Morgunblaðið - 17.10.1981, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981
Kosningar í Grikklandi á morgun
Órádin gáta
hvernig stjórn
tæki við ef
Papandreu sigrar
- en fæstir trúa að hann fari úr NATO
„Gagnrýni stjóarnarandstöðunnar um að stjórnin hafi sýnt
dugleysi í störfum sínum á auðvitað ekki við nein rök að styðj-
ast. við höfum á sl. sjö árum byggt fleiri skóla en voru reistir í
Grikklandi á tímabilinu 1830—1974. Það sýnir að við höfum
sannarlega verið að. Við erum komnir lengra í tryggingamálum
en margar Evrópuþjóðir og allt hefur það gerzt á stjórnarárum
Nýdemókrataflokksins. Tryggingarlöggjöf okkar er mjög full-
komin og er þó í stöðugri endurskoðun. Segja má að gagnrýni
andstæðinga okkar byggist aðallega á slagorðum, en ekki
rökstuddri gagnrýni. Kjósendur munu sjá í gegnum það og veit
Nýdemókrataflokknum brautargengi í kosningum,“ sagði
Georges Rallis forsætisráðherra Grikkja í stuttu samtali í Aþenu
á dögunum.
En þó svo að Rallis beri sig vel,
virðist þó allt hníga í þá átt, að PAS-
OK, flokkur Andreas Papandreu beri
sigur af ólmi. Meira að segja stuð-
ningsmenn Nýdemókrataflokks gera
sér grein fyrir að kjósendur hafa
tekið vel kosningaskrá flokksins og
aðalslagorð Papandreus „breyting"
hefur fallið í góðan jarðveg. Síðustu
skoðanakannanir benda til að Pasok
fái um 40% en Nýdemókratar 34%
og þar með yrði fylgistap Nýdemó-
krata um 8 prósent og fylgisaukning
Pasoks allt að 15%.
Eitt helzta málið sem erlendir
stjórnmálafréttaritarar hafa fylgzt
með er varðandi NATO og EBE, en
Papandreu lýsti því glaðbeittur yfir,
að hann hyggðist láta Grikki fara úr
þessum bandalögum. Eftir því sem
nær hefur dregið kosnir^um hefur
Papandreu orðið varfærnari í yfir-
lýsingum sínum og fæstir trúa því í
neinni alvöru, að hann muni láta
Grikkj fara úr NATO. Þó ekki væri
nema vegna þess að þá er sennilegt
að bandalagið myndi efla stöðu sina
hjá erkióvininum Tyrkjum og það
gezt Grikkjum ekki að, og telja að
með því gæti svo farið að Tyrkir
sæju heldur enga ástæðu til að flýta
sér að leysa Kýpurdeiluna, sem er og
verður æ meiri harmleikur eftir því
sem lengra líður.
Stjórn Rallis hefur þótt fjarska
litlaus og Rallis sjálfan skortir alla
þá persónulegu skírskotun, sem
Andreas Papandreu hefur. Pap-
andreu heillar fólk upp úr skónum
með ræðumennsku sinni og fram-
komu, Rallis er yfirvegaður og vand-
aður stjórnmálamaður, ötull og
greindur, en einhvern veginn hefur
honum ekki tekizt að vinna hugi
landa sinna á sama hátt og Karam-
anlis forveri hans í embætti. Grikkir
sögðu margir við mig að það hefðu
verið mikil mistök, að Rallis varð
eftirmaður Karamanlis. „Mitsotakis
utanríkisráðherra hefði átt að taka
við,“ sagði Grikki einn af tveimur
sem ég var að spjalla við um þetta,
en af því að tveir Grikkir geta aldrei
verið sammála um nokkurn skapað-
an hlut flýtti hinn sér að segja að
þetta væri mesta vitleysa, Grikk-
landi hefði verið betur borgið ef Ev-
angelos Averoff hefði orðið forsæt-
isráðherra.
