Morgunblaðið - 16.01.1982, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.01.1982, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1982 Flugslysið í Washington: Fórnaði lífí sínu svo aðrir kæmust lífs af Wa.shint;lon, 15. janúar. Al*. MIÐALIIRA maður fórnaði líH sínu svo að aðrir farþegar úr þotu Air Florida, sem hrap- aði í 1‘otomac-ána í Washing- ton, mættu bjargast. Rétti hann alltaf öðrum björgunar línu sem varpað var til hans úr þyrlu, og þegar hann var einn eftir í vatninu og þyrlan á leið til hans, þrutu kraftar mannsins svo hann sökk og hvarf í ána. „Eg hef aldrei séð neinn fórna sér svona, hann ætl- aði að verða síðastur í land. I mínum augum er þessi maður hetja," sagði annar þyrlumaðurinn sem bjarg- aði fimm farþegum úr þot- unni upp úr jökulkaldri ánni. Annar tveggja þyrluflug- mannanna var læknir og sagðist sjá illa slasað fólk nær daglega og því vera orðinn ýmsu vanur og kippti sér vart upp. „En þegar ég þurfti að skýra frá því að maðurinn hefði horfið í ána, brustu fram tár og hann var þeirra verður." Þyrlumennirnir töldu sig mundu þekkja manninn af myndum, hann hefði verið um 55 ára, með mikið yfir- varaskegg og hár farið að þynnast. Flugmaður annarrar þotu sá ísingu á þotu Air Florida \N a.shinglon, 15. janúar. Al’. KAFARAR telja sig hafa fund- ið þann hluta úr Boeing 737-þotu Air Florida er hrapaði ofan í Rotomac-ána í höfuðborg Bandaríkjanna á miðvikudag, sem inniheldur „svörtu kass- ana“ svokölluðu, sem inni- halda fjarskipti og samtöl í flugstjórnarklefa og ýmsar upp- lýsingar um flug þotunnar síð- ustu 30 mínútur fyrir slysið. Fundu kafararnir þennan hluta braksins fyrir myrkur í gær, en gátu ekki athafnað sig og verður reynt að ná brakinu upp í dag. Vonast er til að nálgast megi skýring- una á því hvað orsakaði slys- ið þegar svörtu kassarnir finnast. Af hálfu rannsóknaraðila beinist athyglin að mestu leyti að því hvort ísing og snjór á flugvélinni hafi orsakað slysið. Grunur leikur á, að meðan þotan beið í klukkustund eftir flugtaks- heimild hafi snjór og ísing hlaðist á hana, því útkoma var allan tímann. Flugmaður á Braniff-þotu sagðist hafa séð ísingu á skrokk þotunnar og vængjum er hún ók út á flugbrautina. Meðan þotan stanzaði í Washington var ísvarnarefni, glýkóli, sprautað á hana tvisvar til þrisvar sinnum. Liðu 40 mínútur frá síðustu sprautun þar til þotan ók út á flugbrautina. Það er ekki nóg að ísing auki verulega á hleðslu flug- vélar, heldur raskar hún öliu jafnvægi hennar og flugeig- inleikum, m.a. dregur veru- lega úr lyftigetu vængjanna. Auk ísingarinnar beinist athyglin að veðurfarsaðstæð- um og aðstæðum á flugbraut- inni, en einhver krapi var á henni þegar þotan reyndi flugtak. Þá er ekki útilokað að um hreyfilbilun hafi verið að ræða, og að jafnvel hafi verið sett á hana óhreint eldsneyti. Misheppnuð innrás á Haiti BANDARÍSKA strandgæzlan skýrði frá því að Bernard Sansaricq, leið- (ogi burtflutlra Haiti-manna er gerðu innrás á eyna Tortuga við llaiti, hefði verið tekinn fastur ásamt 25 fylgisveinum sínum og væru þeir á leið til Miami þar sem þeirra biðu réttarhöld. Grunur leikur á að tveir Banda- Dollar lækkar hmdon, 15. janúar. Al*. VERD á dollar féll á evrópskum gjaldeyrismörkuðum í morgun, eftir talsverða hækkun í gær og fyrradag. Gullverð stóð hins vegar í stað, fyrst og fremst fyrir ákvörðun gullkaupmanna. Verðlækkunin á dollar var óveruleg, en talið eðlilegt að hin öra verðlækkun á gulli stað- næmdist eða hægði á sér. Gull- verð hafði lækkað vegna auk- innar gullsölu Rússa og Suður- Afríkumanna. ríkjamenn hafi tekið þátt í valda- ránstilrauninni á Haiti, sem virð- ist hafa farið út um þúfur er hafð- ar voru hendur í hári Sansaricq og 25-menninganna. Þó var skýrt frá því af opinberri hálfu í Port-au- Prince að sumir innrásarmann- anna væru enn á Haiti og ættu í útistöðum við stjórnarhermenn. Starfsmaður bandaríska sendi- ráðsins í Port-au-Prince sagði að einhverjir hefðu særst í skotbar- dögum innrásarmanna og stjórn- arhermanna, en enginn