkur. Þar segir ennfrem- ur að um tíma hafi skort húsna'ði fyrir félagsstarf í mið- og vestur- bæ. en með tilkomu þessa nýja húsnæðis sé það von starfsfólks að aldraðir noti þessa aðstöðu sem mest. Sumarstarfi Félagsmálastofn- unar Reykjavíkur fyrir eldri borg- ara er nýlega lokið. Mikil þátttaka var í sumarstarfinu sem endra- nær. Segir í fréttatilkynningu Fé- lagsmálastofnunarinnar að farnar hafi verið 12 dagsferðir á sumrinu og 1 tveggja daga ferð að Mývatni og til Akureyrar og fullskipað hafi verið í alla sumarorlofsdaga að Löngumýri. Auk þessa voru farnar 3 sólarlandaferðir. Æfingakerfi fylgir hverju handlóðasetti. Æfingunum hefur verið raðaö saman at sérfræðingum á sviði líkams- og heilsu- ræktar með það fyrir augum að bæta líkamsvöxt þinn, gera þig grennri og vöðvameiri fyrir tilstilli nýjustu þjálfað- ferða. Handlóðin eru fyrirferðarlítil og auðveld í með- förum. Þú getur æft þig í svefnherberginu, baðherberginu, á vinnustað eða hvar sem þú getur teygt úr þér í allar áttir. HANDLÓÐ Vinylhúöuö 2x2 kg í setti kr. 162.00 2x4,5 kg í setti kr. 250.00 2x1,3 kg og lóðaskór í setti kr. 380.00 Handlóð með lausum lóðum. Verö fer eftir þyngd lóða. Hand- lóðín eru mjög hentug líkamsræktartæki, bæði fyrir karla og konur á öllum aldri. Þú munt njóta góðs af líkamsþjálfuninni ævilangt og verða hreykin(n) af vel þjálfuöum og vel byggöum líkama þínum. Taktu af skarið, byrjaðu skipulagöa líkamsrækt í dag. Pöntunar- og upp- lýsingasími 44440 Sendu mér ... kg handlóðasett kr.__+ sendingarkostnað. Nafn .................................................. Heimilisfang .......................................... Póstverslunin HEIMAVAL, Box 39, 202 Kópavogur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.