Það er forvitnilegt að velta fyrir
sér framgangi Pasoks. í fyrstu kosn-
ingunum í Grikklandi eftir að her-
foringjastjórnin hrökklaðist frá
völdum fékk Pasok um 12 prósent,
tvöfaldaði síðan fylgi sitt næst og nú
bendir allt til að flokkurinn komist í
valdastöðu. í upphafi starfs síns var
Pasok mun lengra til vinstri en nú,
Papandreu leggur áherzlu á að Pas-
ok sé sósíaldemókratiskur flokkur og
til að leggja áherzlu á þetta hafa
margir forvígismenn sósíaldemó-
krataflokka í Evrópu komið til
Grikklands i kosningabaráttunni til
að sýna samstöðu með Pasok, þ.á m.
fulltrúar frá Spáni og Erakklandi.
Allt hefur þetta orðið vatn á myllu
Papandreus. Gagnrýni Papandreus á
stjórnina hefur verið býsna mark-
viss og Papandreu hefur með árun-
um orðið langtum ábyrgari í mál-
flutningi en á fyrstu árunum. Stefna
hans gagnvart Bandaríkjunum hefur
meira að segja mildast en illska
hans í þeirra garð er býsna kostuleg,
þegar það er haft í huga að kona
hans er bandarísk og börn hans fjög-
ur eru bandarískir ríkisborgarar og
sjálfur var hann bandarískur ríkis-
borgari þar til fyrir fáeinum árum.
Elzti sonur Papandreus, Georges,
sem býður sig nú fram í Patras er
því bandarískur ríkisborgari og það
mælist svona miðlungi vel fyrir. En
Grikkir virðast tilbúnir til að fyrir-
gefa Papandreu margt, einkum og
sér í lagi ef hann framkvæmdi nú
eitthvað af þeim umbótum, sem
hann hefur heitið í kosningabarátt-
unni.
Papandreu
Rallis
Mér fannst mikil örvænting ríkja
meðal stuðningsmanna Nýdemó-
krata og áróður þeirra var orðinn
dálítiö krampakenndur og yfirgengi-
legur. Það var fjarska erfitt að fá þá
til aö ræða um baráttumál flokksins,
þeir fóru snarlega út í að skýra og
reyna að sannfæra viðkomandi um
að Papandreu væri trúður og svikari.
Ég hafði ekki tök á því að hitta
Papandreu þar sem hann var úti á
landi þegar ég var stödd í Aþenu, en
eftir mikil hlaup út og suður, simtöl
og hvaðeina tókst mér að fá áheyrn
hjá Rallis og ég spurði hann þá m.a.
hvort hann hefði ekki dálitlar
áhyggjur af því að Pasok virtist vera
að vinna á upp á síðkastið. Og hvort
hann hefði einhverjar skýringar á
því.
Hann sagði: „Spurningin byggist
efalaust á ákveðnum „gallup-skoð-
anakönnunum" sem hafa birzt í
blöðum stjórnarandstöðunnar. I
fyrsta lagi er því til að svara að við
höfum enga trú á skoðanakönnun-
um. Þær hafa löngum verið tvíbent
tæki. Úrslit forsetakosninganna í
Bandaríkjunum sanna það. En engu
að síður vil ég nú taka fram að við
höfum undir höndum niðurstöður
skoðanakannana sem sýna að Ný-
demókrataflokknum hefur vaxið
mjög ásmegin í kosningabaráttunni.
En eins og ég sagði höfum við ekki
trú á kosningaspám af þessu tagi og
höfum því ekki áhuga á að vekja
neina sérstaka athygli á þeim.
Hvarvetna sem frambjóðendur
flokksins hafa haldið fundi hefur
verið mikið fjölmenni og málflutn-
ingur okkar hefur greinilega
hljómgrunn meðal fólks. Þetta er
líka athyglisvert þegar það er haft í
hgua að fylgismenn flokka eins og
Nýdemókrataflokksins hafa ekki
hneigzt til að flykkjast á framboðs-
fundi, andstætt við það sem fylgj-
endur marxiskra flokka gera. Ég
vona að þú gerir þér grein fyrir því
að andstæðingar okkar eru sem sé
marxistar."
Ég vakti athygli forsætisráðherr-
ans á því að Papandreu hefði harð-
neitað því að Pasok myndi t.d. vinna
með kommúnistaflokknum KKE
sem spáð er töluverðu fylgi. Hann
hristi höfuðið og horfði vinalega á
mig og sagði að það væri nú svo með
málflutning Papandreus að hann
hefði ekki verið sérlega traustvekj-
andi. Meira var ekki um það að
segja.
