Morgunblaðið - 18.12.1981, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981
15
Mótmæli í Kaupmannahöfn: Sovézki fáninn brenndur við sendiráð Sovétríkjanna.
Frjáls verkalýðsfélög gegn
aðstoð við pólsku stjórnina
Brussel, 17. dcsember. AP.
ALÞJÓÐASAMBAND frjálsra verkalýðsfélaga (ICFTU) hefur hvatt til þess
ad endir verði bundinn á aðstoð ríkisstjórna við Pólland.
Sambandid skorar á 130 adildarfélög sín í 92 löndum að leggja fast að
ríkisstjórnum sínum að binda endi á alla matvælaaðstoð við Pólland nema
því aðeins að aðilar óháðir pólsku ríkisstjórninni, eins og kirkjan eða hjálp-
arstofnanir, standi að dreifingunni.
„Við ættum ekki að láta pólsk
yfirvöld fá heiðurinn af því að
leysa efnahagsvandann meðan
menn úr verkalýðsfélögum eru í
fangelsi," sagði Otto Kersten, að-
alframkvæmdastjóri ICFTU.
Hann sagði að sambandið vildi að
allri fjárhagslegri og efnahags-
legri aðstoð við Pólland yrði hætt.
Talsmaður Samstöðu hafði áður
tilkynnt ICFTU að matvæli, sem
ríkisstjórnir Bandaríkjanna og
Evrópuríkja hefðu sent á síðustu
mánuðum, „hefðu ekki borizt þjóð-
inni heldur hafnað í herbúðum".
Hann sagði að afstaða vestrænna
ríkisstjórna til þessa hefði ein-
kennzt af hálfkáki.
Nokkrir aðrir punktar tengdir
ástandinu í Póllandi:
Mótmæli allvíða í
Bandaríkjunum
New York, 17. des. AP.
ÞÚSUNDIR Bandaríkjamanna af pólskum ættum tóku þátt í útifundum í
stórborgum víðs vegar í Bandaríkjunum í gærkvöldi og létu í Ijós gífurlega
reiði í garð Rússa, efndu til mótmæla við pólskar ræðismannsskrifstofur og
sungu frelsisbæn til að lýsa yfir stuðningi við Samstöðu.
Mótmælendur veifuðu rauðum og hvítum borðum og báru spjöld og hatta
sem á stóð að þeir stæðu með Samstöðu. Á útifundunum var talað um
mótþróa og sigur þrátt fyrir setningu neyðarástandslaga í Póllandi.
Stokkhólmi: Samstöðu-nefndir í
Vestur-Evrópu munu sameinast í
evrópska Samstöðunefnd með
bækistöð í Stokkhólmi, að sögn
talsmanns frjálsu verkalýðsfélag-
anna í Póllandi, Stefan Trzinskis.
Félagar úr Samstöðu munu skipa
stjórn nýju samtakanna í Genf í
næstu viku. „Meginverkefni Evr-
ópu-Samstöðu verður að hjálpa
pólsku þjóðinni fyrir milligöngu
ýmissa góðgerðastofnana og kirkj-
unnar,“ sagði hann.
Zúrich: Fulltrúar Samstöðu,
sem eru strandaglópar á Vestur-
löndum, halda fund á ótilgreind-
um stað í Zurich á morgun, föstu-
dag. Fulltrúarnir hafa verið í
Frakklandi, Englandi, Vestur-
Þýzkalandi, Svíþjóð, Sviss og fleiri
löndum. Á fundinum á að skipu-
leggja stuðning við Samstöðu í
Póllandi. Þeir eru sammála um að
biðja vestrænar góðgerðastofnan-
ir að halda áfram hjálp við Pól-
verja.
Berlín: Pólverjum, sem biðja um
hæli í Vestur-Berlín, hefur greini-
lega fjölgað síðan herlög voru sett
í landinu. í gær báðu 83 um hæli
og 20 á mánudaginn. Um 312 báðu
um hæli fyrri helming desember,
150 í nóvember. Alls munu 20.000
pólskir borgarar búsettir í Vest-
ur-Berlín.
Stokkhólmi: Ola Ullsten utan-
ríkisráðherra tók á móti full-
trúum samtaka pólskra flótta-
manna ídag. Fulltrúarnir kváðust
ánægðir með viðbrögð sænskra
stjórnvalda við flóttamanna-
strauminum frá Póllandi og yfir-
lýsingar utanríkisráðherrans um
ástandið í Póllandi. „Við vonum
líka að sænska stjórnin beri fram
jafnvel harðari mótmæli ef
ástandið versnar," sagði talsmað-
ur hópsins.
