Morgunblaðið - 18.12.1981, Síða 32
r*"
6dagar
til jóla
#ull & ;§>ilfur
Laugavegi 35
Bók með
þessu merki
má skipta í
bókaverslunum!
SKIPTIBÓK
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1981
Sultartangi:
Fram-
kvæmda-
leyfi ekki
veitt
„I»AÐ ER rétt að iðnaðar
ráðuncytið hefur óskað eftir
því við stjórn Landsvirkjunar
að Landsvirkjun meti á ný
orkuþörfina á árunum
1982—1984. Bréf var lagt
fram á stjórnarfundi í dag og
var þá verkfræðideildinni
falið að gera álitsgerð um
málið,“ sagði Jóhannes
Nordal stjórnarformaður
Landsvirkjunar í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Landsvirkjun ritaði iðnaðar-
ráðuneytinu bréf þann 20. október
sl. þar sem óskað var eftir fram-
kvæmdaleyfi vegna Sultartanga-
stíflu o« um sl. helgi var verkið
boðið út. Svar iðnaðarráðuneytis-
ins til Landsvirkjunar barst hins
vegar ekki fyrr en með bréfi dag-
settu 16. desember. Þar segir t.d.
að ekki séu horfur á að nýr um-
talsverður stórnotandi í orkukerf-
inu komi til, fyrr en þá á seinni
hluta ársins 1984, meðal annars
vegna þess að frestað hefur verið
byggingu þriðja ofnsins á Grund-
artanga um sinn. Þá segir í bréf-
inu að ráðuneytið muni ekki taka
afstöðu til framkvæmda við Sult-
artanga fyrr en álitsgerð Lands-
virkjunar liggi fyrir.
•4:
. .
wmrWKmrnm ' m «*
Jökulsá á Fjöllum hljóp úr farvegi sínum fyrir nokkrum dögum vegna jakaburðar og klakabanda við brúnna á ánni og um tíma
var brúin í mikilli hættu þegar ísruðningurinn var kominn alveg upp undir brúargólfið. En þá hljóp áin úr farvegi sínum við
annan enda brúarinnar og síðan hafa bifreiðar átt í vandræðum með að komast yfir, en ófæran sést vel hinum megin árinnar.
Myndina tók Ragnar Axelsson Ijósmyndari Mbl. við Jökulsá úr lofti í gær. Sjá grein og myndir á miðsíðu.
„Alvarlegt að þeir sem
stjórna fylgist ekki meÖ“
Forsætisrádherra miðar vid gamlar upplýsingar, segir Kristján Ragnarsson
„ÉG HEF aldrei fyrr orðið var við jafn ákveðin viðbrögð hjá
útvegsmönnum og undanfarna daga vegna ummæla ráðherranna
Svavars Gestssonar og Gunnars Thoroddsens um góða afkomu
útgerðarinnar. Svo virðist að þeir miði við gamlar upplýsingar frá
Þjóðhagsstofnun um afkomu útgerðar,“ sagði Kristján Ragnars-
son, formaður Landssambands ísl. útvegsmanna, þegar Morgun-
blaðið bar undir hann ummæli dr. Gunnars Thoroddsens forsæt-
isráðherra á alþingi í fyrradag, en þá sagði forsætisráðherra að
útgerðin í heild stæði nú betur rekstrarlega en sl. 10 ár og að
útgerðarmenn og sjómenn væru að reka á eftir sjálfum sér með
rekstrarstöðvun um áramót.
Kristján Ragnarsson sagði að
svo virtist sem þeir Gunnar Thor-
oddsen og Svavar Gestsson miðuðu
við niðurstöður Þjóðhagsstofnunar
um afkomu útgerðar eftir síðustu
fiskverðshækkun, sem gerð var áð-
ur en áhrif kauphækkana frá 1.
nóvember og 1. desember væru tal-
in með og áður en olía hækkaði um
7% og áður en áhrif gengisbreyt-
ingarinnar hefði verið metin vegna
erlendra aðfanga og gengis-
tryggðra lána. í þessu mati Þjóð-
Tillögur sjálfstæðismanna um skattalækkanir felldar:
Meirihlutinn samþykkti
55% hækkun fasteignagjalda
Hækkun fasteignagjalda er kjaraskerðing, segir Davíð Oddsson
VIÐ FYRSTU umræðu um fjárhagsáætlun Reykjavfkurborg-
ar, sem fram fór í gærkvöldi, felldi vinstri meirihlutinn í
borgarstjórn tillögur frá borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokks*
ins, þess efnis að fasteignaskattar, lóðarleiga og aðstöðugjöld
yrðu lækkuð. í tillögunum kom fram að hlutfall fasteigna-
skatta á íbúðarhúsnæði skyldi vera 0,421% í stað 0,5%, á
atvinnuhúsnæði 0,842% í stað 1,0% að viðbættri hækkun um
25%. l»á gerðu sjálfstæðismenn tillögu um að leiga verslunar-
og iðnaðarlóða skyldi vera 0,580% af fasteignamatsverði í
stað 1,0% eins og meirihlutinn gerði tillögu um. Einnig gerðu
sjálfstæðismenn tillögur um að aðstöðugjöld skyldu lækkuð.