Ég spurði hann um „breytingu" —
þ.e. kjörorð Pasoks. Og hvort hann
gæti séð fyrir sér hvað gerðist ef
Pasok fengi meirihluta. Hvort for-
Qpið bréf til Kópavogsbúa:
Menntaskóli í Kópavogi
1. GREIN
Eftir Ing<)lf A. Þorkels-
son, skölameistara
Að undanfornu hefur mikið verið
rætt og ritað um skólamál í Kópa-
vogi. Margt er missagt í þessari um-
ræðu, einkum hvað varðar fram-
haldsnám og Menntaskólann í
Kópavogi. Tilgangur minn með
greinum þeim, sem birtast munu í
Morgunhlaðinu á næstunni, er að
leiðrétta missagnir, girða fyrir mis-
skilning, og veita nánari upplýsingar
um framhaldsskólamálið.
Aðdragandi skólaslofnunar
Andrés Kristjánsson, ritstjóri,
mun fyrstur manna hafa hreyft
því í bæjarstjórn Kópavogs, að
menntaskóli yrði settur á stofn í
kaupstaðnum. Sigurjón Ingi Hil-
aríusson, bæjarfulltrúi, tók síðan
tillögu Andrésar upp í bæjar-
stjórn á öndverðu ári 1971. Bæj-
arfulltrúar urðu einhuga um að
hrinda málinu í framkvæmd undir
forystu bæjarstjórans Björgvins
Sæmundssonar. Á engan er hallað
þótt sagt sé, að Andrés Krist-
jánsson, þá fræðslustjóri í Kópa-
vogi, Axel Jónsson, Sigurjón Ingi
Hilaríusson og Sigurður Helgason,
þá bæjarfulltrúar, hafi verið sér-
lega áhugasamir um stofnun
menntaskóla í Kópavogi.
Á ofanverðu ári 1971 var þetta
mál rætt við Magnús Torfa
Ólafsson, menntamálaráðherra,
og hann skipaði þegar nefnd til að
fjalla um stofnun menntaskóla á
þéttbýlissvæðum Reykjaneskjör-
dæmis. I nefndinni sátu Guð-
mundur Arnlaugsson, rektor, Jó-
hann Einvarðsson, bæjarstjóri, og
Jónas Pálsson, skólastjóri. Nefnd-
in skilaði áliti í apríl 1972. Hún
lagði til, að stofnaður yrði fjöl-
brautaskóli fyrir Suðurnes, en
menntaskóli í Kópavogi, og gerði
tiilögu um, að Hafnarfjörður og
Garðarhreppur mótuðu skólakerfi
sitt í átt til sameinaðs fram-
haldsskóla á næstu árum. Nefnd-
armenn hittu naglann á höfuðið,
því tillögur þeirra náðu fram að
ganga í meginatriðum, eins og
kunnugt er. Þeir færðu rök fyrir
tillgöu sinni um stofnun mennta-
skóla í Kópavogi m.a. með þessum
orðum í greinargerð til ráðherra:
„Kópavogur hefur stundum ver-
ið nefndur svefnbær Reykjavíkur.
- Öllu réttara virðist að líta á
hann sem eitt byggðahverfi á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. - Á
þeim forsendum virðist ekki óeðli-
legt, að í þessu hverfi verði stað-
settur menntaskóli, enda geti
nemendur úr nærliggjandi hverf-
um Reykjavíkur og annars staðar
að eins sótt menntaskóla þangað
og Kópavogsnemendur inn til
Reykjavíkur. Kópavogur er orðinn
það gamall og fjölmennur bær, að
hann virðist eiga sanngirniskröfu
á þessari aðstöðu fyrir nemendur
sína, sérstaklega þegar haft er í
huga, að tala íbúa á skólaaldri
hefur alla tíð verið óvenjulega há í
bænum. Á það má benda, að sam-
göngur milli miðhluta Kópavogs
og nærliggjandi hverfa í Reykjvík
eru nú sæmilegar og fara vænt-
anlega batnandi.
