Morgunblaðið - 17.10.1981, Side 40
5 krónur Í llkrT 5 krónur
eintakið J1 eintakið
LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 1981
Banaslys um
borð í línubát
BANASLYS tarð á fimniludag um
bort) í vélbálnum Kristni, ÍS 226. Jón
IngÍMiarssnn. M-m var einn um borð,
festi-t í spili <>g beið bana.
Um kvðWmatarleytið í fyrrakvöld
var farið að spyrjast fyrir um Krist-
in, sem er II tonna vélbátur. Bátur-
inn hafði ekki komið að landi á til-
settum tima og svaraði ekki kalli.
Skipverjar á báti, sem sigldi fram-
hjá mb. Kristni um fjögurleytið í
fyrradag, gátu ekki greint annað, en
allt væri í lagi um borð.
Leit hófst laust fyrir kl. ellefu.
Vélbáturinn lngimar Magnússon frá
Suðureyri hélt út til leitar skömmu
fyrir ellefu og varðskip lagði af stað
til leitar. Skómmu síðar fóru Sigur-
von og Ólafur Friðbertsson af stað
til leitar.
Skömmu upp úr miðnætti fannst
báturinn um 11 mílur norðvestur af
Súgandafirði. I ljós kom, að Jón
hafði festst í spili og var látinn.
Komið var með lík hans inn til Suð-
ureyrar skommu eftir kl. 2.
Jón heitinn Ingimarsson var bú-
settur á Suðureyri og lætur eftir sig
konu og dóttur.
Fjárlagafrumvarpið 1982:
Laun til ríkisstjórn-
ar hækka um 115,9%
Þar aí fá 4 aðstoðar-
ráðherrar 917.200 kr.
Á slysNtad í gærkvöldi.
Ljóamynd Mbl. Júlíus.
LAUN til ríkisstjórnar
hækka samkvæmt fjárlaga-
frumvarpi 1982 um 115,9%
eða um 2.616.500 kr. og
verða kr. 4.873.500. Nú er í
fyrsta sinn áætlað fyrir laun-
um fjögurra aðstoðarmanna
ráðherra á þessum fjárlaga-
lið og nema þau 917.200 kr.
Hækkun á launum til ráð-
herra er því áætluð 75,3% á
árinu 1982, eða samtals
3.956.300 kr.
Heildarframlag til ríkis-
stjórnar hækkar um
2.726.500 kr. og verður
5.258.300 kr. Launaliðurinn
er eins og segir hér að
framan, en laun aðstoðar-
ráðherranna fjögurra hafa
hingað til verið færð undir
aðalskrifstofu viðkomandi
ráðuneyta. Önnur rekstr-
argjöld ríkisstjórnar verða
384.800 kr., og er það hækk-
un um 110.000 kr., sem er í
samræmi við almennar
verðlagsbreytingar, segir í
skýringum í frumvarpinu.
Þess má geta að launalið-
ur frumvarpsins nemur í
heild 2.172 millj. kr. og er
það 39.0% hækkun frá fjár-
lagatölu 1981.
Fimm í slysadeild eftir
árekstur þriggja bfla
FIMM mann.s voru fluttir í slysa-
deild Borgarspítalans í gærkvöldi
eftir mjög hardan árekstur þriggja
bifreiða i gatnamótum Vestur
landsvegar og Höfðabakka. Meiðsl
fólksins voru ekki fullkönnuð þegar
Mbl. hafði síðast fréttir af fólkinu í
gærkvöldi.
Tveimur bifreiðum var ekið eft-
ir Vesturlandsvegi og þeirri þriðju
var ekið niður Höfðabakka úr
Árbæjarhverfi. Umferðarljós eru
á gatnamótunum en ekki var full-
ljóst í gærkvöldi hvernig stóð á
ljósum þegar áreksturinn varð.
Lodnuverðsákvördun:
Útflutningsgjöld felld niður
- lán til að halda uppi verði?
„Ekki bjartsýnn,“ segir Steingrímur Hermannsson
EKKI er enn vitað til þess,
að fundist hafi nein leið til að
koma í veg fyrir lækkun hrá-
efnisverðs á ioðnu og stjórn-
völd standa nú frammi fyrir
því að loðnuflotinn hætti
veiðum 21. október nk. hafi
nýtt loðnuverð þá ekki verið
samþykkt af fulltrúum út-
gerðarmanna og sjómanna.
Gjaldþrot vofir yfir sumum
kartöflubændum í Eyjafirði
„GJALDÞROT vofir nú beint og
óbeint yfir nokkrum bændum og
fyrirsjáanlegt er að þeir geta ekki
tekið á sig áfall sem þetta, en nú eru
rúmar 500 lestir af kartöflum undir
snjó og verðmæti þeirra nálægt 3
milljónum. Aðeins hafa náðst 1.000
lestir upp og er það á mörkunum að
menn eigi fyrir úLsæði á næsta ári.
Hér var sumarið aðeins 6 vikur,
hvorki var vor né haust og veturinn
kom með snjókomu og frosti 1. þessa
mánaðar ,“ segir Sveinberg Laxdal,
kartöflubóndi á Svalbarðsströnd í
viðtali við Morgunblaðið í dag.