París: Verkalýðssamtök sósíal-
ista (CFDT) og hófsamra vinstri-
sinna hafa hvatt til allsherjar-
verkfalls á mánudag til að mót-
mæla valdatöku hersins í Pól-
landi.
London: Stuðningsmenn Sam-
stöðu ráðgera fjöldamótmæli við
pólska sendiráðið.
Vín: Útlægir félagar tékknesku
mannréttindasamtakanna lýstu
yfir stuðningi við stjórn Samstöðu
í Gdansk.
Washington: Casaroli kardináli,
utanríkisráðherra Páfagarðs,
hvatti til hófsemi í Póllandsmál-
inu eftir fund með Ronald Reagan
forseta í Hvíta húsinu.
París: Pólski sendiherrann í
París aflýsti viðtali, sem franska
útvarpið átti að hafa við hann í
morgun, án skýringa.
Bonn: Samtök leikra kaþólikka
hvöttu í dag til þess að Pólverjar
fengju aftur mannréttindi og
frelsi og handteknir Pólverjar
yrðu látnir lausir.
Jólasprell
hjá Benn
lAindon, 17. des. Al*.
DEILURNAR í brezka Verka-
mannaflokknum hafa harðnað við
þá yfirlýsingu Tony Benn að hann
sé varaleiðtogi flokksins þótt Den-
is Healey væri kosinn í þá stöðu í
september. Hann rökstyður þetta
með því að níu af 11 þingmönnum
Verkamannaflokksins sem hafa
gengið í flokk sósíaldemókrata
(SDP) síðustu þrjá mánuði séu
Healey-sinnar. Healey sagði í dag
að þetta væri „jólasprell" hjá
Benn.
ERLENT
í Chicago bar mikið á spjöldum
sem á stóð „Sovézku stigamenn,
látið Pólland í friði" og sunginn
var á pólsku og ensku frelsisbænin
„Guð, þú sem vorri ættjörð skýldir
áður“. Sovézki fáninn var brennd-
ur.
„Ég las í blaðinu að Lech Wal-
esa væri með tárin í augunum og
hann gréti," sagði Robert Walesa,
frændi hans, í Chicago. „Ég vil
láta Rússa og pólsku ríkisstjórn-
ina vita að þetta voru gleðitár, því
að ég veit að í framtíðinni mun
hann ekki brotna niður. Og ég veit
að þessi gleðitár munu aftur sam-
eina pólsku þjóðina."
Á fundinum í New York sagði
Michael Mann, héraðsleiðtogi
AFL-CIO að þessi fjölmennustu
verkalýðssamtök Bandaríkjanna
„mundu ekki halda að sér höndum
og horfa upp á pólsku þjóðina
brotna á bak aftur og svipta frelsi
Osterling látinn
Slokkhólmi, 14. de.sember. Al*.
SÆNSKI rithöfundurinn Anders
Osterling lést á sunnudag. Hann
var 97 ára gamall. Osterling var
ritari sænsku Nóbelsakademíunn-
ar 1941-1964.
„Starfshópur“
Ronald Reagan forseti undirrit-
aði leynilega tilskipun eftir síð-
ustu atburðina í Póllandi um að
komið yrði á laggirnar „sérstökum
starfshópi" til að fylgjast með at-
burðunum og benda á valkosti að
sögn talsmanns Hvíta hússins.
Starfshópurinn tekur við af
„neyðarástandsnefnd", sem Reag-
an setti á laggirnar fyrr á þessu
ári, og er undir forsæti George
Bush varaforseta. Aðrir í nefnd-
inni eru utanríkisráðherrann,
landvarnaráðherrann, yfirmaður
CIA, forseti herráðsins, ráðunaut-
ur forsetans í þjóðaröryggismál-
um og þrír helztu ráðunautar for-
setans í Hvíta húsinu. Sendiherr-
ann hjá SÞ, Jeanne Kirkpatrick,
sat einnig fund nefndarinnar í
gær.
Fulltrúadeildin samþykkti í
nótt 19,3 milljón dollara fjárveit-
ingu til að koma á útflutningseft-
irliti og það var sent Reagan for-
seta til staðfestingar. Samkvæmt
breytingu, sem öldungadeildin
samþykkti á frumvarpinu, er rík-
isstjórnin hvött til að banna alla
verzlun við Pólland ef Rússar
beita hervaldi.
74% Pólverja vildu
berjast vid Rússa
New York, 17. desember. AP.
SAMKVÆMT skoðanakönnun, sem franskt skoðunarkönnunarfyrirtæki
gerði í Póllandi 3. nóvember og 5. desember, sögðu 74% þeirra sem spurðir
voru að þeir mundu fara út á göturnar og berjast ef Rússar gripu til
hernaðarfhlutunar í landinu.
