Morgunblaðið - 13.10.1981, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1981
t
Eiginmaöur minn,
SÍMON BJARNASON,
Austurbrún 6,
andaðist í Landspítalanum 11. október.
Margrét Jónsdóttir.
Í
Faðir okkar og fósturfaðir,
KRISTINN JÓNSSON
frá Brekku, Grindavík,
lést aö Hrafnistu, sunnudaginn 11. október.
Hildur Kristinsdóttir,
Sigriöur Kristinsdóttir,
Guömundur Kristjánsson.
Systir okkar,
TÓMASÍNA SKÚLADÓTTIR,
andaöist aö Elliheimilinu Grund, laugardaginn 10. október.
Fyrir hönd vandamanna,
Svava Skúladóttir,
Dómhildur Skúladóttir.
+
SÖLVI KRISTJÁN SIGURGEIRSSON
andaóist aö elliheimilinu Grund, 11. október.
Vandamenn.
Minning:
Valdemar Ólafur
Kristjánsson
Fæddur 27. september 1888.
Dáinn 4. október 1981.
4. þessa mánaðar lést í Reykja-
vík Valdemar Kristjánsson fyrr-
verandi umsjónarmaður félags-
heimlis Vals, 93 ára að aldri.
Árið 1940 eða skömmu eftir að
Valsmenn festu kaup á Hlíðar-
enda með það að markmiði að
byKgja þar íþrótta- og félagsheim-
ili, fluttist Valdemar og fjölskylda
að Hlíðarenda. í rúm 20 ár starf-
aði Valdemar fyrir Val, gætti
eigna félagsins og sá um rekstur
félagsheimilis. Þeir Valsmenn
eldri og yngri skipta þúsundum
sem á þessum tveimur áratugum
höfðu kynni af og nutu aðstoðar
„Valda í Val“ eins og hann var í
daglegu tali nefndur meðal félags-
manna.
Hlíðarendi var miðstöð okkar
strákanna í Hlíðunum og frá því
snemma að vori og til hausts voru
þeir ekki ófáir strákarnir sem
„ólust þar upp“. Sá sem þessar lín-
ur ritar minnist þess þegar hann
bankaði upp á hjá Valda með
fyrsta fótboltann undir hendinni
og bað um að fá hann pumpaðan
og reimaðan. Nokkrum dögum
seinna var aftur barið að dyrum
og þá til að fá aöstoð við að „negla
takka" á fótboltaskóna. Að for-
eldrum okkar og nánustu ættingj-
um frátöldum var Valdi sá maður
sem við margir hverjir áttum
mest saman við að sælda. Fáir
hafa lýst betur starfi Valdemars
og Helgu konu hans að Hlíðarenda
en Grímar heitinn Jónsson, sem
lengi var formaður húsnefndar
Vals. Hann skrifaði nokkur
kveðjuorð í Valsblaðið 1961 er
Valdemar lét af störfum:
„Það er barið að dyrum, er Valdi
heima? Sá sem spyr, er lítill
drengur, venjulega vel rykugur og
í flestum tilfellum í allt of stórum
knattspyrnuskóm og illa reimuð-
um. Hann er með húfu í hendinni
og andlitið löðursveitt, og taumar
frá hárlokkum, sem ná mislangt
niður á andlitið. Undir hinni
hendinni er fótknöttur, oft illa
farinn.
— Viltu pumpa boltann fyrir
mig, er sagt, í innilegum og til-
gerðarlausum bænarróm. Hver
getur neitað slíkri beiðni,, ekki
Valdi. Pumpa er sótt og reimari og
málið afgreitt. Það er þakkað af
báðum jafnt, og síðan kvatt, en
eftir verður eitthvað sem aldrei
fyrnist.
Aftur er barið að dyrum, einn
til þrír, já, stundum fleiri, eru
fyrir utan. Er Helga heima? Viltu
gefa okkur kalt vatn að drekka?
Það er veitt og þegið eins og þeir
einir geta, sem hafa það hjartalag,
+
Móðir okkar og tengdamóöir,
ÞORVALDÍNA ELÍN ÞORLEIFSDÓTTIR
frá Miðhúsum,
andaöist í Borgarsjúkrahúsinu 10. október.
Kristín Salómonsdóttir, Hallgrímur Pétursson,
Bragi Salómonsson, Pálína Pálsdóttir.
+
Hjartkær eiginmaöur minn, faðir minn og sonur okkar,
ÓLAFUR KRISTJAN ÓLAFSSON,
Langholtsvegí 93,
lést af slysförum aöfaranótt 10. október.
Snjólaug G. Sturludóttir, Eiríkur Sturla Ólafsson,
Sigríöur Guðmundsdóttir, Ólafur Helgason.
Lokað í dag
frá kl. 12.00 vegna jarðarfarar
JÓRUNNAR GUÐRÚNAR GUÐNADÓTTUR.
Gasol Bolholti 6.
Lokað í dag
vegna jaröarfarar
JÓRUNNAR GUÐRÚNAR GUÐNADÓTTUR.
Guöni Jónsson og co, Bolholtí 6.
Lokað
eftir hádegi í dag vegna jaröarfarar
SIGHVATS DAVÍÐSSONAR.
Vélar og þjónusta hf.,
Reykjavík.
+
Utför
LÁRU SIGURÐARDÓTTUR,
fyrrverandi matráðskonu Kleppsspítalans,
fer fram frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 14. þ.m. kl. 3.
