Morgunblaðið - 13.10.1981, Side 22

Morgunblaðið - 13.10.1981, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR 13. OKTÓBER 1981 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 85 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 5 kr. eintakiö. Prófkjör sjálfstæðis- fólks í Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn braut blað í íslenzkum stjórnmálum þegar hann fyrstur íslenzkra stjórnmálaflokka tók upp prófkjör við val frambjóðenda sinna til borgarstjórnar árið 1946. Prófkjörið var þá í tveimur umferðum, fyrst óbundið, en síðan var valið á milli 48 flokksmanna, sem fengið höfðu flest atkvæði í hinu óbundna kjöri. Fyrri umferðin var bundin við flokksbundið fólk, sú síðari náði jafnframt til óflokksbundinna stuðningsmanna. Þetta var djarfleg ákvörðun, eins og Geir Hall- grímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kemst að orði í Auð- arbók Auðuns, en þar fjallar hann um þessar sögulegu borgar- stjórnarkosningar. Árið 1970 tekur Sjálfstæðisflokkurinn upp opið prófkjör, svokallað, sem síðan hefur undantekningarlítið verið undanfari bæði borgarstjórnar- og þingkosninga í höfuðborginni. Sjálf- stæðisfólk býr því að langri reynslu prófkjörs, bæði bundins og opins, og sú reynsla, sem fyrir liggur hefur eflaust ráðið afstöðu mikils meirihluta meðlima í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, sem í fyrrakvöld samþykktu nýjar reglur um fram- kvæmd prófkjörs í höfuðborginni. Sérstök nefnd, sem starfað hafði á vegum stjórnar fulltrúa- ráðsins, lagði fram tillögu að reglum um framkvæmd prófkjörs vegna framboðs Sjálfstæðisflokksins við borgarstjórnarkosn- ingar í maí 1982. Tillagan gerði m.a. ráð fyrir því „að prófkjörið sé eingöngu opið flokksbundnu sjálfstæðisfólki og stuðnings- mönnum Sjálfstæðisflokksins", eins og komizt var að orði í tillögunni. Þá var gert ráð fyrir því að prófkjörið væri bindandi, ef þátttaka í því næmi þriðja hluta eða meira af fylgi flokksins við síðustu borgarstjórnarkosningar, enda hafi viðkomendur fengið, hver um sig, atkvæði á a.m.k. helmingi allra gildra prófkjörsseðla. Hinsvegar kom fram breytingartillaga, flutt af Jónasi Elías- syni, prófessor, sem samþykkt var með miklum meirihluta at- kvæða. Samþykktin gerir ráð fyrir því að þátttaka í prófkjörinu skuli bundin við meðlimi sjálfstæðisfélaga í Reykjavík, sem búsettir eru í kjördæminu og hafa náð 16 ára aldri á prófkjör- daginn, sem og aðra stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem eiga kosningarétt í Reykjavík og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag. Skiptar skoðanir vóru á fundinum um reynsluna af prófkjöri. Jónas túlkaði tillögu sína sem miðlunartillögu milli þeirra, sem vilja hafa opið prófkjör og hinna, sem andvígir eru prófkjöri. Yfir 9000 manns eru flokksbundnir í sjálfstæðisfélögum í höfuð- borginni, og gera má ráð fyrir að hinar nýju prófkjörsreglur fjölgi flokksbundnu fólki nokkuð, svo það verður veruleg breidd í þeirri fylkingu, sem getur haft áhrif á framboð flokksins til borgarstjórnar. Gert er ráð fyrir því, að prófkjörið verði bind- andi, ef þátttaka í því nemur þriðjungi eða meira af fjölda flokksbundinna sjálfstæðismanna. Ljóst er af því, sem fram kom á fundinum og síðar hefur komið fram í blöðum, að ýmsir úr forystusveit Sjálfstæðis- flokksins töldu ekki rétt að breyta prófkjörsreglum að þessu sinni. Má þar nefna Davíð Oddsson, formann borgarstjórnar- flokks sjálfstæðismanna, Guðmund H. Garðarsson, formann fulltrúaráðsins í Reykjavík, Albert Guðmundsson, alþing- ismann, o.fl. Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingismaður, flutti frávísunartillögu við tillögu Jónasar Elíassonar. Engu að síður var tillaga Jónasar samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða á fundinum. Af því er ekki hægt að draga aðra ályktun en þá, að almennir flokksmenn telji að hið opna prófkjör sé komið of langt út fyrir þann ramma, sem í upphafi var hugsaður — og fengin reynsla af því í 10 ár kalli á breytingu. Fulltrúaráðið í Reykjavík fer með ákvörðunarvald í þessum efnum og meiri- hlutavilji þess liggur nú fyrir, hvað sem líður efasemdum ein- stakra forystumanna um að rétt ákvörðun hafi verið tekin. Og varla getur nokkur forystumaður í stjórnmálum hundsað svo augljósan vilja flokksmanna, sem þarna kom fram, hvort sem mönnum finnst niðurstaðan skynsamleg eða ekki. Þeir eru vafalaust margir, sem telja, að nauðsynlegt sé að breyta reglum um prófkjör sjálfstæðismanna, þó þeir teldu ekki rétta tímann til þess nú. Mikill meirihluti þeirra, sem sóttu fulltrúaráðsfundinn, er bersýnilega annarrar skoðunar. Hvort sem forystumönnum líkar betur eða verr, verða þeir nú að hlíta vilja hins almenna flokksmanns. Ivar Orgland sextugnr í dag Sumarið 1972 tók ég og fjöl- skylda mín bifreið á leigu í Danmörku og fórum við í tveggja mánaða ferðalag með endastöðvum í Róm og Osló. Þegar við gerðum innreið okkar í höfuðborg Noregs sagði ég við fólk mitt: Ekki veit ég til þess, að hér þekki ég nema einn mann, Ivar Orgland, sem lengi var sendikennari á íslandi. — En til borgarinnar höfðum við komið til stuttrar dvalar nokkrum sinnum áður og stefndum nú í tjaldstað á fallegri útsýnishæð. Við sváfum svo af nóttina og héldum að morgni inn í miðborg- ina. Allt í einu er þessi fimm manna hópur staddur fyrir dyr- um mikils vöruhúss. Þar mætir okkur stórvaxinn maður, bæði að hæð og breidd — og ljómar allur af fögnuði. Þetta var þá þessi eini maður, sem ég þekkti í borginni. Það munaði ekki miklu að hann gæti tekið okkur öll í fang sér í einu, svo mikill er maður allur á velli og hjarta- hlýjan geislar út frá honum. Komið þið nú og blessuð og sæl og velkomin til Noregs, sagði Ivar Orgland. Þetta er undarleg tilviljun. Ég var einmitt að skrifa bréf til þín, Jón Minn. Átti bara eftir að setja það í póst. Æskuheimilið mitt er hérna rétt hjá. Ef þið hafið tíma væri ég mjög þakklátur, ef við vilduð koma með mér. Síðan þetta gerðist hef ég og mitt fólk jafnan átt athvarf sem gestur Ivars Orglands og fjöl- skyldu hans í hjarta Noregs og Oslóborgar. Hann er fæddur og uppalinn í einu af gömlu hverf- um borgarinnar, skammt frá sjálfri konungshöllinni. Hann er kominn af grónum borgaraætt- um, bænda, athafnamanna og þjóðskörunga í báðar ættir. Æskuheimili hans með ráð- herrahúsgögnum og ættarmynd- um stendur enn með fornum um- merkjum. Stærsta dagblað Nor- egs hefur að vísu lagt undir sig hluta hússins, en heila hæð not- ar Orgland og fólk hans sem að- setur í höfuðborginni og þar geymir hann hluta af bókasafni sínu. Þar hef ég oft gist. Þetta er gróið heimili sögu og menningar. Skömmu fyrir jólin 1972 kom út úrval ljóða minna í Noregi með miklum formála, bókin ekk- ert smásmíði. Ekki get ég stillt mig um að geta þess, að um bók- ina var mikið skrifað í blöð í Noregi og meira lof á okkur bor- ið en við félagar eigum kannski skilið, en það hef ég síðan fyrir satt að Ivar Orgland sé afburða ljóðaþýðandi. Ekki er ég rétti maðurinn til þess að rekja mennta- og starfs- feril Ivars vinar míns. Ég veit að hann lauk stúdentsprófi ungur frá menntaskóla í Osló. Jöfnum höndum lagði bann stund á sönglist og tónlist, því hann hafði og hefur mikla söngrödd. Hann stefndi í fyrstu að því, að verða óperusöngvari. Enn kemur það fyrir, að hann bregður sér í söngvarahlutverkið t.d. á ské'a- skemmtunum þar sem hann kennir. Ég var eitt sinn boðinn á slíka skemmtun. Orgland hafði á skólaárum sínum samið skop- stælingu á óperettu og lék og söng nú aðalhlutverkið með mestu prýði við mikil fagnaðar- læti. En það var íslandsför, rétt eftir stríðið, sem breytti öllum framtíðaráætlunum og lífs- stefnu Ivars Orglands. Skömmu síðar var hann sestur hér við fótskör Sigurðar Nordal í Há- skóla íslands. Hér nam hann ísl. fræði og lagði stund á íslenskar bókmenntir að fornu og nýju, að ógleymdri málfræði. Þegar hann hafði lokið háskólaprófi hlaut hann hér stöðu sem sendikenn- ari Noregs, og var hér búsettur, ásamt konu og börnum í tíu ár. Þegar hann fór héðan gerðist hann sendikennari í Svíþjóð og fyrirlesari á bókmennta- og norrænunámskeiðum á öðrum Norðurlöndum. Auðvitað hefur hann allstaðar verið boðberi norskrar menningar, en engan mann þekki ég sem er sannnor- rænni en hann, né meiri að- dáandi alls sem íslenskt er. Ég held jafnvel að honum þyki