Morgunblaðið - 16.01.1982, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1982
FV
«!
f
« ii
fíltööur
á morgun
Guðspjall dagsins:
Jóh. 2: Brúðkaupið í Kana.
IXJMKIRKJAN: Kl. 11 messa.
Sr. Hjalti Guðmundsson. Kl. 2
messa. Sr. Þórir Stephensen.
Vænst er þátttöku fermingar-
barna og aðstandenda þeirra.
Dómkórinn syngur, organleikari
Marteinn H. Friðriksson.
ÁRBÆJARPRESTAKALL:
Barnasamkoma í safnaðarheim-
ili Árhæjarsóknar kl. 10.30 árd.
Guðsþjónusta í safnaðarheimil-
inu kl. 2. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
ÁSPRESTAKALL: Messa að
Norðurbrún 1 kl. 2. Sr. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Barnasakoma kl. 11 árd. Messa
kl. 14 í Breiðholtsskóla. Sr. Lár-
us Halldórsson.
BÚSTAf)AKIRKJA:Barna-
samkoma kl. 11 árd. Guðsþjón-
usta kl. 1. Mánud. 18. jan.:
Æskulýðsfundur kl. 20.30. Mið-
vikud. 20. jan.: Félagsstarf aldr-
aðra kl. 14—17. Sr. Olafur Skúla-
son.
DIGRANESPRESTAKALL:
Barnasamkoma í safnaðarheim-
ilinu við Bjarnhólastíg kl. 11.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 2. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
ELLIHEIMILIÐ GRIJND: Messa
kl. 2. Sr. Jón Kr. ísfeld fyrrv.
prófastur messar. Félag Fyrr-
verandi sóknarpresta
FELLA (X; HÓLAPRESTAKALL:
Laugard.: Barnasamkoma í
Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h.
Sunnud.: Barnasamkoma í Fella-
skóla kl.ll f.h. Guðsþjónusta í
safnaðarheimilinu að Keilufelli
1 Kl. 2 e.h. Sr. Hreinn Hjartar-
son.
G RENSÁSKIRK J A: Barnasam-
koma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Almenn samkoma nk. fimmtu-
dagskvöld kl. 20.30. Sr. Halldór
S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Messa fyrir heyrnarlausa og að-
standendur þeirra kl. 14. Sr. My-
ako Þórðarson. Þriðjud. 19. jan.
kl. 10.30: Fyrirbænaguðsþjón-
usta, beðið fyrir sjúkum. Kirkju-
skóli barnanna er á laugardög-
um kl. 2 í gömlu kirkjunni.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJ.A: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Tómas
Sveinsson. Messa kl. 2. Sr.
Arngrímur Jónsson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í Kársnesskóla kl. 11
árd. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11 árd. Sr. Árni Páls-
son.
LANGHOLTSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 2. Prestur sr. Pjetur
Maack. Organleikari Jón Stef-
ánsson. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14.
Altarisganga. Þriðjud. 19. jan.:
Bænaguðsþjónusta kl. 18. Æsku-
lýðsfundur kl. 20.30. Sóknar-
prestur.
NESKIRKJA: Laugard. 16. jan.:
Samverustund aldraðra kl. 3.
Ragnar Hinriksson sýnir nvyndir
frá Öræfum íslands o.fl. Sunnud.
17. jan.: Barnasamkoma kl.
10.30. Guðsþjónusta kl. 2.
Kirkjukaffi. Þriðjud. 19. jan.:
Æskulýðsfundur kl. 20.00. Mið-
vikud. 20. jan.: Fyrirbænamessa
kl. 18.15. Sr. Frank M. Hall-
dórsson.
SELJASÓKN: Barnaguðsþjón-
usta í Ölduselsskóla kl. 10.30.
Barnaguðsþjónusta að Selja-
braut 54 kl. 10.30. Guðsþjónusta
í Ölduselsskóla kl. 14. Sóknar-
prestur.
SELTJARNARNESSÓKN:Barna-
samkoma í Félagsheimilinu kl.ll
árd. Sr. Frank M. Halldórsson.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík:Messa
kl. 2. Organleikari Sigurður ís-
ólfsson. Prestur sr. Kristján
Róbertsson.
KIRKJA ÓHÁÐA safnaðarins:
Messa kl. 14. Sr. Árelíus Níels-
son prédikar. Safnaðarstjórn.
FÍLADELFÍUKIRKJAN: Sunnu-
dagaskóli kl. 10.30. Safnaðar-
guðsþjónusta kl. 14. Ræðumaður
Daniel Glad. Samkoma á vegum
Samhjálpar kl. 20. Stjórnandi
Óli Ágústsson. Fórn tekin til
Samhjálpar.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 10 árd. Bæn kl. 20
og hjálpræðissamkoma kl. 20.30.
Kaft. Daniel Óskarsson talar.
DÓMKIRKJA KRISTS Konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd.
Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa
kl. 2 síðd. Alla rúmhelga daga er
lágmessa kl. 6 síðd., nema laug-
ardaga þá kl. 2 síðd.
