Morgunblaðið - 17.10.1981, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981
7
BASAR
Kvenfélags Fríkirkjunnar í
Reykjavík er að Hallveig-
arstöðum í dag kl. 2.
Á basarnum veröa m.a. jólamunir,
fatnaöur, kökur, leikföng, lukku-
pakkar og happdrætti.
Basarnefndin.
Bann gegn
rjúpnaveiði
Öllum óviökomandi er bönnuö rjúpnaveiöi og umferð
meö skotvopn í löndum eftirtalinna lögbýla: Skeggju-
staöa í Mosfellssveit, Hrafnhóla og Stardals í Kjalarnes-
hreppi, Fellsenda, Stíflisdals, Selkots, Heiöarbæjar I og
II, Kárastaöa í Þingvallahreppi, Fremri-Háls, írafells,
Hækingsdals og Hlíöaráss í Kjósarhreppi.
Brot gegn banni þessu verða tafarlaust kærð.
Landeigendur, ábúendur.
Nú er rétti tíminn til
að athuga með arinn
fyrir veturinn.
Fljótvirk og auðveld
uppsetning.
Superfire arinninn
trekkir alltaf rétt.
Sendum gjarnan
upplýsingar.
YMUS H.
P. O. BOX 330 - 202 KOPAVOGI - ICELAND
Kvöld- og helgarsími 43442.
Opel Record árg. 71
Ekinn 74.000 km til sýnis og sölu í dag og á morgun
aö Ásvallagötu 24, frá kl. 12.00 e.h.
Allar nánari upplýsingar í síma 13925.
Hefðbundin
deila
l>ad er ekki einleikið, ad
jafnan þegar til tíðinda
dregur vejjna adgerða
þeirra afla, sem telja ör
yggi sínu betur borgið með
öðrum hætti en meirihluti
kjósenda í Atlantshafs-
bandalagslöndunum, skuli
þurfa að gagnrýna frétta-
flutning ríkisfjölmiðlanna
á íslandi. I*að vakti til að
mvnda furðu ýmissa fvrir
réttri viku, þegar sjónvarp-
ið taldi það meiri tíðindum
sreta við röðun frétta, að
svonefndir friðarsinnar
komu saman í Bonn en Ah
þingi íslendinga var sett.
f útvarpsráði vakti F.iður
Guðnason, alþingismaður,
máls á fréttaflutningi ríkis-
útvarpsins í tilefni af fund-
inum í Bonn. Tilefnið var
sérstaklega svohljóðandi
frétt, sem lesin var að
minnsta kosti tvisvar síð-
asta sunnudag: „Konald
Keagan, Bandaríkjaforseti,
og Joseph Luns, fram-
kvæmdastjóri Atlants-
hafsbandlagsins, hafa látið
f Ijós áhyggjur vegna sívax-
andi fylgis við máístað frið-
ar og hlutleysis í V-Evr
ópu.“
í Alþýðublaðinu segir af
þessu tilefni: „Upplýst er,
að sá sem þýddi þessa frétt
og bjó til flutnings var Ein-
ar Örn Stefánsson, flokks-
bundinn alþýðubandalags-
maður og fyrrverandi
blaðamaður á Þjóðviljan-
um.“ Jafnframt mun hafa
komið fram í útvarpsráði,
að fréttamaðurinn hefði
stuðst við skeyti frá Reut-
ers-fréttastofunni. I*að er
svo sannarlega með mikh
um ólíkindum, að sú virta
fréttastofnun hafi látið
annað eins frá sér fara og
það, að Keagan og Luns
hafí sérstakar áhyggjur af
vaxandi fylgi við málstað
friðar og hlutleysis í V-Evr
ópu. Að vísu eru þeir báðir
þeirrar skoðunar, eins og
raunar allir áhrifamenn á
Vesturlöndum, að hlutleysi
VesturEvrópulanda í stað
aðildar að Atlantshafs-
bandalaginu sé alls ekki
skref í átt til friðar, þeim
mun fáránlegra er í um-
ræddri frétt að tengja sam-
an orðin „frið og hlut-
leysi".
Nú má segja, að ekkert
eitt íslenskt orð dugi til að
lýsa þeirri hreyfingu, sem
efndi til fundarins í Bonn.
Þátttakendur í honum voru
af mörgu sauðahúsi. I*essi
liðssafnaður hefur einna
helst kosið að kalla sig
„pacifista“ eða friðarsinna,
þótt hann með því leggi
undir sig nafn, sem aðrir
inni á sunnudaginn hefði
verið sagt, að Keagan og
Luns hefðu látið f Ijós
áhyggjur vegna sívaxandi
fylgis svonefndra friðar
sinna.