Morgunblaðið ræddi nú í vikunni
við nokkra bændur í Eyjafirði um
afleiðingar hinnar snöggu og
óvæntu vetrarkomu þar nyrðra og
voru þeir á einu máli um að bænd-
ur hefðu orðið fyrir verulegu fjár-
hagslegu tjóni og beinu tekjutapi,
sem litlar líkur væru á að yrði bætt
vegna slæmrar fjárhagsstöðu
bjargráðasjóðs. Nokkuð hefur verið
um fjárskaða vegna veðurs og slát-
urfjárflutningar hafa gengið mjög
erfiðlega. Hey eru á stöku stað
undir snjó og fé hefur þurft að taka
á gjöf óvenju snemma. Þó telja
sumir bændur að hvorki vetrar-
koman né slæmt sumar valdi
mestu um erfiða afkomu bænda,
heldur sé það stjórnun landbúnað-
armála, sem stærstan þáttinn eigi.
Þrátt fyrir að bændur hafi dregið
úr framleiðslu sinni samkvæmt bú-
markinu þurfi þeir enn að greiða
fóðurbætisskatt og fái ekki grunn-
verð fyrir mjólkurframleiðslu sína
og nái því ekki launum viðmiðunar-
stétta sinna. Þá sé vaxtastefna rík-
isstjórnarinnar á þann veg, að hún
auki verulega á vandann og geti
menn ekki staðið í skilum, hagnist
bankarnir stórlega á vandræðum
þcirra í formi dráttarvaxta. Nýju
skattalögin séu með þeim hætti, að
aukin skuldasöfnun bænda sé talin
verðbólguhagnaður og því séu
skuldir þeirra metnar til tekna og
skattlagðar.
Sjá nánar viðtöl við eyfirska bænd-
ur á blaðsíðu 22 og 23 í blaðinu í dag.
„Ég hef oft verið sagður
bjartsýnn, en ég er það ekki
núna,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson sjávarútvegsráðherra
þegar Morgunblaðið spurði hann
hvaða ráðstafanir væru í bígerð
til að koma í veg fyrir lækkun
loðnuverðs. Sjávarútvegsráð-
herra sagði að verið væri að ræða
loðnumálin, en því væri ekki að
neita að dæmið liti illa út, og
síldarmálið hefði verið lítilfjör-
legt miðað við vandann við verð-
lagningu loðnu. Saltsíldarafurðir
hefðu hækkað um 28—30% milli
ára í krónum, en loðnuafurðir
ekki nema um 10—15% og nú
væri komin fram verðlækkun á
mörkuðunum frá því að síðasta
verðákvörðun var gerð.
Steingrímur vildi ekki segja
hvaða leiðir kæmu helst til
greina við að leysa loðnuverðs-
vandann. Hins vegar hefur
Morgunblaðið efir áreiðanlegum
heimildum að stjórnvöld hafi
rætt um að fella niður útflutn-
ingsgjöld á loðnuafurðum, en þau
eru nú 5,5% og ennfremur að
tekið verði lán til tveggja ára,
sennilega í nafni Verðjöfnun-
arsjóðs, til að halda uppi verðinu.
Þrátt fyrir þessar fyrirhuguðu
aðgerðir mun niðurfelling út-
flutningsgjaldsins og lántakan
ekki standa undir nema um það
bil % af því 35% tapi sem loðnu-
verksmiðjurnar bera nú ef loðnu-
verð verður óbreytt áfram, en
sem kunnugt er tapa verksmiðj-
urnar nú yfir 260 krónum á
hverju hráefnistonni sem tekið
er á móti.
Fresta þarf lagningu slitlags vegna snjóa
llúsivík, 16. október.
FJÓRDI úrkomulausi dagurinn fri
því í ágúst rann upp í dag og sólin
skein f heiði á meiri snjó en menn
muna hér á þestmm árstíma. Tog-
brautirnar voru komnar í gagnið og
börnin fjölmenntu á skíði. Verid er
að hreinsa alla vegi í nágrenni
Húsavíkur og samgöngur eru að
komast í eðlilegt horf en þegar verst
var, fengu Húsvíkingar fimm daga
gömul dagblöð, sem venjulega
koma hér daglega.
Varanlegt slitlag átti að leggja í
haust á þjóðveginn frá Tjörn í Að-
aldal að Laxárbrú og var öllum
undirbúningi lokið dag þann, sem
snjókoman hófst, svo að nú er
ekki útlit fyrir, að slitlagið verði
sett á fyrr en að vori. Svo mun
vera um fleiri framkvæmdir, sem
hér áttu að vinnast í haust.
Fréttaritari
Helgarvinnan
skattfrjáls?
MEÐAL tillagna, sem lagðar
hafa verið fyrir 10. þing Verka-
mannasambands íslands, sem
hófst í gær, er tillaga frá Jó-
hanni G. Möller um að vinna í
þágu útflutningsframleiðslunn-
ar um helgar verði skattfrjáls.
Tillagan fer hér á eftir:
„Öll vinna, sem unnin er í
þágu Útflutningsframleiðsl-
unnar við hvers konar fisk-
verkun, hverskonar síldar-
vinnu, móttöku og bræðslu á
loðnu frá kl. 24 á föstudags-
kvöldi til kl. 24 á sunnudags-
kvöldi, skal vera undanþegin
skatti (skattfrjáls).“