FELLAHELLIR: Kaþólsk messa
kl. 11 árd.
KFUM & KFUK Amtmannsstíg
2b: Samkoma á vegum Kristni-
boðssambandsins kl. 20.30. Bene-
dikt Arnkelsson guðfræðingur
talar. Tekið verður á móti gjöf-
um til kristniboðsins.
KIRKJA JESU Krists hinna siðari
daga heilögu, Skóiavörðust. 46:
Sakramentissamkoma kl. 14.
Sunnudagaskóli kl.15.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Bragi Frið-
riksson.
KAPELLA St. Jósefssystra í
Garðabæ: Hámessa kl. 2 síðd.
VÍÐISTAÐASÓKN: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 árd. Almenn
guðsþjónusta kl. 14. Sr. Sigurður
H. Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 2
siðd. „Ungt fólk með hlutverk"
aðstoðar. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN Hafnarf.: Barna-
tími kl. 10.30. Guðsþjónusta kl.
14. Fundur fermingarbarna í
Víðistaðaskóla í dag, laugardag
kl. 14. Safnaðarstjórn.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10 árd.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30 árd. Rúmhelga daga
messa kl. 8 árd.
INNRI NJARÐVÍKURKIRKJA.:
Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd.
sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa
kl. 11 árd. Sóknarprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa
kl.14. Sóknarprestur.
HEILSUHÆLI NLFÍ: Messa kl.
10.45. Sr. Tómas Guiðmundsson.
IX)RLÁKSHÖFN: Messa í skól-
anum kl. 14. Fundur með for-
eldrum fermingarbarna eftir
messu. Sr. Tómas Guðmundsson.
ÞINGVALLAKIRKJA: Barna-
messa kl. 14. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA.: Barnasam-
koma kl. 10.30. Messa kl. 14. Sr.
Björn Jónsson.
Lars Emil Johansen, iðnaðar og atvinnumálaráðherra Grænlendinga, með íslenzku fulltrúunum, sem eru: Sigurjón
Ásbjörnsson, Rafn A. Sigurðsson, Magnús Oddsson, Agnar Olsen, Guðmundur Magnússon og Andrés Svanbjörnsson.
Fulltrúar nokkurra íslenzkra fyrir
tækja ræddu við grænlensk stjórn-
völd um nánari samvinnu þjóðanna
DAGANA II. og 12. janúar voru full-
trúar nokkurra íslenzkra fyrirtækja
staddir í Nuuk (Godthaab) á Græn-
landi og ræddu við grænlenzku lands-
stjórnina og fulltrúa hinna ýmsu hags-
munasamtaka í Nuuk.
Þeir sem fóru þessa ferð, voru
Andrés Svanbjörnsson fram-
kvæmdastjóri Virkis h.f., Agnar
Olsen deildarverkfræðingur hjá
Landsvirkjun, Magnús Oddsson
markaðsfulltrúi Arnarflugs, Guð-
mundur Magnússon flugrekstrar-
stjóri Arnarflugs, Rafn A. Sigurðs-
son markaðsstjóri Sölustofnunar
lagmetis og Sigurjón Ásbjörnsson
ráðgjafi, sem jafnframt var farar-
stjóri, en Sigurjón er mjög kunnugur
málum á Grænlandi.
Islenzk stjórnvöld og heimastjórn-
in á Grænlandi hafa á sl. ári átt
viðræður um nánari samskipti þjóð-
anna á sviði sjávarútvegs, orkumála,
iðnaðarmála, samgöngu- og ferða-
mála o.fl. og í framhaldi af því höfðu
hinir íslenzku aðilar frumkvæði að
þessari heimsókn.
Islenzku fulltrúarnir áttu mjög
vinsamlegar viðræður við Lars Emil
Johansen landsstjórnarmann og
Emil Abelsen forstöðumann At-
vinnumálastofnunarinnar á Græn-
landi. Ennfremur ræddu þeir við
stjórnendur Grönlandske Tekniske
Organisation, Godthaab Fiskeind-
ustri, Grönlandsfly a/s og Godthaab
Turistforening o.fl.
Rætt var m.a. um ráðgjöf við
byggingu orkuvera, jarðhitarann-
sóknir og fiskvinnslu. Þess jná geta
að öll orka á Grænlandi er nú fengin
úr innfluttri olíu, en í undirbúningi
eru nú áform um nýtingu innlendra
orkugjafa, en þar gæti reynsla okkar
á þessum sviðum orðið þeim að
gagni.
I viðræðunum um fiskveiðar og
fiskvinnslu kom fram áhugi á nán-
ara samstarfi við Islendinga m.a. á
sviði rækjuvinnslu og um markaðs-
samstarf á erlendum mörkuðum.
Á undanförnum árum hafa Arnar-
flug og Grönlandsfly a/s átt gott
samstarf, sem áformað er að efla
m.a. með reglubundnu flugi milli
landanna, en eitt af skilyrðum fyrir
auknu samstarfi þjóðanna er, að
samgöngur verði efldar. Fram kom,
að grundvöllur er fyrir auknum
ferðamannastraumi milli landanna.