Tillögur meirihlutans voru samþykktar.
I máli
oddvita
Davíðs Oddssonar,
borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins, kom m.a.
fram að þær álagningarprósentur
sem sjálfstæðismenn vildu að not-
aðar yrðu við álagningu fasteigna-
skatta, aðstöðugjalda og fl. væru
þær sömu og notaðar hefðu verið í
tíð meirihluta Sjálfstæðisflokks-
ins í borgarstjórn. Sagði Davíð að
skattheimtan í borginni væri úr
hófi gengin, fasteignagjöld myndu
hækka um 55% á hvern einstakl-
ing á næsta ári, en það væri mun
meira en laun hefðu hækkað á ár-
inu. Þetta væri kjaraskerðing og
ætti ekki aðeins við um fasteigna-
eigendur, heldur líka um leigjend-
ur, því hækkun fasteignagjalda
skilaði sér í hærri leigu húsnæðis.
„Það væri því kjarabót fyrir allar
fjölskyldur í borginni ef fasteigna-
gjöldin yrðu lækkuð,“ sagði Davíð.
Þá benti Davíð á að þrátt fyrir
mjög svo auknar tekjur borgar-
innar sæjust þess lítil merki í
auknum framkvæmdum. Gagn-
rýndi Davíð harðlega fjármála-
óstjórn meirihlutans í borgar-
stjórn.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Eg-
ill Skúli Ingibergsson, fylgdi fjár-
hagsáætluninni úr hlaði og gerði
grein fyrir henni. í máli hans kom
m.a. fram að heildartekjur borg-
arsjóðs skv. áætluninni verða
rúmar 957 milljónir króna og er
það 51,23% frá í fyrra.
hagsstofnunar væri gert ráð fyrir
verulegri aflaaukningu, sem ekki
hefði orðið í raun. Ennfremur væri
miðað við framreikninga á kostn-
aði útgerðarinnar frá árinu 1979,
sem ekki hefðu staðist.
„Nú er Þjóðhagsstofnun að meta
útgerðarkostnað miðað við reikn-
inga frá árinu 1980 og versnar þá
afkomumyndin verulega. Það er því
ljóst að útgerðin þarf sömu fisk-
verðshækkun og ekki minni en sjó-
menn og að stofnfjársjóður og olíu-
gjald haldist óbreytt," sagði Krist-
ján.
„Mjög alvarlegt er, að þeir sem
stjórna landinu fylgist ekki betur
með afkomu undirstöðuatvinnu-
vegs þjóðarinnar en raun ber vitni.
Eg tel stöðu útgerðarinnar vera
verri nú en í langan tíma og endur-
speglast það hjá viðskiptaaðilum
útgerðarinnar og í vanskilum út-
gerðarinnar við Fiskveiðasjóð og
Byggðasjóð," sagði Kristján enn-
fremur.
Um þá yfirlýsingu forsætisráð-
herra að útgerðarmenn og sjómenn
væru að reka á eftir sjálfum sér
með rekstrarstöðvun um áramót
sagði Kristján:
„Um þessa yfirlýsingu er fátt að
segja, því hún getur ekki hafa verið
meint eins og eftir honum er haft.
Forsætisráðherra er ljóst að í Yfir-
nefnd Verðlagsráðs sjávarútvegs-
ins sitja fulltrúar veiða og vinnslu
og formaður nefndarinnar er full-
trúi ríkisstjórnarinnar og hvorug-
ur aðili getur ákveðið fiskverð
nema með samþykki formanns
nefndarinnar. Ég ætla ekki forsæt-
isráðherra að vera svo ókunnugur
þessum málum að hann viti ekki að
ríkisstjórnin ákveður gengi krón-
unnar og ekki er hægt að mæta
hækkun innlends kostnaðar fyrir-
tækja í sjávarútvegi um 50% á ári,
þegar gengi krónunnar breytist að
meðaltali um 20%, eins og gerst
hefur á þessu ári.“