Morgunblaðið - 18.12.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981
3
Mikil gagnrýni á lánsfjárfrumvarp:
Skuldum og vandamál-
um safnað til framtíðar
greina eru og vitnisburður um
þá vá, sem fyrir dyrum er, og
þær kórvillur, sem efnahags-
málastefna ríkisstjórnarinnar,
eða stefnuleysi, einkennist af.
I nefndaráliti stjórnarandstöðu
segir: „Með afgreiðslu frumvarps-
ins er því hvorki verið að marka
stefnu, né taka ákvarðanir um,
hvernig staðið skuli að málum,
heldur einungis verið að reyna að
fullnægja misskildum sjálfsmetn-
aði.“ — „Frumvarp til iánsfjár-
laga og sú áætlun, sem fylgir, ein-
kennast af óraunsæi í innlendri
fjáröflun, mikilli erlendri skulda-
söfnun og mörgum óleystum
vandamálum, sem eru einfaldlega
skilin eftir vitandi vits af hálfu
stjórnarsinna."
Fjárskortur atvinnuvegasjóda — samdrátt-
ur fjármunamyndunar í atvinnulífinu
TALSMENN stjórnarandstöðu gagnrýndu harðlega stefnuleysi og frestun
vandamála, sem þeir töldu koma fram í stjórnarfrumvarpi að lánsfjárlögum
1982 — á fundi efri deildar Alþingis sl. fimmtudag. Þeir sögðu frumvarpið
einkennast af óraunsæi um innlenda fjáröflun, meiri hækkun erlendra
skulda en dæmi eru um áður, skammsýnum bráðabirgðalausnum, frestun á
lausn efnahagsvandamála og skerðingu atvinnuvegasjóða og sjóða húsnæð-
iskerfisins. Arið 1976 nam nettólánsfjáröflun 55% fjárfestingar í orkuverum,
hitaveitum og stóriðju, það er í hinum arðsamari framkvæmdaþáttum.
Þetta hlutfall fór upp í 97,5%
1980 — og þótti varhugavert.
Samkvæmt lánsfjáráætlun 1982
verða nettólán 152% af sömu
framkvæmdum, sem þýðir ein-
faldlega, að tekin eru lán til að
standa undir eyðslu, sem velt er
yfir á framtíðina.
Helztu gagnrýnisatriði, sem
fram komu hjá Lárusi Jónssyni
(S), Eyjólfi Konráði Jónssyni (S)
og Kjartani Jóhannssyni (A) vóru
efnislega þessi:
• 1) Grundvallarforsenda láns-
fjárfrumvarpsins er að meðal-
verðbreytingar milli áranna
1981 og 1982 verði aðeins 33%.
Síðan frumvarpið var lagt fram
hefur orðið 4,25% launahækkun
umfram það sem reiknað var
með. Seðlabanki íslands segir
verðbólgustig nú 50%. Þjóð-
hagsstofnun spáir 55% verð-
bólgu á næsta ári. Verði verð-
bólga umfram forsendur frum-
varpsins þýðir það óhjákvæmi-
lega niðurskurð framkvæmda
eða meiri lántökur, eða sam-
bland af þessu tvennu.
• 2) Frumvarpið sýnir óraunsæi
um innlenda fjáröflun. Gert er
ráð fyrir að selja spariskírteini
fyrir 150 m.kr., en sala þeirra í
ár nam 43 m.kr. Gert er ráð
fyrir að afla 460 m.kr. úr lífeyr-
issjóðum til Framkvæmda-
sjóðs, húsnæðismálasjóða,
Stofnlánadeildar landbúnaðar
og ríkissjóðs, en í ár var þessi
fjáröflun (1/11 sl.) 227 m.kr.
• 3) Þrátt fyrir það að orkufram-
kvæmdir dragast saman milli
40 og 50% 1982, er gert ráð
fyrir að auka erlenda fjáröflun
um 176,7 m.kr., sem enn skal
hækka, samkvæmt nýjum
breytingartillögum stjórnar-
liðsins. N
• 4) Framkvæmdasjóð skorti í ár
helming þess fjármagns, sem
lánsfjáráætlun 1981 gerði ráð
fyrir (63 af 123 m.kr.). Algjör
óvissa er um fjármögnun hans
1982. Þetta hefur í för með sér
fyrirsjáanlegan fjárskort at-
vinnuvegasjóða og áframhald-
andi samdrátt í fjármuna-
myndun í atvinnulífinu.
