Morgunblaðið - 18.12.1981, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981
9
Singer segir frá
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Isaac Bashcvis Singer:
SAUTJÁN SÖGIIR.
IIjörtur Pálsson þýddi.
Setberg 1981.
Sögurnar í Sautján sögum hefur
Hjörtur Pálsson þýtt úr þremur
smásagnasöfnum Isaac Bashevis
Singer: A Friend of Kafka, A
Crown of Feathers og Passions.
Hjörtur Pálsson hefur eins og
kunnugt er kynnt íslenskum les-
endum Singer með fleiri þýðing-
um: Töframanninum frá Lúblín og
I föðurgarði. Þessar þýðingar eru
allar vandvirknislegar.
Eins og víðar hefur Singer eign-
ast tryggan lesendahóp á Islandi.
Singer er höfundur sem gæðir frá-
sagnir sínar óvenjulegum töfrum,
maður sem nýtur þess að segja
sögu eins og hinir gömlu sagna-
meistarar. Yfirleitt fjalla verk
hans um gyðinga og lýsa gyðing-
legum hugmyndaheimi og um-
hverfi.
I Sautján sögum er mikið um
frásagnir af rithöfundum. Gyð-
ingalegt blóð þeirra virðist ekki
vera ólíkt blóði kollega þeirra
annars staðar: „Við borðuðum öll
kvöldmat saman og töluðum ill-
kvittnislega um aðra rithöfunda
eins og gengur", segir í sögunni
Sonur hennar.
Tímaritið er fremur dapurleg
frásögn af kynnum sögumanns af
manni sem dreymdi um að gefa út
tímarit. Fyrstu tilraun gerir hann
í Varsjá, hina síðustu í París.
Þetta var ógæfa hans. Hann hafði
EINBÝLISHÚS
í SELÁSI
Vorum að fá til sölu fokhelt 235
fm einbylishús viö Heiöarás m.
30 fm bílskúr. Húsiö er til afh.
nú þegar. Teikn. og upplýs. á
skrifstofunni.
RAÐHÚS VIÐ BOLLA-
GARÐA - í SKIPTUM
250 fm raöhús nánast u.trév. og
máln. en þó íbúðarhæft, fæst í
skiptum fyrir 3ja—5 herb. íbúö.
Nánari uppl. á skrifstofunni.
RISÍBÚÐ VIÐ
HOFSVALLAGÖTU
3ja herb. 80 fm snotur risíbúö.
Laus strax. Útb. 360 þús.
VIÐ HÓLMGARÐ
3ja herb. 75 fm nýleg, vönduö
íbúö á 1. hæö. Útb. 460 þús.
VIÐ VESTURBERG
2ja herb. 60 fm góö íbúö á 5.
hæð. Þvottaaöstaöa í ibúöinni.
Útb. 320—330 þús.
VIÐ HRAUNBÆ
Snotur litjl samþykt einstakl-
ingsíbúð Útb. 240 þús.
130—150 fm sérhæð
óskast í Hlíðum eða
Vesturbæ.
3ja—4ra herb. íbúö
óskast við Espigerði
eöa nágrenni. Góö útb. í
boði.
EiGnnmiÐLunin
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3
SÍMI 27711
Sölustjóri Sverrir Kristinsson
Unnsteinn Beck hrl. Sími 12320
eignast búð í París ásamt konu
sinni. Allt gekk vel. En ástríðan að
gefa út tímarit lét hann ekki í
friði. Hann seldi búðina án vitund-
ar konu sinnar, leigði sér skrif-
stofu og réði starfsfólk. En allt
þetta leiddi til glötunar. Konan
rak hann á dyr. Einn daginn
fannst hann látinn á götunni.
