Morgunblaðið - 13.10.1981, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1981
11
Prjóna-
blaðið Lopi
og band
NÝTT tímarit heíur hafið
göngu sína, prjúnahlaðið Lopi
ok band. Blaðið er litprentað i
stærðinni A-4, 40 síður og mun
koma út tvisvar á ári.
Blaðið leggur áherslu á upp-
skriftir af fatnaði gerðum úr ís-
lensku ullinni og notar ein-
göngu lopa- og bandframleiðslu
Alafoss og Gefjunar. Fengnir
verða til liðs við blaðið hönnuð-
ir og prjónakonur, sem geta
miðlað af reynslu og prjóna-
tækni og bryddað verður upp á
nýjungum í meðferð lopa og
bands.
Utgefandi er fyrirtækið Is-
lenska ullin og ritstjóri er Erla
Eggertsdóttir.
Loðnu- og
karfalöndun
á Skaganum
Akranesi. 9. októbcr.
TVÖ loðnuskip landa hér i dag i
Síldar- og fiskimjölsverksmiðju
Akraness, Skarðsvík SII með 630
lestir og Fífill GK með 630 lestir
einnig.
Verksmiðjan er þá búin að taka
á móti rúmlega 8 þúsund lestum á
vertíðinni. Enn sem komið er hafa
engar útskipanir á afurðum átt
sér stað, en skip er væntanlegt
bráðlega og tekur það 1200 lestir
af lýsi, einnig er skip væntanlegt
til að taka 700 lestir af mjöli.
Togarinn Haraldur Böðvarsson
er hér í höfn í dag með 160 lestir,
mestmegnis karfa.
— Júlíus
Fyrsta mynda-
kvöld FÍ
MYNDAKVÖLD og kvöldvökur
hafa undanfarin ár verið stór
fáttur í vetrarstarfi Ferðafélags
slands.
Miðvikudaginn 14. okt. nk. verð-
ur fyrsta myndakvöld vetrarins að
Hótel Heklu, Rauðarárstíg 18, en
þar verður þessi starfsemi til húsa
í vetur. Ferðafélag Akureyrar sér
um fyrsta myndakvöldið, en síðan
verða slík kvöld haldin annan mið-
vikudag hvers mánaðar til maí að
vori.
Þrjár kvöldvökur verða haldnar
í vetur, sú fyrsta 25. nóv.,en þá
verður tekið fyrir efni um byggð í
Víðidal í Stafafellsfjöllum.
Aphriidite Bahia
sófasettin
í miklu úrvali
16 geröir — tauáklæöi
9 gerðir — leöur.
Raöeiningar — bjóöa upp á
mikla möguleika — ekkert mál
aö breyta.
4V%%j
hönnun á heimsmælikvarða
.. .........— —-— ...‘—— — ——s
Falleg hönnun, stilhreint útlit — einfaldleiki fyrir þá, sem kunna
gott að meta og vilja prýða heimili sín.
m
-D
Lotus 428
Stratos
Mandalay
Lotus 421—423