tölu- vert til þjóðargalla okkar koma, að maður nú ekki tali um að hann kunni að meta það, sem gott og merkilegt má í okkar fari finna. Ég hef verið gestur Orglands í kennslustundum hans í norskum kennaraskóla og háskóla. í bæði skiptin voru tveir samfelldir tímar, fór sá fyrri í venjulegt nám, en hinn seinni notaði hann til að kynna ísl. bókmenntir og svaraði ég spurningum nem- enda. Það var sannarlega áhuga- samt fólk, og það fór ekki fram hjá mér að hér var afburðakenn- ari. I Noregi er Ivar Orgland kunnur fyrir frumsamin ljóð sín. Hann yrkir á nýnorsku og hefur gefið út á annan tug frumsam- inna bóka, mun úrval ljóða hans koma út nú í haust. Hann er mikill myndasmiður atvika og náttúrulýsinga, og einmitt fyrir heimbyggðarljóð hlaut hann ný- lega opinbera viðurkenningu. En kannski hefur enn meira orð far- ið af Orgland í Noregi og víðar um Norðurlönd vegna ljóðaþýð- inga hans frá íslandi. Hann hef- ur gefið út ljóðasöfn, og þau ekk- ert smásmíði sum, eftir flest helstu nútimaskáld okkar: Dav- íð, Stefán, Tómas, Jóhannes, Stein, Snorra, J.Ú.V., tvo Hann- esa, Matthías, tvö ljóðasöfn frá fornöld til síðustu aldamóta, sýnisbók ísl. nútímaljóða allt til yngstu skálda, síðast skrautút- gáfur Draumkvæðisins og sól- arljóða, kennslubækur í ís- lensku, doktorsritgerð um Stef- án frá Hvítadal og þýðingu á einni af bókum Þorbergs. Alltaf síræðandi um Island og sýnandi myndir um öll Norðurlönd. Auk þessa hefur Orgland sýnt áhuga og þýtt skáldskap frá Gotlandi og Færeyjum. Nei hér hætti ég upptalningunni, hann er einn þeirra manna, sem hefur verið sílesandi alla sína ævi og virðist engu gleyma, sem hann hefur lesið. Áhugasvið hans nær til alls nema stjórnmála. Um þau efni talar hann aldrei. Orgland er giftur glæsilegri og yndislegri konu og býr við mikið barnalán. Sé hann ætíð blessað- ur og hans fólk allt. Jón úr Vör „Flokkun síldariimar virðist haía verið vitlaus undanfarin ár“ - segir Ingólfur „ÞAÐ hefur nú komið í ljós, að svo virðist sem stærðar- flokkunin á síldinni hafi ver- ið röng á einhvern hátt und- anfarin ár og tölur um flokkunina rangar, þannig að þetta hefur bitnað á sjó- mönnum og útvegsmönn- um,“ sagði Ingólfur S. Ing- ólfsson í samtali við Morgun- hlaðið eftir fund fulltrúa sjó- manna og útvegsmanna með sjávarútsvegsráðherra í gærmorgun. Á fundinum var fjallað um, hvernig leysa bæri þann hnút og það verk- fall sem síldarsjómenn eru í vegna síldarverðsákvörðun- arinnar. „Það er nú verið að útvega nákvæmar tölur um síldar- flokkunina undanfarin ár fyrir okkur, og ef það kemur í ljós sem við höldum, hlýtur hér að verða breyting á. Ánn- ars kom lítið markvert fram Ingólfsson á fundinum með sjávar- útvegsráðherra, nema hvað ráðherra tók skýrt fram, að hann myndi ekki ógilda það síldarverð sem ákveðið var eða fá því breytt með lögum. Annars höfum við verið boð- aðir til fundar með sjávar- útsvegsráðherra á ný kl. 9 í fyrramálið," sagði Ingólfur. Síldarbátar hafa nú ekkert verið að veiðum síðan á föstu- dag, er sjómenn á þeim sam- þykktu að hætta síldveiðum, nema leiðrétting fengist á síldarverðinu, og þeir bátar sem voru á veiðum við Ing- ólfshöfða er verkfallið var ákveðið, hafa nú hætt veið- um. Sjómenn og útgerðarmenn hafa haldið því fram að reglugerð um fersksíldarmat sem gefin var út í sumar, þjóni engum tilgangi nema þeim, að veikja kjör sjó- manna, og í viðræðunum nú við sjávarútvegsráðherra er lögð mikil áherzla á að þessi reglugerð verði afnumin. Kristján Ragnarsson, for- maður Landssambands ísl. útvegsmanna, sagði í gær, að í reglugerðinni væri gert ráð fyrir að hausskemmd færi í gúanó, sem væri öldungis óþarfi. Þegar síldin er hand- söltuð er hún fyrst haus- skorin og slógdregin og þar skiptir skemmd á haus því ekki máli. Hinsvegar er ekki hægt að nota hausskemmda síld ef hún er vélsöltuð, en þá er skemmda síldin tekin af færi- böndunum og síðan haus- skorin og handsöltuð. Enn- fremur er ekki hægt að nota hausskemmda síld í frystingu til útflutnings, en að sögn Kristjáns, þá er ekkert auð- veldara en að taka haus- skemmdu síldina úr og frysta hana síðan til beitu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.