Sigurður Guömundsson,
Sigrún Jóhannsdóttir,
Halldór Jóhannsson.
+
Kveðjuathöfn um
SÉRA BJÖRN BJÖRNSSON,
fyrrverandi prófast,
fer fram í Dómkirkjunni, miövikudaginn 14. október kl. 13.30.
Jarðsett veröur aö Hólum i Hjaltadal.
Emma Hansen og börn.
+
Eiginmaður minn,
SIGURBJÖRN ÞORKELSSON,
Fjölnisvegi 2,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 14. október
kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hallgrímskirkju
og byggingarsjóó KFUM og K.
F.h. fjölskyldunnar,
Unnur Haraldsdóttir.
Faöir okkar og tengdafaðir,
ÞORBERGUR ÓLAFSSON,
rakarameistari,
sem lést 9. október, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, fimmtu-
daginn 15. október kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaöir. Þeim, sem vildu minnast hins látna,
er bent á líknarstofnanir.
Stefanía Þorbergsdóttír, Siguröur Sigurösson,
Sigrföur Þorbérgsdóttir, Aóalsteinn Jósefsson,
Hafsteinn Þorbergsson, Ingibjörg Kristinsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og virfarhug viö andlát og
útför tengdamóöur, ömmu og langömmu okkar,
ÖNNU KRISTÍNAR DANÍELSDÓTTUR,
Suöurgötu 14, Keflavík.
María Kjartansdóttír,
Anna Aradóttir, Halldór Marteinsson,
Siguröur Arason, Ágústína Albertsdóttir,
Þorgeröur Aradóttir, Örn Bergsteinsson,
Daníel Arason, Ingibjörg Óskarsdóttir
og barnabarnabörn.
sem einkenna móður og börn. Það
er vor og loftið ómar, — bra, bra,
bra — ekki síður á síðkvöldum en
um nætur og daga og þess er gætt
að til sé útbleytt brauð eða annað
góðgæti, dag og nótt, því Helga og
Valdi unna öllum vorgróðri. Ekki
skulu þeir heldur svelta eða kala,
sem á vetri og í vorhretum þurfa
að heyja baráttu fyrir tilveru
sinni. Oft hef ég séð gleðibros
þessara góðu hjóna, en sjaldan
hjartanlegra og einlægara en þeg-
ar þau sögðu mér að þau hefðu séð
saman að snæðingi fyrir utan
gluggann sinn önd og snjótittling!
Þetta eru fáar smámyndir lið-
inna ára frá Hlíðarenda. Við í Val
höfum verið svo lánsamir síðast-
liðin 20 ár að njóta starfskrafta
þessara ágætu hjóna. Félagslíf
okkar hefur á svo margan hátt
fléttast saman við líf þeirra, sér-
staklega síðustu 15 árin, eða síðan
félagsheimilið tók til starfa.
Til þeirra hefur verið leitað
hvernig sem á stóð, og erindin
margvísleg og alltaf þótti sjálf-
sagt, að þau vissu eða gætu leyst
vandann hverju sinni."
Það var oft þröngt í félagsheim-
ilinu á þessum árum, þegar böð og
búningsaðstaða voru þar eða áður
en íþróttahúsið var tekið í notkun.
Þar var Valdi kóngur í ríki sínu og
orð hans voru lög. Valdemar og
Helga voru samhent um að láta
umsjónar-og eftirlitsstörfin að
Hlíðarenda mótast af hinum
sanna og góða félagsanda. Helga
annaðist um allar veitingar á
samkomum og fundum að Hlíðar-
enda og gerði það með myndar-
brag. Þá var það og algengt að
erlendir og innlendir íþróttahópar
fengju inni að Hlíðarenda til
lengri eða skemmri dvalar. Nutu
þar allir gestrisni og vinsemdar
Valdemars og Helgu.
Nú að leiðarlokum vil ég fyrir
hönd Vals flytja Valdemar inni-
legustu þakkir fyrir mikið, og
fórnfúst starf í þágu Vals. Ég
votta Helgu og sonum þeirra
Kristjáni Grétari og Sigurbirni og
fjölskyldum þeirra samúð og bið
þeim blessunar.
Knattspyrnufélagið Valur,
Pétur Sveinbjarnarson.
Okkur langar að minnast afa
okkar með nokkrum orðum. Það er
svolítið erfitt að trúa því að við
eigum aldrei eftir að njóta fleiri
samverustunda með honum, hann
sem alltaf var svo hress og kátur
þegar við komum í heimsókn. Oft
spilaði hann við okkur eða tefldi,
sagði okkur sögur af sínum upp-
vaxtarárum í Þingvallasveit og þá
fylgdi hugur máli. Hann hafði svo
gaman af að fræða okkur um
gamla tímann. Svona var afi.
Manni leið alltaf svo vel í návist
við hann. Við minnumst líka allra
heimsóknanna á heimili afa og
ömmu með hlýju og þökk.
Við systkinin erum innilega
þakklát fyrir allar þær samveru-
stundir sem við áttum með afa, og
minningarnar um hann munu allt-
af lifa í hugum okkar.
Við biðjum góðan Guð að
styrkja ömmu okkar sem hefur
misst góðan eiginmann og félaga.
Mar«s er art minnast.
marKt pr hér art þakka.
(iurti só loí fyrir lirtna tíA.
Ragnheiður, Valdemar,
Helga og Ragnar.