• 5) Sjóðum húsnæðiskerfisins
er ætlað að fá frá lífeyrissjóða-
kerfinu 297 m.kr. 1982, en þeir
höfðu þaðan aðeins 110 m.kr. í
ár, eða 1. nóvember sl. Skyldu-
sparnaður er mjög ofáætlaður
— miðað við reynslu í ár.
Lausaskuld Byggingarsjóðs
ríkisins við Seðlabanka verður
auk þessa um 40 m.kr. um nk.
áramót, en þetta er í fyrsta sinn
í sögu húsnæðismálastjórnar,
sem kemur til slíks yfirdráttar,
er dregst frá ráðstöfunarfé á
næsta ári.
• 6) Ibúðum, byggðum á vegum
einstaklinga, hlýtur að fækka
1982, fjórða árið í röð, vegna
fjárskort Byggingarsjóðsins.
• 7) Fjölmargir lausir endar eru
i áætluninni um ýmsa opinbera
fjármögnun, t.d. vegna Lands-
virkjunar, Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, Járnblendiverk-
smiðju, Skipaútgerðar ríkisins
o.fl.
• 8) Erlendar lántökur til að
fjármagna rekstrartap ríkisfyr-
irtækja og undirstöðuatvinnu-
Senda flugvél eftir
hljómplötum
PIPER Uheyenne-skrúfuþota Arnar
flugs fór í gærkvöldi til Luton í Eng-
landi í frekar óvenjulegum erindum,
en þangad fór vélin til að sækja 800
kíló eða hátt á fjórða þúsund hljóm-
plötur fyrir Steina hf. Vélin er vænt-
anleg til landsins eftir hádegi í dag
og vonazt er til að hægt verði að
dreifa umræddri plötusendingu í
verzlanir um allt land um helgina.
Steinar Berg ísleifsson, fram-
kvæmdastjóri Steina hf., sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, að hér væri um að ræða
plötuna Mini Pop sem byrjað hefði
verið að selja hér á landi í sl. viku.
Kvaðst hann hafa fengið 3000 ein-
tök frá K-tel-fyrirtækinu og talið
nægilegt í bili, en platan hefði
bókstaflega verið rifin út og væri
nú uppseld. Það er mjög óvenjulegt
að plata seljist í þvílíku magni
hérlendis á jafnskömmum tíma, að
sögn Steinars, sérstaklega þegar
þess ber að gæta, að lítið sem ekk-
ert er búið að auglýsa hana.
til Englands
Steinar sagði að það væri mjög
dýrt að senda flugvélina út eftir
piötunni, en hann hefði orðið að
gera það, þar sem hann treysti ekki
fragtflugi Flugleiða nú fyrir jólin,
reynslan af því væri því miður ekki
góð á þessum árstíma. Þá sagði
hann, að ljóst væri að plata Mini
Pop myndi verða söluhæsta plata á
íslandi þetta árið og kvaðst hann
eiga von á 3000 plötum til viðbótar
þeim hátt á fjórða þúsund, sem
Arnarflug kæmi með.
Tekinn með hass
MAÐIIR var handtekinn við komuna
til landsins á Keflavíkurflugvelli á
miðvikudag með 150 grömm af hassi
í fórum sínum. Málið er nú í rann-
sókn, en þess má geta að söluverð-
mæti þessa magns mun nema eitt-
hvað um 30 þúsundum króna, eða
sem nemur 3 milljónum gkróna, en
gramm af hassi mun vera selt á um
200 krónur í Reykjavík.
„MINI KALT BORÐ'
Veizlumatur á vægu veröi — boröiö ekki heita matinn kaldan.
Verð kr. 95.-
Sérstaklega á lækkuðu
verðt' bjóðum við hájfar
braudsneidar, blandaö
áleyy, 6—8 tey. á kr. 21.00.
Sparið ykkur tíma og
fyrirhöfn. Við sendum án
endurgjalds. Okkar vegna
pantið tímanlega.
VIÐ
ÓÐINSTORG
Pantanasímar 25224 —
25640 — 25090 — 20490
Á laugardag 19. desember bjóðum við
okkar vinsæla „Kabarett-bakka“. í forrétt
graf-lax, m/sinnepssósu. Kjötréttir, kjúkl-
ingur, hamborgarhryggur, lambalæri, dess-
ert „Macca-Tryffle“.