Vera má, að fræðsluyfirvöld í
Kópavogi kjósi strax að taka
ákvörðun um stofnun „fjölbrauta-
skóla" (sameinaðs framhalds-
skóla). Fjárveitingar og fyrir-
greiðsla af hálfu ríkisvaldsins við
skólastarf með því sniði mundi
vafalaust ráða miklu um afstöðu
bæjaryfirvalda, ef til slíkrar
ákvörðunar kæmi.
Bent skal á, að ekkert virðist til
fyrirstöðu að þróa menntaskóla
yfir í sameinaðan framhaldsskóla
síðar meir, ef sú skipan þætti þá
betur henta. Mestu varðar í því
efni, að bygging skólahúss sé með
sveigjanlegu sniði og skólastjóri
fús að gera slíka breytingu."
17. maí 1972 fóru svo fram við-
ræður skólayfirvalda í Kópavogi
við menntamálaráðherra um
stofnun og rekstur menntaskóla í
Kópavogi. Þá óskuðu fulltrúar
Kópavogs eftir því, að gert yrði
samkomulag milli ríkisstjórnar-
innar og bæjarstjórnar Kópavogs
um eftirtalin atriði:
1. Ríkisstjórnin ákveði að stofna
menntaskóla í Kópavogi, er taki
til starfa haustið 1972.
2. Ráðinn verði skólameistari nú
þegar, er starfi að undirbúningi
skólahalds og byggingar-
framkvæmda.
3. Skólinn verði skipulagður
þannig, að hann geti þróast í
sameinaðan framhaldsskóla, ef
henta þykir.
4. Húsnæði skólans verði byggt á
árunum 1973—1975 eða svo
hratt sem húsnæðisþörf hans
vex með auknum nemenda-
fjölda.
5. Meðan á byggingarfram-
kvæmdum stendur verði hús-
næðisþörf skólans leyst með
leigu eða kaupum á húsnæði í
Kópavogi.
6. Bæjarstjórn Kópavogs leggur
skólanum til lóð á miðbæjar-
svæði kaupstaðrins eftir þörf-
um skólans, og skv. nánara
samkomulagi.
7. Bæjarstjórn Kópavogs mun,
eftir því sem í hennar valdi
stendur, greiða fyrir því, að
bráðabirgðahúsnæði fáist til
skólahaldsins og stuðla á allan
hátt að góðum framgangi máls
þessa.
Ákvörðun tekin
Menntamálaráðherra svaraði
tilmælum skólayfirvalda með eft-
irfarandi bréfi dags. 23. ágúst
1972:
„Með vísun til viðræðna við yð-
ur, herra fræðslustjóri, er hér með
leitað samþykkis fræðsluráðs
Kópavogs til að látin verði í té í
Víghólaskóla í Kópavogi aðstaða
fyrir kennslu í námsefni 1. bekkj-
ar menntaskóla fyrir a.m.k. tvær
bekkjardeildar skólaárið
1972—’73. Líklegt er, að farið yrði
fram á hliðstæða aðstöðu skólaár-
ið 1973—’74, þ.e. fyrir 2. árs
kennslu sömu nemenda og auk
þess fyrir 1. árs kennslu nýrra
nemenda.
Tekið skal fram, að tekin hefur
verið ákvörðun um að stofna til
varanlegrar menntaskólakennslu í
Kópavogi, og þá gert ráð fyrir, að
hún verði í framtíðinni þáttur í
fjölbrautaskóla þar. Fyrirhugað
er, að skólastjóri fyrir hina nýju
skólastofnun verði skipaður á
fyrra hluta ársins 1973. Um skóla-
haldið í vetur er hins vegar gert
ráð fyrir, að það yrði undir stjórn
skólastjóra Víghólaskóla, en jafn-
framt yrði einhverjum mennta-
skólanna í Reykjavík falið að vera
umsjónaraðili með kennslunni,
svo sem venja er um hliðstæðar
menntadeildir við gagnfræða-
skóla, til að tryggja samræmi að
því er varðar námsefni og próf.“
Magnús T. Ólafsson
(sign)
Árni Gunnarsson
(s'Rn)
Samkvæmt þessu bréfi er tekin
ákvörðun um stofnun mennta-
skóla í Kópavogi sem þróist í fjöl-
brautaskóla í framtíðinni. Skóla-
yfirvöld í Kópavogi fögnuðu
ákvörðun ráðherra og þökkuðu
honum „ákvarðanir og framgöngu