Morgunblaðið - 17.10.1981, Side 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK
232. tbl. 68. árg.
LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Moshe Dayan látinn
Korchnoi vann
Moshe Dayan
Tel Aviv, 1«. okt. Al>.
MOSHE Iíayan, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra ísraels, lést í dag úr
hjartaslagi 66 ára að aldri. GeUin var
út opinber tilkynning utn lát hans og
talsmaður Begins forsætisráðherra
sagði, að Dayan yrði jarðsettur á
kostnað ríkisins nk. sunnudag.
Að sögn fjölskyldu Dayans
hafði hann verið fluttur á sjúkra-
hús í gær vegna sárra verkja fyrir
brjósti og öndunarerfiðleika og
tafarlaust verið settur í gjör-
gæslu. Moshe Dayan gekkst á sín-
um tíma undir læknisaðgerð
vegna krabbameins.
sjöttu skákina
Merano, 16. okt. AF.
VIKTOK Korchnoi vann í dag sinn
fyrsta sigur í heimsmeistaraeinvíg-
inu í skák þegar Anatoly Karpov gaf
sjöttu skákina, sem fór í bið í gter
kvöldi. Karpov hefur nú forystu í
Allir stjórnmála-
flokkar leystir
upp í Tyrklandi
Ankara, 16. okt AP.
ALLIR stjórnmálaflokkar i Tyrk-
landi, sem hafa verið ( banni frá
því að herinn tók völdin fyrir 14
mánuðum, voru í dag leystir upp
að boði herstjórnarinnar og eigur
þeirra gerðar upptækar.
í Tyrklandi hafa fjórir flokkar
einkum tekist á um völdin en það
eru Lýðveldisflokkurinn, sem er
flokkur jafnaðarmanna, Rétt-
lætisflokkurinn, Þjóðlegi fram-
faraflokkurinn og Þjóðlegi frels-
isflokkurinn. Leiðtogi Lýðveldis-
flokksins og fyrrverandi forsæt-
isráðherra er Bulent Ecevit en
fyrir Réttlætisflokknum, sem er
hægriflokkur, fer Suleyman
Demirel en hann var forsætis-
ráðherra þegar herinn tók völd-
in. Forystumenn flokkanna fara
frjálsir ferða sinna að undan-
teknum formanni Þjóðlega
framfaraflokksins, öfgasinnaðs
flokks, sem er í fangelsi og bíður
dóms.
einvíginu og er með þrjá vinninga
gegn einum Korchnois.
Að sögn skáksérfræðinga urðu
Karpov á slæm mistök í 40. leik,
nokkru áður en skákin fór í bið.
Yasser Seirawan, bandarískur
stórmeistari og einn af aðstoðar-
mönnum Korchnois, sagði, að ef
Karpov hefði Ieikið réttan leik
hefði hann gert betur en að jafna
taflið, jafnvel staðið örlítið betur
að vígi. Aðstoðarmenn Korchnois
voru að vonum mjög ánægðir með
sigurinn en þeir höfðu það eftir
Korchnoi sjálfum að hvorki hann
né Karpov hefðu teflt skákina sér-
staklega vel.
Sjöunda skákin verður tefld á
morgun, laugardag.
Korchnoi
EDMOND Maire, formaður CFDT-verkalýðssambandsins, sem sósíalistar ráða, fagnar hér kollega sínum, Lech
Walesa, formanni Samstöðu, hins óháða verkalýðssambands í Póllandi, þegar þeir hittust í París sl. fimmtudgskvöld.
Walesa er nú í vikulöngu ferðalagi um Frakkland í boði fimm helstu verkalýðssambanda þar í landi. AP-slm»mjnd.
Kröfur Kania til miðstjórnar pólska kommúnistaflokksins:
Verkföll bönnuð og
engin laugardagsfrí
Varejá, 16. okt AP.
STANISLAW Kania, formaður pólska kommúnistaflokksins, krafðist þess í
dag á fundi miðstjórnar flokksins, að hún samþykkti bann við verkföllum í
landinu í vetur og að laugardagsfríin yrðu afnumin til að ráða mætti bót á
efnahagskreppunni í landinu. Akveðið hefur verið einnig, að þeir, sem um
þessar mundir eru að Ijúka tveggja ira herskyldu, gegni henni áfram.
