Morgunblaðið - 13.10.1981, Síða 46

Morgunblaðið - 13.10.1981, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1981 Þúsundasti bíllinn LióKmynd Mbl. Emilla. Hjónin Sigríður Bjórnsdóttir ok Ragnar Maxnú.sson keyptu á mánudaKÍnn 1000. bílinn sem Hekla afgreiðir á þessu ári. bað er Mitsubishi Lancer en á myndinni eru ásamt hjónunum og sonum þeirra, Arna og Magnúsi, Sverrir Sigfússon framkvæmdastjóri bifreiðadeildar Heklu og Stefán Sandholt sölustjóri. Ogri kominn heim eftir breytingar í Póllandi SKUTTOGARINN Ögri, sem verið hefur í breytingum í Póllandi frá þvi snemma í júní kom til Reykjavíkur í gær. í Póllandi var skipið lengt um 8,40 metra og mælist skipið nú 856 tonn að stærð, en var 723 fyrir lengingu. Gísii Jón Hermannsson fram- kvæmdastjóri Ögurvíkur hf. sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að auk lengingar á skipinu hefðu lunningar verið hækkaðar upp aft- ur að afturgálga, sett hefðu verið í skipið grandaraspil og nú væru tvær skeifur á dekki skipsins, þannig að nú væru tvö troll alltaf til reiðu á dekkinu, en það flýtir mikið fyrir ef troll kemur rifið upp. Þá var settur skutrennuloki á skipið, ennfremur tvær ísvélar og ísklefi byggður, einnig voru öll færibönd og fleira á aðgerðarþil- fari endurnýjuð. Einnig var skipið allt sandblásið, lestir skipsins voru allar endurbyggðar, þannig að nú rúmast kassar vel í þeim, er gert ráð fyrir rými fyrir 4500 90 lítra kassa og síðan verður stíu- pláss fyrir 60—70 tonn af fiski. Burðargeta skipsins verður því svipuð og fyrir breytingu, en þá rúmuðust 315—320 tonn í lestum þess. Að sögn Gísla Jóns þá eru eig- endur Ögurvíkur, sem og skip- stjóri Ögra, Brynjólfur Halldórs- son, ánægðir með breytingu, öll vinna væri til fyrirmyndar og stálvinnan framúrskarandi. Vigri, sem einnig er í eigu ög- urvíkur, er nú í breytingu í Pól- landi, á að vera tilbúinn til reynslusiglingar þann 30. október nk. og ennfremur er verið að lengja Viðey RE í Póllandi og Engey, sem er samskonar skip og ofantalin þrjú, fer í lengingu til Póllands innan skamms. Reyðarfjörður: Tvær nýjar söltunar- stöðvar teknar í notkun Rcvðarfirði. R. októhcr. TÓGARINN Snæfugl SU 20 fór sína íyrstu veiðiferð 10. júlí í sumar. 30. septemher var togar- inn búinn að fara 8 veiðiferðir og aflinn orðinn 973 lestir. GSR tek- ur við öllum afla togarans núna því frystihúsin hér á Reyðarfirði og Borgarfirði eystri eru lokuð meðan siáturtíðin stendur yfir. Nú er unnið af kappi við að pakka fiski, sem á að fara til Grikklands í staðinn fyrir fiskinn, I)R. IIÁKON Aðalstcinsson flyt- ur í kvöld erindi á vegum Líf- fra,ðingafélags íslands og nefnist -Líf og lífsskilyrði í jökulvötn- um“. Orkustofnun hefur látið kanna ýmsa mikilvæga eiginleika jökul- vatns gagnvart því lífríki sem í þeim eru. Flestar virkjanir sem eru taldar álitlegar um þessar mundir eru í jökulvötnum. I kjöl- sem eyðilagðist í Mávinum á dög- unum. Skip er væntanleg í næstu viku til að taka fiskpakkana. Hjá GSR vinna á milli 20 og 30 manns. Hér á Reyðarfirði eru nú 2 nýj- ar söltunarstöðvar, Gísli Þórólfs- son og ættingjar hafa byggt hér litla söltunarstöð, Kóp sf, þar sem aðstaða er fyrir 8 til 12 konur í söltun. Þegar saltað er, hafa 15 manns atvinnu þar. Gísli er búinn að salta í 560 tunnur og er ánægð- ur ef litið er á það síldarmagn, far slíkra virkjana fylgja óhjá- kvæmilega stór og smá miðlunar-, veitu- og inntakslón, og mun jök- ulvötnum því fjölga verulega í framtíðinni. I