Sögumaður, orðinn frægur rithöf-
undur, er viðstaddur jarðarförina
í lok sögunnar. Hópur jiddískra
rithöfunda bíður eftir honum því
að þeir hafa hugsað sér að fá sér í
glas á Coupole:
„Gamall vinur minn, Feivel
Mecheles, háðfugl frá Varsjá, stóð
og hallaði sér upp að tré. Hár hans
sem forðum hafði verið ralitt var
orðið gulhvítt. Einhver hafði frætt
mig á því að leikari sem lék í
harmleikjum hefði stungið af með
konuna hans þegar bæði voru á
lsaac Bashevis Singer
flótta undan nasistum. Hann
hrukkaði ennið og hnyklaði brún-
ir. Ég vissi að hann mundi ekki
hreyfa sig fyrr en hann hefði sagt
eitthvað sniðugt. Ég sagði: „Þú
þvingar ekki fram fyndnina, Fei-
vel. Við skulum koma“.
Hann hristi höfuðið svo að sá í
nýjar gervitennur og sagði: „Satt
að segja tekur því varla að fara.
Við verðum komnir aftur undir
eins hvort sem er“.“
Sögur Singers eru eiginlega
frásagnir margar hverjar. Þær
eru fullar af skemmtilegum hlut-
um, umfram allt lifandi og ákaf-
lega læsilegar. Skjalataskan til
dæmis er grátbrosleg lýsing á rit-
höfundi og fyrirlesara sem kemur
í ókunna borg til að flytja fyrir-
lestur, ríkur og velmetinn, en
lendir í þeirri aðstöðu fyrir margs
konar misskilning að standa uppi
blankur og bjargarlaus á ömur-
legu hóteli. I þessari sögu eru
kvennamál fyrirferðarmikil en
margar sögur Singers eru helgað-
ar konum og ástum.
Vinur Kafka fjallar um fyrrum
leikara í Jiddíska leikhúsinu í
Varsjá, spjátrung sem má muna
sinn fífil fegri. Sögumaður leyfir
honum að setjast hjá sér á veit-
ingahúsi og gefur honum að borða.
í staðinn fær hann sögu sem hann
getur notað. Þessi saga er ekki um
fræga menn eins og Kafka sem
leikarinn hefur þekkt heldur um
undarlegar tilviljanir úr hans eig-
in lífi, einkennilega ástarsögu.
Það er hátíð fyrir lesandann að
lesa Sautján sögur Singers. Eng-
inn skyldi halda að Singer væri
erfiður höfundur og tormeltur.
Það er mikill gáski í prósa hans,
sterk tilfinning fyrir lífinu og ekki
síst girndinni.
Halldór Laxness hefur í nýlegu
viðtali (BLM 5/81) lagt áherslu á
mikilvægi epískra höfunda. Einn
þeirra er að hans mati Singer.
Meðal þess sem Halldór reiknar
Singer til tekna er hæfileiki hans
að gera smáatriði stór. Slíkur
hæfileiki er einkenni allra mikilla
epískra höfunda.
Það er dálítið sérstætt að rit-
höfundur sem skrifar á jiddísku í
New York, í'Tauninni fyrir þröng-
an lesendahóp, höfði til svo
margra. Ég tel að Singer eigi vel
við íslenska lesendur. Þeir ættu að
skilja hann.
r P -VI !• r ('■••j
Þú færð hljómplötumar
hjá Heimilistækjum á
sama verði og í fyrra!
Himinn og jörö
159.-
Hooked on Classics
169.-
Mini Pops
169.-
QLEEN
Alfreö Clausen
2 plötur 189.-
Best of Blondie
159.-
- f
f/k :
k • ' -
Gratest Hits — Queen
159.-
Það er ótrúlegt en dagsatt að plöturnar hjá okkur hafa
ekkert hækkað síðan í fyrra. Þess vegna færðu varla
hagstæðari jólagjöf.
Við sendum í póstkröfu hvert á land sem er.
Síminn er 20455.
G\e'
ðWe<^
\ó\
heimilistæki hf
Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.