í mjög harðorðri ræðu, sem
Kania flutti í dag á fundi 200
manna miðstjórnar kommúnista-
flokksins, krafðist hann þess, að
hún samþykkti að banna algerlega
öll verkföll í vetur og að laugar-
dagar yrðu gerðir að almennum
vinnudögum. Sagði hann þessar
ráðstafanir vera forsendu fyrir
því að finna mætti lausn á þeim
hrikalegu vandamálum, sem
pólska þjóðin ætti nú í. Hann
réðst mjög harkalega á Samstöðu,
hið óháða verkalýðssamband, og
sagði, að öfgasinnaðir „gagnbylt-
ingarmenn" væru að ná undirtök-
Margaret Thatcher í Blackpool:
„Breyti ekki um stefiiu
til að öðlast vinsældir“
Blackpool, 16. okt AP.
MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Breta, sagði í dag á þingi íhalds-
flokksins í Blackpool, að ekki yrði horfið frá harðri stefnu í peningamálum
þó að ýmsir samflokksmenn hennar óttist, að það kunni að verða íhalds-
flokknum dýrkeypt í næstu kosningum. Hún sagði einnig, að Bretar yrðu að
hafa gott samstarf við Bandaríkjamenn og taka fullan þátt í kjarnorkuvopna-
vörnum Atlantshafsbandalagsins vegna þess, að takmark Sovétraanna væri
„aðgrafa vestræna siðmenningu“.
„Ec
5g mun ekki breyta um stefnu
til þess eins að öðlast vinsældir,"
sagði Thatcher frammi fyrir fimm
þúsund fagnandi þingfulltrúum og
var þeim orðum hennar ekki síst
beint til þeirra, sem hafa gagn-
rýnt stefnu hennar að undan-
förnu. „Því veldur ekki þrákelkni,
heldur heilbrigð skynsemi," bætti
Thatcher við. Hún sagði einnig, að
samþykkt Verkamannaflokks-
þingsins um einhliða kjarnorku-
vopnaafvopnun væri „skammarleg
fyrir bresku þjóðina".
„Við Bretar getum ekki skýlt
okkur á bak við bandarísk kjarn-
orkuvopn og samtímis því beðið
um að þau séu höfð alls staðar
annars staðar en í okkar landi,"
sagði Margaret Thatcher.
Stjórnmálaskýrendur benda á,
að þótt Thatcher beri sig vel, muni
hún eiga erfiða tíma í vændum.
Atvinnuleysið vex stöðugt og
óvinsældir hennar að sama skapi
og þingmenn flokksins óttast nú
mjög að hans bíði ekkert nema
stórkostlegt hrun í næstu kosning-
um. Hennar hörðustu andstæð-
ingar innan flokksins eru þeir sex
ráðherrar, sem hún hefur rekið
síðasta misserið, og Edward
Heath, fyrrverandi forsætisráð-
herra. Einnig nokkrir ungir þing-
menn, sem fyrst voru kjörnir á
þing í síðustu kosningum.
unum í samtökunum.
Pólska stjórnin tilkynnti í dag,
að hermenn, sem nú væru að ljúka
herskyldu, yrðu að gegna henni
áfram og sagði í tilkynningunni,
að „ástandið í landinu, þar með
efnahagsvandræðin, gerir það
nauðsynlegt, að herinn komi til
hjálpar við lausn þessara erfið-
leika". Félagar Samstöðu í Jelena
Gora sögðu i dag, að annað vekti
fyrir stjórnvöldum með þessari
ákvörðun en í veðri væri látið
vaka og að þau væru nú að búa sig
undir að beita hernum í hugsan-
legum átökum við almenning.
Forysta Samstöðu hvatti í vik-
unni til að verkföllum og mótmæl-
um gegn stjórninni yrði hætt með-
an fram færu viðræður samtak-
anna og stjórnvalda en þær hófust
í gær, fimmtudag, og héldu áfram
í dag. Stjórnin hefur þegar fallist
á að leyfa engar verðhækkanir að
því tilskildu, að komist verði að
samkomulagi við Samstöðu um
nauðsynlegar efnahagsúrbætur.
Þrátt fyrir áskorunina hafa
verkalýðsfélög víða í Póllandi efnt
til verkfalla og eru stöðugt að ber-
ast fréttir af nýjum aðgerðum.
Aðalritstjóri æskulýðsblaðsins
„Sztandar Mlodych" var í gær rek-
inn frá störfum og var það haft
eftir starfsmönnum á ritstjórn og
félögum í Samstöðu, að ástæðan
væri sú, að hann birti viðtal við
andófsmanninn Jacek Kuron.
Þessir sömu starfsmenn sögðust
hafa mótmælt brottrekstrinum og
hótað að birta þau mótmæli í
mánudagsútgáfu blaðsins. Þessi
atburður þykir sýna harðnandi af-
stöðu pólskra stjórnvalda.