Morgunblaðið - 16.01.1982, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1982
31
fclk í
fréttum
Prinsessa
giftist
+ Þetta er hún Chulabhorn og
þessi ungi maður sem heldur
um handlegg henni, er maður-
inn hennar. Hann heitir Vira-
yuth Didyasarin og er yfirmað-
ur í flughernum tæilenska, en
Chulabhorn er engin önnur en
sjálf prinsessan af Tælandi.
Þau gengu nýlega í hjónaband
og þá var mikið um dýrðir og
almenningur tælenskur fagnaði
þessu brúðkaupi og flykktust á
götur út, eins og myndin sýn-
ir...
Pólitískur
fíóttamaður
+ Hinn 20. desember síðastlið-
inn baðst sendiherra Póllands í
Bandaríkjunum, Romuld Spas-
owski, landvistarleyfis þar í
landi sem pólitískur flóttamað-
ur. Romuld er einn reyndasti
stjórnarerindreki Póllands og
víst er að þessi ákvörðun hans
hefur verið kommúnistum í
Póllandi áfall. Myndin sýnir
Romuld og konu hans, Wöndu, á
göngu með Ronald Reagan,
Bandaríkjaforseta, nokkru eftir
að Romuld hafði opinberað
ákvörðun sína, en þeir höfðu átt
viðræður saman, pólski sendi-
herrann fyrrverandi og Banda-
ríkjaforseti í Hvíta húsinu ...
Hörmulegt
slys
+ Óhugnanlegt slys varð í Long
Beach í Kaliforníu nýverið. Ungl-
ingur lést af raflosti, er hann
reyndi að losa flugdrekann sinn,
sem flækst hafði um rafmagnslín-
ur. Pilturinn hafði klifrað upp
staurinn, en um leið og hann
reyndi að losa flugdekann læstist
rafmagnsstraumurinn um hann og
hann gat ekki losað sig. Vinir hans
kölluðu á hjálp, en það tókst ekki
að bjarga honum frá jörðu. Það
tók 45 minútur að loka fyrir raf-
magnið í þessum línum. Þá foru
starfsmenn orkufyrirtækis nokk-
urs upp staurinn og losuðu líkið og
létu það síga til jarðar ...
Nemendur á Selfossi:
Yfirlýsing lög-
reglunnar alröng
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi athugasemd frá nem-
endum í Gagnfræðaskólanum á
Selfossi:
„í fréttatilkynningu frá Lög-
reglunni í Árnessýslu, sem birzt
hefur í fjölmiðlum um þrett-
ándaóeirðir á Selfossi, segir orð-
rétt: „Það er rangt að lögreglan
hafi beitt kylfum á unglingana
umrætt sinn.“
Þetta er alröng yfirlýsing, þar
sem 11 unglingar á aldrinum
13—15 ára staðfestu að þau
hefðu orðið fyrir meiri eða
minni háttar kylfuhöggum og
fjórir aðrir fullyrtu að snúið
hefði verið upp á handlegg og
eru þessar yfirlýsingar í fórum
Ungmennafélags Selfoss og
Nemendaráðs Gagnfræðaskól-
Sjómannafélag
ísfirðinga:
Seinagangur
við fiskverðs-
ákvörðun
fordæmdur
FUNDUR, sem haldinn var í stjórn
og trúnaðarmannarádi Sjómannafé-
lags Isfirðinga á miðvikudag for
dæmdi seinagangin sem nú er við
ákvörðun fiskverðs.
í ályktun frá fundinum segir, að
varað sé við að farin verði sama
leið og við síðustu fiskverðs-
ákvörðun. Þá mótmælir fundurinn
hugmyndum um að minnka verð-
mismun milli 1. gæðaflokks og
lakari gæðaflokka og ennfremur
segir ef kassauppbót verði skert,
muni það ekki leiða til vöruvönd-
unar.
ans. í flestum tilfellum áttu hlut
að máli ónúmeraðir lögreglu-
þjónar.
I grein númer 19 í barna-
verndarlögum segir, að börn
innan 18 ára aldurs megi ekki
handtaka án þess að hafa sam-
band við foreldra þeirra.
Á meðan á dansleiknum stóð
voru allan tímann 1—3 lögreglu-
bílar í nágrenninu þó svo að
þess væri ekki þörf. Hefði ungl-
ingunum verið gefið forskot til
að komast heim af dansleiknum
hefðu einungis þeir seku orðið
eftir. Raunin var önnur, krakk-
arnir voru handteknir á hlaði
samkomuhússins um leið og
dansleiknum lauk.
Nemendur Gagnfrædaskóla
Selfoss.“
SPE RxY^\/ÍCKERS]
1* POWER ANO MOTtON ^“1
CONTROL SYSTEMS |
Háþrýstidælur, mótorar,
ventlar og stjórntæki í
vökvakerfi til sjós og
lands.
Einkaumboö á íslandi.
Atlas hf
ÁRMULA 7 SÍMI 26755