Morgunblaðið - 18.12.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981
23
„Fáeinar jólakúlur í gluggum"
- segir Þórður Þorkelsson, nýkominn frá Póllandi
f SÍÐIISTU viku sátu tveir íslend-
ingar íþróttaþing á ráðstefnu Evr
ópuþjóða í Póllandi, þeir Hannes Þ.
Sigurðsson og Þórður Þorkelsson.
Þeir lögðu af stað þaðan á laugar
dagskvöld, en þá hafði orðið nokk-
urra stunda seinkun á vél þeirri sem
þeir flugu með og var jafnvel fyrir
hugað að fella flugið niður.
Mbl. hafði samband við Þorkel
og spurði hann hvernig ástandið
hefði komið honum fyrir sjónir
þessa síðustu daga.
Hann sagði að þeir hefðu gist á
ágætu hóteli sem heitir Viktoría,
þar sem aðbúnaður hefði verið
ágætur. Greinilegt var þó að mik-
ill matarskortur var ríkjandi, í
búðum í nágrenninu hefðu fáar
vörutegundir verið til, lítið um
mjólkurvörur og kjötvöru, en tölu-
vert hefði verið um það að Pól-
verjar hefðu komið í verslun á
hótelinu og verslað þar fyrir doll-
ara.
A kvöidin hefðu götur verið illa
upplýstar sem benti til orku-
skorts. Lítið hefði verið um jóla-
skreytingar, fáeinar jólakúlur í
gluggum gáfu til kynna að jól
væru á næsta leyti, en annars
dimmt yfir öllu, og fólk virtist
þrúgað.
Ekki sagðist Þorkell hafa orðið
var við hermenn á götunum, og
sagði að atburðir síðustu daga
hefðu eflaust komið öllum á óvart.
Augljóst væri að mikil neyð yrði í
landinu á næstunni ef ekki kæmi
til verulegrar aðstoðar í sambandi
við matvöru og annað.
V-Þjóðverjar:
Niðurskurður efnahagsaðstoðar
myndi bitna harðast á almenningi
POLSKI SIERPIE
1980
„HÉR eru auðvitað skiptar skoðanir um aðgerðir pólsku stjórnarinnar,"
sagði Sverrir Srhopka, fréttaritari Mbl. i Hamborg í gær. „Ekki er hægt að
segja að þær hafi beinlínis komið á óvart, því að margir töldu að verkalýðs-
hreyfingin hefði spennt bogann of hátt.
Um tvennt væri eiginlega að
ræða og ekki annað, að Rússarnir
færu inn eða Jaruzelski gripi til
þessa. Menn velta fyrir sér, hvort
Jaruzelski hafi ákveðið þessar að-
gerðir til að forða því að Rússarn-
ir kæmu inn. í blöðum hér hefur
þessu sums staðar verið líkt við
það þegar herstjórn var sett á
laggirnar í Chile þegar Allende
var settur af. Yfirleitt er lögð
áherzla á í fréttaskrifum og grein-
um, að þetta sér innanríkismál
Pólverja og um erlenda íhiutun
muni ekki úr þessu verða að ræða,
og Rússar muni láta Pólverjana í
friði, að minnsta kosti um sinn.
Menn vona að herlögin verði af-
numin áður en mjög langt um líð-
ur og ástand komist í eðlilegt horf.
Þær raddir eru einróma hér að
V-Þjóðverjar haldi áfram efna-
hagsaðstoð við Pólverja, yrði úr
henni dregið, myndi það bitna
harðast á hinum óbreytta borgara.
Pólverjar skulda nú 30 milljarða
dollara í erlendum lánum, þar af
Vestur-Þjóðverjum 5 milljarða
dollara og mat manna er að það
muni taka milli 10—20 ár að leysa
efnahagsvanda landsins.
Sem stendur berast engar frétt-
ir frá Póllandi,“ sagði Sverrir,
„þar er allt lokað. Sjónvarpsmað-
ur frá BBC komst þó út með filmu
sem var sýnd í sjónvarpsstöðvum
hér í gær, þar sást þegar skrið-
drekar og brynvagnar voru að
koma út á göturnar og að bæki-
stöðvum Samstöðu og einnig
mannsöfnuður mikill við húsið.
Um Walesa er ekki vitað. Menn
hallast að því að hann eigi í ein-
hverjum viðræðum við stjórnvöld,
en hvort hann er alveg frjáls mað-
ur eða ekki veit enginn."
Pólland:
1* *
I::
í • •
; . •
I* *
Tadek Jarski heiðursfélagi Samstöðu, sem hefur bæði pólskan og bresk-
an ríkisborgararétt, talaði á fundi sem haldinn var utan við pólska
sendiráðið í London á sunnudag. Um 1000 manns sóttu fundinn.
Fastaráð Atlantshafsbandalags-
ins fylgist með framvindu mála
„FASTARÁÐ Atlantshafsbandalags-
ins kom saman til fundar í gær,
mánudag, og var þar gerð samþykkt,
þar sem ákveðið er að aðildarlöndin
hafi samráð sín í milli og fylgist
glögglega með þróun mála í Pól-
landi,“ sagði Henrik Sv. Björnsson
sendiherra í Briissel í símtali við
Mbl. í gær.
„Niðurstaða fundarins var vita-
skuld sú, að þetta mál væri inn-
anríkismál Pólverja og ekki á sviði
Atlantshafsbandalagsins sem
slíkt, en vitanlega létu menn í ljós
áhyggjur og án efa verður fylgst
gaumgæfilega með framvindu
máli. Það er naumast á valdi ann-
arra en Pólverja sjálfra að leiða
þessi mál til lykta og vonandi ekki
aðrir sem blanda sér í þau.“
Henrik Sv. Björnsson sagði að
mikið væri ritað um aðgerðir
pólsku stjórnarinnar í blöð og víða
gætti kvíða um hvað framtíðin
bæri í skauti sér. Hann sagði að-
spurður, að allmargir Pólverjar
væru í Belgíu, ýmist við nám eða
störf og hefði belgíska stjórnin
ákveðið að framlengja dvalarleyfi
þeirra á meðan þetta óvissuástand
ríkti.
Gjafa- og rítfanga-
deOd
Auk heföbundins úrvals ritfanga
og gjafavöru, færö þú spil, og leik-
föng og aö sjálfsögöu jólakort,
jólapappír og jólaskraut.
Ðflastæði
Geröu jólagjafainnkaupin i einni
ferö i Pennanum, Hallarmúla. Þar
færöu meira aö segja frímerki líka.
Bílastæöi? - Ekkert vandamál.
Teiknivörudeild
Hér eru allar jölagjafirnar fyrir
myndlistamennina og teiknarana,
bæöi læröa og leika.
Föndurvörurnar eru fyrir alla.
HALLARMÚLA 2.SÍMI38402
(BÓKADEILDS.83441)
í einni
Við erum löngu komin
í jólaskap í öllum deildum Pennans.
Húsgagnadeild
Skrifstofuhúsgögn, lampar,
teiknivélar og teikniborö eru líka
vinsælar jólagjafir. Viö bendum á
hina vönduöu Drabert stóla svo
og PE82 stólinn sem hefur
runniö út undanfariö.
Bókadeild
/ bókadeildinni okkar er hún
Sissa deildarstjóri. Eftir áratuga
starf viö bóksölu, veit hún bók-
staflega allt um bækur.
Notfæröu þér þaö viö jólabóka-
valiö, þaö bregst ekki.