Morgunblaðið - 18.12.1981, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981
- handa sælkeranum
Öruggur sigur Vals
VALUR var betri aðilinn í annars
mjög dauTum úrvalsdeildarleik þar
sem liðið mætti KR í gærkvöldi.
Valsmenn sigruðu örugglega,
81—74, eltir að staðan í híldeik
hafði verið 39—33 fyrir Val. Garðar
Jóhannsson stal senunni í leiknum,
er hann fékk að skoða rauða spjald-
ið hjá dómara leiksins, væntanlega
fyrir kjaftbrúk.
Annars er lítið um þennan leik
að segja, enda ekkert pláss eins og
sjá má. En liðin léku bæði eins og
fallnir risar, lið sem voru stórveldi
og mega muna sinn fífil fegri.
Bæöi hafa á að skipa góðum ein-
staklingum innan um, en einnig
leikmönnum sem eru komnir yfir
toppinn. Valsmenn voru alltaf yfir
og hjá þeim átti Ramsey einn af
sínum betri dögum. Landi hans
Stu Johnson bar af hjá KR.
Stig Vals: John Ramsey 27,
Torfi Magnússon 13, Kristján Ág-
ústsson 10, Ríkharður Hrafnkels-
son 9, Valdemar Guðlaugsson 8,
Jón Steingrímsson 6 og Gylfi
Þorkelsson 4 stig.
Stig KR: Stu Johnson 45, Jón
Sig. 12, Ágúst Líndal 6, Birgir
Mikaelsson 5 og Garðar Jóhanns-
son 2 stig.
- gg
Þorbergur skoraði
14 mörk gegn KA
VÍKINGUR vann öruggan sigur á
KA fyrir norðan í gærkvöldi er liðin
léku í 1. deild. Lokatölur leiksins
urðu 27—19 fyrir Víking. Staðan í
hálfleik var 11—10.
Þorbergur Aðalsteinsson átti
mjög góðan leik með Víking í gær
og skoraði alls 14 mörk í leiknum.
Flest með þrumuskotum. Ólafur
Jónsson skoraði 4. Bestur í liði KA
KENWOOD CHEF hrærivélinni fylgja:
Þeytari. hrærari, hnoðari, grænmetis- og
ávaxtakvörn. plasthlíf yflr skál.
KENWOOD CHEF er til í þremur
mismunandi litum.
Ennfremur er áva it fy' r
auKa^iuía svo sem. ~a-
rifjárr, grærme*. s- og a
kartö£ uafhýðar dósah-
Eldhusstörfin verda leikur einn
með KENWOOD CHEF.
var Erlingur Kristjánsson og jafn-
framt markahæsti maður liðsins
með 5 mörk. Vegna þrengsla á
íþróttasíðu verður nánari frásögn
af leiknum að bíða til morgun-
dagsins.
ÍR sigraði
Hauka í gær
ÍR-INGAR sigruðu Hauka í 2. deild
ísland.smótsins í handknattleik í
gærkvöldi 20—19. Leikur liðanna
fór fram í Hafnarfirði. Sigur ÍR var
sanngjarn. Liðið hafði ávallt frum-
kvæðið í leiknum og lék betur en
Haukaliðið. Staðan í hálfleik var
9—6 fyrir ÍR.
Mörk ÍR: Ársæll Hafsteinsson 6,
Sigurður Svavarsson 4, Einar
Björnsson 4, Björn Björnsson 3,
Guðmundur Þórðarson, Sighvatur
Bjarnason og Bergur Stefánsson 1
mark hver.
Mörk Hauka: Sigurgeir Mart-
einsson 8, 4v, Ingimar Haraldsson
3, Lárus Karl Ingason 2, Helgi
Harðarson 2, Árni Sverrisson 1.
- ÞR.
Klaus kemur ekki
ÞÝSKI knattspyrnuþjálfarinn kunni
Klaus Hilpert, hefur gefið forráða-
mönnum ÍBV endanlegt afsvar, en
um tíma voru í gangi viðræður milli
aðilanna um að Hilpert kæmi hingað
til lands og þjálfaði lið ÍBV næsta
sumar. Eyjamenn eru með tvo landa
Hilperts undir smásjánni um þessar
mundir, en málin munu skýrast á
næstunni.
- hkj.
Eldaneytislokar, diaur og
dæluelement í fleatar gerðir
akipa- og bátavóla avo og
dieaelbíla og vinnuvélar.
Vestur-þýak gæðavara.
Atlas hf
Ármúla 7. - Sími 2í>7.">.*).
I’óstholf l!).{ - Kovkjavík.