í iðnaðarmálaum var einkum rætt
um áframhaldandi samstarf við ís-
lendinga varðandi ráðgjöf og við-
skipti í tengslum við núverandi
þróunaráætlun í ullarvinnslu og nýt-
ingu, en fyrsta skrefið til slíks sam-
starfs var stigið undir forystu Iðn-
aðardeildar Sambands íslenzkra
Samvinnufélaga á Akureyri á síðast-
liðnum vetri. Var við þetta tækifæri
gengið frá sölu á einu tonni af ís-
lenzkum hespulopa til Grænlands,
sem hluta af væntanlegum frekari
lopaviðskiptum.
Lars Emil Johansen lagði mikla
áherzlu á að hægt yrði að koma á
samstarfi við íslendinga og rómaði
frumkvæði það, sem tekið hefði verið
með þessari heimsókn.
í lok heimsóknarinnar var haldin
sameiginlegur blaðamannafundur
með heimastjórhinni og hinum ís-
lenzku fulltrúum.
Sex landa fundur
um verndun laxins
Utanríkisráóuneytið hefur í nafni
ríkisstjórnar íslands boðað til al-
þjóðlegs fundar hér á landi um lax-
veiðar. Hefst fundurinn á mánudag
og stendur í eina viku og mun ætlun-
in að reyna að komast að samkomu-
lagi um verndun laxins á Norður
Atlantshafi.
Sex ríki munu taka þátt í fund-
unum auk fulltrúa frá Efnahags-
bandalaginu, það eru Kanada, Sví-
þjóð, Danmörk fyrir hönd Fær-
eyja, Island, Bandaríkin og Noreg-
ur. Fyrirkomulag fundanna er
ekki endanlega ákveðið, en það
verður að lokinni setningu á
mánudag.
Sex verkalýðsfélög í Skagafirði:
Virkja á Blöndu
eftir tilhögun I
Morgunblaðinu hefur borizt eftir
farandi ályktun sameiginlegs fundar
stjórna, Verkakvennafélagsins Öld-
unnar, Sauðárkróki, Verkalýðsfé-
lagsins Ársæls, Hofsósi, Verka-
mannafélagsins Fram, Sauðárkróki,
Iðnsveinafélags Skagafjarðar og
Vörubílstjórafélags Skagafjarðar:
„Fundurinn lýsir áhyggjum sín-
um yfir því hve dráttur hefir orðið
á endanlegri ákvörðun stjórnvalda
um virkjun Blöndu. Bendir fund-
urinn á lágar tekjur íbúa Norður-
lands vestra og að ýmsir þættir
atvinnulífsins eru veikir og tækni-
leg þróun þess hægfara, miðað við
það sem annarsstaðar gerist. Er
því ljóst að stórframkvæmd sem
virkjun Blöndu muni verða veik-
burða atvinnulífi svæðisins mikill
styrkur.
Jafnhliða virkjunarfram-
kvæmdum þarf að hefja öfiugt
átak til uppbyggingar atvinnulífs-
ins og fyrirtækja sem m.a. byggja
sína tilveru á raforku.
Fundurinn telur, að miðað við
þær upplýsingar sem fyrir liggja
um virkjunartilhögun við Blöndu,
beri að fara eftir svokallaðri til-
högun I, að fengnu skynsamlegu
samkomulagi við landeigendur um
bætur vegna þess lands sem fer
undir vatn í fyrirhuguðu miðlun-
arlóni.
Fundurinn telur rangt að tala
um eyðileggingu á því landi Sem
undir miðlunarlónið fer, heldur
verði um að ræða aðra nýtingu
þess, sem komi íbúum kjördæmis-
ins og þjóðarheildinni ekki síður
að notum.
Fundurinn harmar þær deilur
sem uppi eru um virkjunartilhög-
un og telur, að náist ekki sam-
komulag eigi stjórnvöld að tryggja
með nauðsynlegum aðgerðum, að
andstaða einhvers hluta lendeig-
enda komi ekki í veg fyrir fram-
kvæmdir."
Flugslys:
Leiðrétting
í frásögn Morgunblaðsins af flug-
slysinu í Washington í gær er birtur
listi yfir mestu flugslys í sögunni. List-
inn er byggður á fréttaskeyti AP-
fréttastofunnar. þar er sagt að a.m.k.
199 hafi farist er IX -8 þota frá Flug-
leiðum hrapaði við ('olombo á Sri
Lanka í nóvember 1978.
Að sögn Skúla Jóns Sigurðssonar
hjá Loftferðaeftirlitinu eru upplýs-
ingar í skeytinu ekki réttar, í slysinu
hafi farist 183, þar af átta menn úr
áhöfn. Þotan hefði verið í eigu Loft-
leiða, ekki Flugleiða, hefði ekki
hrapað, heldur farist í aðflugi. Miðað
við tölur Skúla er slysið á Colombo
þá níunda mesta flugslysið frá upp-
hafi, en ekki hið sjöunda.