Þingmanna-
samtökin
og NATO
í sömu andrá og fréttastofa
hljóðvarpsins ræddi um
Svo virðist sem jafnvel á fréttastofu hljóö-
varpsins átti menn sig ekki aö fullu á þeim
samtökum, sem Atlantshafsbandalagsríkin
hafa stofnað til í því skyni aö treysta sam-
starf sitt og efla. Þaö leiöir hugann aö því,
aö nauðsynlegt er fyrir skólafólk aö hafa
aðgang að glöggum og einföldum upplýs-
ingum um alþjóðasamtök, sem ísland á aö-
ild aö. Væri æskilegt, að opinberum aöila
eins og upplýsingadeild utanríkisráöuneytis-
ins yröi falið að semja yfirlit yfir markmið og
starfshætti þessara samtaka, sem síöan yröi
dreift eins víöa og kostur er.
eiga meiri rétt til. Svo að
fréttastofan komist heih
skinna út úr þeirri hefð-
bundnu deilu, sem rís, þeg-
ar hlustcndum er misboðið
að þessu leyti, gæti hún
valið þá leið núna, að kalla
andmælendur varna á
Vcsturlöndum „svonefnda
friðarsinna". Með því not-
ar hún það heiti, sem þeir
sjálfir velja sér en gefur
jafnframt til kynna, að það
sé ekki allskostar rétl. Ætli
nokkur hefði getað gert við
það athugasemd, ef í frétt-
„fríð og hlutleysi" á sunnu-
daginn greindi hún hlust-
endum frá því, að á vegum
NATO væri að hefjast
ráðstefna í Miinchen um
viðbrögð við þessum
háskalegum tíðindum.
Einnig í þeirri frétt gætti
mikillar ónákvæmni.
Eundurinn í Miinchen hef-
ur staðið þessa viku og er
haldinn á vegum þing-
mannasamtaka Atlants-
hafsbandalagsrfkjanna,
sem eru sérstök samtök án
beinna tengsla við NATO í
þeim skilningi, að þau
starfa ekki á vegum
skrifstofu bandalagsins f
Brussel. Reka þau sína eig-
in skrifstofu þar í borg,
fjarri höfuðstöðvum Ath
antshafsbandalagsins og
telja þingmennirnir sig
hafa jafn mikið sjálfstæði
gagnvart bandalaginu og
til dæmis gagnvart ríkis-
stjórnum í þjoðþingunum.
I*essi ónákvæmni í
fréttaflutningi vekur til
umhugsunar um það, hvort
nóg sé að gert í úpplýs-
ingamiðlun um frumþætt-
ina í samstarfi Atlants-
hafsbandalagsríkjanna,
hvort fréttamenn leggi sig
nægilega fram um að
kynna sér þá eða nægilega
handhægar upplýsingar séu
þeim til reiðu á fréttastofn-
unum. A meðan ekki liggur
annað fyrir hljóta menn að
álykta sem svo, að þekk-
ingarleysi valdi óná-
kvæmninni og þar með
rangri mynd af þvi, sem
raunverulega er að gerast,
en ekki sá ásetningur að
færa mál f annan búning
en hinn rétta.
Engir bregðast að vísu
verri við en ýmsir vinstri-
sinnar, þegar að því er
staðið með skynsamlegum
hætti að koma staðreynd-
um um Atlantshafsbanda-
lagið, stefnu þess og störf á
framfæri. Það er engu lík-
ara en þeir vilji helst láta
ruglandina ráða á þessu
sviði eins og öðrum og geta
fiskað í gruggugu vatni.
Auðvitað á það að vera lið-
ur í almennri menntun á
grunnskólastigi að gera
nemendum sem einfald-
asta og gleggsta grein fyrir
þeim alþjóðasamtökum,
sem íslendingar eiga aðild
að, ættu þau íslensk stjórn-
völd, sem annast dagleg
samskipti við þessar al-
þjóðastofnanir að láta
semja greinargóða lýsingu
um þau og dreifa þeim
jafnt til skólafólks og ann-
arra. Auðvitað gætu áhuga-
mannafélög einnig látið til
sín taka á þessu sviði, en
líklega yrði helst komist
hjá tortryggni, ef upplýsing-
unum væri dreift til dæmis
af upplýsingadeild ulanrík-
isráðuneytisins.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
M AIGLYSIR l'M ALLT LAND ÞEGAR
l»l AIGLYSIR I MORGINBLAÐIM
G O ODWYEAR
GEFUR 0'RETTA GRIPIÐ
FULLKOMIN HJÓLBARÐASALA-
OG ÞJÓNUSTA
Felgum, affelgum og neglum
TÖLVUSTÝRÐ JAFNVÆGISSTILLING