Af þeim sem spurðir voru sögðu
63% að þeir teldu ekki að Rússar
mundu grípa til íhlutunar, 36%
sögðu að þeir teldu að Vesturveld-
in mundu koma Póllandi til að-
stoðar ef Rússar skærust í leikinn
og 60% sögðust halda að pólski
herinn mundu standa við hlið
þeirra.
Bandaríska sjónvarpsfyrirtækið
ABC, sem skýrði frá skoðanakönn-
uninni, hefur keypt birtingarrétt-
inn af hinu franska fyrirtæki,
„Public SA“, ásamt tímaritinu
„Paris Match". Unnið var við
könnunina í íbúð í Varsjá og
niðurstöðunum smyglað til París-
ar (ekki er sagt hvenær).
Sextíu og þrír af hundraði
þeirra sem spurðir voru kváðust
aldrei mundu sætta sig við harða
og nýja stjórnarstefnu, ekki einu
sinni ef hún bindi endi á vöruskort
og yrði til þess að aftur kæmust á
lög og regla.
Aðrar helztu niðurstöður könn-
unarinnar voru að sögn ABC:
• 3% kváðust mundu kjósa
kommúnistaflokkinn í frjálsum
kosningum. 43% sögðust mundu
kjósa kristilegan demókrataflokk,
20% sósíalistaflokk og 20% frjáls-
lyndan flokk.
• 45% töldu Samstöðu gæta
hagsmuna sinna bezt, 43% róm-
versk-kaþólsku kirkjuna, 7% rík-
isstjórnina og 1% kommúnista-
flokkinn.
• 67% töldu þjóðareiningarstjórn
Samstöðu og kommúnistaflokks-
ins góða lausn.
• 5% töldu Pólland raunverulega
sjálfstætt land. 85% sögðu að
tengsl Póllands og Sovétríkjanna
væru Rússum í hag.
• 2% kenndu Samstöðu um efna-
hagsvanda Pólverja, en 89%
skelltu skuldinni á Rússa, pólsku
ríkisstjórnina og pólska kommún-
istaflokkinn.
LESTUNÍ
SPLENDUM
AMERIKA
PORTSMOUTH
Junior Lotte 4 jan.
Bakkafoss 18. jan.
Junior Lotte 1. feb.
NEWYORK
Junior Lotte 30. des.
Bakkafoss 20. jan.
HALIFAX
Setfoss 15. jan.
Goöafoss 5. feb.
BRETLAND/
MEGINLAND
ROTTERDAM
Grundarfoss 21. des.
Eyrarfoss 4. jan.
Alafoss 11. jan.
Eyrarfoss 18. jan.
ANTWERPEN
Eyrarfoss 22. des
Eyrarfoss 5. jan.
Alafoss 12. jan.
Eyrarfoss 19. jan.
FELIXSTOWE
Grundarfoss 22. des.
Eyrarfoss 6. jan.
Alafoss 13. jan.
Eyrarfoss 20. jan.
HAMBORG
Eyrarfoss 23. des.
Eyrarfoss 7. jan.
Alafoss 14. jan.
Eyrarfoss 21. jan.
WESTON POINT
Urriöafoss 24. des.
Urriöafoss 7. jan.
NORÐURLOND/
EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss 4. jan.
Dettifoss 18. jan.
Dettifoss 1. febr.
KRISTIANSAND
Dettifoss 5. jan.
Dettifoss 19. jan.
Dettifoss 2. teb.
MOSS
Uöafoss 28. des.
Dettifoss 5. jan.
Mánafoss 12. jan.
Dettifoss 19. jan.
GAUTABORG
Uöafoss 29. des.
Dettifoss 6. jan.
Manafoss 13. jan.
Dettifoss 20. jan.
KAUPMANNAHOFN
Uöafoss 30. des
Dettifoss 7. jan.
Mánafoss 14. jan.
Dettifoss 21. jan.
HELSINGBORG
Uöafoss 31. des.
Dettifoss 8 jan.
Manafoss 15. jan.
Dettifoss 22. jan.
HELSINKI
Irafoss 31. des.
Mulafoss 14. jan.
Irafoss 25. jan.
RIGA
Mánafoss 25. des.
Múlafoss 16. jan.
Irafoss 27. jan.
GDYNIA
Múlafoss 21. des.
Mulafoss 18. jan.
Irafoss 28. jan.
THORSHAVN
Mánafoss 7. jan.
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
- framog til baka
frá REYKJAVÍK alla mánudaga
frá iSAFIRDI alla þriöjudaga
frá AKUREYRI alla fimmfudaga
EIMSKIP
SÍMI 27100