erindi dr. Hákons verður eink- um fjallað um rannsóknir á Þór- isvatni og Leginum. Það verður haidið í stofu 101 í Lögbergi og hefst kl. 20.30 og er ölium heimill aðgangur. sem komið er á land. Gísli saltar fyrir Rússlandsmarkað. Hin söltunarstöðin er Verktak- ar hf., sem hefur komið upp sölt- unarstöð í 370 fermetra stál- grindahúsi. Gert er ráð fyrir að 30 til 40 manns verði við vinnu þar, þegar söltun stendur yfir. Stjórn- arformaður í hinu nýja fyrirtæki er Orri Vigfússon, Reykjavík og framkvæmdastjóri er Hilmar Sig- urjónsson, og verkstjóri Jóhann Þorsteinsson, báðir frá Reyðar- firði. Þetta eru einu aðilarnir, sem stunda síldarsöltun hér nú. Þá má geta þess að 2 bankar eru hér á staðnum, Landsbanki og Búnaðarbanki. Heldur þröng húsakynni voru lengi hjá báðum bönkunum, en nú hefur orðið breyting á. Landsbankinn hefur gjörbreytt húsi sínu og er aðstaða öll fyrsta flokks og þá hefur Bún- aðarbankinn flutt í nýtt leigu- húsnæði, og bætt sína þjónustu, þar sem bankinn var í mörg ár aðeins opinn í tvo tíma á dag, en verður nú opinn allan daginn. Er þetta mikil framför í bankamálum á Reyðarfirði. Veturinn lét ekki á sér standa þetta árið, haustverkum var ekki lokið í görðum þegar allt fór á kaf í snjó. Leiðindaveður er búið að vera hér á aðra viku og þykir okkur nóg um. Gréta „Líf og lífsskilyrði i jökulvötnum“ - erindi flutt í Lögbergi í kvöld Kantsteinsmálið á Akureyri: Innakstur heim- ilaður á athafna- svæði Hölds sf. Akureyri, 12. október. EIGENDUR fyrirtækja og verslunarhúsa við Tryggvabraut hafa nýlega sent bæjaryfirvöldum á Akureyri erindi, með beiðni um að innakstur verði leyfður frá Tryggvabraut inn á hugsanleg bílastæði sunnan göt- unnar, framan við verslanir þeirra, og einnig að bensinsölu Hölds sf. Hið siðast nefnda hefur nú verið leyft, en ekki hefur verið fallist á gerð bilastæða við hin fyrirtækin. Samkvæmt deiliskipulagi þessa svæðis er gert ráð fyrir að við Tryggvabraut séu iðnfyrirtæki, og gatan tengibraut og þess vegna ætlað að flytja mun meiri bílaum- ferð en safnbraut. Þess vegna hefur ekki verið talið samrýmast þessu, að bilum sé lagt á götuna, heldur skuli aðkoma að húsunum vera frá Furuvöllum næstu götu sunnan við Tryggvabraut. Forsenda fyrir' þessu hefur þó breyst mjög, þar sem leyfi hefur verið veitt fyrir verslunarhúsum við götuna, auk iðnaðarhúsa, og því er hverfið ekki lengur hreint iðnað- arhverfi. Höldur sf. hefur þó fengið bráðabirgðaleyfi árlega til aðkomu að bílaþjónustufyrirtæki sínu og bensínsölu, en í ár fékkst það leyfi ekki endurnýjað, heldur var steypt- ur kantsteinn sunnan götunnar, nú í haust alla leið frá Hvannavöllum að Hjalteyrargötu. Þá sendu fjögur fyrirtæki við Tryggvabraut, Heildverslun Valde- mars Baldvinssonar, Húsgagna- verslunin Vörubær hf., Skipaþjón- ustan hf. og Höldur sf. erindi til bæj aryfirvalda, og óskuðu þess að skipulagi yrði breytt þannig, að Höldur fengi að halda opinni inn- akstursleið á bensínsölu sína, en við hús hinna fengist leyfi til að leggja bílum. Á það var bent að annaðhvort yrðu viðskiptamenn að leggja bílum sínum sunnan við húsin og ganga stóran krók kring- um þau til þess að komast inn í verslanirnar, eða leggja norðan Tryggvabrautar og ganga síðan þvert yfir götuna og baka sér þann- ig mikla slysahættu. Eigendur verslunarhúsanna buð- ust til að láta 4ra metra ræmu af lóðum sínum ef bærinn vildi ganga frá bílastæðum framan við húsin, en frá húsvegg að brún götu eru þarna 6,35 metrar. Þet.ta