Morgunblaðið - 13.10.1981, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1981
?eiia er e-kki egg 09 rísta\ nou!b, loeldur ecjq eoö. nstað brtxujh"
... að hugsa ekki
alltaf uw sjálfan sig.
TM Reg U S Píl Off —a« rlghts reserved
e 1981 Los Angeles Times Syndlcate
Með
morgunkaffinu
\ /
Ég sa«ði þór að myndin væri Þú áttir að mála akbrautar-
rkki við hæfi harna!
skiptinKuna. bjáni!
HÖGNI HREKKVÍSI
Osta- og smjörsalan:
Útilokað að
umbúðirnar
hafi víxlazt
Sævar Majfnússon skrifar 9.
okt. vegna fyrirspurnar Margrétar
Sighvatsdóttur í Velvakanda sama
dag:
„Mysuostur hefur verið unninn
hér í mjólkursamlögunum að stað-
aldri frá því um 1950 en síðustu
árin hefur mjúkur, smyrjanlegur
mysuostur fengizt í tveimur teg-
undum. Önnur er framleidd á Ak-
ureyri og kallast „mysingur", en
hin á Húsavík, og gengur undir
heitinu „mjúkur mysuostur".
Nokkur mismunur er á tegundun-
um, þótt þær séu í eðli sínu svip-
aðar, og báðar eru seldar í 250 g
plastdósum.
Mysuostur er unninn með því að
eima ostmysu. Mysan er soðin við
eðlilegan þrýsting þar til hún
þykknar, bætt í hana ýmsum
mjólkurefnum og þykknið síðan
hrært i mjúkan massa. Þetta er
hin gamla, sígilda vinnsluaðferð,
sem enn er notuð hérlendis, en
nýtískulegri aðferðir, með suðu
við lágþrýsting, hafa rutt sér til
rúms erlendis, einkum í Noregi,
þar sem markaðurinn er stór og
leyfir verulega fjárfestingu í
vinnslunni.
Suða mysunnar veldur því að
ostefnin verða brúnleit, en með
þeim vinnsluaðferðum, sem hér er
kostur að beita, er erfitt að
stjórna hituninni nákvæmlega.
Því veldur m.a. að sýrustig mys-
unnar á vinnslustigi getur verið
lítið eitt mismunandi, sömuleiðis
þurrefnismagn hennar og hitun-
arhraðinn.-
Útilokað er að umbúðirnar fyrir
umræddar tvær tegundir mysu-
osts hafi víxlazt. Hins vegar getur
önnur tegundin á tímabili hafa
verið eitthvað ljósari en oft áður
og hin tegundin sömuleiðis ívið
dekkri en venjulega, og má ætla að
ofangreindur neytandi hafi orðið
var við þess háttar litarsveiflur,
sem framleiðendur vörunnar þó
kappkosta að hafa sem minnstar."
Eru vandamál frystihúsanna
einungis ríkisstjórninni að kenna?
„Frjálshyggjumaður í Gauta-
borg“ skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Af fréttum Morgunblaðsins að
dæma síðastliðnar vikur, þá eru
bara hrekkjusvín í þessari ríkis-
stjórn. Ef svo er, að þeir stefna
markvisst að því að hindra frysti-
húsin í því að selja sínar afurðir,
þá er það auðvitað góð skýring á
þeirra vandamálum. Það er aug-
ljóst mál að það skiptir engu máli,
þó að frystihúsin reyni að auka
framleiðnina, ef þau geta svo ekki
selt afurðirnar. En ættu þá ekki
vandamáiin að vera jöfn hjá öllum
fyrirtækjum, ef enginn getur selt?
Við getum valið
hvora leiðina sem er
Er kannski skýringuna á vanda-
málunum einnig að finna annars
staðar? Gæti hún verið sú, að
menn hafa hreinlega lokað augun-
um fyrir þeirri hugsun, að það
þurfi að „stokka upp“ í þessari
undirstöðuatvinnugrein okkar ís-
lendinga? Að það þurfi kannski að
leggja niður nokkur frystihús og
sameina önnur til þess að ná
framleiðslukostnaðinum niður á
viðráðanlegt plan, þar sem ekki
fæst nægilega mikið fyrir afurð-
irnar miðað við núverandi kostn-
að? Það er eflaust lausn sem
mundi svíða á einstökum stöðum.
Eigum við kannski að fara gömlu
leiðina og fella gengið í hvert sinn
sem vandamálin steðja að? Við
getum valið hvora leiðina sem er,
en munurinn er sá að önnur lausn-
in gæti verið lausn til langs tíma,
meðan það er öruggt að sú seinni
er aðeins til skamms tíma. Verða
ekki frystihúsin að aðlaga sig
þeim breytingum sem verða í um-
hverfinu eða ætla forráðamenn
þessara fyrirtækja endalaust að
reyna að stjórna umhverfinu (en-
vironmental management)?
Það þarf að gera
aðrar ráðstafanir
Sem einlægur stuðningsmaður
frjálshyggju tel ég það farsælast,
að frystihúsin reyni að leysa sín
vandamál sjálf, því að þegar ríkið
fer með sínar krumlur í þessi mál,
þá er hættan sú að það nái um leið
kverkataki á þessum iðnaði og
sleppi því ekki. Það mun væntan-
lega öllum vera ljóst, að ekki er
hægt að fella gengið endalaust til
að bjarga útflutningnum, það þarf
að gera aðrar ráðstafanir. Þess
vegna skil ég ekki að Morgunblað-
ið sé málsvari þeirra sem krefja
ríkið um aðstoð um leið og á móti
blæs, því það getur aldrei leitt
neitt gott af sér.“
„P.s. Gætir þú einnig komið því
á framfæri við Ríkisútvarpið, að
við hér í Gautaborg heyrum
fréttaútsendingarnar á kvöldin
mjög vel og hefur það breytzt mik-
ið til batnaðar síðan byrjað var að
senda út á nýju rásinni. Núna get-
um við fylgst mjög vel með því
sem er að ske heima á Fróni. Með-
al annars heyrði ég núna í kvöld,
að skipastóll landsmanna er alltof
stór og að sala á fiskafurðum eigi
eftir að dragast sarnan."
Hvet sjónvarpið
til að breyta þessu
Ragnheiður Valgarðsdóttir
skrifar:
„Kæri Velvakandi.
A sunnudögum er hinn ágæti
þáttur í sjónvarpinu, „Sjónvarp
næstu viku“. En þetta er rang-
nefni á þættinum. Eða byrjar vik-
an ekki á sunnudegi? Ég vil hvetja
sjónvarpið til að breyta þessu og
nefna þáttinn „Sjónvarp í vik-
unni“ eða eitthvað á þá leið.
Með þökk fyrir birtinguna."