Morgunblaðið - 13.10.1981, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR-1& OKTÓBER 1981
33
AÐSTAÐA
BUNAÐARBANKINN
Austurstræti
BÚNAÐARBANKINN
Hlemmi
POKAhdrnw
Athyglisverðir slagverks-
tónleikar á Kjarvalsstöðum
Roser Carlsson og Áskell Másson.
Tuttugu og fjögurra ára gam-
all Svíi, Roger Carlsson sem
þekktur er í heimalandi sínu
fyrir meistaralega kunnáttu sína
á ásláttarhljóðfæri, mun gefa
Reykvíkingum kost á að hlýða á
snilld sína. Er þetta líklega eina
tækifærið, sem gefst til að
hlusta á Roger, því ekki er ætlun
hans að dvelja lengi hér á landi.
Er því um að gera að láta ekki
þetta eina tækifæri úr greipum
ganga.
Á tónleikunum annað kvöld
verður lögð áhersla á að sýna
fram á hversu mörg og skemmti-
leg hljóð er hægt að fá úr áslátt-
arhljóðfærum. I þeim tilgangi
hefur Roger Carlsson flutt með
sér til landsins hin undarlegustu
slagverk og sum hver hafa aldrei
sést hér á landi áður. Þar má til
dæmis nefna slagverk eitt sem
kallað er, Konsert Grand Mar-
imba, og er á stærð við góðan
flygil. Miramba er víst upprunn-
ið úr Afríku og fluttist með
þrælum á sinni tíð til nýja
heimsins. Upp úr aldamótum
síðustu fara síðan Evrópubúar
að kynnast þessu undratæki.
Ekki er vafamál að marga
mun fýsa að heyra þá hljóma
sem hægt er að kalla úr miram-
menn eru að bauka með eina
tvær trommur og þykjast góðir.
Auk marimba-slagverksins og
roto-tom trommanna munu alls
lags önnur slagverk hljóma að
Kjarvalsstöðum, eins og gong
skildir og tam tam.
Roger Carlsson er sem áður
sagði, aðeins tuttugu og fjögurra
ára en á að baki sér strangt nám.
Fyrst var hann í tónlistarskólum
í Borás og Gautaborg í Svíþjóð
en hélt síðan til Lundúna til
frekara náms við Royal Aca-
demy of Music og National
Centre for Orchestral Studies.
Meðal kennara hans voru margir
af helstu slagverksmönnum
Breta, meðal annars James Bla-
des og Nicholas Cole svo ein-
hverjir séu nefndir. Roger hefur
einnig verið í einkatímum hjá
bestu slagverksleikurum Dana.
Á tónleikunum er ætlunin að
flytja sex verk og er helmingur
þeirra frumfluttur núna. Fjögur
verkanna eru eftir einn færasta
slagverksmann okkar íslend-
inga, Áskel Másson, en hin tvö
eftir sænsk tónskáld, þá Sture
Olsson og Zoltán Gaál sem
reyndar er fæddur í Ungverja-
landi en hefur verið búsettur í
Svíþjóð í fjölda ára.
Það verður forvitnilegt að
Á MORGUN, miðvikudag-
inn 14. október, klukkan
hálf níu verða skemmtileg-
ir og sérstakir tónleikar
að Kjarvalsstöðum á
Miklatúni.
ans í Reykjavík undir stjórn
Marteins Hunger Friðrikssonar.
Kórinn mun verða með í verkinu
Sýn, eftir Áskel sem er samið
fyrir 32 kvenraddir og slagverks-
einleikara.
Það er víst að tónleikarnir
munu verða hinir athyglisverð-
ustu og eflaust skeiða allir
áhugamenn um sérstæða hljóm-
list upp á Miklatún annað kvöld,
þetta er nokkuð sem engin tón-
eyru mega missa af.
- IIV.
Roger C-arlsson spilar á roto-tom
trommur. Gong í baksýn.
Ljósm.: Ilj. GuÓnason.
ba, eða þá hvað roto-tom tromm-
ur fá áorkað. Roger Carlsson
kom með eitt heilt sett af þess-
um trommum, þær eru þrettán
alls og spanna heila áttund. Hér
á landi hefur bað aldrei gerst áð-
ur að spilað væri á heilt sett,
heyra frumflutt verk Áskels,
Sónötu fyrir marimba og
stemmd ásláttarhljóðfæri
(gongs). Þessi sónata er sérstakl-
ega samin fyrir Roger Carlsson,
en þeir, Áskell og Roger, kynnt-
ust fyrir tveimur árum þegar
verk Áskels, Bláa ljósið, var
frumflutt í Stokkhólmi.
Auk Rogers taka þátt í tón-
leikunum annað kvöld, þau
Manuela Wiesler, Jósef Magn-
ússon, Reynir - Sigurðsson og
meðlimir úr kór Tónlistarskól-
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
Af hverju
Ji JUNCKERS parket ?