fallið. Talsmaður stjórnarinnar sagði að 43 innrásarmannanna hefðu náðst og væru í haldi, en sjónvarpið á Haiti sagði þrjá hafa látið lífið í átökum. Utanríkisráðuneytið í Washington sagðist hafa heimild- ir um að fimm innrásarmannanna hefðu verið felldir og einn náðst á lífi. Sansaricq og félagar hans voru teknir fastir skömmu eftir að þeir reyndu að flýja frá Tortuga eftir misheppnaða innrás. Bilaði bátur þeirra og var hann tekinn í tog til Florida. Tilgangur Sansaricq og félaga hans með innrásinni var að velta Jean-Claude Duvalier for- seta Haiti úr sessi. Þrjú ár fyrir ad ætla að meiða Thatcher D>ndon, 15. janúar. Al*. ÁTJAN ára námsmaður, Nigel Kastmond, var í dag hreinsaður af ákæru um að hafa ætlað að ráða Margaret Thatrher, forsætisráð- herra Bretlands, af dögum, en dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir ólöglegan vopnaburð, tilræði við starfsmann þingsins og fyrirætlanir um líkamsárás á forsætisráðherra. Kastmond er þjóðfélagsfræði- stúdent frá norðurhluta Ijondon. Hinn 9. júlí síðastliðinn braust hann inn á lóð lávarðadeildar brezka þingsins með 25 sentimetra brauðhníf að vopni. Öryggisvörð- um tókst að yfirbuga hann eftir átök í bakgörðum húsakynna lá- varðadeildarinnar. Bastmond viðurkenndi eftir að hann var handtekinn, að hann hefði ætlað sér að myrða forsæt- isráðherrann. Hann sagðist ekki vera geðsjúkur. Seinna saRðist hann ekki hafa haft uppi nein áform um að valda neinum manni meiðslum, hefði látið þessi orð falla við lögreglu þar sem honum þótti mótmælaaðgerðum sínum sýnd lítil athygli. Eastmond er kommúnisti, róttækur vinstri- sinni, að eigin sögn. Guatemala: Borgarastyrjöldin gerist æ blóðugri (^uatemalaborg, 15. janúar. Al*. BORGARASTYRJÖLDIN í Guate mala gerist æ blóðugri og hafa sam- tals 260 manns fallið það sem af er árinu. Á fyrra ári féllu að jafnaði 300 manns á mánuði hverjum og er auk- ið mannfall nú rekið til fyrirhugaðra kosninga 7. mars nk. og mikilla árása hersins á bækistöðvar skæru- liða að undanförnu. I Guatemala situr hægri sinnuð herforingjastjórn og gegn henni berjast fern samtök vinstrimanna. Flest morðin er kennd dauðasveit- unum svokölluðu úr herbúðum beggja, sem fara myrðandi um landið og skeyta engu hverjir verða fyrir barðinu á þeim. Sl. þriðjudag var t.d. ráðist inn á heimili manns nokkurs og hann drepinn og öll hans fjölskylda, 12 manns á aldrinum 6—65 ára. I Guatemala eiga þingkosn- ingarnar að fara fram 7. mars nk. og eru skæruliðar sagðir þeim andsnúnir og vilja reyna að koma í veg fyrir þær. Þeim er þó ekki kennt um flest morðin, að sögn kirkjunnar og mannréttindasam- taka eru hægrimenn stórvirkari í þeim efnum. Dóttir saudi arabísks sendiráðsmanns í Stokkhólmi: Hljóp frá foreldrunum og mannsefninu þeirra Stokkhólmi, 15. janúar. Al*. SIDAMEISTARI sænska utanrík- isráðuncytisins tilkynnti í dag sendi- ráði Saudi-Arabíu í Stokkhólmi, að dóttir eins sendiráðsmannsins, sem saknað hefur verið um þriggja vikna skeið, væri ekki lengur stödd í Sví- þjóð og hefði allri leit verið hætt af þcim sökum. Málavextir eru þeir, að Ablah Fathi, 18 ára gömul dóttir eins helsta sendiráðsmanns Saudi- Araba í Svíþjóð, hljópst í burtu í þann mund sem hún átti að halda til síns heima með foreldrum sín- um og giftast þar manni, sem þeir höfðu valið henni. Sagt er, að Abl- ah hafi verið farin að kunna vest- rænum lífsháttum vel og ekki get- að hugsað sér að taka aftur upp siðvenjur síns fólks. I sænskum blöðum er þessu máli gerð mikil skil og segir í einu, að fjölskylda Ablah hafi ráðið í þjónustu sína einkalög- reglumenn til að hafa uppi á henni og koma henni heim með valdi, ef ekki vildi betur. Einnig segir, að með því framferði sínu að neita að giftast þeim manni, sem fjölskyldan hafði valið henni, hafi stúlkan gerst sek um glæp, sem dauðarefsing lægi við í Saudi-Arabíu. I sumum blöðum segir, að það hafi síðast frést af Ablah, að hún hafi dvalið nætursakir á hóteli á einhverri ónefndri eyju í Vestur- Indíum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.