erindi kom fyrir bæjar- stjórn á þriðjudaginn var, þar var því í heild hafnað, en heimilaður innakstur á athafnasvæði Hölds sf. Hins vegar var því beint til skipu- lagsnefndar Akureyrar, og tækni- deildar bæjarins, að málið verði tekið fyrir til sérstakrar athugunar við endurskoðun aðalskipulags og að því verki verði hraðað sem mest. - Sv.P. Lítil Lóusaga í SMÁÍBÚÐAIIVERFINU var kona nokkur að hengja upp þvott út á snúru hjá sér nú í vikunni, sem er svo scm ekki i frásögur færandi, nema vegna heimsóknar lítils gests sem kom tritlandi úr nálægum móum. Gestur þessi var kom fjöðrum skrýddur gangandi hér var á ferðinni lítil lóa. Konan var að vonum undrandi á þessari síðbúnu heimsókn, því eins og allir vita er lóan vön að ylja sér í öðrum löndum en Is- landi á þessum árstíma. Hún gerði hlé á vinnu sinni um stund og labbaði lóan þá nær henni, tísti svona rétt sem snöggvast, nam síðan staðar spyrjandi á svip. Konan reyndi að svara henni, tísti í líkingu við lóuna, lóan hallaði undir flatt og tísti vægast sagt fremur smávaxinn, á tveim grönnum fótum sinum, aftur. Að svo mæltu snerist hún á hæli, gekk leiðar sinnar og hvarf stuttu síðar sjónum kon- unnar. Enginn veit hvað henni lá á hjarta, nema ef til væru þeir sem í ævintýrunum eru sagðir skilja fuglamál. En ef til vill hef- ur hún verið að grennslast fyrir um vini sína, hinar lóurnar, sem nú sóla sig og spóka á suðrænum ströndum. Framboðstilkynning MORGUNBLAÐINU barst í gær svohljóðandi framboðstilkynning frá Sigurgeir Sigurðssyni, bæjar- stjóra á Seltjarnarnesi: Sú venja hefur skapast hér á landi að aðilar er bjóða sig fram til embætta eða í ákveðnar stöður hafa að því er virðist lítinn áhuga sjálfir á þeim málun en láta undan tilmælum stuðningsmanna eða hópa um að gefa kost á sér til viðkomandi starfa. Á þessari venju hef ég ákveðið að gera undantekningu með því að lýsa yfir áhuga mínum á vara- formannsembætti Sjálfstæðis- flokksins og um leið gera þá játn- ingu að til mín hafa ekki leitað hópar manna er hvatt hafa mig til þessara ákvörðunar. Einlægur áhugi minn á viðgangi Sjálfstæðisflokksins og þá um leið þjóðarinnar, kveður mig til átaka á vettvangi flokksins. Tveggja áratuga reynsla, sem sveitarstjórnarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins hefur sannfært mig um nauðsyn valddreifingar í þjóðfélaginu og stjórnmálaflokk- unum. Reynsla úr minni heimabyggð hefur sýnt svart á hvítu að lands- menn hafa fengið meira en nóg af skattagleði hins opinbera og vilja gjarnan sjálfir fá að ráðstafa stærri hluta tekna sinna er þeir gera í dag. Fyrir þeirri stefnu mun ég halda áfram að berjast af öllu afli. Sjálfstæðisflokkurinn á flokks- lega í vök að verjast um þessar mundir. Flokknum er því nauðsyn að gerast ekki of þröngur og varna með því þeirri endurnýjun, sem öllum er nauðsynleg. Fyrir því mun ég berjast. Landsfundur er nú haldinn við harla óvenjulegar aðstæður og mun bera keim af því. Stjórnarandstæðingar og stjórnarsinnar verða þar án efa dregnir í dilka og víst er um það að landsfundur verður að taka af- stöðu. Hvað, sem sjálfstæðismenn sögðu, við upphaf þessarar stjórn- ar tel ég að reynsla undanfarinna 3ja missera sýni að óráðlegt er að sjálfstæðisflokksmenn leggi til (vara)hjól á þann líkvagn, sem stjórn þessi í raun er íslensku Þjóðfélagi. Leikreglur lýðræðisins mæla fyrir um rétt meirihluta og minni- hluta, eftir þeim ber að fara.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.